Morgunblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978 21 Köln við öllu búið annað kvöld —vegna þess hvað Skagamenn komu á óvart ytra með góðum leik SEINNI leikur Akranes og 1 FC Köln í Evrópukeppni meistaraliða fer fram á Laugardalsvellinum á morgun og hefst klukkan 17. Fyrri leikurinn fór sem kunnugt er fram í Köln 13. september s.l. og lauk með sigri þýzka liðsins 4*1. Forsala aðgöngumiða á leikinn á morgun verður í verzluninni Oðni á Akranesi þriðjudag og miðvikudag og við Laugardalsvöll í Reykjavík eftir hádegi á miðvikudag. Dómari leiksins er skozkur, G.B. Smith og línuverðir eru einnig skozkir. Leikurinn á morgun verður 14. Evrópuleikur Akurnesinga. Tveir leikmanna liðsins hafa leikið alla Evrópuleiki til þessa, nafnarnir Jón Alfreðsson og Jón Gunnlaugs- son. Það er álit þeirra, sem fylgst hafa með þátttöku ÍA í Evrópu- keppninni að leikurinn í Köln á 8 landsliðsmem hjá Köln LEIKMENN 1 FC Köln. Uarald Schumacher, markvörður 24 ára. Ferald Ehrmann, markvörður, 19 ára. Harald Konopka, varnarmaður, 25 ára. 1 A-landsleikur, 10 B-landsleikir. Herbert Hein, varnarmaður, 24 ára, 1 B-landsleikur. Gerd Strack, varnarmaður, 23 ára, 1 B-landsleikur. Roland Gerber, varnarmaður, 25 ára, 7 B-landsleikir. Bernhard Cullmann, varnar- maður, 28 ára, 22 A-landsleikir, 5 B-landsl. Herbert Simmermann, varnar- maður, 24 ára, 6 A-landsleikir, 4 B-landsIeikir. Bernd Schuster, varnarmaður, 18 ára. Heinz Flohe, tengiliður, 30 ára, 39 A-landsleikir, 1 B-landsleikur. Herbert Neumann, tengiliður, 24 ára, 1 A-landsleikur, 1 B-Iands- leikur. Júrgen Glowacz, tengiliður, 25 ára, 2 B-landsleikir. Thomas ‘Kroth, tengiliður, 19 ára. Harns-Jiirgen Mohr, tengiliður, 20 ára. Jurgen Willkomm, tengiliður, 19 ára. Dieter Muller, framherji, 24 ára, 12 A-landsleikir, 3 B-landsleikir. Roger van Gool, framherji, 28 ára, 10 landsleikir fvrir Belgíu. Yasuhiko Okudera, framherji, 26 ára, 40 landsleikir fyrir Japan. Klaus Kösling, framherji, 20 ára. Dieter Prestin, framherji, 22 ára. Norbert Schmitz, framherji, 19 ára. Pierre Littbarski, framherji, 18 ára. Holger Willmer, framherji, 20 ára. dögunum hafi ásamt leik ÍA og Dynamo Kiev árið 1975 verið beztu leikir Akranesliðsins í Evrópu- keppninni. Leikmenn ÍA voru alls óhræddir við hina frægu- leikmenn Kölnarliðsins og þeir áttu ekkert minna í leiknum á löngum köflum. Markatalan 4:1 gaf að mati flestra ranga mynd af gangi leiksins, því að Akurnesingar fengu á sig ódýr mörk og misnotuðu nokkur góð marktækifæri. Hefði markatalan 3:2 þýzka liðinu í hag gefið réttari mynd af gangi leiksins. Eftir leikinn létu þýzku blöðin í ljós mikla undrum yfir því hve /f^. Akranesliðið lék góða knattspyrnu og í öllum blöðunum var Karli Þórðarsyni hælt fyrir sérstaklega góðan leik, enda hefur Karl sjaldan verið betri en í þessum leik. Hinn heimsfrægi þjálfari liðsins, Hannes Weisweiler, sagði á blaðamannafundi eftir leikinn að hann undraðist hve gott Akranes- liðið væri. Sagði hann að mark IA hefði verið það fallegasta í leikn- um og ljóst væri að í seinni leiknum á íslandi gæti allt gerst. I liði 1 FC Köln eru