Morgunblaðið - 21.07.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
31
.pST.'sÍ" la
/ .
*!\ • -xiöd*-*..
v
'' - •' >■ V <■
Þorvaldur AsBCÍrsson Kolfkcnnari og Ævar Auðbjörnsson forystumaður golfmála á Eskifirði fylxjast með
unKum Eskfirðin>?um pútta. Ljósm. Ágúst Ingi Jónsson.
Gróskumikið íþrótta-
starf á Austfjörðum
AUSTFIRDINGAR hafa staðið sig vel í 2. deildinni í knattspyrnu í sumar Þorvaldur Ásgeirsson golfkennari
og fulltrúar Austfirðinga í aðalkeppni bikarkeppni KSÍ, Vopnfirðingar, hafa
ekki síður komið á óvart. En pað er ekki aöeins knattspyrna, sem er
stunduð á Austfjörðum. Nýlega fór fram Austurlandsmót í frjálsum
ípróttum og par voru félögin frá Egilsstöðum og Borgarfirði eystra fremst
í flokki. j sundinu eru Eskfirðingarnir dugmestir og á Austurlandsmótinu
í sundi, sem fram fór á Neskaupstað fyrir nokkru, tókst Guðmundi Bjarna
Kristinssyni að sigra í öllum karlagreinunum nema einni og par sigraði
Stefán bróðir hans. Golfáhugi fer vaxandi eystra og nýlega var Þorvaldur
Ásgeirsson golfkennari á feröinni eystra og leiöbeindi par um 70 manns.
Og Austurlandsmótið í handknattleik var haldið í Breiðdal um síðustu helgi.
18 sundgull á Austurlandsmóti
Sundmót Austurlands var haldið á
Norðfirði 7. júlí síðastliðinn og tók
þátt í því sundfólk frá Þrótti
Neskaupsstað, Austra á Eskifirði og
Hugni á Seyðisfirði — alls tæplega
40 manns. Austrafólkið gerði sér lítið
fyrir og sigraði í 17 keppnisgreinum,
en Þróttur hreppti tvenn gullverð-
laun. Austri hreppti fern silfurverð-
laun og þriðja sætið í þremur
greinum. Þróttur fékk níu sinnum
annað sætið og sex sinnum þriðju
verðlaun. Huginn átti þrívegis fólk í
2. sæti á mótinu og tvívegis í 3.
sætinu.
Sigurvegarar í hinum einstöku
greinum urðu þessi:
Konur:
100 m skriðsund —
Heiður Unnarsdóttir, Au 1:19.0
100 m bringusund —
Margrét Guðjónsdóttir, Au 1:35.0
50 m flugsund —
Olga Lísa Garðarsdóttir, Au 45.4
100 m fjórsund —
Olga L. Garðarsdóttir, Au 1:45.1
50 m baksund —
Olga L. Garðarsdóttir, Au 43.6
4 x 50 m fjórsund —
Sveit Austra 2:56.1
Stúlkur yngri en 16 ára:
50 m skriðsund —
Heiður Unnarsdóttir, Au 33.3
50 m bringusund —
Margrét Guðjónsdóttir, Au 42.9
Drengir:
100 m skriðsund —
Jóhann Kristinsson, Au 1:14.3
100 m bringusund —
Kristmann Kristmannsson,
Au 1:32.1
Karlar:
100 m skriðsund —
Guðmundur Bjarni Kristinsson,
Au 1:05.6
100 m bringusund —
Guömundur B. Kristinsson, Au
og Magni Björnsson, Þrótti 1:24.0
50 m flugsund —
Guðmundur B. Kristinsson,
Au 35.6
200 m bringusund —
Guðmundur B. Kristinsson,
Au 3:12.0
100 m fjórsund —
Guðmundur B. Kristinsson,
Au 1:21.2
4 x 50 metra fjórsund —
Sveit Þróttar 2:28.2
100 m baksund —
Stefán Kristinsson, Au 1:31.7
200 m skriðsund —
Golfáhugi á Austurlandi
Áhugi fyrir golf íþróttinni hefur
vaxið mjög á Austurlandi á síðustu
árum og þeim fjölgar með hverju
árinu, sem gaman hafa af að elta
hvíta boltann. Aðstöðuleysi hefur þó
háð kylfingum eystra eins og víða
annars staðar á landinu til skamms
tíma. Hornfirðingar hafa að vísu af
myndarskap komið upp skemmtileg-
um golfvelli og nú eru Eskfirðingar á
góðri leið með að feta í fótspor
þeirra.
