Morgunblaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978 17 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aöalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Er skattborgarinn varnarlaus gagnvart siðlausri ríkisstjórn? Sú ákvörðun ríkisstjórnar- innar að leggja tekjuskatts- viðauka á mikinn hluta skattgreið- enda í landinu og tvöfalda eigna- skattinn hefur að vonum vakið almenna reiði og hneykslan. Ekki sízt eftir að fyrir liggur, að það er meira en hæpið, að hér sé farið að réttum lögum. Sú yfirlýsing for- sætisráðherra, að þetta sé pólitísk ákvörðun, og að þess vegna skipti ekki máli, hvort hún standist að réttum lögum, er lýsandi fyrir vinnubrögð hinnar nýju ríkis- stjórnar og kallar á aukna réttar- vernd borgurunum til handa. Um þetta segir Matthías A. Mathiesen, alþingismaður, í Morgunblaðinu í gær, að með þeirri afturvirku skattheimtu, sem bráðabirgðalög- in geri ráð fyrir sé skapað mjög hættulegt fordæmi og hann telur, að Alþingi þurfi að gera ráðstaf- anir til þess að verja skattgreið- endur fyrir slíkum aðgerðum, enda er það í samræmi við þau sjónar- mið, sem hann fylgdi í störfum sínum sem fjármálaráðherra. Og í þessu sambandi er ástæða til að ítreka enn einu sinni, að í Noregi t.d. er afturvirk skattheimta bönnuð í stjórnarskránni. I Morgunblaðinu í gær birtist merk álitsgerð um þetta efni eftir Jónatan Þórmundsson, prófessor, við Lagadeild Háskólans og vara- dómara í Hæstarétti. Hann segir m.a.: „Það er að vísu ekkert óvenjulegt, að skattalög séu aftur- virk að þessu leyti. En það skiptir þó verulegu máli, hversu mikil sú afturvirkni er og hvernig henni er nánar fyrir komið. Það hefur lengi tíðkazt og verið staðfest af dóm- stólum að láta breytingar á skattalögum, sem gerðar hafa verið í lok skattárs eða á álagning- arári áður en skattskrá er lögð fram, gilda um skattstofn undan- farins skattárs. I nýju bráða- birgðalögunum er gengið skrefi lengra, þau eru afturvirk í óvenju ríkum mæli. Álagningu er lokið. Skattskrá hefur almennt verið lögð fram og innheimta er langt komin. Er þá erfitt að sjá mikinn mun á því, hvort verið er að leggja viðbótarskatt á skattstofn ársins 1977, 1976 eða jafnvel 1975!“ Prófessorinn víkur síðan að því, að ein varnarástæðan fyrir aftur- virkni nýju laganna sé sú að þau helgist af neyðarréttarsjónarmið- um og segir síðan: „Ekki skal dregið í efa, að ástand efnahags- mála sé alvarlegt. Það er þó engin ný bóla og verður vart lagt að jöfnu við ástand á erfiðum kreppu- tímum eða stríðstímum. I lögfræði er neyðarréttur skýrður fremur þröngt, ekki sízt ef um svokallaðan stjórnskipulegan neyðarrétt er að ræða. Forsendur hans hljóta m.a. að vera þær, að raunverulegt neyðarástand ríki. Ekki sé einung- is verið að bæta lélegan fjárhag ríkissjóðs og Ioks að ekki sé öðrum nothæfum úrræðum til að dreifa er fremur samræmist stjórnar- skránni og venjum, er hafa stjórnskipulegt gildi. Hætt er við, að hverri ríkisstjórn reynist erfitt að sýna fram á, að slíkt ástand hafi skapazt á svo venjulegum tímum sem nú eru. Vitaskuld er samt hugsanlegt, að slík sjónarmið hafi nokkur áhrif á skýringu stjórnarskrárákvæða