Morgunblaðið - 21.07.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.07.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978 21 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Ungt par óskar eftir aö taka íbúö á leigu, helzt í gamla bænum. Reglusemi og góöri umgengni heitiö. Fyrirfram- greiösla ef óskaö er. Vinsamlegast hringiö í síma 13736 milli kl. 19 og 20. Bifreiðaviögerðir Óskum eftir aö ráöa mann vanan bifreiöaviögeröum. Bifreiöastöö Steindórs s/f. Sími: 11588 og 13127. AUGLÝSINGASÍMINN ER: . 22480 JMargunbtahih R:S 2 herb. og eldhús meö húsgögnum til leigu. Áriö fyrirfram. Upplýsingar í síma 53556. Munið sérverzlunina meö ódýran fatnað. Verðlistinn, Laugarnesvegi 82, S. 31330. Föstud. 21/7 kl.20 1. Sprengisandur, Laugafell, Kiöagil, Fjórö- ungsalda og víöar í fylgd með Jóni I. Bjarnasyni. 2. Þórsmörk, Fararstj. Erl- ingur Thoroddsen. Farseöl- ar á skrifst. Lækjarg. 6a sími 14606. Versi.mannahelgi 1. Þórsmörk 2. Gæsavötn-Vatnajökull 3. Lakagígar 4. Hvítárvatn - Karlsdráttur 5. Skagafjöróur, reiötúr, Mælisfellshnúkur Útivist Föstudagur 21. júlí kl. 20.00 1) Þórsmörk, 2) Landmannalaugar — Eldgjá, 3) Hveravellir — Kerlingarfjöll, 2) Gönguferö yfir Fimmvöröu- háls. Fararstjóri: Finnur Fróða- son. Farmiðar seldir á skrifstofunni. Laugardagur 22. júlí kl. 13.00 1) Skoöunarferð í Bláfjallahella, eitt sérkennileg- asta náttúrusmíö í nágrenni Reykjavíkur. Hafiö góö tjós meðferðis. Fararstjóri: Siguröur Kristinsson. 2) Fjallgrasaferö i Bláfjöll: Hafiö ílát meöferöis. Fararstjóri: Anna Guömundsdóttir. Verö kr. 1500 gr. v. bílinn. Fariö frá Umferöamiöstööinni aö austan- veröu. Ferðafélag íslands. Air Bahama 10 ára Ný gerð sjúkraskráa rædd á þingi um læknisfræðimenntun Tönllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Kóra- heim- sóknir UNDANFARNAR vikur hafa kórar frá Norðurlöndunum heimsótt Island og eru þessar heimsóknir meira og minna óskipulagðar og fer hljóm- leikahald kóranna því að mestu út um þúfur. Hér er aðallega um að ræða áhuga- kóra og er frekar lítil viðbót að framlagi þeirra fyrir ís- lenzka tónmennt. Þeir, sem lenda í þeirri aðstöðu að vera kórfólkinu til aðstoðar hér- lendis, ættu að leggja áherzlu á, að hljómleikar eru nær óhugsandi um og eftir mitt sumar, eina tímann sem Islendingar geta átt von á sæmilegu veðri. Doremi kór- inn frá Gautaborg var síðast- ur kóra hér í heimsókn dagana 8. til 18. júlí og söng meðal annars í Lindarbæ, fyrir um það bil 30 áheyrend- ur. Efnisskráin var byggð á sænskum alþýðulögum, tveimur íslenskum söngvum, nokkrum lögum frá Mið-Evr- ópu, galdralagi frá Tahiti og dægurlagasvrpu eftir Sven Asmunssen. Stjórnandi kórs- ins Stig Ring raddsetti tvö íslenzku lögin á efnisskránni og kom það skýrt fram, eins og ávallt áður er erlendir menn ætla að raddsetja og móta íslenzka tónlist, að úr tiltækinu varð skrípamynd, sams konar og þegar íslend- ingar taka til að útsetja erlend lög. Sænsku alþýðulög- in voru skemmtilegust, en lögin eftir Marenzio, Lasso og svo Swingel Singers útgáfa á lagi eftir Bach, var fyrir neðan þau mörk sem jafnvel áhugamannakór getur leyft sér. Þess ber að geta að aðeins helmingur kórsins var í þess- ari ferð. Inngöngustefið (ekki tilgreint í efnisskrá), Polska eftir Röjas Jonas, Sa skimrande var aldrig havet eftir Evert Taube og Husar- visa eftir Ture Rangström, voru beztu lög kórsins. Jón Asgcirsson í gær. 20. júlí, voru