Morgunblaðið - 01.09.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1978
23
Minning:
Kristrún Jósefsdótt-
ir frá Hofsstöðum
Merk kona er gengin. Hún
Kristrún Jósefsdóttir frá Hofs-
stööum var brott kölluð hinn 23.
ágúst, hnigin aö aldri. Hún var
fædd aö Hólum í Hjaltadal hinn
14. október 1887, dóttir hjónanna
Hólmfríöar Björnsdóttur Pálma-
sonar, bónda í Asgeirsbrekku í
Viðvíkursveit og Jósefs Jóns
Björnssonar, skólastjóra á Hólum.
Vorið 1888 hættir Jósef skóla-
stjórn á Hólum og tók við búi af
öldruðum tengdaföður, eftir að
hann hafði misst konu sína, að
Bjarnastöðum í Kolbeinsdal, en
flutti síðar að Asgeirsbrekku og
bjó þar til ársins 1896, er hann tók
aftur við skólastjórn á Hólum.
Kristrún var með foreldrum sínum
og fimm systkinum fyrstu sex ár
ævi sinnar, en vorið 1894 missti
hún móður sína og var þá tekin í
fóstur af merkishjónunum Mar-
gréti Símonardóttur og Einari
Jónssyni í Brimnesi í Viðvíkur-
sveit. Margrét og móðir Kristrún-
ar voru bræðradætur.
Kristrún naut hins mesta ást-
ríkis hjá fósturforeldrum sínum
og hlaut hið bezta uppeldi, sem
kostur var á um síðustu aldamót,
á annáluðu rausnar og menningar-
heimili. Hún vandist öllum venju-
legum störfum í sveit innan húss
og utan auk þess, sem hún fékk
notið meiri menntunar bæði á
bóklegu og verklegu sviði en
algengt var með ungar stúlkur um
þær mundir. Á unglingsárunum
var hún einn vetur við nám hjá
föður sínum á Hólum og sat þá í
sumum tímum með búfræðinem-
um skólans. Taldi Kristrún sig
hafa haft mikið gagn af því, enda
voru bændaskólarnir þá hinir
beztu gagnfræðaskólar fyrir
þroskaða nemendur. Ári síðar hélt
Kristrún til náms í Danmörku og
var þar í tvö ár. Þar lærði hún
danska tungu, en stundaði auk
þess nám í þrem skólum, hann-
yrðaskóla, hússtjórnarskóla og
lýðháskóla. Eftir Danmerkurdvöl-
ina bauðst Kristrúnu starf hjá
Búnaðarfélagi Islands sem hús-
mæðrakennari. Skyldi kennslan
fara fram á námskeiðum út um
sveitir. Kristrún hélt mörg slík
námskeið á Suðurlandi. Þótt henni
þætti starfiö skemmtilegt ílentist
hún ekki í því, heldur hélt heim til
átthaganna og lagði þar grundvöll
að lífshamingju sinni, er hún
giftist jafnaldra sínum og sveit-
unga Jóhannesi Björnssyni á
Hofsstöðum hinn 9. maí 1912.
Sama vorið hófu ungu hjónin
búskap á Hofsstöðum í Viðvíkur-
sveit. Var hinni ungu húsfreyju
nokkur vandi búinn að taka við
búsforráðum á fjölmennu stórbýli
víðkunnu fyrir ríkidæmi og ráð-
snilld eldri kynslóðarinnar, sem
áfram átti þar heima. En þetta
veittist Kristrúnu létt. Hún vann
strax hylli tengdaforeldra sinna og
annarra yngri sem eldri á heimil-
inu og með stjórnsemi sinni og
lagni í umgengni við fólk tókst
henni að breyta heimilishögum og
venjuum í nýtízku horf þeirra
tíma. Um 20 ára skeið bjuggu þau
hjónin, Kristrún og Jóhannes,
góðu búi á Hofsstöðum, eignuðust
þar sjö börn, sem enn eru öll á lífi,
héldu við og juku reisn staðarins
og nutu vinsælda og virðingar nær
og fja;r. Á fyrstu tugum þessarar
aldar voru mörg myndarheimili í
Skagafirði rómuð um Húnaþing og
víðar og voru Hofsstaðir þar í
fremstu röð.
Árið 1932 í dýpsta öldudal
heimskreppunar verður breyting á
högum þeirra Hofsstaðahjóna.
Þau bregða búi og flytja til
Reykjavíkur með börn sín öll. Var
þá skarð fyrir skildi heimafyrir og
hörmuðu Skagfirðingar brottför
þessarar fjölskyldu. Það skarð,
sem þau skildu eftir er enn ófyllt.
Þessi örlagaríka ákvörðun mun
hafa verið tekin barnanna vegna.
Foreldrarnir voru samhent um, að
veita þeim eins gott uppeldi og
kostur var á. Tvö elztu börnin voru
þegar komin í skóla, en öll voru
þau vel gefin og líklegt, að þau
vildu öll stunda skólanám. En að
kosta sjö börn til náms í fjarlægð
frá heimili var engum bónda kleift
í tekjuleysi kreppuáranna. Var því
óðalið yfirgefið og haldið áfram að
settu marki í Reykjavík. Þar setti
fjölskyldan fyrst saman heimili í
leiguhúsnæði í Lækjargötu 6.
