Morgunblaðið - 29.07.1978, Page 1
32 SÍÐUR
161. tbl. 65 árg.
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978
Prontsmiðja MorgiinblaAsins.
Korchnoi slökkvir & kertunum á tertunni sem hann fékk
í gær á tveggja ára afmæli flótta hans frá Sovétríkjunum.
— Sjá skákfréttir bls. 18.
Christina Onassis
staðfestir ráð sitt
Stjóm Soaresar situr
áfram til bráðabirgða
friðarferð
Kairó, 28. júlí — AP.
ALFRED Atherton, sérlcgur íull-
trúi Bandaríkjastjórnar í deilun-
um í Miðausturlöndum. kom til
Kairó í dag og mun aðaltilgangur
hans vera að reyna að fá Egypta
til að setjast að samningaborðinu
aftur með ísraelsmönnum. Til að
svo geti orðið, er talið liklegt að
Egyptar geri þá kröfu að Banda-
rikjamenn ríði á vaðið og leggi
fram raunhæfar tillögur til
lausnar deilunum.
Atherton kom beint frá
Jerúsalem, þar sem hann ræddi
þessi mál við Begin forsætisráð-
herra ísraels og fleiri þarlenda
ráðamenn. Líklegt er talið að hann
reyni að draga athygli Egypta að
þeim yfirlýsta vilja ísraelsmanna
að ræða um yfirráð Egypta yfir
vesturbakka Jórdanár eftir fimm
ár. Til þessa hafa Egyptar ekki
sýnt neinar undirtektir undir
þessar yfirlýsingar ísraelsmanna.
1 ræðu sem Sadat flutti í
morgun lýsti hann því enn einu
sinni yfir að Begin væri sá maður
sem stæði í vegi fyrir friðarum-
leitunum og lýsti því jafnframt
yfir að Ezer Weizmann, varnar-
málaráðherra Israels væri maður
góður í viðræðu.
Moskva, 28. júlí — AP
CHRISTINA Onassis, dóttir
olíukóngsins fræga, Aristotle
Onassis, sagði í viðtali við
franskan sjónvarpsmann í
Moskvu í dag, að hún hygðist
ganga að eiga rússneskan vin
sinn, Sergei Kauzov að nafni,
og mun athöfnin fara fram á
þriðjudag n.k. — Hveitibrauðs-
dögunum hyggjast hjónakorn-
in verja í Síberíu. Yfirlýsing
þessi kemur í kjölfar tveggja
mánaða stöðugra sögusagna
um ástalíf ungfrúarinnar sem
hún hefur stöðugt neitað.
Hinn rússneski vinur
Christínar er 37 ára gamall
fyrrverandi starfsmaður olíu-
skipafélags og munu þau hafa
kynnst fyrir um 3 árum.
Christina sagði við frétta-
menn í Moskvu að þau hjóna-
kornin myndu gifta sig í al-
mennri hjónamiðlunarskrif-
stofu og kostnp.ðurinn væri sem
svarár 500 íslenzkum krónum.
Christina er án efa ein auðug-
asta kona veraldar og því vakna
fljótlega þær spurningar, hvað
um öll auðæfin verði þegar hún
er orðin „hálf-rússnesk". Hún
svaraði fyrirspurnum frétta-
manna um það á þann veg að
auðæfi sín hefðu ekkert að segja
í samskiptum hennar við Rúss-
land.
Ekki eru allir jafn ánægðir
með ráðahaginn eins og Christ-
ina. Vinir Onassisfjölskyldunn-
ar staðhæfa að geysileg óánægja
ríki í fjölskyldunni og ef faðir
brúðarinnar tilvonandi væri á
lífi, hefði „hneyksli" sem þetta
ekki getað gerzt.
Hjónakornin hittust fyrst
fyrir um 3 árum þegar Christina
átti sæti í samninganefnd um
viðskipti fjölskyldufyrirtækis
hennar og rússneska olíuflutn-
ingaskipafyrirtækisins Sov-
frakht. Kauzov var á þeim tíma
yfirmaður skrifstofu Sovfrakht
í París, en hefur nú sagt starfi
sínu lausu.
Bæði eru Christina og Kauzov
fráskilin, Kauzov var giftur.
rússneskri konu og átti eitt
barn. Christina er hins vegar
tvígift og á ekkert barn.______
Lissabon 28. júlí — AP
MARIO Soares, leiðtogi portú-
galskra jafnaðarmanna, til-
kynnti í dag að hann hefði
ákveðið að gegna störfum forsæt-
isráðherra áfram til bráðabirgða
eftir fall ríkisstjórnar hans fyrr
í vikunni.
Soares sagði við fréttamenn að
hann hefði tekið ákvörðunina um
að sitja áfram þar til'eftirmaður
hans væri fundinn að beiðni
Antonio Ramalho Eanes forseta.
Eins og kunnugt er hafði Soares
lýst því yfir fyrr að hann hygðist
ekki sitja áfram.
Þessi ákvörðun Soaresar er talin
vera mikill léttir fyrir Eanes
forseta, sem hefði að öðrum kosti
setið uppi með stjórnarkreppu.
