Morgunblaðið - 08.09.1978, Page 1
mm k
Sjálfstæði
þjóðar og eigin
samgöngur
í tilefni af fimm ára afmæli Flugleiða hefir verið
ákveðið að efna til nokkurs dagamunar: í fyrsta lagi er
öllum íslendingum boðið til „Fjölskyldugetraunar Flug-
leiöa", þar sem góð verðlaun eru í boði. í öðru lagi býður
félagið öllum landsmönnum að gerast meðeigandur í
Flugleiðum.
Þótt Flugleiöir fagni nú aðeins fimm ára aldri eru þó
bakhjallar þeir, sem að félaginu standa, mun eldri —
Flugfélag íslands stofnaö sem Flugfélag Akureyrar 1937
og Loftleiðir stofnaö 1944. Skyggnumst við lengra aftur
í tímann vitum viö að á undan störfuðu hér tvö önnur
flugfélög, sem stofnuð voru 1919 og 1928. Langt er því
síðan fyrst var efnt til flugs á íslandi og af því er nú
þegar mikil saga.
Ymsar blikur voru á lofti þegar Flugleiðir hf var
stofnað. Margir voru þeir líka, sem voru vantrúaöir á
aö samstarf sem þetta gæti tekist. Aörir, og þar á meðal
stofnendur félagsins, voru á annarri skoðun. Menn
gerðu sér grein fyrir vissum byrjunarerfiðleikum.
Jafnframt að nokkurn tíma mundi taka að ná
samstöðu hjá öllu starfsfólki félaganna, sem svo lengi
hafði átt í samkeppni. Þegar litið er yfir fyrstu fimm árin
er það flestra dómur að sameining félaganna og
starfsfólksins hafi gengið vonum framar.
Menn kunna að spyrja hversvegna Flugleiðir, sem er
í eigu 2300 aöila, vilji nú fjölga hluthöfum. Ástæðan er
einfaldlega sú, aö verksvið félagsins er þess eölis aö
æskilegt er aö sem flestir íslendingar séu þar
þátttakendur.
Þátttaka í starfi Flugleiða er eftirsóknarverð. Okkur
er nauösyn aö halda uppi góöum samgöngum
innanlands og við umheiminn. Flugfélag íslands og
Loftleiðir voru sameinuð til þess aö renna styrkari
stoðum undir það nauðsynja starf. Allir íslendingar vita,
aö samgönguleysi viö önnur lönd og það, að þurfa að
treysta á aöra um samgöngur, varð þjóðinni örlagaríkt
fyrr á öldum. Meö tilkomu íslensks skipafélags, og síöar
íslensku flugfélaganna, tóku landsmenn samgöngumálin
í eigin hendur. Okkur ber aö standa saman um að svo
verði áfram um alla framtíð.
Flugleiðir er ungt félag, sem byggir á traustum grunni.
Félagsins bíða mikil verkefni — stórátök við endurnýjun
flugflotans og lausn margþættra verkefna hér heima,
bæöi í sambandi við millilanda- og innanlandsflug. En
rekstur slíks félags er enginn dans á rósum.
Samkeppnin er hörð og flestir keppinautarnir margfalt
stærri og sterkari en Flugleiöir.
Meö þátttöku í Flugleiöum hf stuðlum viö aö
íslensku framtaki, leggjum okkar skerf til íslenskra
flugmála og til þess aö íslenskar flugvélar meö
íslenskum áhöfnum beri fána landsins meö glæsibrag,
jafnt til framandi landa sem ystu stranda heimalandsins.
Örn Ó. Johnson.