Morgunblaðið - 03.09.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
23
ORMAR Þór Guðmunds-
son, teiknaði á sínum tíma
hótel fyrir ofan Langasand
á Akranesi, sem ekki hefur
orðið að veruleika. Hann
nefndi og annað nýrra
verkefni, sem unnið hefði
verið á Arkitektastofu
hans og Örnólfs Hall, sem
miðaði að því að lífga upp
á bæjarbrag Akraness,
torg í miðbænum milli
Landsbankabyggingarinnar
og húss Þorgeirs Jóseps-
sonar, sem á Akranesi er
stundum kallað „Lesbók-
in“, þar sem það þykir
minna á Morgunblaðshöll-
ina, bara minna.
Ormar Þ6r
Guömundsson:
Hann ræddi eilítið þessa
torghugmynd með hliðsjón
af uppbyggingu bæja hér á
landi.
„Þetta torg, sem upphaf-
lega hét Skuldartorg, en
hafði fengið nafnið Akra-
torg, þegar Landsbankinn
byggði við það, er í miðjum
eldri hluta bæjarins, þar
sem helstu verslunargöt-
urnar skerast og þó að
fyrirhugaður sé nýr miðbær
á Akranesi, þá er eðlilegt og
gert sé vel við þann gamla,
og að viðskiptalíf í nánum
tengslum við íbúðarbyggð
fái að þróast þar áfram. Á
þessu torgi var reiknað með
brunni, söluturnum og því
um líku, sem lífgar upp á
bæjarbraginn.
Hugmyndin að brunnin-
um, sem Snorri Sveinn
Friðriksson myndlistar-
maður hefur útfært, er
sprottin af því að fyrir daga
vatnsveitunnar var á þess-
um stað drykkjarvatns-
brunnur Akurnesinga".
„Ég held að flestir arki-
tektar hafi alltaf verið á því
að meiri forsjá og minna
kapp þyrfti að ríkja hér í
uppbyggingu bæja. Það er
aðallega hugsað um að
hvert hús standi fyrir sínu,
en ekki horft nógu mikið á
samhengið. Og þar sem
uppbygging er mjög ör,
höfum við hugað of lítið að
því að framkvæma eitthvað
sem gerði bæinn sérstak-
lega aðlaðandi til búsetu.
Þess vegna eru margir af
þessum hraðvöxnu bæjum
heldur kaldir og leiðinlegir.
Það er langt frá því að þessi
sjónarmið séu einhver ný
bóla meðal arkitekta, en
þau eru farin að heyrast
meira nú og fá stuðning í
Ormar teiknaöi á sínum tíma „útsýnishótel“ á Jaðarsbökkum á Akranesi, ffyrir ofan
Langasand.
Hraðvöxnu bæirnir
kaldir og leióinlegir
vaxandi áhuga á umhverfis-
vernd almennt".
„Umrætt torg á Akranesi
er raunar þegar til staðar,
en skorið í sundur af akvegi
með tveimur akbrautum í
hvora átt og eyju á milli,
með öðrum orðum um-
ferðaræð með hraðbrautar-
sniði, en reyndar aðeins um
50 metrum lengri. Rökin,
sem fram hafa verið færð
gegn því að búa þarna til
torg fyrir gangandi fólk
eingöngu eru að sjálfsögðu
þau að það torveldi bílaum-
ferð og einum tveim eða
þrem bílastæðum yrði víst
færra á svæðinu en nú er.
Þetta sjónarmið finnst mér
dæmi um dekur við bílaum-
ferð, á kostnað annarra
þátta, sem því miður er allt
of algengt. Svo frábært
samgöngutæki sem billinn
er, má ofnota hann eins og
fleiri góða hluti."
Hugmynd Ormars að torgi í miðbæ Akraness. Brunnurinn er hannaður af Snorra Sveini
Friörikssyni.