Morgunblaðið - 25.07.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1978
27
í upphafi hlaupsins aö hann ætlaði
ekki að láta það sama koma fyrir
og í 1500 metra hlaupinu, þegar
Björn Skúlason stal sigrinum á
síðustu metrunum. Ágúst tók
þegar í upphafi örugga forystu,
sem hann hélt allt til loka
hlaupsins. Áhorfendur gáfu
Ágústi gott klapp þegar hann
hljóp beinu brautina í átt að
markinu og hann þakkaði fyrir sig
með því að hneigja sig virðulega.
ÚRSLITt mín
1. Ágúst Þorsteinss. UMSB X6i51.9
2. Brynjóllur Hilmarss. UlA 17.03-1
3. Jón Illugas. HSÞ 17.06.3
1. Gunnar Snorras. UMSK 17i06.7
5. Björn Halldórss. UNÞ 17.10.9
6. Pétur Eiðsson UÍA 17.26.6
7. Jóhann Sveinss. UMSK 17.34,9
8. Einar Óskarss. UMSK 17.35,8
9. Bjarni Ingibergss. UMSB 17.52.0
10. Guðni Einarss. USVS 17,53.3
11. Þoriákur Karlss. HSK 184)4.7
12. Hrólfur ólverss. HSK 18.33.6
13. P&lmi Frímannss. HSH 18.53.6
14. Guðmundur Magnúss. HVÍ 20.25.4
110 METRA
GRINDAHLAUP
í þessari grein fauk landsmóts-
metið eins og í öllum styttri
hlaupagreinunum vegna hins
mikla meðvinds sem var bæði á
laugardag og sunnudag. Hafsteinn
Jóhannesson var hinn öruggi
sigurvegari eins og á landsmótinu
á Akranesi. Hafsteinn hljóp mjög
vel og hefði váfalaust bætt lands-
mótsmetið, sem var 16,5 sekúndur,
ef aðstæður hefðu verið löglegar.
Þorsteinn Þórsson, hinn ungi og
efnilegi Skagfirðingur var ekki í
essinu sínu í þessu hlaupi. Hann
felldi flestar grindurnar og til að
kóróna hrakfarirnar missti hann
af sér annan skóinn 20 metra frá
markinu. Hann var fyrirfram
álitinn einn skæðasti keppinautur
Hafsteins.
ÚRSLIT. sek
1. Hafsteinn Jóhanness. UMSK 15.5
2. Jason fvarss. HSK 15.8
3. Þorsteinn Þórss. UMSS 15.8
4. Jón Benónýss. HSÞ 15.9
5. Trausti Sveinbjörnss. UMSK 16.5
6. Sigurður Hjörleifss. HSH 16.5
7. Unnar Vilhjálmss. UMSB 16.5
8. Hjörtur Einarss. HSÞ 17.0
9. Kári Jónsson HSK 17.4
10. Jens Hólm HVÍ 19.1
4x100 METRA
BOÐHLAUP
Sveit HVÍ hljóp boðhlaupið
sérdeilis vel og jafnaði landsmóts-
metið, sem sveit UMSK setti á
Akranesi.
ÚRSLIT.
1. Sveit
2. Sveit
3. Sveit
4. Sveit
5. Sveit
6. Sveit
7. Sveit
Sveit
9. Sveit
10. Sveit
11. Sveit
HVÍ
HSK
UMSK
HSÞ
UÍA
UMSB
UMSS
UMSE
HSH
UMÞ
usvs
sek
44.3
46.0
46.1
46.8
47.1
47.3
47.4
47.8
48.3
48.8
50.8
1000 METRA
BOÐHLAUP
Þingeyingarnir voru sterkastir í
þessarri grein og kom það nokkuð
á óvart. Sveitir HVÍ og UÍ A veittu
Þingeyingum mikla keppni en
sigurinn var öruggur hjá HSÞ.
ÚRSLIT.
1. Sveit
2. Sveit
3. Sveit
4. Sveit
5. Sveit
6. Sveit
7. Sveit
8. Sveit
9. Sveit
HSÞ
HVÍ
UlA
HSK
UMSK
UMSE
UMSS
UMSB
UNÞ
mín.
24)7.2
2.08.2
2.08.9
2.09.8
2.11.9
2.12.7
2.12.8
2.13.3
2.15.2
Sveit USVS gerði ógilt í 2. skiptingu.
HÁSTÖKK
Hástökkskeppnin var einstak-
lega spennandi og skemmtileg og
árangur hefur aldrei verið jafn
góður á landsmóti. Til marks um
það má nefna að fjorir keppendur
stukku yfir 1,91 metra og sigurveg-
arinn, Karl West Frederiksen setti
nýtt glæsilegt landsmótsmet,
stökk 1,97 metra.
Fyrirfram var við því búizt að
keppnin myndi standa milli þeirra
Karls West, Jóns Oddssonar og
hins nýbakaða Islandsmeistara
Stefáns Friðleifssonar. Sú varð
líka raunin en þeir Hafsteinn
Jóhannesson og Þorsteinn Þórsson
blönduðu sér báðir í baráttuna.
