Morgunblaðið - 25.08.1978, Blaðsíða 32
AlíilASIMíASIMlNN ER:
22480
JttorewiWfiötí)
jrcgnttfrlðfrifr
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1978
Búizt við að Olafur Jóhannesson fái næst að spreyta sig:
Mun reyna að koma vinstri
stjórnar-viðræðunum í höfn
Lúðvík Jósepsson for-
maður Alþýðubanda-
lagsins kemur af hálf-
tíma fundi með forseta
íslands í gær þar sem
hann skilaði af sér
stjórnarmyndunarum-
boðinu.
Ljósm. Mbl.i Kristinn.
Lúðvík Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins:
Bæði Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag tilbúin í viðræðumar
FORSETI íslands. dr. Kristján
Eldjárn. hefur boðað Ólaf
Jóhannesson formann Framsóknar-
flokksins á sinn fund kl. 9.30 í dag
á Bessastöðum og er almennt talið
að hann muni fela Oafi að hafa
forystu um frekari stjórnarmynd-
unartilraunir eftir að Lúðvik
Jósepsson skilaði af sér í gær.
ólafur Jóhannesson sagði í samtali
við Mbl. f gærkvöldi þegar hann var
spurður að þvf hvort hann myndi
halda áfram vinstri viðræðunum,
yrði honum falin forysta um
stjórnarmynduni „Þessar viðræður
voru á góðri leið að mínum dómi og
ég myndi telja eðlilegt að athuga
það hvort ekki væri hægt að komast
á leiðarenda/ Forsvarsmenn Iweði
Alþýðuflokksins og Alþýðubanda-
lagsins segjast reiðubúnir til
áframhaldandi viðræðna undir for-
ystu Ólafs Jóhannessonar.
Forseti íslands, dr. Kristján Eld-
járn, sagði í samtali við Mbl. að hann
mundi reyna að hraða ákvörðun um
næsta þátt þessara stjórnarmyndun-
artilrauna eins og kostur væri, og
þegar borið var undir hann að meðal
stjórnmálamanna væri almennt
gengið út frá því, að hann myndi fela
Olafi Jóhannessyni að reyna næst,
svaraði forsetinn því til að hann
hefði séð vangaveltur um slíkt í
Verði grundvellinum
breytt breytastviðhorf
Alþýðubandalagsins
dagblöðunum en kvaðst ekki geta
fjölyrt frekar um málið á þessu stigi.
Ólafur sagði í samtali við Mbl., að
framsóknarmenn hefðu ekki sótzt
eftir stjórnarforystu og verið reiðu-
búnir að styðja hvorn þeirra sem
væri Lúðvík eða Benedikt. Hann
taldi slæmt að þetta hlé skyldi nú
koma í viðræðurnar, þar sem engan
tíma mætti vissa við lausn efnahags-
málanna. Þá sagði hann, að þrátt
fyrir að viðræðurnar hefðu verið
komnar vel á veg, hafi enn verið
talsvert langt á leiðarenda. Loks
sagði Ólafur um þá yfirlýsingu
Lúðvíks Jósepssonar að hann gæfi
ekki kost á sér í ráðherrastól úr því
sem komið væri, að það teidi hann
illa farið, því að hann þekkti Lúðvík
að því að vera dugnaðarmann.
Sjá viðtal við Ólaf Jóhannes-
son á miðsíðunni.
„ÉG vil fullyrða að það sem er
á borðinu stendur fyrir hvern
sem er, enda þótt samningur-
inn sé ekki allur gerður,“
sagði Lúðvík Jósepsson, er
Mbl. spurði hann hvort
samningaumleitanir milli
vinstri flokkanna og verka-
lýðshreyfingarinnar væru það
langt komnar að þeim mætti
halda áfram hindrunarlaust
enda þótt nýr maður taki við
forystu stjórnarmyndunarvið-
ræðna.
Hins vegar segir Lúðvík það
ljóst að verði grundvelli
stjórnarmyndunarviðræðna
breytt hljóti það að breyta
viðhorfum Alþýðubandalags-
ins og hann segir, að ef menn
vilji nú „fara yfir allan póli-
tíska tónstigann aftur" þá spái
hann því að það taki nokkra
mánuði að mynda ríkisstjórn.
Lúðvík segir í samtalinu að
hann telji að Alþýðuflokkurinn
hafi látið undan þrýstingi að
utan þegar hann ákvað að
hafna Alþýðubandalaginu sem
forystuflokki í ríkisstjórn, og
segir svo m.a.: „Það er svolítið
undarleg aðstaða að mega
mynda ríkisstjórnir fyrir aðra
en alls ekki fyrir sinn eigin
flokk“.
