Morgunblaðið - 09.09.1978, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978
23
Menn
ínýjum
stöðum
Júlíus S. Ólafsson viðskipta-
fræðingur hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Kristjáns
Skagfjörðs h.f. frá 1. september að
telja. Júlíus var áður skrifstofu-
stjóri Iðnlánasjóðs og fram-
kvæmdastjóri Félags ísl. stórkaup-
manna.
Gísli Benediktsson viðskipta-
fræðingur hefur verið ráðinn
skrifstofustjóri Iðnlánasjóðs. Gísli
var áður útibústjóri Iðnaðarbank-
ans í Breiðholti en tók við hinu
nýja embætti hinn 1. september.
bórður Sverrisson viðskipta-
fræðingur hefur tekið við starfi
Friðriks Sophussonar sem fram-
kvæmdastjóri Stjórnunarfélags-
ins. Þórður lauk námi frá Háskóla
Gísli Benediktsson
Júlíus S. Ólafsson
íslands í janúar 1977 en lagði auk
þess stund á rekstrarhagfræði um
eins árs skeið við háskólann í
Gautaborg.
Viðskiptasíðan óskar öllum
þessum mönnum til hamingju með
hin nýju störf.
Þórður Sverrisson
Jákvæð þróun í rekstri
Alþýðubankans
ÞAR SEM peningamál hafa verið
all mikið til umræðu að undan-
förnu er ekki úr vegi að fjalla
lítillega um þá hlið mála hér á
Viðskiptasiðunni. Verður að
þessu sinni gerð grein fyrir
starfscmi Alþýðubankans á síð-
asta ári.
I ársskýrslu bankans segir svo
um þróunina í starfsemi bankans
á síðasta ári:
Á árinu 1977 sneri mjög til betri
vegar í rekstri Alþýðubankans.
Hin jákvæða þróun innlána, sem
hófst í júlí 1976 hélt áfram á árinu
1977 og jukust innlán um 383,9
m.kr. eða 33,7% samanborið við
2,9% árið áður. Aukning útlána
varð 170,3 m.kr. eða 16,3%.
Heildartekjur bankans námu 329,1
m.kr. og útgjöld 325,0 m.kr. Allt
bendir nú til þess að bankinn sé að
vinna sig upp úr þeirri lægð, sem
varð í starfsemi hans á fyrri hluta
ársins 1976.“
Við athugun á Þróun innlána má
sjá að almennar innstæður hafa
aukist úr 54% heildarinnlána í
árslok 1976 í tæp 60% í árslok
1977. Á sama tíma varð veruleg
aukning í innstæðum í formi
vaxtaaukareikninga. Heildarinn-
lán í árslok námu alls um 1525
millj. kr.og höfðu aukist um 33,7%
á árinu.
Heildarútlán bankans námu í
Hlutfallsleg skipting útlána AI-
þýðubankans f árslok 1977.
árslok 1214 millj. kr. og höfðu þau
aukist um 16,3%. Hlutfallsleg
skipting útlána eftir útlánsform-
um var þannig í árslok 1976 og
1977:
1977 1976
% %
Víxillán ............. 41,5 46,5
Yfirdráttarlán ....... 12,8 17,7
Almenn verðbréfalán . 27,4 28,8
Vaxtaaukalán ......... 18,3 7,0
Samtals: - 100,0 100,0
Að lokum birtist hér mynd sem
sýnir hlutfallslega skiptingu út-
lána bankans í árslok 1977.
Noregur. Á fyrstu 7 mánuðum þessa árs framleiddu Norðmenn um 9,7 millj.
tonna af olíu á móti 7,2 millj. tonna á sama tíma í fyrra. Framleiðslan á
Ekofisksvæðinu einu nam í ár um 5,2 millj. tonna.
Ilolland. Philips-hringurinn jók sölu sína á fyrri Hluta þessa árs um 7% m.v.
1977 og er þetta meiri söluaukning en gert hafði verið ráð fyrir. Aukningin
er aðallega fólgin í meiri sölu á alls konar skemmtitækjum s.s. plötuspilurum
og segulböndum.