Stefán, Karl, Þorsteinn og Jón
stukku allir yfir 1,91 metra en
Hafsteinn felldi. Var þá hækkað í
1,94 metra og fór þá Karl yfir í
fyrstu tilraun, Jón fór yfir hæðina
í þriðju tilraun en þeir Stefán og
Þorsteinn felldu báðir. Nú var
hækkað í 1,97 metra og gerði Karl
sér þá lítið fyrir og fór yfir þá hæð
í fyrstu tilraun og tryggði sér
sigurinn. Jón felldi í öllum þremur
tilraunum sínum. Karl lét nú
hækka í 2,02 metra en mistókst að
fara þá hæð. Árangur hástökkvar-
anna er merkilega góður þegar
haft er í huga að aðstæður voru
iSilKl
Sex fyrstu stúlkurnar í kúluvarpi, talið fram vinstri Sigurh'na Hreiðarsdóttir, sigurvegarinn
Guðrún Ingólfsdóttir, Katrín Vilhjálmsdóttir, Ilalldóra Ingólfsdóttir systir Guðrúnar, Helga
Jónsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
riÁ að geta kastað lengra"
„ÉG hef aldrei æft jafnvel og
núna og þótt ég hafi verið að
bæta mig að undanförnu tel ég
að ég eigi að geta kastað enn
lengra," sagði Guðrún Ingólfs-
dóttir frá Hornafirði, sem hafði
ótrúlega yfirburði í kringlukasti
og kúluvarpi á landsmótinu og í
síðarnefndu greininni setti hún
glæsilegt Islandsmet, kastaði 13
metra slétta.
Guðrún hefur nú fluzt til
Reykjavíkur, þar sem hún æfir
með Ármanni. „Ég byrjaði að
æfa af fullum krafti í fyrra-
haust og að undanförnu hef ég
miðað æfingarnar við það að
vera í toppforni á landsmótinu
og Kalottkeppninni um næstu
helgi. Vonandi bæti ég árangur
minn þar ytra.“
Guðrún er tvítug að aldri og
hún hefur keppt í þessum
tveimur greinum frjálsra
íþrótta s.l. tvö ár. Áhugi á
frjálsum íþróttum er sáralítill á
Hornafirði að því er Guðrún
segir og því hefur hún dvalið í
Reykjávík á sumrin við störf og
keppni. Nú er hún byrjuð að æfa
markvisst í fyrsta skipti og
kvaðst stefna að því að æfa af
fullum krafti nokkur ár ennþá.
Aðspurð um mótið svaraði
Guðrún: „Mér hefur fundizt
þetta mót ákaflega skemmtilegt
og vel heppnað. Veðrið hefði að
vísu mátt vera betra en að öllu
öðru leyti finnst mér mótið hafa
heppnazt vel.“
• Synir Viihjálms Einarssonar, fyrrum frjálsíþróttakappa bræðurnir
Rúnar og Einar, köstuðu báðir yíir 60 metra í spjótkastkeppninni.
Einar sigraði, en Rúnar varð öllum á óvart í öðru sæti. Bræðurnir
starfa sem hótelstjórar Hótcl Eddu í Reykholti í sumar. Faðir þeirra
Vilhjálmur leysti þá af í vinnunni og gat því ekki komið með þeim
á iandsmótið og séð þá keppa.
hinar verstu til hástökksiðkunar á
laugardaginn, hávaðarok og
vallaraðstæður ekki upp á það
bezta. Atrennan var grasblettur
en stokkið var upp af mjóum
plastdúk.
ÚRSLIT:
1. Karl West UMSK 1,97
2. Jón Oddsson HVÍ 1,94
3. Þorsteinn Þórss. UMSS 1,91
4. Stefán Friðleifss. ÚÍA 1,91
5. Hafsteinn Jóhanness. UMSK 1,88
6. Jón Benónýsson HSÞ 1,80
7. Hjörtur Einarsson HSÞ 1,80
8. Unnar Vilhjálmsson UMSB 1,75
9. Hrafnkell Stefánss. HSK 1,75
10.-11. Sigurður Matthíass. UMSE 1,70
10.-11. Einar B. Indriðas. UMSK 1,70
12.-14. Jens Hólm HVÍ 1,60
12.-14. Magnús Guðmundsson ÚÍA 1,60
12.-14. Sigurður Árnason UNÞ 1,60
15.-18. Salómon Jónsson USVS 1,60
15.-18. Ólafur Knútsson UMSS 1,60
15.-18. Jón Víking8Son UMSE 1,60
15.-18. Stefán Magnússon UMSE 1,60
LANGSTÖKK
Langsstökkskeppnin var ein sú
skemmtilegasta, sem fram hefur
farið á landsmóti. Alls voru 26
keppendur mættir til leiks og
fyrstu til að stökkva var ísfirð-
ingurinn Jón Oddsson. Hann stökk
ágætlega og stökkið mældist 6,42
metrar. í fyrstu umferðinni bættu
tveir keppendur um betur. Helgi
Hauksson, sem stökk 6,54 metra og
Rúnar Vilhjálmsson, sem stökk
6,43 metra. í fyrstu umferðinni
stukku 11 keppendur yfir 6 metra
svo að sú umferð lofaði góðu um
skemmtilega keppni. Önnur um-
ferð langstökksins var slök en í
þriðju umferð dró til tíðinda. Jón
Oddsson stökk þá 6,73 metra og
Sigurður Hjörleifsson, sem hafði
gert ógilt í tveimur fyrstu
stökkunum, gerði sér lítið fyrir og
stökk 6,69 metra í þriðju umferð-
inni.
