Morgunblaðið - 03.09.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
19
Hver lenti á tunglinu 1969?
Ekki þykir lengur í frásögur færandi, þó að við heyrum
í fréttum, að einhverjir séu á leið til tunglsins. En það
er þó ekki svo ýkja langt síðan menn fóru að leggja leiðir
sínar þangað.
Flestir geimfaranna hafa orðið heimsfrægir og munu
nöfn þeirra lifa í mannkynssögunni. Þann 21. júlí, 1969,
lenti Appoló 40 á tunglinu. Hver var það, sem fyrstur steig
fæti sínum á tunglið?
A) Charles Conrad, B) Neil A. Armstrong, C) Eldwin
Aldrin D) Jurij Gagarin?
Bréf frá lesendum:
Hvað finnst þér?
Tvær stelpur frá Akraensi
skrifai
„Við viljum fá fleiri þætti um
Tuma litla, sem var sýndur í
sjónvarpinu á jólunum 1977. ok
þeir mættu koma í staðin fyrir
ítölsku klippimyndirnar. Þær eru
leiöinlegar. Ok það má sýna
meira af Bleika pardusnum ok
bófa- og indíánamyndum. Og
meira af þáttum Á vorkvöldi. Við
viljum ekki sjá Kastljós í vetur.
þá slökkvum við á sjónvarpinu
alveg á stundinni.
í útvarpið væri gaman að fá
meira af íslenskum barnaleikrit-
um. Ob þar má að mestu leyti
sleppa sinfóníum, þær gera mann
alveg sturlaðan.
Maja og Karen á Skaganum.
Svo mörg voru þau orð.
Stúlkurnar tvær af Skaganum
hafa látið í ljósi álit sitt á ýmsu
í dagskrá útvarps og sjónvarps,
og gaman væri að heyra frá
fleirum. Eflaust eru mörg ykkar.
sem hafið eitthvað annað að segja
— eða hafið aðrar skoðanir. En
munið að skrifa fullt nafn.
heimilisfang og aldur með. Það
þarf ekki endiiega að koma á
prent. þið getið skrifað undir
dulncfni eða styttingu.
Til gamans...
Elsa mín! Þú ert þó ekki að
leika á píanóið með skítugum
höndunum?
Jú, mamma, ég spila bara á
svörtu nótunum!
H
‘usnnf — nuijííuni n i;uai jaajj
Japonsk
ísleniki vörubillinn
HINO Ki 422
Eigum 2 KB 422 vörubifreiðum óráöstafaö frá
samsetningarverkstæði okkar á gamla verdinu.
Hino KB 422 er 16.800 kg aö heildarþunga.
Hafiö samband viö sölumenn okkar,
sem veita fúslega allar nánari uppfýsingar.
Hino Þýðir afl og öryggi.
BÍLABORG HF.
Smiöshöföa 23, Símar: 81264 — 81299.