Morgunblaðið - 16.09.1978, Side 1
40 SÍÐUR
210 tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bretar góma
Astrid Proll
London. 15. septembor. Reuter. AP.
BREZKA lögreglan handtók í
dag Astrid Proll. þá hryðjuverka-
konu VesturÞjóðverja sem hvað
mest hefur verið leitað og talin er
ein af stofnendum Baader-Mein-
hof-samtaka borgarhryðjuverka-
manna.
Lögfræðingur hennar sagði
seinna að ungfrú Proll hefði
tekið upp algjörlega nýja lifnað-
arhætti, lifði heiðvirðu iífi í
Bretlandi og vildi verða um kyrrt
í landinu.
Hún var við vinnu sína á
bifreiðaverkstæði sem er rekið á
vegum stjórnarinnar í London
þegar hún var handtekin. Hún
hafði fengizt við kennslustörf á
verkstæðinu í 10 mánuði þegar
lögreglan handtók hana.
Lögfræðingur ungfrú Proll,
Dean Sargent, hafði eftir ungfrú
Proll að hún hefði búið í Bretlandi
í fjögur ár, að henni hafði verið
sleppt úr haldi í Vestur-Þýzka-
landi af heilsufarsástæðum, að
hún óttaðist að hún kæmist í
lífshættu ef hún yrði framseld til
Vestur-Þýzkalands, bæði af
heilsufarsástæðum og af því hún
óttaðist um líf sitt, og að hún hefði
ekkert samband haft við Baad-
er-Meinhof síðan hún kom til
Bretlands.
Ungfrú Proll var leidd burtu í
handjárnum frá verkstæðinu og
sagði grátandi við vinnufélaga
sinn: „Þú sérð mig ekki aftur.“
Hún var yfirheyrð í kvöld og búizt
er við að beiðni um framsal
hennar verði lögð fram á morgun.
Yfirvöld í Bonn vilja fá ungfrú
Proll framselda fyrst og fremst í
sambandi við tilraun sem var gerð
til að myrða tvo vestur-þýzka
lögreglumenn í febrúar 1971 og
vegna rána. Vestur-þýzka lögregl-
an hefur leitað að ungfrú Proll í
rúm fjögur ár síðan hún flúði
þegar réttarhöld fóru fram í máli
hennar í Frankfurt.
Vestur-þýzka hryðjuverkakonan Astrid Proll sem hefur verið
handtekin í London. Myndin er frá réttarhöldum gegn
hryðjuverkamönnum í Frankfurt 1973.
Frá viðræðunum í Camp Davidi forsetarnir Carter og Sadat fá sér gönguferð.
Forsetinn ráðgaðist við ráðu-
nauta sína í dag en mun ekki
ráðfærast að nýju við leiðtoga
stjórnmálaflokkanna fyrr en í
! næstu viku.
Framkvæmdastjórn sósíalista-
flokksins kom saman í dag til að
ræða skipun nýrrar stjórnar er
njóti meirihlutastuðnings á þingi.
Mario Soares, leiðtogi flokksins,
sagði að lausn á stjórnarkrepp-
unni fyndist með því að samræma
afstöðu forsetans og stjórnmála-
flokkanna.
Hann sagði að ný stjórn þyrfti
ekki endilega að styðjast við
stjórnmálaflokkana en nauðsyn-
legt væri að hún væri valin á
grundvelli viðræðna við flokkana
og að hún væri örugg um meiri-
hlutastuðning á þingi.
Somozasinnar
skjóta látlaust
Leon, Nicarajfua, 15. sept. Reuter. AP
ÞJÓÐVARÐLIÐIÐ í Nicaragua
hélt í dag uppi látlausum árásum á
vígi uppreisnarmanna í bænum
Leon í norðurhluta landsins með
eldflaugum, fallbyssum og vélbyss-
um.
Flóttamenn sögðu f dag frá
stöðugum sprengingum og blaða-
menn scm þjóðvarðliðar stöðvuðu
við vegatálma hjá bæjarmörkunum
sáu flugvélar skjóta eldflaugum á
uppreisnarmenn.
Flóttamennirnir sögðu að skæru-
liðar þjóðfrelsisfylkingar Sandinista
veittu enn viðnám í San Fel-
ipe-hverfinu í Leon sem er annar
stærsti bær Nicaragua.
Liðsauki um 400 stjórnarher-
manna var sendur í dag til Leon þar
sem 300 þjóðvarðliðar réðust til
atlögu gegn vígjum uppreisnar-
manna í gær. Þeir eru meðal annars
búnir þungum vélbyssum og fyrsta
skriðdrekanum sem hefur sézt í
bardögunum til þessa.
Eining um
gjaldeyris-
bandalagið
Aachen. 15. september. AP.
VALERY Giscard d'Estaing, for-
seti Frakklands, og Ilelmut
Schmidt, kanslari Vestur-Þýzka-
lands, sögðu í dag að þeir hefðu
jafnað ágreining sinn um fyrir-
hugað gjaldeyrisbandalag
Evrópu og að þeir mundu skýra
frá fyrirætlunum sinum í næstu
viku.
Hið nýja kerfi mun tengja
saman gjaldeyri aðildarlanda
Efnahagsbandalagsins og sam-
komulagið er árangur tveggja
daga viðræðna þjóðarleiðtoganna.
Tilkynningin um samkomulagið
fylgir í kjölfar frétta um alvarleg-
an ágreining Frakka og
Vestur-Þjóðverja um fyrirhugað
gjaldeyriskerfi sem leiðtogar EBE
hafa rætt í marga mánuði.
