Morgunblaðið - 17.09.1978, Síða 1
64 SIÐUR
211. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP-símamynd.
Ali heimsmeistari í þriðja sinrt!
New Orleans, 16. september.
AP—Reuter.
„TITILLINN er mér einum of
ka-rkominn og læt ég hann því
ekki ganga inér úr greipum
alveg strax. Ég ætla að sitja á
honum í a.m.k. átta mánuði
áður en ég tilkynni fyrirætlan-
ir mínar,“ sagði Muhammad
Ali þegar hann hafði sigrað
Leon Spinks í viðureign þeirra
um heimsmcistaratignina f
hnefaleikum í nótt. Ali hlaut
titilinn í þriðja sinn, en það
hefur engum tekist áður. Ilann
hafði alla yfirburði yfir Spinks
og var Ali dæmdur sigur í 10
iotum en ein var jöfn. Viður-
eignin var 15 lotur. Talið er að
hann verji titilinn verði nógu
miklir peningar í boði.
Arás á sveitir
íransstjórnar
sögn embættismanna á
laugardag.
Þrír uppreisnarmenn,
dulbúnir sem hermenn
Teheran, 16. september. Reuter. AP.
NÍU MANNS féllu í skqt-
bardaga íranskra öryggis-
sveita og uppreisnarmanna
í borginni Tabriz í
norð-vesturhluta írans að
Geimverur
glettast við
Rómarbúa?
Róm, 16. september. Reuter.
FLJÉGANDI furðuhlutur olli
glundroða rétt fyrir birtingu í
Róm í dag. Fjölmargir íbúar,
þ.á m. lögreglumenn á eftirlits-
fcrð, sáu þá þríhyrningslaga
hlut á sveimi yfir borginni
þriðju nóttina í röð.
Hluturinn, sem var Ijósleitur,
virtist senda frá sér græna og
gula ljósgeisla og hringdu
margir óttaslegnir Rómarbúar
á lögreglustöðvar til að láta
vita af fyrirbærinu sem sást
greinilega.
Þessi sýn blasti við fólki í 'h
klukkustund. Hennar hefur
einnig oðrið vart á Sikiiiey, á
Sardiníu og í Tuscany. Kunn-
ugir telja að hér sé um gervi-
hnött að ræða eða ljósbrots-
áhrif vegna væntanlegs tungl-
myrkva.
Harðindi í
Managua
Managua, 16. september, Reuter.
í SAMA mund og harðir götubar-1
dagar geysa nú vítt og breitt um
Nicaragua, búa menn við sífellt
knappari kost í höfuðborg lands-
ins, Managua, þar sem matvæla-
birgðir eru nánast á þrotum. Allar
verzlanir eru enn lokaðar og hefur
verið tekin upp matarskömmtun
og fólk hvatt til að fara sparlega
með vatn.
Kuldastríð með
Begin og Sadat?
stjórnarinnar, munu hafa
ráðizt á öryggisverðina úr
launsátri og drepið sex.
Tveir uppreisnarmann-
anna týndu lífi og einn
óbreyttur borgari. Þetta
mun vera þriðja árásin á
varðmenn eftir að herlög
tóku gildi 8. september.
Hinn andlegi leiðtogi 32 millj-
óna Shiite-múhammeðstrúar-
manna í Iran, Ayatullah, hvatti í
dag til andstöðu gegn nýrri
ríkisstjórn Jaafars Sharif-Emanis
og sagði að nýleg fjöldamorð
hersveita á andófsmönnum gerði
Emani ófæran um að stjórna.
Loa Angeles, 16. sept. AP.
KUNNUGIR menn telja að
Edward M. Kennedy muni sækj-
ast eftir því að verða í framboði í
forsetakosningunum 1980 í
Bandarikjunum, að því er blaðið
Los Angeles Times skýrir frá í
dag. Blaðið segir að Kennedy hafi
haft samband við tvo af æðstu
mönnum Kaliforníu-fylkis og
spurt þá álits á þeirri hugmynd
sinni að fara í framboð.
Það voru þeir Jesse Unruh
fjármálaráðherra Kaliforníu og
Kenneth Cory umsjónarmaður
með útgjöldum til hers og flota,
sem Kennedy hafði samband við.
Að sögn heimildamanna blaðsins
latti Unruh Kennedy til framboðs-
ins þar sem aðdhann stefndi lífi
sínu þar með í mikla hættu. Unruh
var fylgdarmaður Roberts
Kennedys þegar hann var myrtur í
Los Angeles 1968. Haft er eftir
Camp David, Maryland
16. september. AP — Reuter
HLÉ VARÐ á friðarviðræð-
um leiðtoga Egypta og
ísraelsmanna í dag vegna
sabbatsdagsins, helgidags
gyðinga. Orðrómur er á
mm w.
