Morgunblaðið - 01.09.1978, Page 1
32 SIÐUR
189. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
EKKERT LÁT Á ÓEIRÐUM. Grímuklæddir unglingar halda uppi skotárás við götuhorn í Matagalpa.
þriðju stærstu borg Nicaragua. Hundruð flýðu borgina í dag er uppreisnarmenn hreiðruðu um sig
í vígjum. reiðubúnir til bardaga við þjóðvarðiiða Somozas forseta.
Greindi Hua á
við keisarann?
Tohoran. 31. áKÚst. Reutor
KÍNALEIÐTOGINN Ilua Kuo-feng
brá á það ráð í dag að ferðast í
þyrlu í stað bifreiðar á vit írans-
keisara og var honunt greinilega
áfram um að forðast frekari mót-
ma'laaðgerðir þegna gegn stjórn-
inni. Hua og íranskeisari töluðust
við í Saadahadhiill í Norð-
Nj ósnahneykslið
lýstur Bonnþing
Bonn. 31. ágúst. Routor. AP.
MEIRI háttar njósnahneyksli brast
á Vesturbýzkaland í dag er sérstök
þingnefnd brýndi löggjafarvaldið
til að rifta í svip lögum um
friðhelgi þingmanna svo rannsaka
mætti skrifstofu áhrifamikils
stjórnmálamanns.
Öfgahópur
myrti son
sendiherra
MoxíkúbnrK. 31. ágúst. Routor. AP.
SAMKVÆMT öruggum heimildum
lögreglu í Mexíkóhorg, munu
skæruliðar tengdir „23. september“
hópnum hafa staðið að ráni og
morði sonar sendiherra Mexíkó í
Iiandarikjunum. Hugo Margain jr.
á þriðjudag. Lík Margains fannst
skammt fyrir utan smábæ suðaust-
ur af Mexíkóborg.
Morðið á Margain var framið
aðeins þremur dögum fyrir árlegt
ávarp forseta Mexíkó, en búizt hafði
verið við að þar myndi hann m.a.
tilkynna sakaruppgjöf ýmissa fanga,
þar á meðal skæruliða „23. septem-
ber.“
Forseti þingsins, Karl Carstens,
hefur kallað saman í skyndi neðri
deild þingsins á föstudag til að
ræða tilmæli nefndarinnar um
opinbera rannsókn hjá einum hinna
518 þingmanna. Ekki hefur verið
grcint frá nafni þingmannsins, en
haft er eftir áreiðaniegum heimild-
um að hann sé Uwe Holtz, 34 ára
tjamall þingmaður jafnaðarmanna.
Á hinn hóginn cr ekki ljóst hvort
grunurinn bcinist að honum sjálf-
um eða einhverjum aðstoðarmanna
hans.
Dr. Holtz kom fram í vestur-þýzka
sjónvarpinu á fimmtudagskvöld og
aftók með öllu að hann væri á
nokkurn hátt viðriðinn njósnir.
Áformin um leitina eru síðustu
tíðindi, sem berast eftir að skrifstofa
sambandssaksóknara í Karlsruhe
hóf rannsókn á ótilgreindum fjölda
ráöamanna út af vísbendingum
rúmensks flóttamanns um að hátt-
settur Vestur-Þjóðverji starfaði sem
leppur Sovétmanna. Rúmeninn, Ion
Pacepa, var yfirmaður í öryggisþjón-
ustu lands síns og náinn samstarfs-
maður Ceausescus forseta áður en
hann hvarf sporlaust í viðskiptaleið-
angri í Köln í Vestur-Þýzkalandi
fyrir mánuði. Talið er að Pacepa hafi
leitað hælis í Bandaríkjunum þar
sem hann hefur sætt yfirheyrslum
bandarísku upplýsingaþjónustunnar.
Aðstoðarmaður Egon Bahrs,
Joachim Broudre-Gröger, hafði áður
legið undir grun og gaf hann sig
fram við dómsyfirvöld í gær. Óstað-
festar heimildir herma að alls þyki
sjö stjórnmálamenn koma til greina.
