Morgunblaðið - 03.09.1978, Page 1
64 SIÐUR
191. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rhódesía:
Leynifundur um
aukin völd til
þjóðemissinna
Jóhannes Páll I verður
krýndur formlega í dag
Vatikanið. 2. september. AP.
JÓHANNES Páll I, nýkjörinn
páfi kaþólsku kirkjunnar og
leiðtogi 700 milljóna manna
verður á morgun krýndur
formiega til embættis. Jóhann-
es Páll I hefur þegar tilkynnt
að hann muni bregða út af
aldagamalli venju og láta
krýna sig með ullarbandi í stað
þríkórónunnar miklu sem páf-
ar síðustu 15 alda hafa verið
krýndir með þegar þeir hafa
formlega tekið við embætti.
Ennfremur hefur Jóhannes
Páll I ákveðið að breyta út af
fyrri hefð með því að fara með
messugjörð ásamt kardínálun-
um sem höfðu kosningarétt á
kardínálasamkundunni svo og
þeim sem eru orðnir áttræðir, í
útimessu á torgi heilags Péturs
á morgun þegar krýningin fer
fram. Þá hefur hann einnig
ákveðið að láta ekki bera sig á
börum til athafnarinnar eins og
venja er.
Vegna páfakjörsins hefur
þjóðhöfðingjum víðs vegar að úr
heiminum verið boðið að vera
viðstaddir athöfnina. I því
sambandi hafa risið nokkrar
deilur vegna þess að forsvars-
menn Vatíkansins höfðu boðið
frá Argentínu bæði Jorge Rafael
Videla forseta herforingja-
stjórnarinnar og einnig ónefnd-
um stjórnmálamanni utan
stjórnarinnar. A Italíu hafa
samtök kommúnista og sósíal-
ista og kaþólska verkamanna-
sambandið hótað að grípa til
aðgeröa til að mótmæla komu
Videla.
Afram róstur
í Nicaragua
ManaKUa — Panamaborg. 2. sept. AP.
YFIRMENN Rauða kross-
ins, sem verið hafa við
hjálparstarf í átökunum í
Nicaragua að undanförnu,
bjuggust við áframhald-
andi blóðsúthellingum í
helztu borgum landsins í
dag, laugardag. Flestar
verzlanir í þessum borgum
eru nú lokaðar og athafna-
líf að mestu lamað. Svo til
engin umferð er á götum
úti, sem hefur verið lokað
með götuvígjum og
óbreyttir borgarar halda
sig innan dyra.
í dag verður
Lusaka, 2. seþtember. AP.
JOSHUA Nkomo, leiðtogi
þjóðernissinnaðra blökku-
manna í Rhódesíu, sagði á
fundi með fréttamönnum í dag
að sögusagnir um leynilegan
fund hans og Robert Mugabes
með Ian Smith forsætisráð-
herra Rhódesíu ættu við rök
að styðjast.
Þeir hefðu komið saman
fyrir skömmu og rætt þar
aðallega um tilfærslu valds í
landinu í hendur skæruliða-
hreyfingunum sem þeir eru í
forsvari fyrir, en Nkomo vildi
ekki fara nánar út í þá sálma,
nema hvað hann játti spurn-
ingu þess efnis, hvort Smith
hefði á fundinum samþykkt
einhverja valdatilfærslu.
Fyrr í vikunni höfðu bæði
Nkomo, Mugabe og Smith lýst
fréttir um fund þessara aðila
þvætting sem ætti að ekki við
nein rök að styðjast.
Að síðustu sagði Nkomo að
öll stórveldin, Bandaríkin,
Þessi mynd sýnir tvo af andstæðingum Somoza. eftir að hafa náð
borginni Matalgalpa á sitt vald á þriðjudag. Þjóðvarðliðum Somoza
tókst síðan að ná henni á sitt vald á föstudag og létust 50 manns í
þeim átökum.
Jóhannes Páll páfi, veifar til mannfjöldans eftir að kosning hans hafði farið fram.—
hann krýndur formlega í Péturskirkjunni í Róm.
Bretland og Sovétríkin, hefðu
allan tímann vitað af þessum
fundi þeirra félaga með Ian
Smith.
18. skák-
iníbið
Baguio — 2. sept. Reuter.
ÁTJANDA skákin í einvígi
þeirra Karpovs og Korchnois
fór í bið í gær eftir 41 leik.
Biðskákin verður tefld í dag.
Sérfræðingar telja líklegt. að
þeir semji um jafntefli í
biðskákinni og örlítið rýmri
staða Karpovs nægi honum
ekki til vinnings. Korchnoi
hafði svart í þessari skák og
beitti Pirc vörn í fyrsta skipti
í einvíginu.
