Morgunblaðið - 11.08.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
171. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hyggst Begin
slaka á klónni?
Kardínálar
að 2 vikna
Páfi lézt frá hugleiðingu um
Vatíkaninu. 10. ástúst — AP
KARDÍNÁLAR rómversk ka-
þólsku kirkjunnar ákváðu á
fimmtudag aö koma saman 25.
ágúst til að kjósa cftirmann Páls
páfa sjötta. Einnig samþykktu
þeir að útfararguðsþjónustan
Blaðaverkfall
íNew York
New York. 10. ágúst — Reuter
ÞRJÚ STÆRSTU dagblöð í New
York komu ekki út í dag, er
prentarar lögðu niður vinnu.
Horfur á samningum eru ekki
góðar. en prentarar vilja með
þessum hætti mótmæla nýjum
reglum blaðanna um fækkun í
starfsliði. Blöðin, sem í hlut ciga,
eru „Thc Times“, „Daily News“
og „Afternoon Post“.
13 fórust
í Svíþjóð
AÐ MINNSTA kosti tólf létu lífið
og fjörtíu særðust í tveimur
lestaróhöppum í Svíþjóð í dag.
Átti hið fyrra sér stað í Östersund
í Norður-Svíþjóð er lest hlaðin
ferðamönnum og námsfólki rakst
á vagn. Þar létu níu lífið og þrjátíu
særöust. Seinna slysið varð er
hraölest fór út af teini við Stehaq
40 kílómetra frá Malmö í Suð-
ur-Svíþjóð. í þessu óhappi fórust
þrír og hiutu tíu meiðsii.
skyldi íara fram undir berum
himni á Sánkti Péturs torgi í
Róm. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum var páfinn að undir-
búa yfirlýsingu í tilefni af
getnaði fyrsta barns utan lfkama
móður, er hann hvarf á braut.
Meira en eitt hundrað þúsund
manns litu jarðneskar leifar páfa
á viðhafna'rbörum í basilíku
Sánkti Péturs í dag, Voru margir í
tárum og krupu aðrir á kné í bæn.
Páfinn verður jarðaður á laugar-
daginn kemur að undanfarinni
guðsþjónustu á latínu.
Kardínálar héldu með sér fund í
dag og tóku fyrrnefnda ákvörðun
um dagsetningu. Þeir skýrðu hins
vegar ekki frá hvar þeir hygðust
koma saman en þó er fastlega
búist við að þeir bregði ekki vana
að þessu sinni og beri bækur sínar
saman í Sistine-kapellu klukkan 3
síðdegis að íslenzkum tíma. Talið
er að atkvæðagreiðsla hefjist svo
daginn eftir.
Haft er eftir heimildum innan
kirkjunnar að meira en helmingur
kardínálanna 113, er saman koma
til að velja páfa úr sínum röðum,
megi kalla íhaldssama enda þótt
athygli sé vakin á að þeir séu
ýmist íhaldssamir með tilliti til
málefna, s em lúta að kirkjunni,
eða félags- og stjórnamálum, en
ekki endilega hvort tveggja í senn.
Útlit er þó fyrir að hinum
íhaldssamari takist ekki að fá
frambjóðanda úr sínum röðum í
páfastól, þar sem páfaefnið þarf á
tveimur þriðju hlutum atkvæða að
halda og einu betur. Samkvæmt
Jc úsalum. Washington 10. ágúst — AP.
BEGIN forsætisráðherra ísraels
sagði í dag að hann héldi til
fundar við egypska og banda-
ríska ráðamenn í næsta mánuði
staðráðinn í að stuðla að sem
ríkustum árangri. Cyrus Vance,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna hitti Carter forseta að máli í
dag og gerði honum grein fyrir
dökkum hliðum og björtum á
væntaniegum friðarfundi í Mary-
land.
Begin talaði við fréttamenn áður
en ráðuneyti hans kom saman til
að ræða stefnu Israelsmanna
varðandi fundinn. Hann sagði:
„Stjórnin mun taka ákvörðun eftir
að hafa kynnt sér og skeggrætt
allar skýrslur og gögn í málinu."
Ekki lá ljóst fyrir hvort forsætis-
ráðherrann væri að ýja hér að
fyrirhugaðri stefnubreytingu gegn
Aröbum, en geta má þess að orðið
„ákvörðun" er oft notað í dipló-
matískum skilningi til að gefa
ávæning um nýmæli.
Einnig kom það fram hjá Begin
að stjórnarfundurinn væri aðeins
sá fyrsti af mörgum áður een hann
velja
fresti
tilraunaglasið
heimildum, sem Reuter-fréttastof-
an vitnar í eru sex kardínálanna
„mjög íhaldssamir", 37 „íhalds-
samir“ og 16 „hóflega íhaldssam-
ir“. í heild eru þetta 59. í hópi
hinna frjálslyndari eru 4 „mjög
framfarasinnaðir“, 16 „framfara-
sinnaðir" og 22 „hóflega framfara-
sinnaðir". I heild eru það 42. í
miðið eru svo 10 miðjumenn og er
talið líklegt að væntanlegur páfi
kunni einmitt að koma úr þeirra
röðum sem málamiðlun. I þessum
hópi er t.d. Sergio Pignedoli.
Sjá nánar bls. 15 í hlaðinu í
dag.
Alexandríu, 10. ágúst. Reuter.