margir þekktustu knattspyrnumenn Vest- ur-Þýzkalands. Nú eru í liðinu 6 þýzkir landsliðsmenn, einn japanskur landsliðsmaður og einn belgískur landsliðsmaður. Þessir leikmenn eru Heinz Flohe, Bern- hard Cullmann, Harald Konopka, Herbert Zimmermann, Herbert Naumann og Dieter Muller, Yasuhiki Okudera og Roger van Gool. Flohe er þekktasti leik- maðurinn. Hann fótbrotnaði í heimsmeistarakeppninni í Argen- tínu og hefur ekkert leikið með síðan. Talið er víst að hann leiki sinn fyrsta leik eftir meiðslin gegn IA á Laugardalsvellinum. 1 FC Köln var stofnað árið 1948. Félagið hefur um árabil verið í hópi þekktustu knattspyrnufélaga Vestur-Þýzkalands og nú á 30 ára afmælinu fagnar félagið tvöföld- um sigri í Þýzkalandi, varð bæði deildar- og bikarmeistari. Áður • Heinz Flohe. með meistaraskjöldinn og Ilarald Schumacher. með þýzka bikarinn fagna tvöföldum sigri 1 FC Köln á s.l. vori. hafði 1 FC Köln sigrað í vestur-þýzku deildarkeppninni 1962 og 1964 og í bikarkeppninni 1968 og 1977. Nokkrir af þekktustu knattspyrnumönnum Þjóðverja hin síðari ár hafa leikið með Köln, m.a. Wolfgang Overath, Wolfgang Weber, Heinz. Flohe, Karl-Heinz Schnellinger, Johannes Löhr, Bernd Cullmann og Dieter Muller. Leikvangur 1 FC Köln heitir Múngersdorfer Stadion og er það nýr og stórglæsilegur leikvangur, sem rúmar 60 þúsund áhorfendur. Núverandi aðalþjálfari 1 FC Köln er Hannes Weisweiler, einn af þekktustu þjálfurum heimsins í dag. • Landsliðsmenn Akurnesinga í sumar, Pétur Pétursson, Karl Þórðarson og Árni Sveinsson. Ljósmynd RAX. Leikreynt lið hjá IA LEIKMENN IA: Jón Þorbjörnsson, markvörður, 20 ára háskólanemi. Hóf að leika með ÍA 1977 eftir að hafa leikið áður með Þrótti. Hefur leikið alls 60 leiki og skorað eitt mark. Á að baki 9 unglingalandsleiki. Jón er ókvæntur. Guðjón Þórðarson, bakvöröur, 23 ára rafvirki. Hóf að leika með mfl. ÍA 1972 og hefur leikið alls 146 leiki og skorað eitt mark. Á að baki 7 unglingalandsleiki. Guðjón er kvænt- ur Bjarneyju Jóhannesdóttur og eiga þau eitt barn. Árni Sveinsson, bakvörður, 22 ára trésmiður. Hóf að leika með mfl. ÍA 1973 og hefur leikið alls 132 leiki og skorað 21 mark. Á að baki 18 landsleiki og 7 unglingaiandsleiki. Árni er ókvæntur. Jón Gunnlaugsson, miðvörður, 28 ára forstöðumaður. Hóf að leika með ÍA 1967 og hefur leikið 248 leiki og skorað 30 mörk. Á að baki 5 landsleiki. Jón er kvæntur Elínu Einarsdóttur og eiga þau eitt barn. Jóhannes Guðjónsson, miövöröur, 27 ára endurskoðandi. Hóf að leika með ÍA 1968 og hefur leikið 142 leiki og skorað eitt mark. Jóhannes er kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur. Sigurður Halldórsson, miövöröur, 20 ára trésmiður. Hóf að leika með mfl. ÍA 1976 og hefur leikið alls 36 leiki og skorað eitt mark. Á að baki 2 unglingalandsleiki. Siguröur er ókvæntur. Jón Alfreðsson, framvöröur, 28 ára verkamaður. Hóf að leika með ÍA 1966 og hefur leikiö alls 283 leiki og skorað 27 mörk. Hefur leikiö 4 landsleiki. Jón er ókvæntur. Jón Áskelsson, framvörður, 21 árs trésmiöur. Hóf að leika með ÍA 1976 og hefur leikið alls 60 leiki og skorað 2 mörk. Jón er