Fyrir nokkrum árum teiknaði
Hannes Þorsteinsson golfvöll fyrir
Eskfirðinga í landi Byggöarholts fyrir
innan Eskifjörö. Með velvilja bæjar-
yfirvalda fékk Golfklúbbur Eskifjarð-
ar afnot af landi þessu og síöustu
2—3 árin hefur verið unnið markvisst
að uppbyggingu vallarins. Nú er
kominn þar skemmtilegur 9 holu
völlur, sem mikiö er notaður. Völlur-
inn er par 32 og því stuttur en eigi
að síður skemmtilegur og leynir mjög
á sér í mishæðóttu grónu túninu í
Byggðarholti.
var á ferð á Austurlandi fyrir nokkru
og leiðbeindi þá kylfingum á Egils-
stööum, Reyðarfirði og Eskifirði.
Voru tímar hans allvel sóttir og komu
tæplega 70 manns í tíma til hans á
stöðunum þremur. Bæði á Egilsstöð-
um og Reyðarfiröi hafa áhugamenn
um golf komið sér upp byrjunarað-
stöðu til golfiðkana, en framtíðarland
fyrir golfvöll hafa þeir enn ekki
fengið.
Formaður Golfklúbbs Eskifjarðar
er Ævar Auöbjörnsson og þess má
geta að hann brá sér einn hring á
golfvellinum eftir að hafa farið í tíma
til Þorvalds golfkennara. Hvort sem
það var golfkennslunni, blíðviðrinu
eða einhverju öðru að þakka, þá
bætti Ævar árangur sinn um 2 högg
og setti nýtt vallarmet á vellinum á
Eskifiröi — 36 högg á 9 holum.
Handknattleikur á Breiðdal
Austurlandsmótið í handknattleik
fór fram á Breiðdal um síöustu helgi.
í meistaraflokki karla sigraði Austri
eftir að hafa unnið Þrótt og Hrafnkel
Freysgoða. Þróttur sigraði í
meistaraflokki kvenna, sigraði Hrafn-
kel og Leikni frá Fáskrúðsfirði. i
öðrum flokki kvenna mætti aöeins
eitt liö til keppni, Austri, og varð liðið
því meistari í þeim flokki, en í þriðja
flokki kvenna sigraöi Þróttur. Fyrir
mótið var talið að Austri væri með
öflugasta liðið, en vegna mistaka
framkvæmdaaöila fengu Austra-
stúlkurnar ekki að spila og sömuleiö-
is fékk lið Súlunnar frá Stöðvarfirði
ekki að keppa í mótinu, vegna
ólöglegs liðs.
vtE-Poou aeA-iit-i
/LjiOM&rosj ^
rr, e.«r
í bikarnum í
Valur og Akra-
nes í úrslitin?
UNDANÚRSLIT Bikarkcppni KSÍ. scm íram Icr þann 9. ágúst. var
í sviðsljósinu hjá KSÍ í ga>r. cr drcgið var hvaða lið skyldu lcika saman
um sæti í úrsiitalciknum. Liðin
Brciðahlik. Þróttur og Valur.
Á fundi í Laugardalnum voru
mættir fulltrúar félaganna og
gengu þeir fram í stafrófsröð, og
drógu um mótherja liða sinna.
Gunnar Sigurðsson fulltrúi IA
byrjaði á því að draga nafn
Þróttar og Sigurður Bragi fulltrúi
UBK svaraði með því að draga
nafn Vals úr pottinum. Gekk þá
fram Árni Njálsson fulltrúi Vals
og dró nafnspjald UBK. Var nú
ljóst, að ÍA yrði mótherji Blikanna
og var því drætti hætt að svo
komnu.
Það rættist, sem margir höfðu
vonað, að ÍA og Valur þyrftu ekki
að eigast við á þessu stigi.
