Morgunblaðið - 25.08.1978, Page 1
32 SÍÐUR
183. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Átök við
líkbörur
Kenyattas
Nairobi 24. ágúst, Reuter
TIL átaka kom við líkbörur
Kenyattas, hins látna forseta
Kenya, er lögregluþjónar otuðu
byssustingjum að aðgangs-
hörðum syrgjendum í dag.
Þúsundir streymdu framhjá lík-
hörunum og þegar átökin hófust
var hlé gert á ríkisstjórnarfundi
og bráðabirgðaforsetinn, Daniel
Arap Moi, skoraði á syrgjendur
að láta skipast og hafa stjórn á
tilfinningum sínum.
Framkvæmdir eru hafnar við
grafhýsi hins látna forseta í
garðinum við þinghúsið, en útförin
fer fram á fimmtudaginn kemur.
Að útförinni lokinni verður hald-
inn landsfundur flokks Kenyattas,
KANU, og verður þá kjörinn nýr
flokksforseti. KANU er eini
stjórnmálaflokkur landsins, og
leiðtogi hans hefur jafnframt veitt
ríkisstjórn landsins og þingflokki
forstöðu. Víst er talið að Moi, sem
er 54 ára að aldri, verði kjörinn í
stað Kenyattas.
Tilkynnt var í Lundúnum í dag,
að Karl prins kæmi fram fyrir
hönd Elísabetar drottningar við
útförina.
Mama Ngina Kenyatta við likbörur eiginmanns síns. Jomo Kenyatta,
í Ríkishöllinni í Naírobi í gær. (AP-símamynd).
S-Afríkumenn
herja á Zambíu
Lúsaka, Pretórfu,
24. ágúst — AP — Reuter.
STJÓRN Zambíu lýsti því
yfir í kvöld, að suð-
ur-afrískt herlið hefði í
gær ráðizt yfir landamæri
Zambíu, og stæðu nú harð-
ir bardagar yfir í þorpinu
Sesheke, rétt við landa-
mæri Namibíu. Hefðu 12
óbreyttir borgarar þegar
látið lífið í þessari viður-
eign, en af hálfu stjórnar
S-Afríku hefur komið fram
að í stórskotaliðsbardögum
á landamærunum í gær
hafi níu s-afrískir hermenn
fallið. Zambíu-stjórn segir
að auk árásarinnar á bæ-
inn sjálfan hafi stórskota-
lið S-Afríkumanna valdið
miklum skemmdum á
skólahúsi og fleiri bygg-
ingum í námunda við
Sesheke.
Niður með Somoza
— hrópadi múgurinn er hrydjuverkamenn-
irnir héldu fagnandi á brott með herfangið
S-Afríkustjórn heldur því fram
að upphaf átakanna sé að rekja til
árása SWAPO-skæruliða á bæki-
stöðvar S-Afríkuhers á
Caprivi-svæðinu í Namibíu í gær,
en Namibía lýtur stjórn S-Afríku.
Caprivi er landræma, sem skiptir
Sambíu og Botswana, og hefur þar
iðulega skorizt í odda.
Kardínála-
samkundan
hefet í dag
Vatíkaninu — 24. ágúst — AP
GLOGGIR menn telja að kardín-
álasamkundan. sem kýs nýjan
páfa og kemur saman í dag, muni
þurfa drjúgan tíma til að koma
sér saman. Undirbúningi fyrir
samkunduna er nú í þann veginn
að Ijúka og síðdegis í dag drógu
kardínálarnir 111 um vistarverur
þær, sem þeir eiga ekki aftur-
kvæmt úr fyrr en nýr páfi hefur
verið kjörinn. Kosningabaráttan
er að sögn kunnugra að komast
í algleyming, og þeir kardínálar.
sem nefndir eru aftur og enn eru
þeir Baggio, Bertoli og Pignedoli.
sem allir eru ítalskir, svo og
Argentínumaðurinn Pironio.
Enginn þeirra er þó talinn
sigurstranglegastur, og er það
helzta ástæðan fyrir því að
kardínálasamkundan mun drag-
ast á langinn.