ókvæntur. Andrés Ólafsson, framherji, 27 ára bankagjaldkeri. Hóf aö leika meö ÍA 1968 og hefur leikið alls 122 teiki og skorað 21 mark. Andrés er kvæntur Rósu Pétursdóttur og eiga þau eitt barn. Matthias Hallgrímsson, framherji, 31 árs rafvirki. Hóf að leika með ÍA 1965 og hefur leikið 277 leiki og skorað 152 mörk. Lék tvö síðastliðin keppnistímabil í Svíþjóð. Hefur leikið 45 landsleiki. Matthías er ókvæntur en á 2 börn. Karl Þórðarson, framherji, 23 ára rafvirki. Hóf að leika með ÍA 1972 og hefur leikið alls 177 leiki og skorað 26 mörk. Hefur leikið 6 landsleiki. Karl er kvæntur Ernu Haraldsdóttur. Pétur Pétursson, framherji, 19 ára verkamaður. Hóf að leika með ÍA 1976 og hefur leikið alls 88 leiki og skorað 59 mörk. Hefur leikið 4 landsleiki. Pétur er ókvæntur. Kristinn Björnsson, framherji, 23 ára háskólanemi. Hóf að leika með ÍA 1977 eftir að hafa leikið áður með Val. Hefur leikið alls 59 leiki og skorað 20 mörk. Hefur leikið 2 landsleiki. Kristinn er ókvæntur en á eitt barn. Sveinbjörn Hákonarson, framvöröur, 23 ára trésmiur. Hóf að leika með ÍA 1976 og hefur leikið alls 20 leiki. Sveinbjörn er ókvæntur. Sigurður Páll Harðarson, miðvörður, 17 ára nemi. Hóf að leika með ÍA 1978 og hefur leikið 7 leiki. Sigurður er ókvæntur. Hörður Helgason, markvörður, 29 ára kennari. Hóf að leika með ÍA 1972 og hefur leikið 41 leik. Lék einn unglingalandsleik. Hörður er kvæntur Sigrúnu Sigurðardóttur og eiga þau tvö börn. Ástvaldur Jóhannesson, tengi- liður, 16 ára nemi. Hóf að leika með mfl. ÍA 1978 og hefur leikið 2 leiki. Ástvaldur hefur leikið 4 drengja- landsleiki. Hann er ókvæntur. REYKJAVIKURMOTIÐ BYRJAÐI MEÐ MIKLU FJORI Sanngjarn sigur Fylkis á móti ÍR FYRSTI leikur Reykjavíkurmóts- ins í handknattleik. sem hófst á laugardag. var á milli Fylkis og ÍR. Fylkir vann sér í fyrra rétt til að leika í 1. deild í vetur og var því skemmtilegt að sjá hve liðið virðist hafa æft vel að undan- förnu. Þeir mættu ákveðnir til leiks og gáfu IR-ingum aldrei neitt eftir í leiknum. Fylkismenn tóku forystu í upp- hafi og héldu henni til loka leiksins. Þeir komust í 3—0, og höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn, staðan í leikhléi var 12—7, þeim í hag. í síðari hálfleiknum sigu ÍR-ing- ar á og virtust um tíma ætla að jafna metin en það tókst ekki. F.vlkir sigraði með 18 mörkum gegn 17. Lið Fylkis lék all þokkalega þennan fyrsta leik sinn á keppnistímabílinu, leikmenn börðust vel jafnt í vörn sem sókn. Besti maður Fylkis leiknum og jafnframt markhæsti var Einar Einarsson, skoraði hann sex mörk, flest með laglegum uppstökkum og þrumuskotum Hjá ÍR var Jens Einarsson bestur og varði vel á körflum í síðari hálfleik. Ekki er gott að dæma getu ÍR-inga eftir þennan fyrsta leik. Spil þeirra var mjög þröngt, allt átti að ganga upp á miðjunni. Þá brá fyrir kæruleysi hjá þeim á köflum í leiknum. Markhæstur í ÍR var gamla kempan Brvnjólfur Markússon með fjögur mörk, Jóhann Ingi Gunnarsson 3, Hafliði Halldórsson 2, Bjarni Hákonarson 3, Bjarni Bessason 3, Ársæll Hafsteinsson 2 og Sigurður Svavarsson 2. Mörk Fylkis: Einar Einarsson 