Auðvitað er ekki hægt að bóka
liðunum sigur fyrirfram, Þróttar-
ar eru mjög sterkir og Blikarnir
scm standa enn uppi cru IA.
eru farnir að vinna af og til, en
líkurnar eru engu að síður þær, að
ÍA og Valur leiki til úrslita um
bikarinn á Laugardalsvellinum
þann 27. ágúst. Takist ÍA að leggja
Blikana að velli, munu þeir leika
í níunda skiptið til úrslita, en eins
og flestum er kunnugt, Skaga-
mönnum ekki hvað síst, hafa þeir
enn ekki farið heim með bikarinn.
Takist Val að berja á Þrótti, og
leika gegn ÍA í úrslitum, mun
leikurinn verða endurtekning á
úrslitaleiknum fyrir 2 árum, en þá
unnu Valsmenn örugglega 3—0.
En það er best að bollaleggja
ekkert fyrr en fyrir liggur hvaða
tvö lið bera gæfu til að leika til
úrslita.
— KK.
• Árni Njálsson þreifar dallinn að innan og síðan dró hann spjald
Blikanna upp og paraði þá við íslandsmeistarana IA.
_________________________________(ljósm. — gg.)
Ingi Björn og
Adolf í leikbann
TVO lið munu að öllum líkindum sakna mattarstólpa í lcikjum sínum
um hclgina. Ingi Björn Albcrtsson Val. vcrður nú að taka út cins lciks
bann og sömu sögu cr að scgja um miðvörð Víkinga. Adolf
Guðmundsson. Er ha-tt við að ba'ði liðin mcgi illa við tapinu.
Nokkrar breytingar hafa vcrið gcrðar á 12. umfcrð 1. deildar
kcppninnar í knattspyrnu scm cr á dagskrá um helgina. Leik KA og
IA. scm fram átti að fara nyrðra klukkan lfi á laugardaginn hefur
nú verið flýtt fram til klukkan 11.00. Þá hcfur lcikur ÍBK og Vals
\crið færður aftur til þriðjudagskvölds og vcrður hann þá lcikinn
klukkan 20.00. Ásta'ðan cr sú. að margir Kcflvíkinga kcppa fvrir hiind
Ungmcnnafclags Kcflavíkur á Landsmótinu um hclgina.
f U=:IICVJOM JjE&KJ
EE
peue haet Le'noNJu
Af® oetlh e v, Fesjevj
°Ö VOUTSOv
HfMONO; Í3.E&3T
■PL- SÍELtU&s EJKJ
LOLJCtV/E
'\ LeifcK'OM
óeöM Pprerrúc-iAL
EtO MoRAiS y^Tip-
Hoiouh AveocA.
eusen'io hojAlpae
HOUOh Ltaf,
K.EAS lUluSA^-IOSJ
.■UEggsv AV~ TTtÚVJ'JM.
Ml í frjálsum
ÍSLANDSMÓT í frjálsum íþróttum
fyrir tclpur og pilta fa’dd
1964 — 1965 og stclpur og stráka
fa'dd 1966 og síöar for fram í
Borgarnosi dagana 29. og 30. júlf
n.k. í tclpna- og piltaflokki vcrður
kcppt i cftirtöldum grcinum. 100 m.
800 m og 4x100 m boöhiaupi.
langstökki. hástökki. kúluvarpi og
spjótkasti. í stclpna- og stráka-
flokki vcrður kcppt í 60 m. 800 m
4x100 m hoöhlaupi. langstökki.
hástökki og kúluvarpi.
Kcppt vcrður i fyrsta sinn um
farandhikar scm stigahasta fclagiö
hlýtur. Sparisjóður Mýrarsýslu
gcfur bikarinn. Þá vcrða vcittir
vcrðlaunapcningar fyrir hvcrja
grcin og cr það nýmadi í þcssum
flokkum. Stigaha-stu cinstaklingar
hljóta bikara til cignar. Eru það
ýmis fyrirta'ki í Borgarncsi scm
gcfa vcrölaunin. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að hafa borist for-
manni mótsstjórnar Flcmming Jcs-
scn Hclgugötu 6. Borgarncsi í
sfðasta lagi í dag.
Handknattleiksdeild Þórs
Akureyri
óskar eftir aö ráöa þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil.
Umsóknir sendist í pósthólf 771, fyrir mánaöar-
mótin júlí-ágúst.