Morgunblaðið - 02.08.1978, Síða 1
32 SIÐUR
164. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bretadrottning í Kanada — Elízabet Bretadrottning heilsar upp á hóp indíána í ferð
sinni um Kanada. Litli indíánadrengurinn til vinstri á myndinni lét sér fátt um
finnast og hinn konungborni gestur fékk ekki raskað svefni hans.
Sadat fyr-
ir alþýdu-
dómstól
Bagdad, 1. ágúst. Reuter.
SETTUR var í dag í Bagdad
alþýðudómstóll yíir Anwar
Sadat Egyptalandsforseta, þar
sem hinn fjarstaddi „sak-
borningur“ var ákærður fyrir
stórkostlega alvarleg svik við
málstað Araba, vegna ferðarinn-
ar til ísraels í nóvembermánuði
s.l. Ákæruskjalið var G300 orða
langt og var þess krafizt að
Sadat yrði sviptur egypzkum
ríkisborgararétti sínum og öll-
um eigum.
Fyrir réttinum í dag fóru
lögmenn ákæruvaldsins hörðum
orðum um Sadat og sögðu að í
allri sögu Egyptalands hefði
enginn svikari framið glæp sem
kæmist í hálfkvisti við glæp
Sadats.
Vopnasölu-
banni aflétt
WashinKton. 1. ájíúst. AP.
FULLTRÚADEILD
Bandaríkjaþings sam-
þykkti í kvöld með 208
atkvæðum gegn 205 að
aflétta vopnasölubanninu
gegn Tyrklandi sem í gildi
hefur verið s.l. þrjú ár.
Atkvæðagreiðslan er tal-
in mikill sigur fyrir Carter
forseta, en öldungadeildin
samþykkti að aflétta bann-
inu í síðustu viku.
Korchnoi
með tap-
aða stöðu
□--------------------- □
Sjá skákskvringar á hls. 12 ok lfi.
D--------------------- D
Uaguio. Filippseyjum. 1. ágúst. AP. Reuter.
SJÖUNDA einvígisskák Karpovs og
Korchnois fór í bið í dag og telja
skáksérfræðingar að Karpov hafi
unnið tafl. Stórmeistarinn Keene,
aðstoðarmaður Korchnois, sagði
eftir skákina að hann hefði teflt
hana illa og ætti ekki skilið annað en
að tapa.
Sovézki dularsálfræðingurinn, dr.
Vladimir Zukhar, sat á öðrum bekk í
áhorfendasalnum á meðan skákin var
tefld og dvaldi þar hreyfingarlaus
allan tímann. Sögðu aðstoðarmenn
Korchnois að hann hefði reiðzt
heiftarlega þegar hann sá að sálfræð-
ingurinn var á sama stað og þegar
síðast var teflt þrátt fyrir mótmæli
hans þá. Fór Korchnoi nú út af
sviðinu í hvert sinn sem hann hafði
lokið við að leika og fylgdist meö
skákinni úr hvíldarherbergi sínu.
Keppnisstjórnin ákvað í kvöld að
meina almenningi aðgang að þremur
fyrstu sætaröðunum í áhorfendasaln-
um til að koma til móts við Korchnoi,
en Lothar Schmid dómari hafði áður
sagt að hann hefði engin völd til að
vísa sálfræðingnum úr salnum. Stakk
Schmid upp á því að fyrstu sætaröð-
unum yrði lokað og rifjaði upp að það
hefði verið gert í einvíginu í Reykja-
vík 1972.
Flokkarnir í Portúgal
fá frest til vikuloka
ad mynda ríkisstjórn
Dollar aldrei verðminni
London. 1. ágúst. Reuter. AP.
GENGI Bandaríkjadollars lækkaði
enn á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu og Japan í dag og gull
hækkaði áfram í verði. Dollarinn
lækkaði í dag í 184,55 yen og hefur
aldrei fyrr verið jafnlágt skráður í
þeirri mynt. Þegar mörkuðunum
var lokað hafði dollarinn þó aðeins
rétt við á ný og var skráður á
186,25 yen þegar markaðinum í
London var lokað. Undanfarna sjö
viðskiptadaga hefur dollarinn
lækkað um 15 yen en um 115 yen
frá því í janúar 1977.
Dollarinn var í dag skráður
jafnvirði 1,715 svissneskra franka og
hefur heldur aldrei verið verðminni í
þeirri mynt. Pundið var skráð á 1,925
dollara þegar mörkuðum var lokað
en þýzka markið var lítið breytt
gagnvart dollar í dag og var
dollarinn skráður jafnvirði 2,0408
marka.