Um helmingur bæjarbúa er flúinn
en margir ungir menn hafa orðið
eftir til þess að hjálpa skærulið-
um.Flugvélar hafa einnig verið
sendar yfir bæinn til að hvetja
bæjarbúa í hátölurum til þess að
halda sig innan dyra.
Stjórn Venezúela hefur sent utan-
ríkisráðherra sinn og fimm herflug-
vélar til nágrannaríkisins Costa Rica
og litið er á það sem stuðning við
stjórn landsins gegn stjórn Nicara-
gua sem er sökuð um að hafa rofið
lofthelgi Costa Rica.
í Genf segir Alþjóða Rauði kross-
inn að tveir sjálfboðaliðar Rauða
krossins hafi beðið bana í vísvitandi
árás sem þjóðvarðliðar hafi gert
ábílalest Rauða krossins.
Skemmdir
i farviðri
Tokyo, 15. scpt. Reuter
Fellibylurinn Irma æddi yfir
suðvesturhluta Japans með 130
km hraða á klst í dag og að
minnsta kosti fimm biðu bana,
eins er saknað og 90 slösuðust að
sögn yfirvalda.
Fellibylurinn æddi beint á
borgina Shimonoseki á suð-
vesturodda aðaleyju Japans,
Honshu, og olli svo miklum
truflunum á sjó, í lofti og á landi
að minnsta kosti 65.000 ferða-
menn komust ekki leiðar sinnar.
Smith er
Umtali, Rhódesíu, 15. sept.
Reuter. AP.
IAN Smith. forsætisráðherra
Rhódesiu, fór 1 dag til bæjarins
Umtali á landamærum Mozam-
bique sem varð fyrir árás skæru-
Hða í síðustu viku og reyndi að
stappa stálinu í hæjarbúa.
En Smith var heldur svartsýnn
á horfurnar í stríðinu við skæru-
liða og sagði á fundi að það gengi
ekki nógu vel. Jafnframt útilokaði
hann frekari beinar viðræður við
Camp David fundi
naumlega bjargað
Camp David, Maryland, 15.
sept.AP. Reuter.
VIÐRÆÐURNAR í Camp David
héldu áfram í kvöld og blaðafull
trúi Hvíta hússins gerði ráð fyrir
því að þær stæðu að minnsta kosti
fram á sunnudag samtímis því
sem hann ítrekaði áskorun
bandarísku stjórnarinnar til leið-
bölsýnn
leiðtoga Föðurlandsfylkingar
blökkumanna, Joshua Nkomo og
Robert Mugabe.
í Salisbury bar rhódesíska
herstjórnin til baka staðhæfingar
skæruliða um að 11 suður-afrískir
liðsforingjar hafi verið meðal
þeirra 48 sem biðu bana þegar
rhódesísk Viscount-flugvél var
skotin niður fyrir tveimur vikum.
Einnig var vísað á bug þeirri
staðhæfingu skæruliða að þeir
hafi skotið niður aðra rhódesíska
flugvél síðan Viscount-vélin fórst.
toga Egypta og ísraelsmanna um
að sýna meiri sveigjanleika.
Heimildir á ráðstefnunni herma
að viðræðurnar hafi nánast runnið
út í sandinn í gærkvöldi en að
sigrazt hafi verið á erfiðleikunum
og að meiri bjartsýni hafi gætt
þegar viðræðurnar voru teknar
upp að nýju í dag.
Áttunda daginn í röð hittust
Menachem Begin forsætisráðherra
og Anwar Sadat forseti ekki
formlega og sagði Judy Powell
blaðafulltrúi að slíks fundar væri
ekki þörf.
Carter forseti hélt áfram sátta-
semjarahlutverki sínu og ræddi
við Moshe Dayan utanríkisráð-
herra ísraels. Dayan ræddi við
Sadat í gær.
Israelskir heimildarmenn kváðu
þær fréttir ýktar að við hefði legið
að slitnað hefði upp úr viðræðun-
um í gærkvöldi en viðurkenndu að
dagurinn hefði verið erfiður.
Powell var þráfaldlega spurður
um þetta í dag og kvaðst gera sér
grein fyrir sögum um að Sadat og
Begin kæmi ekki vel saman en
sagði að hann væri ekki í aðstöðu
til að lýsa andrúmsloftinu.
Hann bar orðróminn ekki bein-
línis til baka en sagði fréttamönn-
um að ísraelskir og egypzkir
samningamenn hefðu gefið til
kynna að enginn illvilji ríkti milli
leiðtoganna.
Powell sagði að bæði væri rætt
um framtíð Sinai og vesturbakka
Jórdan. Þetta er fyrsta opinbera
viðurkenningin á því að Begin og
Sadat greinir á um bæði Sinai og
vesturbakkann.
Stapp í
Portúgal
Lissabon. 15. sept. Reuter.
PORTÚGALSKIR stjórnmálæ
eliðtogar rcyndu í dag að finna
viðunandi leiðir til myndunar
traustrar ríkisstjórnar í kjölfar
falls 17 daga bráðabirgðastjúrn-
ar Alfredo Nobre Da Costas
forsætisráðherra. skammlífustu
stjórnarinnar sem hefur verið við
völd frá byltingunni 1974.
Fall stjórnarinnar er persónu-
legt áfall fyrir Antonio Ramalho
Eanes forseta sem valdi Da Costa
án þess að hafa áður fengið til þess
samþykki leiðtoga helztu stjórn-
málaflokkanna.