Morgunblaðið - 26.09.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
13
n er ekk
ð gegn
lögum
barðasamningnum. En Sovétmenn
telja sig eiga rétt til þess að eiga
hlutdeild að setningu þeirra
reglna, og virða því ekki reglur
samkvæmt Svalbarðasamningn-
um. En Sovétmenn telja sig eiga
rétt til þess að eiga hlutdeild að
setningu þeirra reglna, og virða
því ekki reglur og fyrirmæli sem
Norðmenn hafa sett upp á sitt
eindæmi. Eftirfarandi yfirlit sýnir
dæmi þessu til staðfestingar:
1) Russar eru hættir að leita
eftir leyfum til þess að hafa sínar
fimm þyrluvélar staðsettar á Kap
Heer-vellinum.
2) Fyrir framkvæmdum eins og
byggingum flugskýla og lengingu
flugbrauta leita þeir heldur ekki
eftir leyfum fyrirfram.
3) Hið svokallaða „konumál“
sem hófst á aðfangadag 1975 leiddi
til fjölda yfirtroðslna. Sovétmenn
fengu leyfi til þess að hafa
takmarkaðan fjölda manna við
flugvöllinn í bænum Longyear,
sem þá hafði nýlega verið tekinn í
notkun. Allt í einu fluttu þeir
helmingi fleiri menn á svæðið en
leyfilegt var — hver Rússi hafði
eiginkonu sína með sér. Agrein-
ingurinn var leystur á þann hátt
að ákveðinn var sá fjöldi manna
sem þarna mátti vera, og síðan
máttu þeir sjálfir velja hve margir
makar væru þar af fjöldanum á
flugvellinum.
4) Þyrluhrapið á suðurhluta
Svalbarða fyrir einu ári þegar
Sovétmenn fjarlægðu brakið áður
en norsk yfirvöld höfðu tækifæri
til þess að meta tjónið eins og
lögin um loftferðir gera ráð fyrir.
5) Ólögleg lending í þjóðgarðin-
um um síðustu páska, án þess að
sækja um undanþágu til þess frá
þeim reglum sem Noregur hefur
sett tii verndar náttúru og dýra-
lífi.
Óbein bvingun
Norskir ferðalangar sem vildu
hagnýta sér reglurnar um frjálsan
aðgang og umferð á Svalbarða
reyndu snemma í septembermán-
uði að heimsækja Kap Heer-völl-
inn. Þeim var á harkalegan hátt
vísað á brott af tíu til tólf
Sovétmönnum. Blaðamaður og
ljósmyndari frá blaðinu Verdens
Gang gerðu tilraun til þess sama.
Þeir fóru í land af báti og þrír
Rússar tóku á móti þeim um leið
og þeir stigu fæti sínum á þurrt
land. Blaðamennirnir gengu áfram
eftir strandlengjunni og í stað þess
að hindra ferð þeirra, ætluðu
Rússarnir að ýta bátnum frá landi
þannig að þeir gætu ekki snúið
sömu leið til baka til fiskibáts sem
beið þeirra í nokkurri fjarlægð úti
á sjónum. Blaðamennirnir gáfust
þá upp í tilraun sinni til þess að
„leggja Kap Heer undir sig“ og
létu sér nægja að mynda radar-
stööina og rússnesku verðina úr
fjarlægð.
Háð sambykki
„landeigandans“
Fyrrum sýslumaður á Sval-
barða, núverandi landkönnunar-
stjóri í heimskautadeild dóms-
málaráðuneytisins, Leif Eldring,
hefur látið hafa það eftir sér að
Sovétmenn verði að hafa heimild
til þess að vísa þeim frá sem ekki
hafa tilkynnt komu sína fyrir-
fram. — „Þetta er einkasvæði og
Norðmenn geta ekki gert kröfu til
þess að þeir hafi frjálsan og
óheftan aðgang að sjálfum Kap
Heer-vellinum. Slík umferð er háð
samþykki af hálfu eigandans."
Það var sjálfsagt þess vegna
sem sýslumannsfulltrúinn sem
tafði uppljóstrunina um radar-
stöðina leitaði fyrst eftir leyfi
Rússa áður en hann kom ásamt
tveimur fjarskiptasérfræðingum á
Kap Heer-völlinn þar sem hin
ólöglega radarstöð er hinn 4.
september. Fulltrúinn fékk að líta
á stöðina og einnig skoða þá
lengingu sem Rússar eru að gera á
flugbraut um 60—100 metra. Um
leyfi til þeirrar lengingar hafa
þeir ekki sótt, eins og norsku lögin
um loftferðir gera ráð fyrir.