ríkisstjórn í vil. Það sjónarmið er stundum orðað að dómur um ógildi skattalaga geti haft svo víðtækar verkanir, að hann setji fjármálakerfi þjóðfé- lagsins að einhverju leyti úr skorðum. Þegar komi til mats á slíkum sjónarmiðum annars vegar og hins vegar hagsmunum ein- stakra skattþegna þurfi talsvert skýr regla að vera fyrir hendi til að dómur falli skattþegn í vil. Þegar á allt er litið á ég fremur von á því, að dómur um gildi nýju skattlagningarákvæðanna falli skattþegnum í vil“, er niðurstaða prófessors Jónatans Þórmunds- sonar. Að framansögðu er ljóst, að hin nýju skattalög standa á mjög veikum grunni, á siðferðilegum sandi. Þessi lög snerta þúsundir eða tugþúsundir landsmanna, koma hart niður á undirstöðuat- vinnuvegum þjóðarinnar, sjávar- útvegi, landbúnaði og iðnaði, sérstaklega það ákvæði, að lagður skuli tekjuskattur á fyrningar. Sennilega á skattheimta af því tagi sér enga hliðstæðu í lýðræðis- ríki, enda heggur hún að undir- stöðum heilbrigðs atvinnurekstrar með því að gera endurnýjun og endurbætur framleiðslutækja nær útilokaða í verðbólguþjóðfélagi eins og hér á landi. Slík skatt- heimta dregur því úr framleiðni og skerðir lífskjör til lengri tíma litið. Þetta ákvæði veldur því, að einstaklingar í rekstri verða allir eða því sem næst skattlagðir að nýju. Síðast en ekkr sízt mun 50 % hækkun eignarskattsins bitna á rosknu fólki og öldruðu, sem með ráðdeild hefur tekizt að eignast eigið húsnæði skuldlaust, en hefur litlu ráðstöfunarfé úr að spila. Sú viðbára að þessi hækkun eignarskattsins sé skattur á verð- bólgugróða er meira en hæpin, enda engin tilraun gerð til að láta hann verka þannig. Auk þess vita allir, að verðbólgubraskararnir hafa auðgazt í gegnum skuldasöfn- un og greiðan aðgang að fjármagni og státa því ógjarna af miklum eignum á pappírnum. Þegar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar eru skoðaðar í heild, blasir það við, að þær höggva nærri heilbrágðum at- vinnurekstri í landinu, gagnstætt því sem yfirlýstur tilgangur þeirra er. Komið er aftan að hinum almenna borgara með afturvirkum skattaálögum og margvísleg til- viljanakennd fjármagnstilfærsla úr einum vasa í annan á sér stað. Allt er þetta svo meira en lítið hæpið lagalega séð og vísast brot á meginreglum stjórnarskrár lýð- veldisins, þannig að það fær ekki staðizt fyrir dómstólum landsins. Teódór A. Jónsson. formaður Landssambands fatlaðra. Sigursveinn D. Kristinsson. varaformaður Landssambands fatlaðra. Magnús Kjartansson, Arnór Pétursson. formaður íþróttafélags fatlaðra, Sigurður Guðmundsson, varaformaður Sjálfsbjargar í Reykjavík, og Rafn Benediktsson, formaður Sjálfsbjargar í Reykjavík. Ljósm. Kristján. Fatlaðir í hópgöngu í Reykja- vík næstkomandi þriðiudag Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra í Reykjavík, gengst fyrir aðgerðum til þess að vekja athygli á málefnum fatlaðra, en félagið er 20 ára í ár. