Morgunblaðið - 25.07.1978, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
Stavfshlaupið varð
strax mjög vinsælt
KEPPNI í starfsíþróttum eru þær greinar á landsmótum, sem ekki
laða að sér eins marga áhorfendur og aðrar greinar. Er það einkum
vegna þess. að keppni vill verða nokkuð langdregin og töluverðan
ti'ma tekur að fá úrslit. þar sem klukka og sentimetrar ráða ekki
úrslitum. heldur þarf að taka margt annað til greina.
I dráttarvélaakstri var hinn 30
ára gamli Þingeyingur Vignir
Valtýsson, sem sigrað hefur á
síðustu 4 landsmótum, hinn öruggi
sigurvegari og hlaut 147 stig af 150
mögulegum, eða 10 stigum meira
en næsti maður, Einar Bjarnason
frá UMSB. Alls voru keppendur 18
og voru Þingeyingar í þrem af 5
efstu sætunum.
Keppni var mjög hörð í beitingu,
en sigurvegaranum frá landsmót-
inu á Akranesi Olafi Axelssyni
HSS, vegnaði illa og hafnaði hann
í 6.-8. sæti. Hinsvegar kom Gylfi
Magnússon frá Ólafsvík á óvart og
sigraði eftir harða keppni við þá
Harald Benediktsson UMSK og
Magnús Hreiðarsson HSÞ, sem
urðu jafnir einu stigi á eftir Gylfa.
Alls voru keppendur 10.
í hestadómum var einnig jöfn
keppni og þar urðu tveir efstir og
jafnir með 92 stig, þeir Atli
Lillendal HSK og Hermann Árna-
son USVS. Þá komu þrír jafnir
með 91 stig, þeir Baldvin Baldvins-
son HSÞ og Hjörleifur Ólafsson og
Þorkell Þorkelsson frá HSK.
Alls voru 9 keppendur í þessari
grein.
Það voru 15 karlar og konur,
sem kepptu í jurtagreiningu og þar
var einnig um jafna og tvísýna
keppni að ræða. Stella Guðmunds-
dóttir UMSK bar þar sigur úr
býtum og hlaut 46 stig, eða einu
stigi fleira en Þingeyingurinn
Ketill Tryggvason, en fast á hæla
hans komu tvær konur, Bóthildur
Sveinsdóttir og Margrét Sverris-
dóttir. Konur virðast karlmönnum
glöggari í þessari grein.
Alls tóku 11 keppendur þátt í
„lagt á borð“, tveir herrar, er
skráðir voru til leiks, mættu ekki,
þannig að eingöngu konur tóku
þátt í keppninni. Áður en borð-
skreytingin hefst þurfa stúlkurnar
að svara fimm spurningum skrif-
lega og eru svör þeirra tekin með
í stigaútreikninginn.
Öll voru borðin falleg og hefur
eflaust verið erfitt fyrir dóm-
nefndina að gera þar upp á milli.
Hétu skre.vtingarnar ýmsum nöfn-
um, t.d. Afmæli hestamannsins,
Vinkonur koma í heimsókn, Vina-
fagnaður, Góðir gestir,
Trúlofunarboð, Gullbrúðkaup. í
stigaveitingu var miðað við að lagt
væri á borð í fjallaskála. Heildar-
svipur borðsins gaf aðeins 10 stig,
vinnubrögð stúlknanna voru mikið
metin.
Sigurvegari varð Ragnheiður
Hafsteinsdóttir HSK, borðskreyt-
ing hennar var afmæli hesta-
mannsins. Þar gætti mikils hug-
myndaflugs, og var borðskreyting
Ragnheiðar samansett af ístaði,
svipu og skeifu, einkar smekklega
unnin. Þá voru öll handbrögð
hennar við að leggja á borð mjög
vel unnin. Var hún vel að sigri
komin í þessari grein.
Öll ellefu borðin voru glæsileg á
að líta, og vöktu mikla athygli
þeirra fjölmörgu sem leið sína
lögðu í Selfossbíó til að sjá
borðskreytingarnar.