„Ég er nú að bardúsa
við að koma á vinstri
stjórn á íslandi.“ Sjá
bls. 16 og 17.
Benedikt Gröndal:
Vantar enn 17 milljarða kr. í
efnahagsdæmið á næsta ári
ÞAÐ ERU ýkjur að búið sé að
leysa málefnalega allan vandann
í vinstristjórnarviðræðunum
undanfarið, að því er Benedikt
Gröndal, formaður Aiþýðu-
flokksins, sagði í samtali við
Mbl. í gær. Benedikt sagði, að í
viðræðunum hefði að vísu náðst
mikill árangur en ennþá væri þó
töluvert mikið eftir, sérstaklega
þó hvað varðaði efnahagsmálin á
næsta ári en þar væri enn
óleystur vandi er næmi um 17
milljörðum króna og ýmis önnur
mál væru ekki útrætt.
Benedikt sagði á hinn bóginn,
að Alþýðuflokkurinn væri tilbú-
inn að halda áfram vinstri
viðræðunum undir forystu Ólafs
Jóhannessonar og kom fram hjá
honum að Alþýðuflokkurinn væri
hlynntur því að það tækist að
mynda stjórn þeirra þriggja
flokka, sem ræðzt hefðu við að
undanförnu og miðað við allar
aðstæður væri líklega bezti
kosturinn til að koma á starfhæfri
stjórn án frekari tafa.
Eftir því sem Morgunblaðif
hefur fregnað mun þingliði
Alþýðuflokks ekki þykja þaf
góður kostur að ganga til ríkis-
stjórnarsams.tarfs undir forystt
Ólafs Jóhannessonar en þó munt
það vera ríkjandi viðhorf í þing-
flokknum að ekki sé fært að gert
það atriði eitt að ásteytingar-
steini.
„Þjófabjalla af minna tilefni”
— segir menntamálaráðherra um varnarleysi Handritastofnunar
í samtali við einn af starfsmönn-
um Handritastofnunar Arna
Magnússonar i Morgunblaðinu
í gær kom fram að ekkert þjófa-
varnarkerfi er í Handritastofn-
uninni, en hins vegar hafa
starfsmenn rætt um nauðsyn þess
að hafa þjófavarnarkerfi tengt
við lögreglustöðina. Morgun-
blaðið ræddi við Vilhjálm
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra í gær og innti hann álits á
þessari stöðu í Handritastofnun-
inni.
Vilhjálmur kvað þetta atriði
ekki hafa komið til tals og ekki
kvaðst hann muna eftir beiðni um
slíkt við afgreiðslu fjárlaga, „En
mér sýnist," sagði ráðherrann, „að
einhversstaðar hafi verið sett upp
þjófabjalla af minna tilefni. Þarna
geymir þjóðin flest öðru dýrmæt-
ara og þá hluti sem sízt verða
bættir ef skaði skeður. Þetta er
því mál sem sjálfsagt er að athuga
rækilega úr því að athygli hefur
verið vakin á því og leysa svo
viðunandi sé fyrir öryggi þessara
þjóðarverðmæta.
Það er því líklega ráðið að setja
upp þjófabjöllu, því nú á að hætta
öllu sem heitir elsku mamma í
opinberum rekstri og veitir ekki
af.“
Benedikt sagði ennfremur, að
hann teldi að unnt ætti að vera að
ná samkomulagi um ýmsa fleiri
aðkallandi málaflokka án þess að
það tæki teljandi tíma og gaf í
skyn að Alþýðuflokkurinn myndi
vera til með að nálgast sjónarmið
Alþýðubandalagsins um skamm-
tímastjórn, þar sem ýmsum þeim
stefnumálum er gætu valdið
ágreiningi, væri ýtt til hliðar. Þá
kvaðst Benedikt hafa heyrt það á
Lúðvík Jósepssyni í undanförnum
viðræðum að það væri eindreginn
vilji hans að taka ekki sæti í
ríkisstjórn og hann hefði því verið
búinn undir yfirlýsingu Lúðvíks
þar að lútandi.
Sjá viðtal við Benedikt
Gröndal, formann Alþýðu-
flokksins á miðsíðu.
Tveir seldu
í Fleetwood
TVEIR Austfjarðabátar seldu í
Fleetwood í Bretlandi í gærmorg-
un, Drífa SU seldi 28 lestir fyrir
7.4 millj. kr. og var meðalverð á
kíló kr. 262. Þá seldi Sæljón SU 37
lestir fyrir 8.3 millj. kr. og var
meðalverö á kíló kr. 227.