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur boðizt til að taka á móti fötluðum á Kjarvalsstöðum kl. 4 næstkomandi þriðjudag. Áætlað er að farið verði í hópgöngu til Kjarvalsstaða og mun hún hefjast við Sjómannaskólann kl. 3 sama dag. Það er ósk þeirra, sem að göngunni standa, að ekki einungis fatlaðir taki þátt í henni heldur allir þeir, sem styðja málefni fatlaðra og hafa áhuga á því að taka þátt í þessum aðgerðum. Á Kjarvalsstöðum munu for- svarsmenn Sjálfsbjargar kynna nokkur atriði, sem varða málefni fatlaðra svo sem í sambandi við at- vinnu-, húsnæðis-, sam- göngu- og tryggingamál. „Lykilorðið í okkar baráttu er jafnrétti," sagði Magnús Kjartans- son, framkvæmdastjóri þessara aðgerða, á blaðamannafundi sem haldinn var í gær. Þar kom það fram m.a. að fötlun væri algeng- asta mannamein frá upphafi vega. I síðustu heimsstyrjöld fötluðust margir og eftir að stríðinu lauk var fyrst byrjað að endurhæfa og lækna fatlaða. Tækninni hefur fleygt fram og nú er hægt að gera fötluðu fólki kleift að taka þátt í lífinu á sama hátt og ófatlað fólk. Það hefur tekist að lækna marga og allan þorra öryrkja er hægt að styðja það mikið að þeir geti starfað og tekið þátt í lífi almenn- ings. En þrátt fyrir það eru margir þröskuldir í vegi fatlaðra að því er fram kom á blaðamannafundinum í gær. Þjóðfélögin eru yfirleitt ekki sniðin fyrir þarfir þeirra. „Síðan ég varð fatlaður hef ég litið á hlutina frá augum fatlaðs manns," sagði Magnús, „og komist að því að í samanburði við Norðurlöndin þá erum við íslend- ingar langt á eftir hvað varðar aðstöðu fyrir fatlaða. Það þarf því stórt átak til þess að komast til jafns við hinar Norðurlandaþjóð- irnar. Það er ekki aðeins ósk fatlaðra heldur er það ósk samfé- lagsins." Magnús benti á, að þótt fólk væri fatlað á einu sviði gæti það verið mikið hæfileikafólk á öðrum sviðum. Tók hann sem dæmi Roosevelt, Bandaríkjaforseta, sem var lamaður og gat ekki staðið í ræðustól án þess að styðjast við spelkur, en var þó mikilhæfur forseti. „Ef hliðstæða Roosevelts hefði fæðzt hér á íslandi hefði hann verið settur út í horn. Fatlaður maður getur ekki starfað á Alþingi íslendinga," sagði Magnús. Það kom einnig fram á fundin- um, að samkvæmt könnun á Norðurlöndunum þá væru 15% hverrar þjóðar fötluð og væru það jafnt börn sem gamalmenni. „Viðhorf okkar er að þetta fólk hafi sama rétt og annað fólk og það verður að skipuleggja þjóðfé- lagið þannig," sagði Magnús. Hann benti á það, að dæmi væru til um, að fatlað fólk, sem fengið hefði töluverðan bata, hefði rekið sig á eintóma veggi er það ætlaði að fara að bjarga sér í þjóðfélaginu og hreinlega brotnað saman af þeim orsökum. í sambandi við aðgerðir Sjálfs- bjargar verður skrifstofa opin frá kl. 14—22 alla daga í Sjálfsbjarg- arhúsinu, Hátúni 12. Kváðust aðstandendur aðgerðanna mundu hafa samband við sem flest fatlað fólk en ef óskað væri eftir bílaaðstoð til þess að komast í gönguna þá myndu þeir veita hana. Símarnir á skrifstofunni eru 17868, 29128 og 29136. Einnig kváðu þeir vel þegið ef almenning- ur biði fram aðstoð sína og óskuðu jafnframt eftir því, að vinnuveit- endur og skólastjórar gæfu fólki sínu frí ef að það hefði áhuga á að taka þátt í göngunni. „Skattlagningin kemur illa vid bændur með nýlegar framkvæmdir” —segir Gunnar Guðbjartsson, for- maður Stéttarsambands bænda „í ÞESSUM lögum eru það einkum þrju atriði, sem