Morgunblaðið - 02.09.1978, Page 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
Vinstri stjórn tók
við völdum í gær
VINSTRI stjórn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar
formanns Framsóknarflokksins tók í gær við af
ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar, sem veitt var lausn frá
störfum. Hin nýja ríkisstjórn er samsteypustjórn
Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
og eiga sæti í stjórninni níu ráðherrar eða einum fleiri
heldur en í fráfarandi ríkisstjórn.
Ríkisstjórn Geirs Hallgríms-
sonar kom saman til síns síðasta
rikisstjórnarfundar í Stjórnar-
ráóshúsinu kl. 10 í gærmorgun en
klukkan 11 hófst ríkisráðsfundur
á Bessastöðum þar sem forseti
íslands veitti ráðuneyti Geirs
Hallgrímssonar lausn írá störf-
um. Að loknum ríkisráðsfundi
buðu forsetahjónin fráfarandi
ráðherrum og konum þeirra til
hádegisverðar.
Ráðherrarnir níu. sem skipa
hina nýju ríkisstjórn, komu til
Bessastaða kl. 15 í gær en þar
hófst þá íyrsti ríkisráðsfundur
forseta og hinnar nýju stjórnar.
Á þeim fundi skipaði forseti
íslands Ólaf Jóhannesson til þess
að vera forsætisráðherra og með
honum átta aðra ráðherra. Jafn-
framt var gefinn út úrskurður
um skipun og skiptingu starfa
ráðherranna. Þá staðfesti forseti
íslands bráðabirgðalög um niður-
færslu verðlags og verðlagsvísi-
tölu í september 1978. Að loknum
rikisráðsfundinum héldu nýju
ráðherrarnir í ráðuneytin og
hittu þar fráfarandi ráðherra um
kl. 16.30.
Samstjórn Framsókiiarflokks,
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags hefur einu sinni áður setið að
völdum en það var ráðuneyti
Ilermanns Jónassonar sem sat
frá í júlí 1956 og þar til í
desember 1958.
RÍKISSTJÓRN Geirs Ilallgrímssonar kom saman til síns síðasta ríkisráðsfundar með forseta íslands á
Bessastöðum í gærmorgun. Lj«sm. Gunnar g. ViKfúss,,n.
Sjá Einn kemur þá annar
fer á bls. 16 og 17.
Harðnandi and-
staða gegn stjóm-
inni í Danmörku
Kaupmannahöfn. 1. septembcr.
— Frá fróttaritara Mbl.
Lars RanKKaard.
„BRÆÐRALAG jafnaðarmanna
og hins stórkapítalíska Vinstri-
flokks“. eins og nýja samsteypu-
stjórnin í Danmörku heitir á máli
ýmissa verkalýðsfélaga í landinu,
á við mjög harkalega andstöðu að
etja, og hafa danska alþýðusam-
bandið og formaður þess, Thomas
Nielscn, fengið mun eindregnari
stuðning frá einstökum félögum
og vinnustöðum f baráttunni
gegn henni en búizt var við í
upphafi. Þannig hafa til dæmis
samtök málara og ölgerðar-
manna, sem hvortveggja eru
öflug stéttasamtök, skorað ein-
dregið á alþýðusambandið að
ekki verði látið sitja við orðin
tóm, heldur gripið til harkalegra
aðgerða og herferð skipulögð til
að fella stjórnina.
Mótmælaverkföll eru víða hafin
og búizt er við að þau muni
breiðast út næstu daga. Samtök
byggingarmanna í Kaupmanna-
höfn, sem eru með um 20 þúsund
manns innan sinna vébanda, efndu*
í dag til mótmælafundar fyrir
framan Kristjánsborgarhöll.
Ríkisstjórnin lagði í dag fram á
þingi frumvarp um verðstöðvun og
2% hækkun á virðisaukaskatti,
sem þá yrði eftirleiðis 20%.
Danska krónan átti í vök að
verjast á gjaldeyrismarkaði í dag,
og hafa sögur um gengisfellingu
fengið byr undir báða vængi.
Fjármálaspekingar segja að ekki
þurfi meiriháttar aðgerðir stjórn-
valda til að styrkja krónuna, og
hinn nýi utanríkisráðherra og
leiðtogi Vinstri-flokksins, Henn-
ing Christophersen, harðneitaði í
dag að gengisfelling væri í aðsigi,
og sagði að hér væri um að ræða
fáránlega hugmynd.
RÍKISSTJÓRN Ólafs Jóhannessonar á sfnum fyrsta ríkisráðsfundi með forseta íslands á Bessastöðum
í gær.
Ánægja hjá NATO með lok
stjórnarkreppu á íslandi
Flosnar upp innan hálfs árs — segir Arbeiderbladet um stjórnina
BrilsKel, Ósló, 1. septcmber, AP <>K
Jan Erik Lauré. fréttaritari Mbl.
TALSMENN NATO í aðal-
stöðvum handalagsins í Briissel
lýstu í dag yfir ánægju sinni
með lausn stjórnarkreppunnar
á íslandi og þær lyktir mála að
með forsæti í nýrri ríkisstjórn
og. stjórn utanríkismála fari
leiðtogar flokka, sem styðji
aðild landsins að NATO. Haft
var eftir hátt settum embættis-
mönnum í hækistöðvunum að
hefði kommúnistum hins vegar
verið falið að gegna „viðkvæm-
um ráðherraemba>ttum“ kynni
svo að hafa farið að bandalagið
hefði neyðzt til að stöðva
mikilvægar hernaðarlegar upp-
lýsingar. sem fslenzk stjórn-
völd fá í hendur sem aðili að
bandalaginu undir vcnjulcgum
kringumstæðum, en slfkar ráð-
stafanir voru gerðar er vinstri
stjórn með aðild kommúnista
var við völd í Portúgal
1974-75.
Arbeiderbladet. helzta mál-
gagn stjórnar norska Verka-
mannaflokksins, hefur það eft-
ir „áreiðanlegum heimildar-
mönnum" sfnum íslenzkum að
hin nýja stjórn Ólafs Jóhannes-
sonar flosni upp innan hálfs
árs vegna ágreinings um lausn
efnahagsvandans.
Arbeiderbladet var eina
norska blaðið, sem í dag birti
sjálfstæða grein um stjórnar-
myndunina á íslandi, en aðrir
fjölmiðlar í Noregi hafa stuttar
frásagnir eftir íslenzkum frétta-
riturum hinna stóru alþjóðlegu
fréttastofnana.
Viðbrögð vegna stjórnar-
myndunarinnar hafa ekki borizt
annars staðar frá enn sem
komið er, en það var haft eftir
ónafngreindum heimildarmanni
í Brussel, að varðandi öryggis-
mál hafi bandalagið til þessa
aðeins átt samskipti við forsæt-
is- og utanríkisráðuneyti, og séu
málefni Atlantshafsbandalags-
ins venjulega ekki rædd innan
ríkisstjórnarinnar, þar sem
Alþýðubandalagið, sem sé að
hluta til kommúnískur flokkur,
fari nú með stjórn viðskipta-,
mennta- og iðnaðarmála. Hafa
forsvarsmenn bandalagsins ekki
viljað tjá sig um stjórnmála-
þróunina á' Islandi meðan á
stjórnarkreppunni stóð,
auðsjáanlega til að girða fyrir
að slík ummæli gætu haft áhrif
á gang máia.