Rússnesk
herflugvél
hrapar við
Svalbarða
Osló 31. ágúst. Frá íréttaritara Mbl.
RÚSSNESK herflugvél hrapaði
á cynni Ilopez suður af Sval-
harða á mánudag. Lík sjö
manna hafa fundizt. en gert er
ráð fyrir 6—10 manna áhöfn á
slíkum vélum.
í braki vélarinnar, sem er
mjög dreift, hafa fundizt skot-
færi, en ekki er vitað hvort
sprenging í þeim olli slysinu.
Talið er líklegt að vélin hafi
verið í rannsóknaflugi á haf-
svæðinu norður af Noregi, er
slysið varð. Dómsmálaráðuneyt-
ið hefur upplýst, að erlendum
herflugvélum sé ekki heimilt að
fljúga í norskri lofthelgi nema
um neyðartilfelli sé að ræða.
Nánari ranr.sókn þessa máls er
þegar hafin.
ur-Tehoran í klukkustund og fjiiru-
tíu mínútur án aðstoðarmanna.
Iranskir embættismenn greindu
frá því eftir fundinn, sem var síðasti
fundur leiðtoganna, að engin sam-
eiginleg yfirlýsing yrði gefin út. Líta
margir fréttaskýrendur svo á að
þetta kunni að vera vísbending um
að foringjunum hafi fatazt að orða
niðurstöður sínar svo báðum líkaði.
Kínverski kommúnistaleiðtoginn
mun snúa heim á föstudag að lokinni
þriggja daga dvöl í Iran. Eini
áþreifanlegi ávöxtur viðræðnanna
hefur til þessa verið fyrirfram
undirbúinn samningur um menning-
arsamskipti landanna af því tagi
sem Sovétmenn og Bandaríkjamenn
hafa þegar gert við Irani.
Um tíu þúsund manns fylktu liði
í mótmælaskyni gegn stjórninni í
gærkveldi og báru eld að banka
skammt frá miðri Teheranborg.
Framtíð Boeing
og Rolls tryggð
London. — 31. átcúst. — Reuter AP.
BREZKA stjórnin samþykkti í dag
að heimila brezkum ríkisreknum
flugfélögum að kaupa 19 flugvélar
af nýrri gerð. Boeing 757, af Boeing
verksmiðjunum. Bandaríska flugfé-
lagið Eastern Airlines hefur einnig
pantað 21 vél af þessari gerð. sem
verður með Rolls Royce hreyflum.
Þessi samningur mun tryggja
framtíð Boeing og Rolls Royce
verksmiðjanna næstu 25 árin og
skapa 10.000 atvinnulausum Bret-
um atvinnu. Heildarkaupverð þess-
ara 10 véla er 680 milljónir dollara.
Fundaði Smith með
skæruliðum á laun?
Pólverjar ráku
2 gyðinga aftur
Stokkhólmur, 31. ágúst. Reuter. AP.
PEIÍ Ahlmark fyrrverandi leiðtogi Frjálslynda flokksins í Svíþjóð
skýrði frá því í dag að sér hefði verið varnað að fara inn í Pólland
ásamt tveimur sænskum gyðingum af pólskum ættum. Sænska
ríkisstjórnin brást hart við og kallaði pólska sendiherrann samstundis
til fundar í utanríkisráðuneytinu til að veita frekari skýringar.
Ahlmark, sem var varaforsætis-
ráðherra Svíþjóðar allt fram til
síðasta vors, kom til Varsjár í
gærkveldi en ákvað að snúa strax
aftur er öryggisverðir meinuðu
tveimur fylgdarmönnum hans að
halda áfram. Var hann í miklu
uppnámi við komuna aftur til
Stokkhólms og sagði: „Það er
bersýnilegt að eina ástæðan fyrir
því að vinum mínum var neitað um
vegabréfsáritun er sú að þeir eru
gyðingar“.
För Ahlmarks til Póllands var
að sögn hálf-opinber, en hann var
nýlega skipaður forstöðumaður
sænsku kvikmyndastofnunarinn-
Salisbury. 31. ágúst. Rcuter. AP.
