Morgunblaðið - 21.07.1978, Qupperneq 32
au<;i.ysin<;asiminn er:
22480
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
Samstaða um samningana í gildi:
SAMSTAÐA mun að mestu
hafa tekizt í fyrradag, í
viðræðunum um myndun
nýrrar vinstri stjórnar, um
að febrúarlög núverandi
ríkisstjórnar og bráða-
birgðalög frá því í maí yrðu
afnumin og kjarasamningar
Veruleg
hækkun
á bensíni
YFIRVOFANDI er veru-
leg hækkun á bensfni og
gasolíu, samkvæmt þeim
upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað
sér. Mun áformað að
hækkunin taki gildi á
næstu dögum, jafnvel um
helgina. Bensínverð er nú
119 krónur lítrinn.
Verðlagsnefnd hefur
þegar samþykkt þessa
hækkun en hún á eftir að
hljóta staðfestingu ríkis-
stjórnarinnar. Fernt mun
aðallega valda þessari um-
talsverðu hækkun nú, í
fyrsta lagi hækkun vega-
gjalds, í öðru lagi gengis-
breytingar, í þriðja lagi
erlendar verðhækkanir og
í fjórða lagi aukinn
dreifingarkostnaður
innanlands vegna launa-
hækkana o.fl.
settir í gildi að fullu á ný, ef
af stjórnarmyndun yrði.
Morgunblaðið aflaði sér í
gær upplýsinga um launa-
breytingar hjá nokkrum
starfshópum á mánuði, ef af
þessu yrði og er þá miðað við
heildarlaun á mánuði.
Launahækkanir nokkurra
starfshópa yrðu sem hér
segin
Sóknarkona fengi
í hækkun ....... 4.552.00.-
Dagsbrúnarmaður
fengi í hækkun .... 10.672.00.-
Grunnskólakennari
fengi í hækkun .... 27.057.00.-
Iðnaðarmaður
fengi í hækkun .... 27.128.00-
Prófessor og þingmaður
(fullt þingfararkaup en 60%
prófessorslauna) . 66.671,-
Ráðherra (fullt þingfararkaup
og ráðherralaun) . 94.610.00.-
Eins og kunnugt er hafa Alþýðu-
samband íslands, Verkamanna-
samband Islands og fleiri Verka-
lýðssamtök sett kröfuna um samn-
ingana í gildi á oddinn. Alþýðu-
bandalag og Alþýðuflokkur héldu
henni einnig mjög fram í kosn-
ingabaráttunni.
Það er reisn yfir sumum í sólskininu
dag.
og það á enn að verða snotrasta veður í
— Ljósm.i Ól. K. M.
Sóknarkona fengi 4.552—prófessor og
þingmaður 66.671 — ráðherra 94.610
Tvær sölur
— Sveigjanlegra í vamarmáluin en búizt var við —
TVÖ skip seldu í Bretlandi í gær.
í Fleetwood seldi Þórir frá Höfn í
Hornafirði alls 677 kassa fyrir 10.4
millj. kr. í Hull seldi skuttogarinn
Guðsteinn 137 tonn fyrir 23.7 millj.
kr. og þar var meðalverð hvers
kílós kr. 173, sem er með því
lakasta sem þar hefur fengist lengi.
TRÍJ þeirra, sem í stjórnarmynd-
unarviðræðum standa, á það að
vinstri stjórn verði að veruleika
jókst mjög í gær þegar í ljós kom
af hálfu Alþýðubandalagsins
miklu meiri sveigjanleiki í varn-
armálunum en menn í hinum
flokkunum tveimur áttu von á.
Alþýðubandalagsmenn kváðust
ekki frábitnir þvf að láta al-
menna stefnu í vestrænni sam-
vinnu óbreytta og viðurkenna að
á Alþingi er ekki meirihluti fyrir
róttækum breytingum í varnar
málum ef á hinn bóginn yrði
gengið til breytinga á fjárhags-
Tollbáturmn snýr rússnesku
rannsóknaskipi til hafnar
Innsigli á áfengisbirgðum hafði verið rofið
ÍSLENSKIR tollgæzlumenn veittu í gær rúss-
nesku fiskirannsóknaskipi eftirför og sneru til
hafnar í Reykjavík vegna grunsemda um að
skipverjar hefðu rofið innsigli á áfengisbirgðum
skipsins.
Fiskirannsóknaskip þetta kom nýlega til
Reykjavíkurhafnar, en það var hingað sent til að
vinna að sérstökum rannsóknaverkefnum í
samráði við sérfræðinga Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins.
Skipið lét skyndilega úr höfn í gærmorgun en
yfirmenn þess létu hjá líða að óska eftir
tollafgreiðslu, eins og reglur mæla fyrir um.
Tollgæzlumenn vissu hins vegar, að undir innsigli
áttu að vera 27 flöskur af áfengi og fengu nú
grunsemdir um að þær væru það ekki lengur.
Rússneska skipinu var því veitt eftirför á hinum
nýja hraðbáti tollgæzlunnar og skipið var stöðvað
þar sem það var á siglingu úti af Keflavík og því
snúið til Reykjavíkur. I ljós kom að ekki voru nema
tvær flöskur af þeim 27 sem undir innsigli skyldu
vera.
Að sögn Kristins Ólafssonar, tollgæzlustjóra, er
málið ekki fyllilega upplýst, en skipstjórinn var
yfirheyrður í gær með aðstoð túlks, sem rússneska
sendiráðið lagði til. Þó sagði Kristinn, að ekkert
benti til þess aö um smygl væri að ræða heldur
fremur að þetta áfengi hefði verið í umferð um
borð í skipinu.
legum tcngslum tslendinga við
Keflavikurflugvöll. Þykir nú
ljóst að stjórnarmyndunin standi
og falli með efnahagsmálunum og
því verði aðaláherzlan lögð á þau
á næstu fundum. Eins og segir í
frétt annars staðar á baksíðunni
hefur náðst samkomulag um að
taka kjarasamningana í gildi en
það samkomulag er af hálfu
Alþýðuflokksins og Framsóknar-
flokksins bundið vonum um að
með viðræðum við verkalýðs-
Kristín Sigurðardóttir við forn-
leifagröft í kirkjugarðinum við
Stóru Borg. Sjá frásögn af
heimsókn Morgunblaðsins á bls.
10.
hreyfinguna megi ná samkomu-
lagi um að eitthvað verði öðru
Framhald á bls. 19
Lækkar
tómata-
kílóið í
500 kr.?
LÍKLEGT er að verð á tómöt-
um lækki úr kr. 750 kr. kflóið
niður í kr. 500 og er þá miðað
við heildsöluverð. Sölufélag
garðyrkjumanna sendi Neyt-
endasamtökunum bréf í fyrra-
dag, þar sem óskað var eftir
fulltrúum samtakanna í við-
ræður um þessi mál og er
Morgunblaðinu kunnugt um,
að ofangreint boð kom fram í
bréfinu.
Neytendasamtökin eiga að
svara Sölufélaginu fyrir hádegi
í dag, en þau hafa þegar
tilnefnt fulltrúa í viðræðu-
nefndina og hana skipa Árni B.
Eiríksson framkvæmdastjóri,
Jón Magnússon lögfræðingur
og dr. Jónas Bjarnason efna-
verkfræðingur.