Morgunblaðið - 26.09.1978, Síða 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
21
Köln við öllu búið annað kvöld
—vegna þess hvað Skagamenn komu á óvart ytra með góðum leik
SEINNI leikur Akranes og 1 FC Köln í Evrópukeppni
meistaraliða fer fram á Laugardalsvellinum á morgun
og hefst klukkan 17. Fyrri leikurinn fór sem kunnugt er
fram í Köln 13. september s.l. og lauk með sigri þýzka
liðsins 4*1. Forsala aðgöngumiða á leikinn á morgun
verður í verzluninni Oðni á Akranesi þriðjudag og
miðvikudag og við Laugardalsvöll í Reykjavík eftir
hádegi á miðvikudag. Dómari leiksins er skozkur, G.B.
Smith og línuverðir eru einnig skozkir.
Leikurinn á morgun verður 14.
Evrópuleikur Akurnesinga. Tveir
leikmanna liðsins hafa leikið alla
Evrópuleiki til þessa, nafnarnir
Jón Alfreðsson og Jón Gunnlaugs-
son. Það er álit þeirra, sem fylgst
hafa með þátttöku ÍA í Evrópu-
keppninni að leikurinn í Köln á
8 landsliðsmem hjá Köln
LEIKMENN 1 FC Köln.
Uarald Schumacher,
markvörður 24 ára.
Ferald Ehrmann, markvörður,
19 ára.
Harald Konopka, varnarmaður,
25 ára. 1 A-landsleikur, 10
B-landsleikir.
Herbert Hein, varnarmaður, 24
ára, 1 B-landsleikur.
Gerd Strack, varnarmaður, 23
ára, 1 B-landsleikur.
Roland Gerber, varnarmaður, 25
ára, 7 B-landsleikir.
Bernhard Cullmann, varnar-
maður, 28 ára, 22 A-landsleikir, 5
B-landsl.
Herbert Simmermann, varnar-
maður, 24 ára, 6 A-landsleikir, 4
B-landsIeikir.
Bernd Schuster, varnarmaður,
18 ára.
Heinz Flohe, tengiliður, 30 ára,
39 A-landsleikir, 1 B-landsleikur.
Herbert Neumann, tengiliður, 24
ára, 1 A-landsleikur, 1 B-Iands-
leikur.
Júrgen Glowacz, tengiliður, 25
ára, 2 B-landsleikir.
Thomas ‘Kroth, tengiliður, 19
ára.
Harns-Jiirgen Mohr, tengiliður,
20 ára.
Jurgen Willkomm, tengiliður, 19
ára.
Dieter Muller, framherji, 24 ára,
12 A-landsleikir, 3 B-landsleikir.
Roger van Gool, framherji, 28
ára, 10 landsleikir fvrir Belgíu.
Yasuhiko Okudera, framherji,
26 ára, 40 landsleikir fyrir Japan.
Klaus Kösling, framherji, 20
ára.
Dieter Prestin, framherji, 22
ára.
Norbert Schmitz, framherji, 19
ára.
Pierre Littbarski, framherji, 18
ára.
Holger Willmer, framherji, 20
ára.
dögunum hafi ásamt leik ÍA og
Dynamo Kiev árið 1975 verið beztu
leikir Akranesliðsins í Evrópu-
keppninni. Leikmenn ÍA voru alls
óhræddir við hina frægu- leikmenn
Kölnarliðsins og þeir áttu ekkert
minna í leiknum á löngum köflum.
Markatalan 4:1 gaf að mati flestra
ranga mynd af gangi leiksins, því
að Akurnesingar fengu á sig ódýr
mörk og misnotuðu nokkur góð
marktækifæri. Hefði markatalan
3:2 þýzka liðinu í hag gefið réttari
mynd af gangi leiksins.
Eftir leikinn létu þýzku blöðin í
ljós mikla undrum yfir því hve
/f^.
Akranesliðið lék góða knattspyrnu
og í öllum blöðunum var Karli
Þórðarsyni hælt fyrir sérstaklega
góðan leik, enda hefur Karl
sjaldan verið betri en í þessum
leik. Hinn heimsfrægi þjálfari
liðsins, Hannes Weisweiler, sagði
á blaðamannafundi eftir leikinn að
hann undraðist hve gott Akranes-
liðið væri. Sagði hann að mark IA
hefði verið það fallegasta í leikn-
um og ljóst væri að í seinni
leiknum á íslandi gæti allt gerst.