Eanes hófst þegar handa og hélt
í dag fundi með öllum forystu-
mönnum stjórnmálaflokka lands-
Tilræði
í London
London, 28. júlí — AP
BIFREIÐ sendiherra íraks í
London var sprengd f loft upp í
dag og urðu aðeins lítilsháttar
meiðsl á einum vegfaranda.
Sendiherrann, Taha Ahmed al-
Dawood, var rétt ókominn í bíl
sinn, sem flytja átti hann til
Londonflugvallar.
Sprenging þessi kemur beint f
kjölfar þess að í gær vfsaði
íraksstjórn 10 Bretum úr landi í
frak, en þar á undan hafði brezka
stjórnin rekið 11 íraksbúa frá
Bretlandi.
Ef merkja má af skemmdum
bifreiðarinnar, er talið nær víst að
sendiherrann hefði týnt lífi ef
hann hefði verið í henni.
Soares
ins til að ræða þá stöðu sem komin
er upp.
Diogo Freitas do Amaral leið-
togi íhaldsflokks miðdemókrata,
sagði eftir fundinn með Eanes, að
þar hefðu verið stigin fyrstu
skrefin í átt til stjórnarmyndunar.
Hann lýsti þeirri skoðun sinni að
hann teldi ekki ráðlegt í stöðunni
að efna til kosninga í landinu,
heldur væri heppilegast að mynda
nýja ríkisstjórn án þess.
Talið er líklegt eftir ummælum
forystumanna stjórnmálaflokk-
anna í dag, að Eanes sé þegar með
ákveðnar hugmyndir í mótun og
muni tilnefna nýjan eftirmann
Soaresar í næstu viku. Engin nöfn
eru nefnd.
Glundroði
París 28. júlí. Reuter.
FRANSKIR flugumferðarstjórar
hafa neitað að vinna yfirvinnu og
því munu tugir þúsunda ferða-
manna verða fyrir töfum og
óþægindum um mestalla Vest-
ur-Evrópu og víðar um heigina
sem er mesta ferðamannahelgi
ársins.
Hæsta verð á gulli:
únsan á202 dollara
London, 28. júlí, AP — Reuter
GULLVERÐ á heimsmarkaði var
það hæsta í sögunni í dag, þegar
verð á einni únsu gulls náði 202
dollurum. Aldrei fyrr hefur verð-
ið farið yfir 200 dollara.
— Á sama tíma féll dollar
áfram f verði gagnvart japanska
jeninu og við lok gjaldeyrismark-
aða f dag var dollar kominn niður
í 189 jen, sem er það lægsta frá
strfðslokum. Dollar lækkaði einn-
ig verulega gagnvart svissneska
frankanum, sem stendur gjald-
miðla bezt þessa stundina.
Nokkurs konar gullæði greip um
sig svo að ekki hafðist undan á
gullmörkuðum og urðu margir frá
að hverfa. Verð á gulli hefur farið
stöðugt hækkandi allar götur frá
miðjum apríl og hefur hækkað að
meðaltali um 2 dollara á dag
undanfarnar 2 vikur. Hæst var
gullverð 30. desember 1974 þegar
únsan var seld á 197.50 dollara.
Bæði dollar og vestur-þýzka
markið lækkuðu nokkuð gagnvart
svissneska frankanum á gjald-
eyrismörkuðum heimsins, og hefur
dollar aldrei verið lægri gagnvart
frankanum fyrr eða hver dollar á
1.7525 franka. Á 24 klukkutímum
lækkaði dollarinn um 3%, sem er
met.
— Ástæðuna fyrir slæmri stöðu
dollars og vestur-þýzka marksins
gagnvart svissneska frankanum
telja sérfræðingar fyrst og fremst
vera þá, að ekki hefur tekist að
halda verðbólgu eins í skefjum í
Bandaríkjum og Vestur-Þýzka-
landi eins og í Sviss.
Lenda
í dag
Dover, Englandi, 28. júlí
- AP
TVEIR brézkir ofurhugar sem
lögðu upp frá Nýfundnalandi í
loftbelg s.l. miðvikudag og
hugðust fyrstir manna fljúga
loftbelg yfir Atlantshafið, sá-
ust í kvöld um 750 mílur vestur
af írlandi. Smágat var þá
komið á belginn og lak helium
út.
Að sögn sérfróðra manna í
þessum efnum ættu þeir fé-
lagarnir þó að getað svifið
rólega til Bretlands og lent þar
„mjúkri" lendingu á laugar-
dagskvöld.
Seint í gærkvöld náðist sam-
band við félagana í loftbelgnum
í gegnum talstöð og sögðu þeir
þá, að þeim miðaði frekar hægt
áfram, en töldu þó góða von um
að ná Englandsströnd seinni
hluta dags á morgun.
— Til þessa hafa verið gerð-
ar alls 20 tilraunir til þess að
fljúga loftbelg yfir hafið, og
hafa margar þeirra verið
mannskæðar.
Atherton í