tíu ár liðin frá því að þota Intcrnational Air Iiahama fór sína fyrstu ferð með farþcga frá Luxcmbourg til Nassau. en félagið hafði verið stofnað einu og hálfu ári áður. Það var fyrst í eigu breskra aðila en síðar bandarfskra. en vegna samkcppni á Atlantshafsleiðum fengu Loftleiðir áhuga á þessu félagi og gengið var frá kaupum á því árið 1969. Eftir að Air Bahama komst í eigu Loftleiða voru sölukerfi félaganna samræmd og lét árang- ur ekki á sér standa og á síðasta ári flutti félagið 82 þús. farþega í áætlunarflugi. Var þar um að ra'ða aukningu frá fyrra ári um tiAVr og sadanýting var 7G.5'5r. Síðustu tvö ár hefur félagið tekið að sér leiguflug í auknum niæli og flutti sl. ár 10.500 farþega í slíkum ferðum. Félagið hefur lagt áherslu á að fá flugréttindi bæði til Lundúna og Frankfurt am Main og hefur sendinefnd frá stjórn Bahama heimsótt London og Bonn til að greiða fyrir leyfisveitingum Standa vonir til að Lundúnaflug geti hafist fijót- lega. Fyrirgreiðsla fyrir ferðamenn og tekjur af ferðafólki nema uni 73% af tekjum Bahamabúa og vinna um 447í verkfærra manna við ferðamennsku. Fyrir nokkrum árum varð samdráttur í ferðum til eyjanna, en nú hefur rofað til að nýju og sagði Guillermo de Freitas, yfirmaður Air Bahama í Nassau, nýlega að allt benti til að þetta ár yrði félaginu hagstætt og þá jafnframt eyjaskeggjum. Ferðamenn frá Evrópu hefðu heinisótt Bahama í vaxandi mæli að undanförnu og myndi að öllurn líkindum sama þróun verða í framtíðinni. A síðasta ári flutti Air Bahania fleiri farþega til eyjanna en British og Lufthansa samanlagt og eru nú enda líkur á að Bahamabúar gerist eignaraðil- ar að félaginu. Air Bamhama hefur DC-8-63 þotu á leigu frá Flugleiðum og í sumar eru flognar fimm áætlunar- ferðir í viku milli Luxemborgar og Nassau. Um helmingur flugfreyja félagsins er frá Bahama og þaðan eru einnig þrír flugmenn, en annars er starfsfólk félagsins af ýmsu þjóðerni. Yfirstjórn félagsins er í Reykja- vík og er Sigurður Helgason forstjóri þess. Bókhaldsdeild féiagsins er á skrifstofu Flugleiða í New York. Frá Reykjavík er flugrekstri og sölumálum félagsins stjórnað, en flugdeild þess er í Nassau og í Miami á Flórída. Næstkomandi sunnudag. hinn 23. júlí. verður haldin hin árlega Skálhidtshátíð. Verður hún með hefðbundnu sniði og verður messa kl. 11 og klukkan 16.30 samkoma í kirkjunni. A undan messunni verður organleikur frá kl. 13.10 og er Ilaukur Guðlaugsson organleik- ari. Biskup Islands hr. Sigur- hjiirn Einarsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Guðmundi Óla Ólafssyni. Skál- holtskórinn syngur og eru for- söngvarar Ingvar Þórðarson. Bragi Þorsteinsson og Sigurður Erlendsson. Trompetleik annast Jón Sigurðsson og Lárus Sveins- son og söngstjóri er Glúmur Gylfason. SAMBAND um mcnntun í læknis- fra'ðum á Norðurlöndum hélt fyrir nokkru þing sitt á Akur- eyri. en slík þing eru haldin á einhverju Norðurlandanna annað hvert ár og auk fulltrúaþings og aðalfundar samhandsins er hald- in vísindaleg ráðstefna um leið. Samhandið er nefnt á norður- landamálum Nordisk Fedcration för Medicinsk Undervisning NFFMU. Þetta er í fyrsta sinn serr aðalfundur og kennsluráðstefna NFFMU er haldin hér á landi, en einu sinni áður hafa samtökin haldið fund hérlendis um sam- menntun heilbrigðisstétta og nýj- ungar í skipulagi heilbrigðisþjón- ustu, en það var árið 1974. Jafnframt þingstörfum var haldin ráðstefna