snerta bændur, en það eru auknar niðurgreiðslur, nið- urfelling söluskatts af þeim búvörutegundum, sem sölu- skattur hefur verið á, og í þriðja lagi er það skattlagn- ingin, sem kemur harðar niður á bændum en launþeg- um vegna þess að afskrifta- f járhæðir vegna búreksturs- ins eiga nú að leggjast við tekjur. Tvö fyrri atriðin eru nær því að vera í samræmi við þær óskir, sem við bárum fram í viðræðum okkar við fulltrúa stjórnmálaflokk- anna, en þetta með skatt- lagninguna er það neikvæða óg hún getur komið illa við þá bændur, sem eru skuldug- ir en hafa miklar afskriftir vegna nýrra framkvæmda. Sérstaklega getur þetta komið hart niður á ungum bændum' og öðrum, sem nýlega eru byrjaðir búskap og hafa þurft að framkvæma mikið,“ sagði Gunnar Guð- bjartsson formaður Stéttar sambands bænda í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður álits á nýju bráðabirgðalögunum. Gunnar sagði að gagnvart bænd- um væri aukning niðurgreiðslna og niðurfelling söluskatts jákvæð en í því sambandi legðu bændur áherzlu á að þarna væri um varanlega ráðstöfun að ræða en ekki til skamms tíma. Ríkisstjórn- in hefði í þessu efni farið að óskum Stéttarsambandsins nema hvað Gunnar sagði að þeir hefðu talið eðlilegra að niðurgreiðslurnar svöruðu til sölukostnaðar í heild- sölu og smásölu en þær hefðu í vissum tilvikum orðið meiri og þess meiri ástæða væri til að þær héldust áfram í sama hlutfalli. Framhald þessara niðurgreiðslna hlyti að ráðast af því hvernig tekjuöflun til þeirra tækist. Fram kom hjá Gunnari að sú ráðstöfun að leggja nú fyrningar- Gunnar Guðbjartsson. fjárhæðir við tekjur gæti aukið skattgjaldtekjur þeirra bænda, sem ekki eru með nýlegar fram- kvæmdir nokkuð en hjá þeim, sem eru með nýjar framkvæmdir, gæti þetta skipt verulegum fjárhæðum. „Við eigum eftir að sjá hvernig þetta kemur út hja einstökum bændum en það er ljóst að ýmsir kunna að lenda í erfiðleikum vegna þessa. Um lögin að öðru leyti vil ég aðeins segja það að það að kjarasamningarnir taka gildi eins og lögin gera ráð fyrir hlýtur að skapa meiri frið á vinnumark- aðnum,“ sagði Gunnar að lokum. Korchnoi hefur vinningsvonir Kortsnoj hefur sæmilegar vinningsvonir í tvísýnu enda- tafli þar sem hann hefur einu peði meira. Eftir nokkra fjörlega leiki í byrjuninni sem Karpov hristi fram úr erminni tókst Kortsnoj að víkja sér undan öllum hættum og stíga upp úr darrað- ardansinum með peð yfir. En hann tók samt það ráð að gefa það til baka af ótta við sókn af hálfu svarts sem hafði biskupa- parið á móti tveimur riddurum hvíts. Sú ákvörðun reyndist rétt því stuttu seinna komu stöðuyfirburðir hvíts í ljós og peðstap var óumflýjanlegt hjá svörtum. Biðstaðan er geysitví- sýn enda þótt hvítur hafi góðar líkur því margt getur skeð á skákborðinu og eins og reynsl- an hefur sýnt er aldrei hægt að fullyrða neitt þegar þessir meistarar eiga í hlut með skara af aðstoðarmönnum sem eru fundvísir á ýmsar björgunar- leiðir. 21. einvígisskákin Hvítt. Kortsnoj Svart. Karpov Drottningarbragð. 