„Vissulega
er það lýgi”
Stokkhólmur — Moskva — 2. sept. AP.
SOVÉZKI útlaginn Agapov sagði
blaðamönnum í dag, cð eiginkona
hans hefði sagt hönum í símtali, að
sovézk yfirvöld hefðu gefið henni
leyfi til að fara til Svíþjóðar og
heimsækja Agapov síðar í þessum
mánuði. Hann hefur nú í hart nær
fjögur ár barizt fyrir því að fá
fjölskyldu sína til Svíþjóðar, en án
árangurs.
Haft er eftir eiginkonu hans,
Ludmilu, í Moskvu, að hún sé ekki
trúuð á að þetta reynist rétt þrátt
fyrir loforðið og þetta sé helber lygi.
„Ef við fengjum að fara, væri búið
að senda okkur til Svíþjóðar
umsvifalaust og án frekari mála-
lenginga," sagði Ludmila.
Sovétríkin
auka stuðning
við Víetnam
Washington. 2. sept. AP.
SOVÉTRÍKIN hafa á siðustu vikum
sent fjölda herflugvéla ásamt ýms-
um birgðum til stuðnings herjum
Víetnam í vaxandi átökum þeirra
við Kambódíuher undanfarið, að
því er bandarfsk yfirvöld sögðu í
dag.
Bandarískur starfsmaður, sem
ekki vildi láta nafns síns getið, sagði,
að nýlega hefði milli 15 og 20
sovézkum herflugvélum verið flogið
til Víetnam með millilendingu í
Pakistan og á Indlandi. Með í förinni
hefðu einnig verið fjölmargir tækni-
og herráðgjafar. Hann sagði jafn-
framt, að þetta væri mesti liðsauki,
sem Víetnömum hefði borizt í langan
tíma frá Sovétríkjunum í deilunum
við Kambódíu.
Ekki hefur vitnazt um meiri
háttar átök frá því á föstudag, er
þjóðvarðliðar Somozas náðu borg-
inni Matalgalpa úr höndum Sad-
anista hreyfingarinnar. í þeim
bardögum létust 50 manns og
hundruð manna særðust.
Helztu talsmenn Sadanista
hreyfingarinnar, sem nú eru í
Panamaborg hafa brugðizt hart
við þeim orðrómi að Bandaríkja-
stjórn ætlaði að stilla til friðar í
Nicaragúa. Þeir sögðu á blaða-
mannafundi, að ef Bandaríkja-
stjórn hlutaðist til um deilurnar í
landinu væri ekki hægt að líta á
það sem annað en beina innrás og
þeirri innrás yrði snarlega hrund-
ið. Hu'go Torres, sem sjálfur kallar
sig foringja Sadanista, sagði á
þessum fundi, að stjórnin í
Washington hefði ævinlega veitt
Somoza margháttaðan stuðning í
efnahags-, her- og stjórnmálum og
að staðaldri væru um 70 Banda-
ríkjamenn í Nicaragua við þjálfun
þjóðvarðliða.
Uemura ætlar
á Suðurpólinn
Tokýó, 2. september. AP.
NAOMI Uentura, japanski ofurhuginn sem fyrstur manna fór einn
síns liðs á Norðurpólinn og síðan þvert yfir Grænlandsjökul, kom heim
í gær eftir 7 mánaða fjarveru. Og viti menn, það fyrsta sem kappinn
lét eftir sér hafa var að nú þyrfti hann að fara að undirhúa ferð sína
á Suðurpólinn og þangaö ætlar hann auðvitað einn sfns liðs.
Er Uemura var að því spurður
af fréttamönnum hvers vegna
hann færi allar þessar ferðir sínar
einn síns liðs, svaraði hann því til
að hann þyrfti að einbeita sér svo
mikið í svona ferðum að hann gæti
hreinlega ekki alltaf verið að taka
tillit til annarra, svo væri hann
reyndar „töluverður eiginhags-
munaseggur".
Uemwra lagði upp í ferð sína á
Norðurpólinn 5. marz s.l. en
þangað er um 800 km leið. Þá var
flogið með hann til norðurodda
Grænlands þar sem hann lagði
upp í 2600 km göngu 12. maí s.l.
Uemura hefur unnið sér fleira
til frægðar en þessar ferðir því að
á undanförnum árum hefur hann
klifið hæstu fjöll allra heimsálfa
nema Ástralíu, þ.á m. Monte
Everest, hæsta fjall -heims.
Naomi Uemura. japanski ofur-
huginn.