Morgunblaðið - 22.08.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
13
Sveinn Þórðarson
fyrrverandi aðal-
féhirðir áttræður
Baldvin Ilalldórsson flytur ljóð á útifundi herstöðvarandstæðinga.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Útifundir 21. ágúst
hreyfingar og her-
stöðvaandstæðinga
21. ágúst hreyfingin og Samtök
herstöðvaandstæðinga gengust í
gær fyrir útifundum í tilefni þess
að 10 ár voru liðin frá innrás
Sovétmanna í Tékkóslóvakíu.
Fundur 21. ágúst hreyfingarinnar
var á Bernhöftstorfunni kl. 16.30 og
stóð hann í tæpan klukkutíma. Á
fundinum kom það fram að tilgang-
ur hreyfingarinnar væri að vekja
athygli á málstað tékkneskrar
alþýðu og einnig að berjast gegn
heimsvaldastefnu. Ávarp á fundin-
um flutti Arnór Sighvatsson og
síðan söng söngflokkur 21. ágúst
hreyfingarinnar.
Að loknum útifundinum á Bern-
höftstorfu gengu fundarmenn að
sovéska sendiráðinu en þar fór fram
útifundur Samtaka herstöðvaand-
stæðinga. Tvö ávörp voru flutt á
fundinum af þeim Árna Björnssyni
og Árna Hjartarsyni en auk þess
flutti Baldvin Halldórsson ljóð og
Hjördís Bergsdóttir söng 2 lög. í lok
fundarins var lesið upp bréf til
forseta Sovétríkjanna, Leonids
Brezhnevs, þar sem innrásinni í
Tékkóslóvakíu var mótmælt og gerð
var krafa um að her Sovétríkjanna
hyrfi á brott þaðan.
Það er ótrúlegt þó satt sé, að sá
síungi Vesturbæingur, Sveinn
Þórðarson fyrrum aðalféhirðir
Búnaðarbanka íslands, fylli átt-
unda tuginn í dag.
Ég kynntist Sveini er ég, þá
ungur að árum, hóf störf í
Búnaðarbanka Islands og með
okkur tókst góð vinátta — sem
haldist hefur síðan — þrátt fyrir
töluverðan aldursmun — en í huga
Sveins er kynslóðabilið ekki til.
Sveinn Þórðarson var allra
manna glaðastur og hressilegastur
í starfi — áhuginn og kappið
bókstaflega geislaði af honum og
smitaði út frá sér. Hann var alltaf
reiðubúinn að hjálpa og leiðbeina
af sinni miklu starfsreynslu og það
kom sér afar vel fyrir nýliða.
Frá útifundinum á Bernhöftstorfu.
Það var einnig gaman að ræða
við Svein um hin og þessi málefni,
því hann var allra manna fróðast-
ur og minnugur vel — hann er
víðlesinn og les allt vel sem hann
les — hann er vel heima í ritum
'bestu rithöfunda okkar. Einkum
dáði hann mjög Halldór Laxness,
og honum lágu á tungu heilu
kaflarnir úr ritum Laxness, eink-
um Gerplu og Heimsljósi.
Sveinn var og er allra manna
best heima í tónlist og söng vel á
sínum yngri árum. Mér er alltaf
sérstaklega hugstætt erindi, er
Sveinn flutti í útvarpið einn
aðfangadag jóla, og sem kom fólki
í jólaskap áður en hátíðin gekk í
garð. Þarna á ég við erindi, um
hvernig lagið við sálminn Heims
um ból varð til. Þetta erindi var
flutt af þeirri alúð, sem ég er viss
um að Sveinbjörn Egilsson hafði
til að bera er hann orti nefndan
sálm upp, í stað þess að þýða hann
úr þýzku, eins og gert var á
flestum norrænum málum. En
flutningur Sveins á þessu erindi
var með ágætum, bæði hvað snerti
samning, og þó kannski enn frekar
flutningurinn, sem einkenndist af
hógværð svo sem hæfir slíkum
sálmi, og tíma þeim er hann er
fluttur á.
Þegar Sveinn hætti störfum í
Búnaðarbankanum settist hann
ekki í helgan stein heldur tók til
við nýtt verkefni — hann fékk sér
vandaða myndavél og hóf að taka
myndir af gömlum húsum í
Vesturbænum — og raunar Aust-
urbænum líka. Hann hafði aldrei
snert á myndavél fyrr og sagði
hann mér að hann óttaðist að það
yrði engin „mynd“ á myndum
sínum. Sá ótti var ástæðulaus, sem
vænta mátti, því Sveinn, af sinni
alkunnu alúð og natni, náði
frábærum árangri í ljósmyndun,
og bjargaði þar með frá glötun
ýmsum verðmætum, sem ella væru
gleymd. Og þetta var áður en
hreyfing í þá átt að varðveita
gömul hús hófst hér í borg.
Ekki get ég gjört stans á þessu
pári utan þess að geta um frú
Kristínu Guðmundsdóttur konu
Sveins, sem er hans betri helming-
ur, svo og börn þeirra hjóna frú
Ingibjörgu og Atla Heimi tón-
skáld, sem bera foreldrum sínum
og æskuheimili fagurt vitni.
Að endingu færi ég afmælis-
barninu bestu óskir mínar og
fjölskyldunnar — og þakka nýja
og forna vináttu.
Sveinn verður að heiman á
afmælisdaginn.
Starfsfélagi
GÆÐI
SEMSTMIDA
löngu eftirað verðið er gleymt og grafíð
Berir þú saman verð, gœði og endingu, sérðu
fljótt að samanburðurinn við aðrar
innréttingar er hagstœður fyrir Haga eldhús-
innréttingar.
Það er nú einu sinni svo að vandaður hlutur er
dýrari en óvandaður og það er skoðun okkar
að „vel beri að vanda það sem lengi á að
standa“. Það er vissulega freistandi að láta
lœgsta fáanlegt verð ráða kaupunum en
reynslan sýnir að það getur verið dýru verði
keypt.
Við sýnum mörg mismunandi uppsett eldhús í
sýningarsölum okkar að Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík og Glerárgötu 26, Akureyri.
Komið og kynnið ykkur möguleikana sem
bjóðast.
HAGI!
Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (91) 84585.
Verslunin Glerárgötu 26,
Akureyri.
Sími: (96) 21507.