I liði 1 FC Köln eru margir
þekktustu knattspyrnumenn Vest-
ur-Þýzkalands. Nú eru í liðinu 6
þýzkir landsliðsmenn, einn
japanskur landsliðsmaður og einn
belgískur landsliðsmaður. Þessir
leikmenn eru Heinz Flohe, Bern-
hard Cullmann, Harald Konopka,
Herbert Zimmermann, Herbert
Naumann og Dieter Muller,
Yasuhiki Okudera og Roger van
Gool. Flohe er þekktasti leik-
maðurinn. Hann fótbrotnaði í
heimsmeistarakeppninni í Argen-
tínu og hefur ekkert leikið með
síðan. Talið er víst að hann leiki
sinn fyrsta leik eftir meiðslin gegn
IA á Laugardalsvellinum.
1 FC Köln var stofnað árið 1948.
Félagið hefur um árabil verið í
hópi þekktustu knattspyrnufélaga
Vestur-Þýzkalands og nú á 30 ára
afmælinu fagnar félagið tvöföld-
um sigri í Þýzkalandi, varð bæði
deildar- og bikarmeistari. Áður
• Heinz Flohe. með meistaraskjöldinn og Ilarald Schumacher. með þýzka bikarinn fagna tvöföldum
sigri 1 FC Köln á s.l. vori.
hafði 1 FC Köln sigrað í
vestur-þýzku deildarkeppninni
1962 og 1964 og í bikarkeppninni
1968 og 1977. Nokkrir af þekktustu
knattspyrnumönnum Þjóðverja
hin síðari ár hafa leikið með Köln,
m.a. Wolfgang Overath, Wolfgang
Weber, Heinz. Flohe, Karl-Heinz
Schnellinger, Johannes Löhr,
Bernd Cullmann og Dieter Muller.
Leikvangur 1 FC Köln heitir
Múngersdorfer Stadion og er það
nýr og stórglæsilegur leikvangur,
sem rúmar 60 þúsund áhorfendur.
Núverandi aðalþjálfari 1 FC Köln
er Hannes Weisweiler, einn af
þekktustu þjálfurum heimsins í
dag.
• Landsliðsmenn Akurnesinga í sumar, Pétur Pétursson, Karl Þórðarson og Árni
Sveinsson. Ljósmynd RAX.
Leikreynt lið hjá IA
LEIKMENN IA:
Jón Þorbjörnsson, markvörður, 20
ára háskólanemi. Hóf að leika með ÍA
1977 eftir að hafa leikið áður með
Þrótti. Hefur leikið alls 60 leiki og
skorað eitt mark. Á að baki 9
unglingalandsleiki. Jón er ókvæntur.
Guðjón Þórðarson, bakvöröur, 23
ára rafvirki. Hóf að leika með mfl. ÍA
1972 og hefur leikið alls 146 leiki og
skorað eitt mark. Á að baki 7
unglingalandsleiki. Guðjón er kvænt-
ur Bjarneyju Jóhannesdóttur og eiga
þau eitt barn.
Árni Sveinsson, bakvörður, 22 ára
trésmiður. Hóf að leika með mfl. ÍA
1973 og hefur leikið alls 132 leiki og
skorað 21 mark. Á að baki 18
landsleiki og 7 unglingaiandsleiki.
Árni er ókvæntur.
Jón Gunnlaugsson, miðvörður, 28
ára forstöðumaður. Hóf að leika með
ÍA 1967 og hefur leikið 248 leiki og
skorað 30 mörk. Á að baki 5
landsleiki. Jón er kvæntur Elínu
Einarsdóttur og eiga þau eitt barn.
Jóhannes Guðjónsson, miövöröur,
27 ára endurskoðandi. Hóf að leika
með ÍA 1968 og hefur leikið 142 leiki
og skorað eitt mark. Jóhannes er
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Sigurður Halldórsson, miövöröur,
20 ára trésmiður. Hóf að leika með
mfl. ÍA 1976 og hefur leikið alls 36
leiki og skorað eitt mark. Á að baki 2
unglingalandsleiki. Siguröur er
ókvæntur.
Jón Alfreðsson, framvöröur, 28
ára verkamaður. Hóf að leika með ÍA
1966 og hefur leikiö alls 283 leiki og
skorað 27 mörk. Hefur leikiö 4
landsleiki. Jón er ókvæntur.
Jón Áskelsson, framvörður, 21 árs
trésmiöur. Hóf að leika með ÍA 1976
og hefur leikið alls 60 leiki og skorað
2 mörk. Jón er ókvæntur.
Andrés Ólafsson, framherji, 27 ára
bankagjaldkeri. Hóf aö leika meö ÍA
1968 og hefur leikið alls 122 teiki og
skorað 21 mark. Andrés er kvæntur
Rósu Pétursdóttur og eiga þau eitt
barn.