1. c4 (Kortsnoj er samur við sig og byrjar á sama leiknum og hann er vanur, Enska leiknum) I. ... Rf6, 2. Rc3— e6, 3. Rf3 — d5, 4. d4 — Be7, 5. Bf4 (Þessi leikur gafst vel í 9. skákinni og vantaði þá aðeins herztumuninn á að Kortsnoj tækist að knýja fram vinning. Hinsvegar reyndi Kortsnoj í 1. skákinni 5. Bg5 — 0-0, 6. e3 - h6, 7. Bh4 — b6; Tartakower-afbrigðið í drottn- ingar-indverskri vörn sem Karpov var greinilega mjög vel heima í en Kortsnoj komst ekkert áleiðis og skákinni lykt- aði með litlausu jafntefli eftir 19 leiki) 5.... 04). 6. e3 - c5. 7. dxc5 - Bxc5 (í 14. einvígisskák þeirra Fischers og Spassky lék sá síðarnefndi hér 7. ... Rc6 og fékk gott tafl eftir 8. cxd5 — exd5, 9. Be2 — Bxc5, 10. 0-0 — Be6) 8. Dc2 - Rc6. 9. Ildl - Da5, 10. a3 — He8! (Fram að þessum leik höfðu keppendur fylgt nákvæmlega sömu leikjaröð og í 9. skákinni, en hér kemur Karpov með bragarbót. Leikur- inn býður upp á mannsfórn; 11. b4 sem Kortsnoj réttilega hafn- ar því svartur myndi fá óstöðv- andi sókn eftir 11. ... Rxb4, 12. axb4 — Bxb4. Riddarinn á c3 yrði leppur um ófyrirsjáanlegan tíma og svartur ynni lið til baka. En þessi leikur Karpovs gefur til kynna að taflið verði tvísýnt og spennandi og enn fleiri óvæntir leikir eiga eftir að sjá dagsins ljós) II. Rd2 - e5, 12. Bg5 - Rd4! Þessi djarfa riddarafórn Karp- ovs hleypir miklu lífi í skákina. Engu er líkara en sjálfur Tal hafi verið að verki og undirbúið Karpov fyrir þessa skák því þessi leikur ber miklu fremui einkenni hans heldur en Karp- ovs.- Skákáhugamenn meðal áhorfenda ókyrrðust af æsingi þegar þessi leikur birtist á sýningarborðinu og sáu menn nú loksins fram á spennandi skák). 13. Dbl! (Kortsnoj hafnar rétti- lega enn einu sinni mannsfórn- inni. Svartur fengi alltof hættu- leg sóknarfæri eftir 13. exd4 — exd4, 14. Rc3 — e2, og nú t.d. 14. ... Re4 eða 14. ... d3! 15. Dxd3 — dxc4 og staðan úir og grúir af möguleikum fyrir svartan). 13. ...BÍ5, 14. Bd3 - e4, 15. Bc2 - Rxc2, 16. Dxc2 - Da6 (Kortsnoj hefur á sannfærandi hátt sýnt fram á að riddaraleik- urinn var þá ekki eins hættuleg- ur og hann sýndist því nú hefur hvítur gjörsamlega snúið blað- inu við og peðstap blasir við hjá svörtum) 17. Bxf6 - Dxf6, 18. Rb3 (Viss hætta er því samfara að Kortsnoj — tekst honum að vinna í dag? taka strax peðið á d5 því eftir 18. Rxd5 — Dg5 má hvítur t.d. ekki hrókfæra (0-0) vegna 19. . .. Bh3 og svartur vinnur skiptamun). 18. ... Bd6, 19. Hxd5 (Hvítur hefur nú unnið peð, en á móti Skák Gunnar Gunnars- son skrifar um 21. einvígisskákina hefur svartur biskupaparið á móti báðum riddurum hvíts, hvítur hefur heldur ekki hrók- fært ennþá og síðast en ekki sízt getur reynzt erfitt að valda c4-peðið). 19.... He5, 20. Rd4 - Hc8 (Nú kemur í ljós að hvítur á í erfiðleikum með að valda c4-peðið, og eftir t.d. 21. De2 hefur hvítur hræðzt sóknarmátt biskupaparsins og afræður því að fórna aftur peðinu, en ekki er ljóst hvort sá ótti var á rökum reistur eða hugboði einu sam- 21. Hxe5 - Dxe5, 22. Rxf5 - Dxf5, 23. 0-0 (Annar leikur kemur nú ekki til greina því Karpov — er úthaldið að bresta? eftir t.d. 23. Rxe4? kemur 23. ... b5 og svartur stendur betur). 