Morgunblaðið - 03.09.1978, Síða 32
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
Lúóvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins:
Alþýðuflokkurinn hefur eng-
in fyrirheit um breytingar á
efnahagsstefnu stjómarinnar
„ÞAÐ ER alrangt að Al-
þýðuflokknum hafi verið
gefin einhver fyrirheit eða
loforð um það að þegar í
ríkisstjórnina væri komið
yrði efnahagsstefnan eitt-
hvað sveigð að þeirra vilja.
Alþýðuflokknum var gef-
inn kostur á því að láta
st jór nar my ndunarviðræð-
urnar slitna á ef nahagslegum
atriðum, en það varð ekki
og stefna ríkisstjórnarinn-
Tólf háhyrn-
ingar veidd-
ir í haust?
ERLENDIR aðilar haía mikinn
áhuga á.að veiða háhyrninga á
Islandsmiðum fyrir dýrasöfn í
haust. Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, þá hefur Konráð Júlíusson
skipstjóri fengið leyfi til að -veiða
6 háhyrninga fyrir franska aðila
og Sædýrasafnið í Hafnarfirði
hefur fengið heimild til að veiða
aðra sex.
ar verður sú sama sem í
samstarfsyfirlýsingunni
segir“, sagði Lúðvík Jós-
epsson formaður Alþýðu-
bandalagsins, er Mbl. bar
undir hann fréttir af
flokksstjórnarfundi Al-
þýðuflokksins þess efnis að
Alþýðuflokknum hefðu
verið gefin fyrirheit um
breytingar á efnahags-
stefnunni, þegar ríkis-
stjórnin væri komin á.
„Það er því algjörlega út í
hött ef samþykkt einhverra
alþýðuflokksmanna á
stjórnarsamstarfinu hefur
verið bundin slíkum vonum
að ég nú tali ekki um
fyrirvari einhverra þing-
mannanna“, sagði Lúðvík.
„Þessi ríkisstjórn er mynduð á
grundvelli þeirra sex meginatriða
í efnahagsmálum, sem samkomu-
lag varð um í viðræðunum undir
minni stjórn. Um framhaldið eftir
áramót má segja að þessi grund-
völlur nái fram yfir þau varðandi
áhrif gengisfellingarinnar, kaupið
verður fast og 10% niðurfærsla á
verðlagi verður áfram.
Alþýðubandalagið gengur til
þessarar stjórnar sem ríkisstjórn-
ar með það afmarkaða verkefni að
leysa launahnútinn og vanda
atvinnuveganna alveg eins og ég
sagði, þegar ég stóð á tröppunum
á Bessastöðum og lýsti því, hvers
konar stjórnarmyndun ég hygðist
beita mér fyrir.
I beinu framhaldi af þessari
yfirlýsingu minni fengum við inn
í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar ákvæði um endurskoðun
hennar á næsta ári, vissulega í
óþökk hinna, sem töldu að það
undirstrikaði það að hér gæti verið
um bráðabirgðastjórn að ræða“.
Góð loðnu-
veiði í gær
Veður batnaði á loðnumiðunum
norður af landinu í fyrrinótt og
eftir mið-iætti fóru skipin að kasta
á ný. Um hádegisbil í gær höfðu
tveir bátar tilkynnt loðnunefnd
afla, Kap 2. VE 630 lestir og
Keflvíkingur KE 530 lestir. Þá var
vitað að Náttfari og Örn voru
búnir að fylla sig, og mörg önnur
skip voru komin með góðan afla.
Þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum af togbát fyrir vestan
Eyjar síðla dags fyrir skömmu, en afli trollbáta þar
hefur verið sæmilegur annað veifið. Vinstra megin við
bátinn sést út í Surtsey, en báturinn er Ófeigur II VE.