6, Stefán Stefánsson 4, Halldór Hafliðason 2, Gunnar Baldursson 2, Einar Ágústsson 2, Jens Jensson 1 og Guðni Hauksson 1. Fjörugur leikur Vals og Víkings LEIKUR Vals og Víkings í Reykjavíkurmótinu í handknatt- leik á laugardag var stór- skemmtilegur á að horfa. bæði liðin virðast vera í góðri líkams- æfingu. og var leikur þeirra mjög hraður og á köflum frekar harður. Valsmenn höfðu betur í þessu fyrsta uppgjöri liðanna á vetrinum sigruðu með 19 mörk- um gegn 17. Staðan í leikhléi var 7—6 Val í hag. Leikur þessi sýndi að búasf má við hörkuviðureign þessara liða í vetur. Bæði ætla sér stóran hlut. Fyrri hálfleikur liðanna á laugardag var jafn allan tímann. Markvarsla var góð svo og varnar- leikur, eins og markatalan gefur til kynna. I síðari hálfleiknum, var svo enn meiri hraði, og voru liðin óhrædd að reyna hraðaupphlaup, en það gerir handknattleikinn alltaf skemmtilegan. Um miðjan síðari hálfleik höfðu Valsmenn náð tveggja marka forystu. Hafði þá Bjarni Guðmundsson sýnt mjög góðan leik hjá Valsmönnum og skorað sex mörk. Víkingar ná svo að jafna leikinn þegar aðeins tíu mínútur eru eftir, 15—15. En þá skorar Þorbjörn Jensson þrjú mörk fyrir Val í röð og- staðan er 18—15. Ekki áttu Víkingar svar við því, og var það mest Brynjari Kvaran markverði Vals að þakka, hann varði stórvel í leiknum. Endaði leikurinn 19—17 fyrir Val eins og áður sagði. Bestu menn Vals voru Brynjar Kvaran markvörður og Bjarni Guðmundsson sem jafnframt var markhæstur með 7 mörk. Hjá Víkingi voru Viggó Sigurðs- son og Árni Indriðason bestu menn. Árni Indriðason skoraði flest mörk Víkings, 5. Viggó skoraði 4, Sigurður Gunnarsson 2, Steinar Tómasson 2, Páll Björgvinsson 2, Ólafur Jónsson 1 og Ólafur Einarsson 1. Hjá Val skoruðu: Bjarni Guðmundsson 7, Þorbjörn Jensson 3, Þorbjörn Guðmundsson 3, Jón Pétur Jónsson 3, Gísli Blöndal 1, Stefán Gunnarsson 1 og Steindór Gunnarsson 1. Aftur 1 marks tap hjá ÍR ÍR-INGAR töpuðu öðrum leik sínum í röð í Reykjavíkurmótinu í hand- bolta á sunnudaginn, aftur með aðeins einu marki og nú var pað Þróttur sem skellti peim. Loka- tölurnar urðu 18—17 Þrótti í hag, eftir að staöan í leikhléi hafði verið 9—8 fyrir Þrótt. Liöin skiptust á um forystuna framan af fyrri hálfleik, en góður leikkafli Þróttar upp úr miöjum hálfleik, tryggði þeim forystu í leikhléi. í síðari hálfleik hélt Þróttur forskoti sínu og skildu mest 4 mörk á milli. Á síöustu mínútunum tókst ÍR hins vegar aö minnka muninn niður í eitt mark. Brynjólfur Markússon var sá eini sem eitthvað kvað að hjá ÍR í leiknum og skoraði hann flest mörk eða 7 alls. Sigurður Svavarsson skoraði 3 mörk, en aðrir minna. Sveinlaugur var bestur Þróttara, en einnig voru Halldór Harðarson og Páll Ólafsson góðir. Sveinlaugur skoraöi 6 mörk, Halldór Harðarson 5 mörk, en aðrir minna. Valur marði Fylki VALUR vann Fylki 22-21 í Reykjavíkurmótinu í handbolta á sunnudaginn. Staöan í hálfleik var 12—7 Val í vil. Lokatölurnar koma nokkuð á óvart, enda Valur stórveldi. en Fylkismenn nýliðar í 1. deild og ungt lið í alla staði. Fylkismenn voru friskari fyrstu mínúturnar og komust þá í 4—2 og 