Morgunblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978 McKÍnstefnan art allt nám í framhaldsskólastÍKÍ verfti samræmt námsefni skipað f skilKreinda áfanga með opnum leiðum til framhaldsnáms. Nemendum er ætlaður mislangur tími til að ljúka sama námsefni. Elín Pálmadóttir: Sá rædur er heldur um budduna Nýskipaður menntamálaráöherra segir í blaðaviðtali um leið og hann sest í ráöherrastól, að allra brýnasta verkefnið í menntamálum sé að sett verði löggjöf um samræmdan fram- haldsskóla. Er þar vísaö í frumvarp til laga um framhaldsskóla, sem tvívegis hefur verið lagt fyrir alþingi, í seinna skiptið rétt fyrir síðustu þingslit. Frumvarp þetta hef2ur veriö lengi í undirbúningi og ekki vonum fyrr að það komist á leiöarenda og geti orðið vinnuplagg í uppbyggingu menntakerfisins, í framhaldi af grunnskólanum. Framhaldsnám hef- ur að undanförnu veriö rekið með bráðabirgðaákvörðunum frá ári til árs, sem þegar hefur komið niður á alltof mörgum árgöngum ungmenna. Annað er, að á meðan unnið er að og beöið eftir þessum mjög svo vandasömu stjórnarfarslegu ákvörð- unum um heildarskipun á öllu framhaldsnámi í landinu, er nú lögð fram og lögfest margvísleg löggjöf um sérnám og sérskóla, sem í rauninni hlýtur eða ætti a.m.k. að byggjast á heildarföggjöflnni og heildarsýn yfir þetta menntastig og tengsl þess við sérmenntun. Skiljan- legt er að sérskólaf reyni að tryggja sig á meöan með sín áhugamál, en við það ber öll umfjöllun um þeirra hag öfugt að fyrir þá sem um fjalla. Samskeytin geta orðið klúður og sér i saumana. alfarið, og að fjármálaleg og stjórn- unarleg ábyrgö hljóti aö fara saman. Að frumkvæði og öll hagræðing í rekstri sé betur komin hjá heimafólki, sem er á vettvanginum og í beinu daglegu sambandl viö skóla — foreldra, nemendur og atvinnuvegi á hverjum stað — heldur en í einni stórri miðstöð í höfuöborginni, sem aö vísu þarf aö sjálfsögöu aö fara Ég held , að þegar verið er að taka ákvörðun um svo gífurlega mikilvægt mál, sem framhaldsskólamenntunin er í landinu, þá verði fyrst að horfa til þess sem best muni reynast ungmennum og framtíöarkynslóðum. Og fjármögnun hljóti svo að verða færð til milli ríkis og sveitarfélaga í samræmi viö það. Þarna sé fyrst og fremst um tæknilegt vandamál að ræöa, sem þurfi svo bara að leysa. Að vísu eru sveitarstjórnir nokkuö hvekktar orðnar á því er ríkiö gengur í kostnaðarskiptingu af þessu tagi, en ég held að við veröum frekar að vanda til vinnubragöa en gefast upp fyrir verkefninu. í heild er ekki vafi á að gætt er meiri hagræöingar og aðhaldssemi ef kostnaöur er borinn að hluta a.m.k. af heimamönnum, sem þekkja aöstæður. Um meginstefnuna í frumvarpinu held ég að ekki sé mikill ágreiningur. Fyrsta útgáfa þess, sem lögð var fyrir alþingi 1976—77 til kynningar, var jafnframt send fjölmörgum aöilum til athugunar og kynningar og eru umsagnir, sem bárust prentaðar með frumvarpinu í nýrri gerð, er lagt var fram á alþingi á sl. vori. Eru þær þar mjög aðgengilegar þeim sem vilja kynna sér viöhorfin. í þessari grein, sem ég vona að veröi kveikjan að meiri umræöu nú þegar frumvarpið veröur aftur á dagskrá alþingis, vil ég einkum draga fram skoðanir okkar fræðsluráös- manna í Reykjavík (á síðasta kjör- tímabili) um frumvarp þetta, svo og umsögn fræöslustjórans, hins mæta skólamanns, Kristjáns