Morgunblaðið - 15.09.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
209. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
32 fórust á
Filippseyjum
Manilla Filippseyjum, 14. sept. AP.
AÐ MINNSTA kosti 32
létu lífið í dag á Filippseyj-
um, þegar filippínsk her-
flugvél í flugi fyrir Marcos
forseta hrapaði til jarðar
og þeyttist gegnum hús-
kofa í fátækrabænum Luis
Marquez í úthverfi Manilla
og hafnaði síðan í tjörn.
Hvorki forsetinn né Imelda
eiginkona hans voru um
borð í vélinni, sem var að
freista þess að lenda. Mikið
þrumuveður var. Með vél-
inni voru ýmsir öryggis-
verðir forsetahjónanna og
blaðamenn sem voru á leið
til Manilla frá N-Filipps-
eyjum, hvar forsetinn hafði
haldið hátíðlegan 61.
afmælisdag sinn fyrr í
vikunni.
Aðstoðaryfirmaður flughers
Filippseyja sagði að sautján lík
hefðu náðst úr flugvélarflakinu og
fimmtán lík hefðu fundizt í
rústum húskofa þeirra sem vélin
þreyttist inn um og nánast skarst í
sundur. Enn er ekki ljóst hversu
margir hafa látið lífið um borð í
vélinni, en vitað er að sex manns
sluppu lifandi, þar af er m.a.
hálfbróðir forsetafrúarinnar.
Vélin var af gerðinni Fokker
F-27. Brak og eldsneyti úr vélinni
dreifðist vfir stórt svæði og það
eina sem var að kalla óskemmt var
stélið með forsetamerkinu á. Um
þrjátíu manns sem bjuggu á
svæðinu þar sem vélin skall niður
voru fluttir meira og minna
skaddaðir í sjúkrahús.
Simamynd AP
Myndin sýnir björgunarmenn við flak filippínsku flugvélarinnar sem fórst skammt frá Manilla í gær.
Ósamhljóða fregnir af
fundinum í Camp David
Annar
bólusóttar-
sjúklingur
BirminKham 14. aept. Reuter.
ALDURHNIGIN móðir konunn-
ar sem lézt úr bólusótt f
Birmingham á dögunum, hefur
nú einnig tekið veikina að því er
sagt var frá í kvöld. Móðirin
Hilda Witcomb, er ekki sögð í
lífshættu. Dóttir hennar Janet
var fyrsta manneskja sem deyr
úr bólusótt s.l. ellefu mánuði.
Eiginmaður Hildu Witcomb lézt
úr hjartaáfalli er honum bárust
fregnirnar af fráfalli dóttur
sinnar.
Thormont, Maryland,
14. sept. Reuter. AP.
FRÉTTIR af fundum þeirra
Carters, Sadats og Begins í Camp
David voru í kvöld mjög ósam-
hljóða. Fyrr í dag hafði sú fregn
komizt á kreik að Begin hefði lýst
sig fúsan til að láta Vesturbakk-
ann af hendi, en það var síðan
snarlega og afdráttarlaust borið
til baka. Þá hafði einnig verið
talið fyrr í dag að fundunum væri
í þann veginn að ljúka og mjög
hefði nú rofað til. en f kvöld sagði
síðan Jody Powell, talsmaður
Hvíta hússins, að alls ekki væri
víst að unnt yrði að reka enda-
hnútinn á fundina áður en
Sabbatinn hefst um sólsetur á
morgun. Hann sagði við frétta-
menn að enn væri utan seilingar
rammi að varanlegum friði.
Talið Mlvíst að Al-
unni sé höfuðpaur-
inn í Moro-málinu
Mflanó, 14. sept. AP
LJÓST er af fréttum, að hand-
taka ítölsku lögreglunnar á
Corrado Alunni í úthverfi
Mflanó í gær telst meiriháttar
sigur í baráttunni við samtökin
Rauðu herdeildina. Talið er
nokkurn veginn öruggt, að
Alunni sé einn höfuðpauranna í
ráninu og morðinu á Aldo Moro,
fyrrv. forsætisráðherra, og hafi
hann ekki komið þar við sögu
persónulega, er gengið út frá því
sem gefnu að hann hafi verið
upphafsmaður og aðalskipu-
leggjandi að því svo og fleiri
morðum og ránum. Hans hefur
verið leitað síðan 1976 og er
hann grunaður um aðild að
minnsta kosti tólf morðum.
Alunni hefur neitað að svara
spurningum og hefur lýst sig
póiitfskan fanga og baráttu-
mann kommúnista, segir f
AP-frétt.