Skömmu síðar keyptu þau hjón
húsið Þingholtsstræti 31, þar sem
þau bjuggu meðan börnin voru að
vaxa upp, en fiuttu síðar á
Bollagötu 3, þar sem þau bjuggu til
hinstu stundar, en Jóhannes lézt
hinn 31, ágúst 1967 nær áttræður.
Frá því hann flutti til Reykjavík-
ur, þar til hann lét af starfi fyrir
aldurs sakir vann hann ætíð hjá
sama fyrirtækinu, Áfengisverzlun
ríkisins, lengst sem verkstjóri.
Eg kynntist fyrst Hofsstaðafjöl-
skyidunni persónulega, eftir að
hún var flutt til Reykjavíkur. Ég
hafði kynnst Birni, elztá syni
þeirra Hofsstaðahjóna, tveimur
árum áður, er við vorum skóla-
bræður einn vetur á Akureyri. Er
við hittumst í Menntaskólanum í
Re.vkjavík veturinn 1932—33 urðu
með okkur fagnaðarfundir og
heimsótti ég hann oft á heimili
foreldra hans. Þar var mér tekið
af hlýju af húsráðendum og tókst
þegar vinátta milii mín og fjöl-
skyldunnar, sem haldist hefur
síðan.
Hofsstaðaheimilið, eins og það
var jafnan kallað, er mér
ógleymanlegt. Að búnaði öllum,
gestrisni, veitingum og alúð hús-
ráðenda var það dæmigert fyrir-
myndarheimili á stórbýli í sveit.
Húsfreyjan, Kristrún, var drottn-
ingin í þessu fagra og vel skipu-
lagða ríki og réði þar öllu án þess
að nokkuð bæri á því, að hún
þyrfti að beita valdi. Persónuleiki
Kristrúnar, meðfædd stjórnsemi
og hlýtt viðmót skóp henni vináttu
og virðingu allra, sem henni
kynntust. Hún var börnum sínum
ágæt móðir, unni þeim heitt,
hvatti þau til dáða og opnaði
heimilið fyrir skólasystkinum
þeirra og vinum. Eiginmaðurinn
átti líka sinn mikla þátt í að móta
heimitið. Hann var einbeittur í
skapi og í senn háttvís, sanngjarn
og réttsýnn drengskaparmaður,
vel metinn ög vinsæll af þeim, er
honum kynntust og bjó yfir léttri
kímnigáfu. Þau hjónin voru með
afbrigðum samhent, og með þeim
og börnunum ríkti gagnkvæm
ástúð og samhugur, sem er grund-
völlur sannrar hamingju, sem hið
glaðværa og góða heimili, sem að
framan er lýst, endurspeglaði.
Kristrún var kona fríð sýnum,
lágvaxin og svaraði sér vel,
fluggáfuð og hlaut í vöggugjöf það
bezta, sem nokkrum hlotnast,
heilsteypta skapgerð, sem ein-
kenndist af bjartsýni, glaðværð,
sanngirni og drenglund. Hún sá
ætíð hið jákvæða í iífinu, tók
mótlæti með hugprýði og ró,
æðraðist aldrei og eyddi ekki tíma
sínum í vol og víl, þótt eitthvað
gengi úrskeiðis, heldur sneri sér
ávallt að uppbyggingarstarfi, því
að veita öðrum gleði og trú á
framtíðina og lífið — trú á hið
góða, sem í öllum býr. Kristrún
var trúkona og sannkristin.
Niðjar þeirra Hofsstaðahjóna
+
Úttör eiginmanns míns, fööur, sonar og bróöur,
ÓMARS BRAGA INGASONAR,
Skólabraut 18,
sem lézt 26. ágúst, fer fram laugardaginn 2. september kl. 13 frá
Akraneskirkju. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins
látna, er bent á Slysavarnafélag íslands.
Bára Guómundsdóttir og börn,
Bára Eyfjörð og systkini hins látna.
t
Móöursystir okkar,
KRISTÍN GUDMUHDSDOTTIR,
Frá Hellissandi,
sem lézt í Sjúkrahúsinu Stykkishólmi 25. þ.m. verður jarösungin frá
Ingjaldshólskirkju laugardaginn 2. september kl. 2. Bílferö verður frá
Umferöarmiðstööinni kl. 8 aö morgni laugardags og suöur aö kvöldi.
Jón Júlíusson,
Guómundur Júlíusson,
Hrefna Júlíusdóttir,
Þuríöur Júlíusdóttir,
Þóróur Júlíusson.
+
Alúöar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför
KRISTINS J. GUDNASONAR
forstjóra
Helga I. Kristinsdóttir Ólafur R. Magnússon,
Ása Kristinsdóttir Svavar Björnsson,
Ólafur Kristinsson, Auóur Linda Zebitz,
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum sem sýndu okkur samúö og vinsemd viö
andlát og minningarathöfn eiginkonu minnar og móöur okkar,
HREFNU BJÖRNSDÓTTUR,
Borgarvegi 21,
Njarövík.