EGYPTAR hafa í hyggju að fara í
áróðursherferð um Arabalönd og
útskýra hvers vegna Sadat Egypta-
landsforseti tók þann kost að halda
til móts við Carter og Begin í Camp
David í næsta mánuði. Ýmis dag-
blöð f Arabalöndunum hafa farið
mjög hörðum orðum um þessa
ákvörðun forsetans og talið hana
svik við málstað Araba og
Palestínumanna.
Fréttir herma að Egyptar ætli
einnig að gera út sendimenn til
Evrópulanda og Afríku til að skýra
málstað sinn. Káíróblaðið A1 Ahram
færi til fundar við Carter og Sadat
á Camp David, setri Bandaríkja-
forseta, 5. september.
Cyrus Vance ræddi við Carter í
klukkustund í Hvíta húsinu og
skýrði fyrir honum áhættur
bundnar stórfundinum. Að sögn
talsmanns forsetans, Jody
Powells, var Carter fjöðrum feng-
inn vegna auðsýnds viðræðuvilja
Sadats og Begins. Á Powell var
þó að skilja að Bandaríkjastjórn
gerði sér ekki ýkja bjartar vonir
Lissabon, 10. ágúst Reuter.
Kaupsýslumaðurinn Alfredo
Nobre da Costa, sem falið heíur
verið að mynda ríkisstjórn í
Portúgal, hóf í dag viðræður við
fulltrúa stjórnmálaflokka. Iiann
skýrði fréttamönnum frá því að
hann myndi beita sér fyrir
úrlausn á efnahagsvanda lands-
ins og treysta stoðir lýðræðis-
legra stjórnarhátta.
Líklegt er talið að flokkar á
hægri væng portúgalskra stjórn-
mála veiti da Costa brautargengi,
en kommúnistar hafa á hinn
bóginn lýst vonbrigðum sínum
með val hans. Portúgalska verka-
lýðssambandið hefur gert slíkt hið
sama, en samtök þessi telja u.þ.b
80 af hundraði allra verkalýðshópa
í landinu. Da Costa hefur eigi að
síður kunngert að hann muni gera
sér far um að efla samráð við
verkalýð.
Dr. Soares, fráfarandi forsætis-
ráðherra, hefur óskað arftaka
sínum gæfu og gengis og látið þess
getið að hann muni þurfa á slíkum
bænum að halda. Sagði Soares að
flokkur hans myndi kynna sér
stefnu da Costas mjög gaumgæfi-
lega áður en flokkur hans lýsti yfir
stuðningi við hana. Dr. Soares
hefur gefið í skyn að Eanes hafi
greindi svo frá í dag að Sadat hefði
skipt um skoðun þar sem útlit væri
nú fyrir að Bandaríkjamenn ætluðu
að gerast virkur samningsaðili í
Mið-Austurlandadeilunni og leggja
fram eigin tillögur til úrlausnar.
Sýrlenzka dagblaðið A1 Baath,
málgagn sósíalistaflokksins, sagði í
dag að fundurinn í næsta mánuði
væri til þess eins ætlaður að reisa úr
flagi Sadat sjálfan, sem ætti sífellt
minni vinsældum að fagna heima-
fyrir. „Hvað svo sem verður," sagði
blaðið, „getur fundurinn ekki þjónað
málstað Araba og er hann þvert á
móti samblástur gegn þeim.“
fyrir fundinn. Engu síður mun
Carter á þeirri skoðun að áhættan
af því að láta reka á reiðanum í
Mið-Austurlöndum sé öllu meiri
en láta á reyna.
Menn leiða getum að því að
ástæða þess að Sadat ákvað að
setjast aftur að samningaborði,
þrátt fyrir þverlega neitun sína 30.
júlí, hafi verið sú að Vance dró upp
úr pússi sínu fersk drög ísraels-
manna, er hann kom til fundar við
Sadat frá Jerúsalem.
leyst hann frá störfum að nauð-
synjalausu. Annar stærsti stjórn-
málaflokkurinn, Sósíaldemókrata-
flokkurinn, hefur enn ekki tekið
endanlega afstöðu.
Da Costa hefur sagt að stjórn
hans verði fyrst og fremst að
skoða sem bráðabirgðastjórn, sem
þó geti engan veginn leyft sér að
sitja aðgerðalaus. Opinberar
heimildir sýna að viðskiptahalli
Portúgala hefur vaxið um meira
en 374 milljarða ísl. kr. á fyrri
hluta ársins, sem er að líða. Eitt
brýnasta verkefni, sem bíður
næstu stjórnar, er að aflétta sex
vikna gömlu yfirvinnubanni á
áhafnir kaupskipa, en bann þetta
hefur gert óvirkan kaupskipaflota
landsins, meira en 100 flutninga-
skip. svjpmyn(j af pa C0Sfa
bls. 15.
Korchnoi
hefndi sín
Baguio, 10. ágúst. AP.
VIKTOR Korchnoi hlotnaðist
fyrsti sigur sinn í elleftu
keppnisskák hans og Karpovs
um heimsmeistaratitilinn á
Filippseyjum.
Áskorandinn kom heimsmeist-
aranum núverandi á óvart í
byrjuninni og hóf síðan hat-
ramma sókn, er gerði út um
slaginn er Karpov urðu á mistök
einkum í 25. og 26. leik. Gaf
heimsmeistarinn skákina eftir 51
leik. Keppendur eru nú jafnir
með einn vinning hvor.
Skákin er skýrð á bls. 18.
Efnahagsmál
eru í öndvegi
hjá da Costa
Sadat hefur
áróðursstríð