Morgunblaðið - 03.09.1978, Side 13

Morgunblaðið - 03.09.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978 13 Húsa- rotta handsömuð RANNSOKNARLÖGREGLAN hefur handtekið mann um tvítugt, sem hefur nú um skeið stundað innbrot í íbúðir og stolið þaðan umtalsverðum fjármunum. „Húsarotta" þessi, eins og lögreglumenn kalla einatt þá, sem innbrot af þessu tagi stunda, brauzt m.a. inn í íbúð á Seltjarnarnesi og náði þaðan bankabókum með 500—600 þúsund króna inni- stæðu en hafði ekki náð að taka út nema um 150 þúsund áður en reikningnum var lokað. í ann- arri íbúð náði hann að stela um 400 þúsund krónum og fleira kann hann að hafa á samvizk- unni. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í 90 daga gæzlu- varðhald. r Atta fórust í flugslysi Las Vegas, Nevada-fylki, 1. september, Reuter. AÐ MINNSTA kosti átta manns fórust þegar flugvél með um 10 manns innanborðs rakst á flug- turn og hrapaði skömmu eftir flugtak á Las Vegas flugvelli í dag. Vélin var á leið til Santa Anna í Kaliforníu þegar slysið varð. Holland hætt- ir stuðningi við Kúbu Haag — 1. sept. — AP HOLLENZKA stjórnin tilkynnti í dag. að hún hefði ákveðið að hætta þróunaraðstoð við Kúbu vegna íhlutunar Kúbu í Afríku. í yfirlýsingu frá stjórninni segir, að þessi ákvörðun verði endurskoðuð, ef breyting verði á íhlutun Kúbu í Afríku. Frá árinu 1975, hafa Hollendingar veitt Kúbu ýmislega þróunaraðstoð samtals að upphæð 26 milljónir dollara. 5Í16688 Hraunbær 2ja herb. góð íbúð á 3. hæð, vönduð sameign. Tilbúið undir tréverk Höfum 3ja og 4ra herb. íbúðir við Hamraborg Kóp. afhendast tilb. undir tréverk og málningu, sameign að fullu frágengin. Mávahlíð 3ja—4ra herb. risíbúð. Verð 10.5 millj., útb. 7 millj. Eyjabakki 4ra herb. 110 ferm. góð íbúð á 1. hæð. Laus fljótlega. Raðhús í Garðabæ Höfum til sölu nokkur raðhús á tveimur hæðum með innbyggð- um bílskúr, sem afhendast í fokheldu ástandi. Dalsel 2ja herb. 75 ferm. vönduð íbúð, bílskýli. Kárastígur 3ja herb. 100 ferm. íbúð sem er mikið endurnýjuð. Laugarnesvegur Góö 3ja herb. íbúð á 2. hæð. eigimfh; UmBODIDkn LAUGAVEGI 87, S: 13837 Ifc&XÍÍ Heimir Lárusson s. 10399 ' W Ingileifur Einarsson s. 31361 hgólfur Hjartarson htíl. Asgeir Thorotídssen hdl.‘ Rafeindaklukkur til sölu Seljum á. meöan birgöir endast nokkrar lítiö útlitsgallaðar rafeindaklukkur meö vekjara. Klukkurnar eru í fullkomnu lagi, og seljast meö góöum afslætti. Látiö ekki happ úr hendi sleppa, komiö á söluskrifstofu vora aö Ármúla 5, fjóröu hæö. Rafrás sf. Einbýlishús í Reykjavík óskast skipti á nýju og fallegu raöhúsi á Seltjarnarnesi koma til greina. Einnig vantar 2ja herb. íbúð útb. 6 millj. þar af 4 millj. við samning 2 millj. í janúar-febrúar. Einar Sigurösson hrl., Ingólfsstræti 4, símar 16767 og 16768. Tilbúiö undir tréverk 2ja og 3ja herbergja íbúðir Til sölu eru eftirgreinar íbúöir í húsi viö Orrahóla í Breiðholti III. 1) 2 stæröir af 2ja herbergja íbúöum. Verö 8.5—9.4 milljónir. (Af stærri gerðinni er nú eftir 1 íbúð, en 2 af minni geröinni). 2) Stórar 3ja herbergja íbúðir. Verð 11.0—11.4 milljónir. íbúöirnar seljast tilbúnar undir tréverk, húsið frágengið aö utan og sameign inni fullgerð, þar á meöal lyfta. Húsiö er oröiö fokhelt fyrir nokkru og nú veriö aö ganga frá miöstöö og gleri. í húsinu er húsvaröaríbúö og fylgir hún fullgerö svo og 2 stór leikherbergi fyrir börn meö snyrtingu. Beöiö eftir 3.4 milljónum af húsnæöismálastjórnarláni. íbúöirnar afhendast 15. apríl 1979. íbúöirnar eru sérstaklega vel skipulagöar. Frábært útsýni. Traustur og vanur byggingaraöili. Nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofunni. Árni Stefánsson, hrl., Kvöldsími 34231. Suðurgötu 4, sími 14314. tíTSALAN BYRJAR Á MORGUN ,\ 1 /iiUf/r. Saí/if/rf to ihii/í cn 'rítailsn u Wfa 40-80% AFSLATTUR Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR. KOMDU STRAX OG GERÐU REYFARAKAUP BANKASTRÆTI 14, SIMI 25580.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.