J. Gunnars- sonar, sem fara að mestu saman. En ekkert er eðlilegra en aö blæbrigöa- munur kunni að vera á afstööu smæstu eininganna og þeirra stærstu, enda óeðlilegt aö löggjöf geri ekki ráð fyrir sveigjanleika til Með tilliti til mikilvægs menntunar í landinu fyrir framvindu íslenzks þjóðfélags og velferð næstu kynslóð- ar, þykir mér umræða um þetta efni býsna lítil á opinberum vettvangi, og þykir rétt aö gera tilraun til að vekja umræður nú, þegar þetta afdrifaríka frumvarp er að komast á lokasprett- inn. Þaö gefur kannski vísbendingu um að ekki séu þar allir á einu máli um ýmsa þætti, þrátt fyrir langan undirbúning, að í álitsgerð þeirri, sem nefnd um skiptingu verkefna og tekjustofna milli ríkis og sveitarfé- laga, lagöi aö hluta fyrir landsþing Sambandssveitarfélaga í sl. viku, eru nefndarmenn sammála um allar tillögur utan tvo þætti og er annar framhaldsskólastigiö. En þar skilaöi Kristján J. Gunnarsson fræöslustjóri í Reykjavík séráliti. í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að skólahald sé lögum samkvæmt kostaö af ríki og sveitarfélögunum í sameiningu eins og grunnskólinn. En sveitarstjórnir, einkum á minni stöð- unum, sem af eðlilegum ástæðum eru hræddar við hinn mikla kostnað viö framhaldsmenntunina, vilja að ríkissjóður greiði þar allan kostnaö, stofnkostnað, launa- og reksturs- kostnað, og framhaldsskólinn fari þannig alfarið yfir á ríkið. í áliti verkefnaskiptinga nefndar segir m.:: „Aðild ríkis og sveitarfélaga að framhaldsskólum og hugsanleg kostnaðarskipti, ef um samrekstur verður að ræða, þarfnast víðtækrar athugunar fulltrúa ríkisins og sveitar- félagaanna, áður en málinu verður ráðið endanega til lykta. Hafa ber hugfast, að skipan menntamála — og þá engu síöur framhaldsmenntun- ar en grunnmenntunar — er mikiö hagsmunamál hvers byggðarlags, og því ber nauðsyn til, að sveitarfélögin séu í þeirri stöðu að nokkurt jafnræði ríki milli þeirra og ríkisins um framkvæmdir og ákvaröanir er þau mál varða. Og leggur til að ríkissjóð- ur greiði allan kostnað." Þetta sjónarmið er ákaflega skiljanlegt, því að þarna mun vera um hvorki meira né minna én 25 milljaröa króna pakka aö ræöa. • Ábyrgð og stjórnun heima Við sem unnum Fræðsluráði Reykja- víkur að umsögn um framhaldsskóla- frumvarpiö meðan þaö var í endur- skoðun, vorum þessu samt alfariö ósammála eins og fræöslustjóri. Ég held að löng reynsla sýni það, aö sá sem heldur á buddunni, ráöi feröinni Við verknám í fjölbrautaskóla. með þá þætti er miða að samræm- ingu. Nær allar nýjungar í skólastarfi, sem orðið hafa á undanförnum árum eða áratugum hafa farið af stað fyrir frumkvæði heimamanna hér í Reykjavík (þar sem ég þekki að sjálfsögðu best til) og oftast veriö í upphafi komið í gang af sveitarfélag- inu. Þar er stærsta sveitarfélagiö í landinu og ekki óeölilegt aö það hafi mest bolmagn til að hefja tilraunir, sem hægt er að reyna og færa út ef vel tekst. Má þarna til dæmis nefna opna skólann, fjölbrautaskólann, skóla fyrir treggreinda, sálfræðiþjón- ustu o.s.frv. Þrýstingur þess fólks, sem á þjónustunni þarf að halda, brennur að sjálfsögöu mest á sveitarstjórnarmönnum á staðnum. Og þörfin fyrir hvað áherslu ber aö leggja á er mismunandi eftir atvinnu- háttum á hverjum stað og aðstæðum almennt. Til dæmis er þörf á fræðslu í þjónustugreinum