Ein grein starfsíþrótta vakti
mikla athygli og skemmtun áhorf-
enda, það var svokallað starfs-
S ta rfsíþ rótti r
hlaup, sem ekki hefur verið keppt
í á landsmóti til nokkurra ára.
Liðlega 20 keppendur hófu
keppni og voru einhverjir dæmdir
úr leik, þannig að 21 lauk keppni.
Sigurvegari varð Arnór Erlings-
son HSÞ, rétt á undan hinum
kunna íþróttamanni úr Kópavogi,
Trausta Sveinbjörnssyni.
Eins og nafnið starfshlaup ber
með sér, var um annað og meira
að ræða en bara að hlaupa, heldur
þurftu keppendur að leysa ýmsar
þrautir á leiðinni og gekk það
misjafnlega.
Keppni hófst með því, að hjólað-
ir voru fyrstu 70 metrarnir, en þá
beið þeirra það verkefni á stöð 1.
að greina þrjár tegundir viðar. Þar
tóku þeir einnig bréf, sem þeir áttu
síðan að skila af sér, síðar. Á
næstu stöð var um að ræða, að
geta til um þyngd á poka, sjá úr
fjarlægð og hæð. Þá kom að því að
keppendur þurftu að kafreka 4“
nagla, þræða stoppunál og saga
enda af mótatimbri. Á stöð 4
þurftu keppendur að moka hjól-
börur fullar af sandi, aka með þær
ákveðna vegalengd, sturta síðan
sandinum úr og ganga frá hjól-
börnunum. Að þessu loknu héldu
þeir í mark.
Vakti þessi keppni mikla kátínu
jafnt hjá keppendum sem áhorf-
endum.
• Svipmynd frá starfshiaupinu. Jóhanna Ilinriksdóttir úr Grindavík er þarna að baksa með hjólbörurnar og eins og sjá má ultu þær um
koll og Jóhanna íékk refsistig fyrir.
Heildarúrslit í Landsmótinu
llcildarstixafjöldi í Landamótinui
HSK 323 7/12 stig
UMSK 267 stig
HSÞ 192 stig
UÍA 127 stig
UMFK 93 stig
UMSB 80V. stig
HSH 78 stig
UMSE 65 stig
HVf 36% stig
UMSS 29 Stig
UMFN 27 stig
UMFG 18 stig
Víkverji 15 stig
USÚ 15 stig
HSS 13% Stig
UNÞ 12 stig
USAH 9 Stig
usvs 6 5/6 Stig
UMFB 4 Btig
BLAKt
HSK
IIMSE
HSÞ
IIMSK9 IIÍA
SKAK.
UMSK
UÍA
USAH
HSS
UMFB
Vfkverji
STARFSÍÞRÓTTIR,
1. HSÞ 4814
2. HSK 21 5/6
3. UMSK 19
4. -5. UMSB
ok UÍA 8
6. HSH
7. UMSE
8. HSS
9. HVf
KNATTLEIKIR.
UMSK 65
HSK 37V.
HSÞ 36
HSH 30
UMFN 27
UÍA 22
UMFG 18
llMSE 15
UMFK 11
UMSB 9%
UMSS 9
8tig
8ti|{
stig
stig
ÚRSLIT í KÖRFU.
UMFN
HSH
UMSK
UMSS
UMFG
HSK
fipoi IT
HANDKNATTLEIK.
HSÞ
UMSK
UMFG
UMFN
UÍA
UMFK
ÚRSLIT í BORÐTENNIS.
UMFK 16% stig
UMSK 11 stig
UMSB 9% stig
HSK 4% stig
STIGAHÆSTU EIN-
STAKLINGAR í FRJÁLS-
UM ÍRÞÓTTUM,
Karlar. sjK
Ágúst Þorsteinss. UMSB 15
Konur stjg
Bergþóra Benónýsd. HSÞ 18
ÚRSLIT í GLÍMU,
HSÞ 21
HSK 21
Víkverji 13