5—3. En síðan komu 8 mörk frá Valsmönnum í röð og allar horfur voru á algeru hruni Fylkis, enda staðan allt í einu orðin 11—5. í síðari hálfleik gerðu Fylkis- menn betur en að halda í við Valsmenn, því að þeir unnu hálfleikinn 14—10. Áttu Valsarar oftast í hinum mestu vandræðum að hemja léttleikandi lið Fylkis. Fylki vantaði þó herslumuninn og því tókst þeim ekki að jafna. Hjá Val voru þeir Þorbjörn Jensson, Bjarni og Steindór bestir, en stórskytturnar Einar Ágústs- son, Einar Einars og Cunnar Baldurs voru mest áberandi í liði Fylkis. Fylki virðist þó vanta tilfinnanlega meiri breidd og það mun há þeim í vetur. Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 5, Einar Einarsson 4, Gunnar Baldursson og Halldór Sigurðsson 3 hvor, Örn Hafsteinsson og Guðmundur Hauksson 2 hvor og þeir Stefán Hjálmarsson og Ágúst Sigurðsson 1 mark hvor. Mörk Vals: Bjarni Guðmunds- son 6, Þorbjörn Jensson, Steindór og Jón Pétur 4 hver, Gísli Blöndal 3 og Stefán Gunnarsson 1 mark. Fram og Ármann gerðu jafntefli LEIKUR Fram og Ármanns bauð ekki upp á mikil tilprif. Bæði liðin vantar mikið upp á að vera komin í sæmilega æfingu. Mátti sjá mikinn mun á líkamspjálfun leikmanna Vals og Víkings sem léku á undan. Leikurinn var jafn allan tímann, en Þó höfðu Ármenningar frekar frum- kvæðið í leiknum. Höfðu Þeir yfir í leikhléi 8—6. Síöari hálfleikur var mjög spennandi. Framarar náðu að jafna leikinn þegar 9 mínútur voru til leiksloka. Var hart barist á loka- mínútunum. Fjöldi ágætra marktæki- færa fór forgörðum hjá báöum liðum. Þegar 2 mín. eru til leiksloka er staðan jöfn, 16—16. Þá nær Grétar Árnason forystu fyrir Ármann með góðu marki. Framarar hefja sókn og þegar aöeins 50 sek. eru eftir af leiknum jafnar Theodór Guðfinnsson fyrir Fram og endaöi leikurinn 17—17. Markhæstir hjá Fram voru þeir Birgir Jóhannsson og Gústaf Björns- son með þrjú mörk hvor. Hjá Ármann skoraöi Jón Viöar flest mörk, 4. þr. KR lagði Hafliða KR haíði betur í skotkeppni við Ilafliða Pétursson, er KR og Leiknir leiddu saman hesta sína í HöIIinni á sunnudaginn. í lokin stóðu KR-ingar uppi öruggir sigurvegarar. en framan af var leikurinn jafn. KR sigraði 27—18 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11 — 10 KR í vil. KR hafði ávallt forystu í leikn- um, en í fyrri hálfleik tókst Hafliða að halda í við þá með því að skora hvert markið af öðru og skoraði hann alls 10 mörk í fyrri hálfleik, eða öll mörk Leiknis. í síðari hálfleik fór hittni Hafliða hrakandi, enda höfðu KR-ingar þá loks rænu á að gæta hans eins og sjáaldurs auga síns. Er Hafliði hætti að skora, var enginn eftir til að taka upp merki hans, KR jók forystuna jafnt og þétt og sigraði að lokum stórt. Mörkin skoruðu, KR: Símon 7, Jóhannes og Björn 6 hvor, Ólafur 3 Einar, Kristinn og Ævar 2 hver og Friðrik eitt. Leiknir: Hafliði 11, Guðmundur Kristinsson 3, Rúnar 2, Hafliði K og Diðrik sitt hvor. -gg. • Ólafur Einarsson hefur brotizt í gegn um vörn Vals og reynir markskot. Brynjar Kvaran. sem stóð sig mjög vel í leiknum, kemur út á móti til varnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.