eins og verzlunar- brautum meiri á höfuðborgarsvæð- inu, en kannski fiskvinnslugreinum í sjávarplássum. Fram- halds- skólalög á loka- spretti túlkunar við svo ólíkar aöstæöur. Til dæmis hlýtur 1200 nemenda fjöl- brautaskóli að lúta svolítið öörum lögmálum um framkvæmdaatriði en lítill fámennur skóli. í upphafi fjallar fræöslustjóri í umsögn sinni um meginstefnuna í væntanlegum framhaldsskólalögum og segir: „Þá meginstefnu frum- varpsins að allt nám á framhalds- skólastigi skuli vera samræmt tel ég mjög tll bóta frá því ósamræmda og að sumu leyti lítt skipulagða fram- haldsskólanámi, sem við nú búum við (skortir víöa skilgreiningu markmiöa, námsskrár, gerð námsbóka og kennsluefnis o.s.frv.) þá tel ég einnig í meginatriöum rétta stefnu aö skipta stjórnunarlegri og fjárhagslegri aðild milli ríkisins og sveitarfélaganna. Tel ég að vel gæti komið til greina aö sú aðild verði samræmd í framkvæmd með sama hætti eftir því sem við verður komið í grunnskóla og framhaldsskóla. Ekki er í raun hægt að benda á nein afgerandi skil er draga megi milli grunnskólans og framhaldsnámsins, enda hefur reynslan sýnt, að þótt skipulagslega sé gert ráð fyrir slíkum skilum þurrkast þau að meira eða minna leyti út í framkvæmd. Sum hinna stjórnunarlegu verkefna hijóta óhjákvæmilega að hvíla á herðum ríkisvaidsins, svo sem gerð samræmdra námsskráa, skilgreining námsbrauta, skipting námsefnis í námsáfanga, val og samning náms- bóka og kennsluefnis, kennara- menntun, ákvarðanir um kennslu- magn og þar af leiöandi kennaraþörf, svo og heildarskipulagning á notkun og uppbyggingu skóla og verkefna- skipting þeirra á milli. Af þeim verkefnum, sem fela í sér hina kennslufræöilegu stefnumörkun skól- anna samkvæmt ákvöröunum stjórn- valda ríkisins, ræðst kennaraþörfin og þar með kostnaður við að launa kennara. Er því eðlilegt og að mínu áliti óhjákvæmilegt að kennarar séu launaðir úr ríkisstjóöi. • Kjarni virkrar byggðasteinu Sveitarfélögin hafa að hinu leytinu margra hagsmuna að gæta og sum framkvæmdaatriði eru betur komin í þeirra höndum en ríkisins vegna nálægðar þeirra við skólana, eins og t.d. almennan rekstur, byggingar og viðhald skólahúsa og samvinnu skóla og atvinnufyrirtækja um starfsmennt- un. Almennir hagsmunir sveitarfélag- anna varðandi aðild þeirra að skólahaldi og skipulagningu þess varða einnig staðsetningu skóla og ekki hvað síst námsframboö skól- anna á framhaldsskólastiginu, sem sveitarfélögum er nauðsyn að sé í samræmi og tengslum við atvinnulíf skólahéraðsins, svo að menntunar- framboð framhaldsskólans verði fremur til að beina ungu fólki inn á staðbundna atvinnuvegi héraðsins heldur en í þær tegundir langskóla- náms og sérmenntunar sem lítil eða engin þörf er fyrir á heimaslóðum. Hagsmunir sveitarfélaganna á þessu sviði eru því í ríkara mæli kjarni virkrar byggðastefnu þegar til lengd- ar lætur en margt það sem í svip sýnist nærtækara." Fræðsluráð Reykjavíkur er einnig sammála meginstefnunni sem felst í eftirfarandi orðum: „Fræðsluráð er samþykkt þeirri meginstefnu frum- varpsins að allt nám á framhalds- skólastigi veröi samræmt og náms- efni skipað í skilgreinda áfanga meö opnum leiðum til framhaldsnáms. Mikilvægt er að stefnt er að því að nemendur stöövist ekki í námi né

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.