Lögreglan mun um hríð hafa
haft pata af ferðum Alunnis, en
hann er hins vegar eins og fleiri
Rauðu herdeildarmenn mjög snjall
að dulbúast og þegar hann var
handtekinn var hann harla ólíkur í
útliti þeim myndum sem lögreglan
hafði dreift af honum. Lögreglu-
Aldo Corrado
Moro Alunni
Powell sagðist ekkert geta um
það sagt hversu lokaspretturinn í
viðræðunum stæði lengi enn og
gaf til kynna að enn örlaði ekki á
neinum flýti hjá viðræðuaðilum
þremur. Diplómatfskar heimildir
sögðu skömmu áður að allt útlit
væri fyrir að nú sæist loks fyrir
endann á fundum þessum. Sumir
töldu að Powell vildi með var-
færnislegu tali sínu koma í veg
fyrir að of mikil bjartsýni á
niðurstöður gripi um sig.
Powell viðurkenndi þó í stuttu
ávarpi til fréttamanna að f áttina
hcfði miðað og ákveðinn sveigjan-
leiki hefði gert vart við sig.
Léttara hljóð var hins vegar í
talsmanni Begins forsætisráð-
herra. Dan Pattir, sem fram til
þessa hefur nánast ekkert umboð
haft til að skýra frá gangi mála.
Ilann sagði að hefðu menn haft
ástæðu til að vera daufir og
svartsýnir fyrstu dagana væri nú
komið töluvert annað hljóð í
strokkinn, margt hefði breytzt og
sú svartsýni sem kvæði við úr
búðum Egypta væri ckki réttmæt.
Stjórn da Costa fallin
Lissabon, 14. sept. Reuter.
MEIRIHLUTI þingmanna felldi í
kvöld 17 daga gamla ríkisstjórn
iðjuhöldsins Nobre da Costa f
Portúgal. Umræður hafa verið í
þinginu undanfarna daga um
menn og vopnaðir hermenn gerðu
áhlaup á íbúð sem hann hafðist við
í í Mílanó eftir nokkurn undirbún-
ing og var öllu því hverfi lokað
fyrir annarri umferð. Alunni mun
ekki hafa veitt mótspyrnu. í
íbúðinni fannst gríðarmikið af
skotfærum, vopnum og sprengjum
og þar fundust einnig skjöl og
gögn, og trúlegt að þar sé lögregl-
an komin í feitt, því að hugsanlega
stefnuskrá stjórnarinnar og
þótti ólfklegt að stjórnin hlyti
náð fyrir augum þingsins. Lyktir
urðu þær, að Soares, form.
Sósíalistaflokksins, kvað síðan
upp úr með það skömmu áður en
eru þar skjalfestar ýmsar áætlanir
Rauðu herdeildarinnar. Ekki hefur
verið staðfest að Aiunni hafi verið
að undirbúa nýtt glæpaverk þegar
hann var tekinn.
Eitt helzta blað Ítalíu birti í dag
nokkur bréf sem Aldo Moro sendi
frá sér meðan hann var fangi
mannræningjanna, en eins og
kunnugt er lét Moro frá sér fara
mörg bréf.
gengið var til atkvæða, að
óhugsandi væri að fiokkur hans
styddi stjórnina. Obbinn af þing-
mönnum sósfalista og miðdemó-
krata eða 141, greiddi atkvæði
gegn stjórninni. Sósfaldemó-
krataflokkur Sa Carneiro, sem
áður kallaði sig alþýðudemó-
krata, fylgdi stjórninni að mál-
um, þrátt fyrir ákveðna óánægju
og 40 þingmenn kommúnista
sátu hjá.
Þessar niðurstöður koma að
vísu ekki að óvörum, en sérfræð-
ingar túlka þær svo, að Eanes
forseti Portúgals hafi beðið veru-
legum hnekki og sé nú ekki ljóst
til hvaða ráða hann muni grípa er
til heilla og einingar gætu horft.
Jafntefli lik-
legt í tví-
sýnni biðskák
Baguio — 14. september — AP.
TUTTUGASTA og önnur skák
þeirra Karpovs og Korchnois
um heimsmeistaratitiiinn fór í
bið eftir 47 leiki.
Skákin var skemmtileg og
spennandi. en töluvert um mis-
tök á báða bóga. Þegar skákin
fór í bið hafði Karpov gioprað
niður vinningslegri stöðu og
töldu sérfræðingar, að Korchnoi
ætti möguleika á jafntefii, þótt
vandteflt yrði fyrir hann. Bið-
skákin verður tefld á morgun,
föstudag. Sjá bls 13.
, Símamynd AP
Gríðarlegt magn af vopnum og skotfærum, skjölum og gögnum fannst
í vistarverum Alunnis í Mflanó í gær, og getur hér að líta megnið af
vopnunum. „Skæruliöabækistöð“ köiluðu lögreglumenn húsakynni
þau sem Alunni fannst f og sögðust sjaldan hafa séð svo mikinn búnað.