Benedikt Gröndal í fyrradag:
Flugstöðin mun rísa
Benedikt Gröndal í gær:
Efnahagsástandið kann
að haf a áhrif á þessa
milljarðaframkvæmd
Ólafur Jóhannesson:
Flugstöðin á íslenzku
umráðasvæði
Lúóvík Jósepsson:
Framhjá okkar hnút-
um verður ekki gengið
EINS OG komið hefur fram í
Morgunblaðinu er risin deila
um það milli Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags, hvort stjórn-
arsáttmálinn eða samstarfs-
yfirlýsingin heimili að ný
flugstöð rísi á Keflavíkurflug-
velli. í Morgunblaðinu í fyrra-
dag staðhæfði Benedikt Grön-
dal utanríkisráðherra að hún
myndi ri'sa. en í gær sagði hann
í samtali við Morgunblaðið, að
þess bæri að geta að það gengi
í' gegnum stjórnarsáttmálann,
að efnahagsástandið krefðist
aðhalds, þar á meðal minnk-
andi fjárfestingar og fram-
kvæmda. Kynni það að hafa
einhver áhrif á þessa fram-
kvæmd, sem væri milljarðafjár-
festing.
Benedikt Gröndal sagði að
hann hefði áður tjáð sig um
þetta mál við Morgunblaðið og
hann héldi sig við það sem hann
hefði sagt þar. Hins vegar kvað
hann þetta vera mjög flókið
mál, sem hann ætlaði að kanna
og rannsaka mjög vandlega. „Ég
hef náttúrulega ekki meiri
vitneskju um þetta,“ sagði Bene-
dikt, „þegar ég byrja, en venju-
legir þingmenn og ég mun því
kynna mér þetta mjög vandlega.
Ég tel að þörfin fyrir stöðina sé
ákaflega brýn og það verði að
halda málinu áfram. Skoðanir,
sem ég hefi látið í ljós, byggjast
á grundvallaratriðum. Þar legg
ég áherzlu á að þetta sé íslenzkt
mannvirki, sem er hlið þjóðar-
innar að umheiminum. Það er
aðkallandi þörf að fá þetta
mannvirki."
I samstarfssamningnum segir
að ekki verði heimilaðar nýjar
meiri háttar framkvæmdir á
yfirráðasvæði varnarliðsins. í
Morgunblaðinu í gær kemur
fram að ákveðið sé að taka í
notkun nýjar ratsjárflugvélar
og framkvæmda sé þörf þeirra
vegna. Um þetta atriði sagði
Benedikt Gröndal: „Það er alveg
eins með< það. Ég get aðeins
vísað í það sem stendur, „meiri
háttar framkvæmdir", og ég
hefi ekki haft á þeim tveimur
klukkutímum, sem ég hafði í
gær, aðstöðu til þess að skoða
þetta, eins og ég ætla mér að
gera áður en ég fer að ræða
þessi mál opinberlega.“
ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra sagðist ekkert
geta um þetta mál sagt á þessu
stigi, en það væri skoðun sín að
flugstöð, sem kæmi til fyrir
íslenzkt flug, yrði undir yfirráð-
um íslendinga og á umráða-
svæði þeirra. Hann kvaðst ekki
vita hvort stöðin risi í tíð
núverandi ríkisstjórnar, en taldi
líklegt, að ætti að vera þarna
flugvöllur til frambúðar yrði ný
flugstöð að rísa. Taldi hann
vafalaust að Islendingar legðu
fram eitthvert fé og færi það þá
inn á fjárlög.
„Samstarfsyfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar ber það með sér,
að það er ekki samið um
stefnuna í utanríkismálum. Frá
okkar sjónarmiði berum við því
enga ábyrgð þar að lútandi,
enda er sérstaða okkar til
tveggja stórmála undirstrikuð í
samstarfsyfirlýsingunni,“ sagði
Lúðvík Jósepsson formaður
Alþýðubandalagsins í samtali
við Morgunblaðið í gær. „En
þessu til viðbótar fengum við
tvö önnur atriði með; þessari
stefnu verður ekki breytt nema
með okkar samþykki. Þar er
bundið fyrir annan endann. Og
hins vegar verða ekki heimilað-
ar nýjar meiri háttar fram-
kvæmdir á yfirráðasvæði varn-
arliðsins. Þar með er bundið
fyrir hinn endann. Þetta hlýtur
öllum, sem þetta lesa, að vera
ljóst og fram hjá þessum
hnútum verður ekki gengið."