Gullúnsan hækkaði í dag í 204,125
dollara sem er metverð fyrir þennan
málm, en margir aðilar festa nú fé
sitt í gulli af ótta við lækkandi gengi
dollars.
Eanes forseti.
Verður Shcharansky lát-
inn laus í fangaskiptum?
Lissahon. 1. ágúst. Reuter. AP.
EANES forseti Portúgals gaf í
kvöld stjórnmálaflokkunum frest
til vikuloka til þess að mynda
starfhæía ríkisstjórn en ella búa
sig undir nýjar kosningar. For-
setinn ávarpaði þjóðina í sjón-
varpi í kvöld og sagði m.a. að
flokkarnir yrðu að axla ábyrgð-
ina ef stjórnarmyndun mistækist
og farið yrði út í harðar og
tvísýnar kosningar. „Efnahags-
erfiðleikar landsins eru þess eðlis
að það er skylda flokkanna að
Vín. Tel Aviv. Washington.
1. ágúst. AP. Reuter.
ÍSRAELSKI þingmaðurinn
Samuel Flatto-Sharon sagði í dag
að hann ynni nú að því að fá
sovézka andófsmanninn Anatoly
Shcharansky látinn lausan í
skiptum fyrir rússneska njósnara
gera út um málin svo ég geti tekið
mínar ákvarðanir." sagði Eanes í
ræðu sinni.
þyrfti til kosninga en kosningar
gætu ekki farið fram fyrr en í
fyrsta lagi í apríl á næsta ári.
Shcharansky
Er talið að með tali sínu um
meirihlutastjórn hafi forsetinn átt
við endurnýjaða samsteypustjórn
jafnaðarmanna og miðdemókrata,
en ummæli leiðtoga flokkanna
undanfarna daga hafa einmitt
gefið til kynna að þessi möguleiki
komi nú aftur til greina. Eanes
hótaði því að skipa utanþings-
stjórn til bráðabirgða ef boða
„Sumir myndu segja að við eyðum
meiri tíma í að reyna að komast að
vilja almennings en að fara eftir
honum,“ bætti hann við.
á Vesturlöndum. Sagði þingmað-
urinn að hugsanlegt væri að
Shcharansky yrði látinn laus
innan skamms og væru samning-
ar nú langt komnir.
Utanríkisráðuneytið í Washing-
ton bar í dag til baka fregnir um
að Bandaríkjastjórn tengdist þess-
um samningum, en fregnir frá
Vínarborg hermdu að Bandaríkja-
menn væru aðilar að samkomulag-
inu. I fyrstu var ráðgert að skipt
yrði á Shcharansky og þýzku
hjónunum Cristel og Gúnter Guill-
aume, en njósnir þeirra í V-Þýzka-
landi leiddu til þess að Willy
Brandt varð að segja af sér
kanzlaraembætti árið 1974. Stjórn
Helmuts Schmidts hefur hins
vegar þvertekið fyrir að láta þessi
hjón laus, að þvi er fregnir herma.
Ekki er nú vitað hver eða hverjir
verða látnir lausir í skiptum fyrir
Shcharansky, en hann var sem
kunnugt er dæmdur í síðasta
mánuði til 13 ára fangelsisdvalar
og útlegðar.
Irakarnir í París
ekki sóttir til saka
París, 1. áiíúst. Routcr. AP.
FRÖNSK stjórnvöld ákváðu í dag
að fallast á kröfu írakska sendi-
ráðsins í borginni þess efnis að
írakarnir þrír, sem í gær voru
handteknir fyrir að skjóta til ólífis
franskan lögreglumann og særa
Palestínuaraba nokkurn, yrðu
látnir njóta diplómatískra réttinda
og því ekki saksóttir.
Ákvörðun þessi hefur valdið
mikilli óánægju innan frönsku
lögreglunnar og hefur félag lög-
reglumanna í París skrifað Frakk-
landsforseta mótmælabréf vegna
máls þessa. Er það næsta fátítt að
franska lögreglán mótmæli á þenn-
an hátt ákvörðunum stjórnvalda.
Ákvörðun stjórnarinnar virðist
miða að því að koma í veg fyrir
ósætti við íraksstjórn, en Frakkar
kaupa mikið af olíu frá írak og að
auki er talið að stjórn íraks hafi
áhuga á að kaupa franskar Mirage—
orrustuþotur á næstunni.