Karl Pálsson,
Kristrún Karlsdóttir,
Ragnar Snssr Karlsson.
eru margir. Börnin sjö eru þessi í
aldursröð: Una, ekkja dr. Björns
Sigurðssonár, læknis. Dr. Björn,
efnaverkfræðingur og jarðvegs-
fræðingur; starfaði lengi hjá
Búnaðardeild Atvinnudeildar Há-
skólans og síðar hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York og vinnur
nú að ýmsum hugðarefnum hér
heima. Margrét, gift dr. Olafi
Bjarnasyni, lækni og prófessor.
Hólmfríður, gift Gísla Olafssyni,
ritstjóra. Jósef Jón, kennari.
Sigurður, yfirmaður gjaldeyris-
deildar Seðlabankans, kvæntur
Þórhöllu Gunnarsdóttur. Einar,
læknir í Svíþjóð kvæntur sænskri
konu, Marianne Carlsson.
Barnabörnin og barnabarna-
börnin eru nú 33 og niðjarnir alls
40.
Börnin, tengdabörnin, barna-
börnin og börn þeirra voru Krist-
rúnu óþrjótandi gleðigjafi, enda
vel gerð og hafa reynst, sem
uppkomin eru, hinir mætustu
borgarar, bæði að starfshæfni og
mannkostum. Manndómur og
sterk ábyrgðartilfinning þeirra
Kristrúnar og Jóhannesar hafa
erfst mjög til afkomendanna.
Ætíð var heimili þeirra Hofs-
staðahjóna og síðar Kristrúnar,
eftir lát Jóhannesar, samkomu-
staður fjölskyldunnar. Alúð
ættmóðurinnar dró að sér yngstu
einstaklingana, börnin, sem voru
augasteinar ömmu og langömmu
og glöddu hana með nærveru sinni.
Kristrún Jósefsdóttir var gæfu-
kona. Hún giftist ágætum manni
og lifðu þau saman í ástríku
hjónabandi í 55 ár. Þau eignuðust
sjö börn, sem þeim tókst að veita
það uppeldi, sem þau kusu sér, og
fórnuðu fyrir óðali sínu. Þeim
tókst allt vel, sem þau tóku sér
fyrir hendur. Ég er viss um að
Kristrún þakkaði það handleiðsiu
Guðs.
Með Kristrúnu er gengin ein
merkasta húsfreyjan, sem ég hef
kynnst, af aldamótakynslóðinni,
sem hélt menningararfi sínum í
heiðri til hinstu stundar, en sú
kynslóö með bjartsýni sinni og
dugnaði lyfti íslenzku þjóðinni úr
fátækt og umkomule.vsi til þeirrar
velmegunar, sem hún býr við í dag.
Hlutur Kristrúnar í því starfi var
mikill. Ég þakka Kristrúnu og
fjölskyldunni allri vináttu liðinna
ára og votta öllum aðstandendum
hennar samúð mína. Þótt henni
væru umskiptin án efa kærkomin,
svo háaldraðri, sem hún var, þá
ríkir ávallt söknuður við brott-
hvarf ástríkrar formóður.
Blessuð sé minning Kristrúnar
Jósefsdóttur.
Ilalldór Pálsson.
+ Móðir okkar
JÓNA JÓNSDÓTTIR
KÖTLUFELLI 7.
andaðist aö Hrafnistu 31. ágúst Svava Jónsdóttir Ágústa Rafnar Gísli Jónsson Kristjana Jónsdóttir Haraldur Jónsson.
+
Eiginkona mín, móöir okkar og fósturmóöir,
GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Stóra Knarrarnesi til heimilis
aö Álfheimum 11,
andaöist aö morgni 31. ágúst í Hafnarbúöum.
Marteinn Ólafsson
og börn.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar
JÓN KRISTINN PÉTURSSON
Skarfholti Miöfírði V-Hún.
verður jarösettur á Melstaö laugardaginn 2. september kl. 2.
Jóhanna Björnsdóttír og börn.
+
Eiginkona mín
GUDNÝ EINARSDÓTTIR
hústreyja,
Fremri-Brekku,
Dalasýslu,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 5. sept. kl. 13.30.
Lárus Daníelsson,
börn og tengdabörn.
+
Inniiegar þakkir til allra, er auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát
og útför systur okkar,
ÞÓRUNNAR PÉTURSDÓTTUR,
sjúkrabjálta,
Aóalheiður Pétursdóttir,
Sigríöur Pétursdóttir,
Karl Pétursson
og aórir aóstandendur.
+ Okkar beztu þakkir fyrir auösýnda samúð viö fráfall og útför eiginkonu,
móöur, tengdamóöur og ömmu.
AGNESAR PÁLSDÓTTUR,
Dúfnahólum 2.
Helgi Guómundsson,
Erla Pálsdóttir, Höröur Hjartarson,
Jóhann Helgason, Nanna Ragnarsdóttir,
Hrafnhildur Helgadóttir, Jón Bryngeirsson,
Kristbjörg Helgadóttir, Már Gunnpórsson
Sævar Helgason
og barnabörn.