um nýjungar í ritun sjúkraskráa og segir í frétt frá undirbúningsnefnd þingsins m.a.: „Þessi ráðstefnuþáttur þinghaldsins um sjúkraskrárnar fór að nokkru leyti fram sem námskeið um nýja gerð sjúkra- skráa, auk umræðufunda og sam- Samkoman kl. 16.30 hefst með organleik dr. Finns Viderö og leikur hann verk eftir Buxtehude, Carl Nielsen og Christensen. flutt verður verkið Lofsöngur eftir Þorkel Sigurbjönsson og eru flytjendur kór Háteigskirkju nteð einsöngvurunum Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur, Rut Magnússon, Friö- birni G. Jónssyni og Halldóri Vilhelmssyni og félögum úr Sin- fóníuhljómsveit íslands undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Ræðu flytur Björn Þorsteinsson prófessor og lýkur samkomunni með ritningalestri og bæn í umsjá sr. Heimis Steinssonar rektors. I tengslum við Skálholtshátíð verða ferðir frá Umferðarmiðstöð- inni í Reykjavík kl. 11 og frá Skálholti kl. 18. ráðs þar sem menn báru saman bækur sínar um reynslu af nýj- ungum á þessu sviði austan hafs og vestan. Kennarar á námskeið- inu voru Lawrence Weed, Leslie J. Sandlow og Philip Bashook frá Bandaríkjunum, en Max Rendall frá Bretlandi gerði grein fyrir re.vnslu þar í landi af nýrri gerð sjúkraskráa. Flestir þeir íslenzkir læknar, sem reynslu höfðu af þeirri gerð sjúkraskráa, sent hér var til umræðu, tóku þátt í umræðunum og Guðmundur Pét- ursson héraðslæknir á Egilsstöð- um gerði grein fyrir reynslu sinni af hinni nýju gerð sjúkraskráa. Þessi nýja gerð sjúkraskráa hefur verið nefnd „vandaliðuð sjúkra- skrá (problem oriented medical records) og er frábrugðin sjúkra- skrám í hefðbundnu formi í veigamiklum atriðuni, en menn hafa á síðustu árum gert sér æ betri grein fyrir þvi að slíkum sjúkraskrám er um margt ábóta- vant.“ Vandaliðuð sjúkraskrá er frá- brugðin þeirri hefðbundnu að því leyti að þær upplýsingar, sem safnað er um sjúklinginn, eru flokkaðar eftir þeim vandamálum, sem að honum steðja, en ekki eftir uppruna upplýsinganna. „Með þessu móti gefur sjúkraskýrslan skýrari mynd af, þeirn yandamál- um sjúklingsins sem mestu máli skipta og fyrir bragðið verður auðveldara að sinna þeim fljótt og vel. Ennfremur verða upplýsingar í sjúkraskýrslunum aðgengilegri fyrir tölfræðilega úrvinnslu og því verða læknisfræðilegar rannsókn- ir svo eg mat á gæðum heilbrigðis- þjónustunnar og skipulag og hag- ræðing í henni auöveldari," segir ennfremur í fréttinni. Guðmundur Sigurðsson héraðs- læknir á Egilsstöðuni skýrði á þinginu frá reynslu sitini af þessu kerfi, en hann tók það upp fyrstur mann með skipuleguni hætti árið 1976 og styðst heilsugæzlustöðin á Egilsstöðum eingöngu \iö sjúkra- skrár sem ritaðar eru eftir þessu kerfi. Kvað Guðmundur alla pappírsvinnu mun minni og væru allir starfsmenn heilsugæzlustöðv- arinnar sammála um ágæti þessa nýja kerfis. NFFMU var stofnað árið 1966 og er markmið samtakanna að stuðla að framförum í kennslu í læknis- íra'öi og öðrum heilbrigðisfra'ðum á Norðurlöndum. Til þess að ná þessu markmiði skipuleggur sani- bandið námskeið, samráðsfundi, ráðstefnur og upplýsingamiðlun tneð ýmsu móti. A aðalfundi samtakanna eru rædd mál er varða framfarir í kennslu og menntun lækna og hefur það á undanförnum árutn í vaxandi mæli beitt sér fyrir framförum um menntun annarra heilbrigðisstétta Framhald á bls. 19 Skálholtshátíd á sunnudaginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.