Að þessu sinni var skýrsla hans
í skyndi send dómsmálaráðuneyt-
inu og hluti hennar var birtur
þegar daginn eftir. Þar segir að
norskum yfirvöldum sé þar með
tilkynnt um framkvæmdirnar við
flugbrautina og að þeim fram-
kvæmdum verði lokið vorið 1979.
Radarstöðin eigi að þjóna þyrlu-
fluginu og hún verði tekin í notkun
á næsta ári.
Dómsmálaráðherrann
á „gúmmísólum“
Valle dómsmálaráðherra var
undarlega magnlítil í ummælum
sínum um skýrsluna og gagnrýndi
ekki aðferðir Rússa, þrátt fyrir
það að því hefði þá þegar verið
slegið föstu að þessar aðfarir væru
ólöglegar. — „Það er ekki ólíklegt
að Sovétmenn hefðu fengið leyfi til
að byggja stöðina ef þeir hefðu
sótt um það,“ sagði hún. Hún lét
heldur ekki í ljós neina gagnrýni á
þetta mál í ferð sinni um Sval-
barða 12. til 15. september s.l. Hún
flaug yfir Kap Heer-völlinn og
undirstrikaði þar með yfirráð
Norðmanna á eyjunni á ákveðinn
hátt.
Dagblöð í Noregi lýstu fram-
komu dómsmálaráðherrans á
þennan hátt: „Valle gengur á
gúmmísólum.“ Aðeins einu sinni
kom hún beint inn á viðskipti
Norðmanna og Sovétmanna í tali
sínu. Það var þegar hún heimsótti
rússneska Puramiden og sagði í
ræðu til sovéska vararæðismanns-
ins að allir þeir sem staddir væru
á Svalbarða yrðu að hlíta norskum
lögum á þessu yfirráðasvæði
Norðmanna.
Hinn almenni Norðmaður spyr
sjálfan sig þessarar spurningar
sem þá er grundvölluð á öllum
þeim lögbrotum sem Sovétmenn
hafa gert sig seka um á Svalbarða:
Hafa Sovétmenn lagt út í þessar
ögranir til þess að láta reyna á
hversu haldbær norsk yfirráð eru
á Svalbarða? Knut Frydenlund
utanríkisráðherra hefur svarað
þessari spurningu neitandi. Hann
skýrir síðustu ágreiningsefnin sem
komið hafa upp á Svalbarða með
því að það sé Noregur sem hafi
byggt upp eftirlit og stjórn á því
sem gerist á Svalbarða og að við
þess vegna höfum uppgötvað
atburði og aðstæður sem við áður
höfðum enga möguleika á að fá
vitneskju um. Sýslumaðurinn hafi
fengið fleiri menn til þess að
aðstoða sig við sín störf og hann
hefur jafnframt fengið þyrlu til
umráða við eftirlitsstörf sín.
Og Knut Frydenlund lagði
áherzlu á: „Það er stefna Norð-
manna að varðveita frið og draga
úr spennu á landsvæðunum í
norðri. Við megum reikna með því
að atburðir eins og gerst hafa í
samskiptum okkar við Sovétmenn
á Svalbarða, eigi eftir að endur-
taka sig.“
Þetta er trúlega einnig skýring-
in á því að Noregur hefur ekki
opinberlega mótmælt því við
Sovétmenn að radarstöðin var sett
upp á Kap Heer og þess hefur ekki
verið krafist að hún verði fjar-
lægð.
A SUNNUDAGINN var kvaddi
séra Þorsteinn Björnsson frí-
kirkjuprestur söfnuð sinn við
sérstaka kveðjuguðsþjónustu í
kirkjunni. Hann lætur af störf-
um í lok þessa mánaðar.
Söfnuðurinn fjölmennti til
athafnarinnar svo að nær hvert
einasta sæti í kirkjunni var
setið. Þótti söfnuðurinn sýna
séra Þorsteini með því virðingu
og þakklæti fyrir mikið og gott
starf í þágu kirkju og kristni í
svo mörg ár.
Við athöfnina söng kór
kirkjunnar undir stjórn
Sigurðar ísólfssonar organista,
en hann hefur nú verið organisti
Séra Þorsteinn Björnsson.
okkar tíma og einhvern veginn
er það svo, að í nútímanum vilja
kirkja og kristni verða útundan
í kapphlaupinu um lífsgæðin.
Við vonum að okkur verði
fyrirgefin þessi yfirsjón og
væntuni þess, að þú tapist ekki
<irkju okkar alfarið, heldur
?igir eftir að standa hér fyrir
iltari og í stól á ókomnum
írum.
Þín fagra rödd hefur yljað
mörgum á starfstíma þínum hér
3g innileikinn og virðingin fyrir
<ölluninni hefur ekki farið-fram
hjá neinum, er þú hefur til
okkar mælt frá altari eða úr
prédikunarstól.