Edward Kennedy.
Cory að hann sé þeirrar skoðunar
að Edward Kennedy fari fram, en
Cory átti langan fund með
Kennedy í Washington fyrir
skömmu. Cory hefur ekkert viljað
segja um efni fundarins annað en
það að þeir ræddu pólitíska
metorðagirnd Kennedys.
kreiki um að fáleikar séu
með Begin og Sadat,
sprottnir af persónulegri
togstreitu. Blaðafulltrúi
Carters Bandaríkjaforseta
telur að fundi leiðtoganna
muni ekki ljúka fyrr en á
sunnudag í fyrsta lagi og
segir að báðir aðilar muni
þurfa að auðsýna meiri
sáttfýsi eigi viðræðurnar
að bera árangur.
Enn hvílir mesta leynd yfir
viðræðunum, en egypskar og ísra-
elskar heimildir herma að að það
hafi orðið að samkomulagi að
reyna enn um sinn eftir að snurður
hlupu á þráðinn á fimmtudag.
Báðir aðilar telja þó frásagnir af
ágreiningnum ýktar. Jody Powell,
blaðafulltrúi Carters, upplýsti
engu síður í fyrsta skipti að helzta
deilumál fundarins væri framtíð
Sinai-skaga ásamt vesturbakka
Jórdanárinnar. Hefur Begin, að
sögn, lofast til að láta Egyptum
skagann eftir að settu því skilyrði
að Israelsmenn verði ekki hraktir
frá bústöðum sínum og að ísraels-
her fái áfram að hafa flugstöðvar
þar.
Mikillar svartsýni gætir í
egypskum blöðum í dag varðandi
friðarhorfur og sagði Kairóblaðið
„Al-Gomhouria“ m.a. að færi þetta
tækifæri forgörðum væri „ekki
hægt að útiloka fimmtu styrjöld-
ina fyrir botni Miðjarðarhafs". Þá
lét yfirmaður öryggissveita
Saudi-Arabíu, Abdullah bin Abdul
Aziz prins, hafa eftir sér í London
í dag að færi Camp David fundur-
inn út um þúfur myndi það hafa
„alvarlegar og ófrýnilegar afleið-
ingar“ sem kynnu að snerta heim
allan.
Samkvæmt nýjustu fréttum frá
Beirút mun um 60.000 manna
ísraelskt herlið hafa safnast að
líbönsku landamærunum í dag.
Fréttin hefur ekki fengizt staðfest
en ef satt er mun hér um mestu
herliðsflutninga að ræða á svæð-
inu síðan 1973.
Jafntefli
í 23. skák
Baguio, 16. september. Reuter.
ANATOLY Karpov
heimsmeistari og Viktor
Korchnoi sættust á jafn-
tefli að loknum 41. leik í
23. skákinni í einvígi
þeirra um heimsmeistara-
titilinn í skák í dag.
Korchnoi hafði hvítt og
bauð jafntefli sem Karpov
þáði samstundis.
Korchnoi var sagður hafa
frumkvæðið í skákinni
mest allan tímann.
Edward Kennedy
í forsetaframboð?
Rhódesía:
Svartir nú
herskyldir
Salisbury, 17. sept. Reuter.
Bráðabirgðastjórnin í
Rhódesíu tilkynnti í dag að
hún hefði ákveðið að koma
á almennri herskyldu
svartra í landinu, og tækju
reglur þar að lútandi gildi
í dag. Ndabaningi Sithole,
einn leiðtogi svartra í
bráðabirgðastjórninni, til-
kynnti ákvörðunina og
sagði að svartir hefðu
skyldum að gegna hvað
snertir varnir landsins þar
sem stjórnin hygðist veita
þeim full lýðréttindi. „Því
er það skylda svartra að
verja stjórnina fyrir þeim
sem vilja hana feiga,“ sagði
Sithole.
Þrátt fyrir þessa ákvörðun
stjórnarinnar telja svartir um
80% þeirra hermanna sem að
jafnaði eiga í útistöðum við
skæruliða Nkomos og Mugabes.
Hingað til hefur herskylda aðeins
náð til annarra íbúa landsins en
svartra, en svartir hafa getað
gerst sjálfboðaliðar. í Rhódesíu
eru að jafnaði 8.000 hermenn, en
hvenær sem er getur stjórnin
gripið til 35.000 manha varaliðs
sem eingöngu er skipað öðrum en
svörtum.