Kaupmannahöfn. Gildi ráðstefnuhalds og sýningarhalds fyrir ferðamanna-
iðnaðinn kemur vel fram í Kaupmannahöfn þessa dagana. Flest ef ekki öll
hótel munu vera uppbókuð í september. Er þetta jákvæð þróun því nýtingin
á fyrri hluta þessa árs var 4,3% minni en á sama tíma 1977.
Fyrirlestur
um Ibsen
Dr. Harald L. TveterÁs, fyrrum
ríkisbókavörður Norðmanna, flyt-
ur opinberan fyrirlestur í boði
Háskóla íslands mánudaginn 11.
september 1978 kl. 16.00 í stofu
201, Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist „Ibsen-
forskerene og Henrik Ibsen“ og
verður fluttur á norsku. Öllum er
heimill aðgangur.
(Frétt frá Iláskóla íslands).
Gustav Wagner:
Kröfu um
kyrrsetningu
vísad frá
Brasilíu, Brazilíu,
7. september AP.
HÆSTIRÉTTUR Brazilíu úr-
skurðaði í dag, að ekki væri hægt
að verða við kröfum Vestur-Þjóð-
verja um að Gustav Wagner,
fyrrverandi SS-foringi, yrði kyrr-
settur í höfuðborginni með það
fyrir augum að yfirvöld framseldu
hann ef til vill á næstunni. Krafist
var fyrir skemmstu að Wagner
yrði fluttur til Sao Paulo svo hann
gæti verið nær kunningjum og
fjölskyldu sinni.
Þrátt fyrir úrskurðinn eru allar
líkur taldar á að Wagner verði
áfram í Brasilíu þar sem hann
dvelur nú á geðsjúkrahúsi, en
hann er þar í haldi eftir að hann
reyndi tvívegis að svipta sig lífi.
Wagner var handtekinn 31. maí í
Sao Paulo.
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
Verötryggö spariskírteini ríkissjóös:
Yfirgengi miðað
Kaupgengi við innlausnarverð
pr. kr. 100.- Seðlabankans
1967 2. flokkur 2913.95 57.7%
1968 1. flokkur 2537.79 39.6%
1968 2. flokkur 2386.77 38.8%
1969 1. flokkur 1777.74 38.7%
1970 1. flokkur 1633.28 8.2%
1970 2. flokkur 1190.30 38.5%
1971 1. flokkur 1119.58 8.5%
1972 1. flokkur 976.06 38.5%
1972 2. flokkur 835.16 8.5%
1973 1. flokkur A 638.84 8.9%
1973 2. flokkur 590.59
1974 1. flokkur 410.20
1975 1. flokkur 335.37
1975 2. flokkur 255.95
1976 1. flokkur 242.38
1976 2. flokkur 196.82
1977 1. flokkur 182.79
1977 2. flokkur 153.12
1978 1. flokkur 124.79
Höfum seljendur aö eftirtöldum veröbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABREF:
Sölugengi
pr. kr. 100.-
1972 — A 666.12 (10% afföll)
1973 — B 571.47 (10% afföll)
1974 — D 432.15 (10% afföll)
1974 — F 305.79 (10% afföll)
1975 — G 212.99 (10% afföll)
1976 — H 206.27 (10% afföll)
1977 — J 153.34 (10% afföll)
VEÐSKULDABREF:* Sölugengi
pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 78—79-
2 ár Nafnvextir: 26% 69—70-
3 ár Nafnvextir: 26% 62—64-
HLUTABREF ■ ■
Málning hf. Kauptilboö óskast
PjáRFEfTlfKMRFéUMa ÍfUMDJ HF.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækja'rgötu 12 — R (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
Opi8 frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
Er þaö nema von. Þaö eru svo margar nýjar aðferðir,
við bókhald, sem eru betri og hentugri.
Okkar lausn tryggir t.d. þægilegri vinnubrögð, meiri
hraða, auðveldar hvers konar sundurliðanir og eftirlit
með gangi rekstrar og er í mörgum tilvikum ódýrari
en gamla lausnin.
Okkur væri mikil ánægja að heimsækja þig og sýna
þér okkar lausnir á þínum bókhaldsmálum.
HAGTALA HF.
Tölvu- og götunarþjónusta
Grensásvegi 13, Sími 81706