23.... Hxc4 (Nú er liðsafli aftur orðinn jafn en óvæntir atburðir eru í vændum) 24. Ildl — De5 (Hótar 25. ... Dxh2) Töluverðar vinnings líkur í biðstöðunni VIKTOR Korchnoi sýndi svo sannarlega í 21. skákinni í dag. að hann hefur jafnað sig eftir fyrri ófarir í einvíginu og taflmennska hans í dag er í beinu framhaldi af þeim áraiigri, sem hann náði í 19. og 20. skákunum. Korchnoi hafði hvítt og byrjuninni svipaði til gamals afbrigðis af drottningarbragði og kom fljótt upp staða svipuð 9. skákinni. Það var heims- meistarinn, sem fyrst blés til sóknar og ætlaði að fórna riddara í 12. leik, og var greinilegur „Talkeimur" að þeim leik, en Tal er hér sem fréttarit- ari og aðstoðar Karpov einnig. Korchnoi lét þó ekki slá sig út af laginu og þáði ekki riddar- ann, sem Karpov bauð. Þetta kom Karpov mjög á óvart og hugsaði hann sig um í 20 mínútur áður en hann lék 13. leik sínum. Eftir þann leik var óhjákvæmilegt fyrir Karpov að fara í mikil uppskipti, þar sem hann tapaði peði. Eftir upp- skiptin kom hins vegar upp staða, þar sem úr vöndu var að ráða fyrir Korchnoi, en hann var augljóslega vel upplagður og fann leið, sem leiddi til þess, að hann hafði vænlega stöðu er skákin fór í bið eftir 43 leiki. Sérfræðingar, sem telja tölu- verðar vinningslíkur fyrir Korchnoi, búast fastlega við, að biðleikur Korchnois hafi verið f4, sem leiðir til þess, að Karpov tapar öðru peði. 25. g3 - a6, 26. Db3 — b5, 27. a4! (Hugboð Kortsnojs hefur reynzt rétt: hann er á góðri leið með að vinna peð til baka. Svartur er nú í klípu). 27. ... Hb4, 28. Dd5! (Kröftuglega leikið) 28. ... Dxd5. 29. Hxd5 - BÍ8, 30. axb5 (Peðsvinningurinn er í höfn. Svartur tekur nú mikils- verða ákvörðun) 30. . . . a5 (Svartur afræður að drepa ekki b-peð hvíts því eftir 30. ... axb5 31. Hxb5 hefur hvítur bjartar sigurvonir vegna frelsingjans á b2, en eftir textaleikinn verður hið framsækna b-peð svörtum erfiður ljár í þúfu) 31. Ild8 - Ilxb2. 32. Ha8 (Nú fellur a-peð svarts því eftir 32. ... Hb3, 33. Rd5 (Hótar Re7) f5, 34. Hxa5 fellur það samt) 33. Hxa5 - Bhi. 34. Ha8 - Kf7, 35. Ral - Hbl, 36. Kg2 - Bd6, 37. IIa7 - KÍ6, 38. b6 (Frelsinginn siglir hraðbyri upp í borð boðandi upprisu nýrrar drottningar. Svartur á í vök að verjast) 38.... Bb8, 39. Ha8 - Be5, 40. Rc5! i(Með síðasta leik sínum fyrir tímamörkin leggur Kortsnoj „gildru“ fyrir héims- meistarann: 40. ... Hxb6? 41. Rd7 og vinnur hrókinn. Á þennan hátt tekst hvítum að þoka peðinu einum reit lengra upp í borð). 40. ... Bd6 41. b7 (Og nú er riddarinn friðhelgur vegna uppkomu nýrrar drottningar á b8) 41. ... Ke7, 42. Hg8 — Be5 og í þessari spennandi biðstöðu lék hvítur biðleik. Óhætt er að segja að hvítur hafi sigurvonir, en allir spádóm- ar eru valtir og margt getur skeð í flókinni stöðu. Frelsingi hvíts á b7 getur reynst svörtum þungur í skauti. Líklegur bið- leikur er t.d. 43. f4 og eftir 43. ... exf3 frh. 44. Kxf3 hótar hvítur t.d. 45. Rd3 sem vinnur peðið á g7 þar eð svarti biskup- inn verður að valda uppkomu- reit drottningarinnar á b8. Endataflskunnátta áskorandans blómstrar greinilega í tveimur síðustu skákum þessa einvígis. Biðskákin verður tefld áfram í dag, miðvikudag. Harrii Golombek skrifar fi/rir Morqun blaöiö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.