TVEIR helztu fulltrúaflokkar
hlökkumanna í bráðabirgðastjórn-
inni í Rhódesíu skýrðu frá því í
kvöld að Ian Smith forsætisráð-
herra hefði stofnað til leynifundar
í Sambíu í því skyni að fá leiðtoga
Föðurlandsfylkingarinnar. Joshua
Nkomo. forystuhlutverk um með-
gjörð valdaafsals hvítra manna til
svarta meirihlutans.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar af-
tók fregnina strax með öllu. Vís-
bending um að áðurnefndur fundur
hefði farið fram kom fyrst frá
Þjóðarsamtökum Afríku, Zimbabwe,
er lúta forystu Ndabaningi Sitholes,
félaga í æðsta framkvæmdaráði
stjórnarinnar. Málpípa samtakanna,
Joseph Masangomai, sagði að Smith
hefði hitt að máli Kenneth Kaunda
forseta Sambíu, Joseph Garba utan-
ríkisráðherra Nígeríu ásamt Nkomo
i Sambíu þann 14. ágúst sl. Tals-
maður Muzorewa biskups, formanns
Sameinaða Afríkuþjóðaráðsins,
sagði við fréttamenn: „Ráðinu er
kunnugt um að fundur þessi átti sér
stað og tekur undir yfirlýsingu
Masangomais",
Talsmaður Muzorewas, David
Mukome, lýsti þvi yfir að Smith
héldi áfram að ganga til samninga
án hans. Einnig kom fram að hinar
nýju viðræður Salisburystjórnarinn-
ar og forystumanna skæruliða mið-
uðu að því að staðfesta þann
samning, sem gerður hefur verið
þegar. Hefðu Bretar og Bandaríkja-
menn lýst yfir velþóknun sinni á
þessari þróun mála.
Vitað er að Smith er umhugað um
að fá Nkomo til að snúa aftur þar
sem hann hefur yfir skæruliðaher-
sveitum að ráða, er hófsamari eru en
hinn vinstrisinnaði Mugabe og virð-
ist njóta fylgis bæði meðal vest-
rænna þjóða og Sovétmanna.
Kaunda Sambíuforseti tilkynnti í
dag að þjóðirnar fimm, sem stutt
hafa hvað ötullegast við bakið á
uppreisnarmönnum i Rhódesíu,
myndu koma saman til fundar á
föstudag í Lusaka.
Ygglubrún létti
á Filippseyjum
Baguio, 31. áKÚst. Reuter. AP.
KEPPENDUR í hinu treglega heimsmeistaraeinvígi í skák. sem
fram fer á Filippseyjum. tilkynntu í dag að þeir hefðu orðið
ásáttir um málamiðlun til að koma í veg fyrir að einvígið. sem
staðið hefur í sex vikur, færi út um þúfur.
Ur herbúðum Karpovs heims- hann reiðubúinn að mæta til
meistara spurðist að dulsál- leiks í átjándu skákinni, sem
fræðingurinn sovézki, prófessor
Zukhar sem raskað hefur sálar-
ró Korchnois með nærveru
sinni, yrði færður um set í
áhorfendasalnum. I staðinn
mun Korchnoi hafa fallizt á að
taka niður spegilgleraugun
dökku, meðan kapparnir eigast
við á skákborðinu, en Karpov
hefur borið því við að gleraugun
endurvörpuðu truflandi ljósi á
borðið.
Að gerðu samkomulági þessu
slumaði í Korchnoi og kvaðst
ráðgerð er á laugardag.
Korchnoi hefur nú einn vinning
á móti fjórum vinningum
Karpovs.
Það voru aðstoðarmaður
Korchnois, Raymond Keene, og
fararstjóri sovézku sendi-
nefndarinnar á mótinu, Viktor
Baturinsky, sem konuist að
samkomulaginu á miðvikudag
og tókst þannig að afstýra því
að Korchnoi gerði alvöru úr
hótun sinni um að hætta.