Kvedjugudsþjónusta
í Fríkirk junni
við kirkjuna í samfellt 40 ár. Við
kvejuguðsþjónustuna fermdi
séra Þorsteinn fjögur börn og
skírði auk þess eitt barn. Liðin
eru 28 ár frá því séra Þorsteinn
varð fríkirkjuprestur.
I lok kveðjuguðsþjónustunnar
gekk formaður sóknarnefndar,
Isak Sigurgeirsson, í kórdyr og
flutti þar þakkarorð til séra
Þorsteins og komst m.a. svo að
orði:
„Nú þegar þú að eigin ósk
hefur ákveðið að láta af störfum
við þennan söfnuð, vill
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja-
vík færa þér innilegar þakkir
fyrir mikið og óeigingjarnt starf
í þágu kirkju og safnaðar um
tæplega þrjátíu ára skeið. Enda
þótt við hefðum viljað, að þú
gegndir starfi hér áfram að
minnsta kosti þar til þú fylltir
sjöunda tuginn, höfum við orðið
að sætta okkur við þá ákvörðun
þína að hætta nú störfum, þar
eð það hlýtur að vera þitt mat,
hversu lengi þú treystir þér til
að gegna svo erfiðu og krefjandi
embætti sem starf prests við
Fríkirkjuna hlýtur að teljast.
Hér hefur þú gegnt starfi af
þinni alkunnu hógværð — sam-
viskusemi og kristilegu trúar-
þeli, sem þér er svo eðlislægt, og
þannig gefið sóknarbörnum þín-
um gott fordæmi til eftirbreytni
í hvívetna. Við hljótum að
harma það nú, er leiðir skiljast
að við höfum ekki verið þér sú
stoð og stytta í starfi, sem okkur
bar skylda til, en við erum börn
„Enginn getur annan grund-
völl lagt en þann, sem lagður er,
sem er Jesús Kristur.'1 Þetta
grundvallaratriði í kristilegri
boðun hefur þú ætíð haft að
leiðarljósi og boðað af fullvissu
þess, sem öðlast hefur sanna trú
á Krist, frelsara vorn og
skapara allra hluta. Hafðu þökk
f.vrir hreina og ómengaða
kenningu í boðskap þínum —
ljúflyndi þitt og mildi í skiptum
við söfnuðinn. Þín mun verða
saknað og sá söknuður er
einlægur og kemur frá hjartanu.
Megir þú hljóta umbun verka
þinna svo sem þú hefur til
unnið. Megi guð vera með þér,
eiginkonu þinni og afkomendum
um alla framtíð.“
Tónleikar í
Dómkirkjunni
Mér er það ánægjuefni að hvetja
tónlistaráhugafólk til þess að
sækja tónleika dönsku listamanu-
anna í Dómkirkjunni í kvöld.
Hedwig Rummer þekki ég að vísr
ekki nema af afspurn en tel víst aö
þar sé á ferðinni góður listamaður.
Flemming Dreisig organleikara
þekki ég aftur á móti og hef fylgst
með honum frá því hann vann
keppni norrænna organleikara
sem haldin var í Stokkhólmi 1973.
Keppni þessi var ætluð organ-
leikurum 35 ára og yngri, en
Martin Hunger tók þátt í keppn-
inni fyrir íslands hönd. Frá
íslandi voru í dómnefndinni Árni
Kristjánsson og undirritaður.
Flemming Dreisig, þá 22 ára,
vann þessa keppni organleikara
með óvenju glæsilegri frammi-
stöðu. Síðan þetta gerðist hefur
Dreisig haldið fjölda orgeltónleika
og leikið inn á hljómplötur. Og veit
ég að fylgst er með þroska hans
sem organleikara því mikils er af
honum vænst. Prof. Grethe Krogh
kennari Dreisigs sagði mér að
hann væri álitinn einn efnilegasti
nemandi sem fram hefði komið í
Danmörku og er þar mikið sagt því
Danir hafa átt og eiga framúr-
skarandi organleikara vaxna upp
úr langri hefð danskrar tónlistar-
sögu.
Vil ég eindregið hvetja Reykvík-
inga til þess að sækja þessa
tónleika í Dómkirkjunni í kvöld.
Ragnar Björnsson
fyrrv. dómorganisti.
/ ~7 7
Allar íþróttavörur
á einum stað
ÆFINGASKOR
í öllum stæröum fyrir allar inniíþróttir.
Verö frá kr. 3255—14.900
og allt þar á milli.
Aldrei fyrr jafnmikiö úrval af tegundum,
stæröum og veröum.
0)IIPÍ-
Á. v A \
Opið
föstudag til kl. 7
og til kl. 12
laugardag
KLAPPARSTIG 44 SIMI 11783.