Managua — Panama 24. ÍKÚst — AP
ENGU var líkara en að
þjóðhetjur væru á ferð er
vinstri sinnuðu hryðju-
verkamennirnir óku með
herfang sitt út á Managua-
flugvöll í kvöld. Þúsundir
fögnuðu þeim á leiðinni og
hrópuðu í kór« „Niður með
Somoza.“ Ekki er vitað með
vissu hversu margir gíslar
voru með í förinni, en þar
á meðal eru þrír kaþólskir
biskupar og sendiherrar
Panama og Costa Rica.
Talið er að skæruliðarnir
séu milli 40 og 50 talsins og
að pólitísku fangarnir, sem
þeir fengu leysta úr haldi,
séu um 150.1 ljös er komið
að gíslarnir, sem voru á
valdi skæruliðanna í Þjóð-
arhöllinni í Managua, voru
1204 talsins og hafa þeir
nú allir endurheimt frelsi
sitt. 54 þingmenn voru
meðal gíslanna, svo og
fjöldi blaðamanna.
Tvær flugvélar, hlaðnar gíslum,
frelsuðum gíslum og hryðjuverka-
mönnum, komu til Panama í
kvöld. Útilokað virðist vera að
fá uppgefnar nákvæmar tölur um
fjölda þessa fólks, enda má telja
að enn séu ekki öll krul komin til
grafar. Hryðjuverkamennirnir
gerðu kröfu til lausnargjalds, að
andvirði tíu milljóna Bandaríkja-
dala, en óstaðfestar fregnir herma
að þeir hafi sætzt á helming
Sextánda skákin í „einvígi
hins illa auga” fór í bið”
Baguio — 24. ágúst — AP
SEXTÁNDA skákin í heims-
meistaraeinvíginu fór í bið í
dag og virtist jafnteflisleg. I>ó
var talið að Korchnoi hefði
cilítið betur en Karpov.
Zouchar hinn dulúðgi tók sér
sæti á fjórða bekk við upphaf
skákarinnar og hóf eins og hans
er vandi að einblína á áskor-
andann. Kom þá aðvífandi
vinkona Korchnois, Petra Leeu-
werick, með þjósti miklum,
hlammaði sér niður við hlið
Zoucharsog mældi hann síðan út
með nístandi augnaráði. Um
tíma leit út fyrir að til tíðinda
drægi á áhorfendabekkjunum,
en sextánda skákin í „einvígi
hins illa auga“ fór í bið án þess
að upp úr syði. Sjá bls. 18.
þeirrar upphæðar. Þar af hafi 71
þús. dalir verið í reiðufé, en
afgangurinn í ávísunum.
Hryðjuvefkamennirnir eru fé-
lagar í vinstri sinnuðum samtök-
um sem hafa það á stefnuskrá
sinni að koma herforingjastjórn
Somoza forseta frá völdum og
koma á marxískri stjórn. Hreyf-
ingin á miklu fylgi að fagna í
landinu, enda hefur hún verið
helzta baráttuaflið gegn Somoza,
sem er alræmdur fyrir spillingu í
embættisfærslu.
Klukkan hálf átta að íslenzkum
tíma munu kardínálarnir safnast
saman við messu í Péturskirkj-
unni, ep klukkan hálf þrjú hefst
athöfnin þar sem þeir verða luktir
inni í Sistínu-kapellunni, þar sem
þeir verða sambandslausir- við
umheiminn unz þeira hafa komið
sér saman um eftirmann Páls páfa
sjötta.
Þrjú þúsund starfsmenn
Vatíkansins fengu í dag greidd
aukaleg mánaðarlaun, en það eru
hefðbundin hlunnindi allra starfs-
manna við lát páfa. Þeir fá önnur
aukalaun þegar nýr páfi er tekinn
við og kosta þessar greiðslur
Vatíkanið 624 milljónir ísl. króna,
sem ekki gerir verulegt strik í
reikninginn því að þar er auður í
garði.
Dollarinn
seig aftur
London, 24. ágúst. AP.
VERÐ á dollar seig hægt og
bítandi á gjaldeyrismörkuðum
heimsins í dag. þrátt íyrir þær
verndaraðgerðir sem Banda
ríkjastjórn kynnti í ga'r.
Gagnvart japanska jeninu
lækkaði dollar nokkuð eða úr
192.60 jenum í 191.65. Á sama
tíma hækkaði verð á gulli
lítillega á markaði í Evrópu og
var hver únsa gulls seld á
rúmlega einum dollar hærra
verði en daginn áður.