Eftir þrjár umferðir var
keppendum fækkað í 8 og fékk
hv^r þeirra þrjár tilraunir. Kom
þá greinilega í ljós hver var
sterkastur. Jón Oddsson stökk 6,55
metra í fyrstu tilraun sinni, 6,87
metra í annarri tilraun og í þriðju
og síðustu tilrauninni kom sigur-
stökkið. 6,91 metri. Úr þessu var
aðeins einn maður, sem virtist
geta ógnað sigri Jóns, en það var
nýbakaður íslandsmeistari Sig-
urður Hjörleifsson. Honum tókst
mjög vel upp í síðasta stökkinu og
mikil eftirvænting ríkti meðan
mælt var hvort honum hefði tekizt
að stökkva lengra en Jón. Svo
reyndist ekki vera en engu að síður
tókst honum að stökkva 6,84
metra, sem var jafnt hans
persónulega meti. En það voru
fleiri sem geymdu púðrið til
síðasta stökks. Jón Benónýsson
Þingeyingur laumaði sér í þriðja
sætið með 6,58 metra stökki í
síðustu tilraun. Jón hitti plankann
svo vel að dómararnir voru í vafa
um það hvort stökkið væri löglegt
eða ekki en að lokum var stökkið
dæmt löglegt og Úlfar Teitsson
stökkstjóri kvað upp þann úrskurð
að héðan í frá ætti að kalla Jón
Benónýsson „Jón hárnákvæma“.
ÚRSLIT. m
1. Jón Oddsson HVÍ 6.91
2. Sigurður Hjörleifsson HSH 6,84
3. Jón Benónýsson HSÞ 6.58
4. Rúnar Vilhjáimsson UMSB 6,55
5. Ililmar Pálsson HVÍ 6.54
6. Helgi Hauksson UMSK 6,54
7. Kári Jónsson HSK 6,43
8. Hreinn Jónasson UMSK 6,41
9. Pétur Pétursson UÍA 6.40
10. Karl West UMSK 6.29
11. Hermann Nieisson UÍA 6,26
12. Angantýr Jónasson HVf 6.20
13. Sigurður Jónsson HSK 6,20
14. Jason ívarsson HSK 6,15
15. Kristján Þráinsson HSÞ 6.15
16. Friðjón Bjarnason UMSB 6,13
17. Dagbjartur Halldórss. UNÞ 5,92
18. Rúnar Hjartarsson UMSB 5.85
19. Árni Snorrason UMSE 5,82
20. Erling Jóhannesson HSH 5.55
21. Guðmundur Jensson UMSS 5,54
22. Gísli Sveinsson USVS 5,53
23. ólafur Indriðason UMSE 5.45
24. Gísli Sigurðsson UMSS 5,40
25. Gunnar Guðmundss. UMSS 5.40
26. Þorsteinn Jensson UMSS 4,89
ÞRÍSTÖKK
I þrístökkinu gerðist það að
Helgi Hauksson náði mjög góðu
stökki strax í 2. umferð, stökk
14,28 metra. Eftir það var aldrei
nein spurning um sigurvegarann,
Helgi hafði tryggt sér sigur með
þessu góða stökki. Baráttan stóð
því um 2. sætið og þar varð
hlutskarpastur sá fjölhæfi íþrótta-
maður Rúnar Vilhjálmsson. Jason
ívarsson krækti í 3. sætið með
síðasta stökki keppninnar.
Úrslit.
1. Helgi Hauksson UMSK 14.24
2. Rúnar Vilhjáimss. UMSB 13.95
3. Jason fvarsson IISK 13.91
4. Pétur Pétursson HSS 13.84
5. Kristján Þráinsson HSÞ 13.80
6. Aðalsteinn Bernharðss. UMSE 13,74
7. Kári Jónsson HSK 13,72
8. Jón Oddsson HVI 13,56
9. Unnar Vilhjálmss. UMSB 12.78
10. Valgeir Skúlason UIA 12.66
11. Helgi Benediktsson HSK 12.38
12. .Vrni Snorrason UMSE 12.25
13. ólafur Indriðason UMSE 12.20
14. Bjarki Bjarnason UMSK 11.92
15. Dagbjartur Halidórss. UNÞ 11.87
16. Gísli Sveinsson USVS 11.64
Framhald á næstu opnu
UMF’