Matthias Hallgrímsson, framherji,
31 árs rafvirki. Hóf að leika með ÍA
1965 og hefur leikið 277 leiki og
skorað 152 mörk. Lék tvö síðastliðin
keppnistímabil í Svíþjóð. Hefur leikið
45 landsleiki. Matthías er ókvæntur
en á 2 börn.
Karl Þórðarson, framherji, 23 ára
rafvirki. Hóf að leika með ÍA 1972 og
hefur leikið alls 177 leiki og skorað
26 mörk. Hefur leikið 6 landsleiki.
Karl er kvæntur Ernu Haraldsdóttur.
Pétur Pétursson, framherji, 19 ára
verkamaður. Hóf að leika með ÍA
1976 og hefur leikið alls 88 leiki og
skorað 59 mörk. Hefur leikið 4
landsleiki. Pétur er ókvæntur.
Kristinn Björnsson, framherji, 23
ára háskólanemi. Hóf að leika með ÍA
1977 eftir að hafa leikið áður með
Val. Hefur leikið alls 59 leiki og
skorað 20 mörk. Hefur leikið 2
landsleiki. Kristinn er ókvæntur en á
eitt barn.
Sveinbjörn Hákonarson,
framvöröur, 23 ára trésmiur. Hóf að
leika með ÍA 1976 og hefur leikið alls
20 leiki. Sveinbjörn er ókvæntur.
Sigurður Páll Harðarson,
miðvörður, 17 ára nemi. Hóf að leika
með ÍA 1978 og hefur leikið 7 leiki.
Sigurður er ókvæntur.
Hörður Helgason, markvörður, 29
ára kennari. Hóf að leika með ÍA
1972 og hefur leikið 41 leik. Lék einn
unglingalandsleik. Hörður er kvæntur
Sigrúnu Sigurðardóttur og eiga þau
tvö börn.
Ástvaldur Jóhannesson, tengi-
liður, 16 ára nemi. Hóf að leika með
mfl. ÍA 1978 og hefur leikið 2 leiki.
Ástvaldur hefur leikið 4 drengja-
landsleiki. Hann er ókvæntur.
REYKJAVIKURMOTIÐ BYRJAÐI MEÐ MIKLU FJORI
Sanngjarn sigur
Fylkis á móti ÍR
FYRSTI leikur Reykjavíkurmóts-
ins í handknattleik. sem hófst á
laugardag. var á milli Fylkis og
ÍR. Fylkir vann sér í fyrra rétt til
að leika í 1. deild í vetur og var
því skemmtilegt að sjá hve liðið
virðist hafa æft vel að undan-
förnu. Þeir mættu ákveðnir til
leiks og gáfu IR-ingum aldrei
neitt eftir í leiknum.
Fylkismenn tóku forystu í upp-
hafi og héldu henni til loka
leiksins. Þeir komust í 3—0, og
höfðu yfirhöndina allan fyrri
hálfleikinn, staðan í leikhléi var
12—7, þeim í hag.
í síðari hálfleiknum sigu ÍR-ing-
ar á og virtust um tíma ætla að
jafna metin en það tókst ekki.
F.vlkir sigraði með 18 mörkum
gegn 17. Lið Fylkis lék all
þokkalega þennan fyrsta leik sinn
á keppnistímabílinu, leikmenn
börðust vel jafnt í vörn sem sókn.
Besti maður Fylkis leiknum og
jafnframt markhæsti var Einar
Einarsson, skoraði hann sex mörk,
flest með laglegum uppstökkum og
þrumuskotum
Hjá ÍR var Jens Einarsson
bestur og varði vel á körflum í
síðari hálfleik. Ekki er gott að
dæma getu ÍR-inga eftir þennan
fyrsta leik. Spil þeirra var mjög
þröngt, allt átti að ganga upp á
miðjunni. Þá brá fyrir kæruleysi
hjá þeim á köflum í leiknum.
Markhæstur í ÍR var gamla
kempan Brvnjólfur Markússon
með fjögur mörk, Jóhann Ingi
Gunnarsson 3, Hafliði Halldórsson
2, Bjarni Hákonarson 3, Bjarni
Bessason 3, Ársæll Hafsteinsson 2
og Sigurður Svavarsson 2.
Mörk Fylkis:
Einar Einarsson 6, Stefán
Stefánsson 4, Halldór Hafliðason
2, Gunnar Baldursson 2, Einar
Ágústsson 2, Jens Jensson 1 og
Guðni Hauksson 1.
Fjörugur leikur
Vals og Víkings
LEIKUR Vals og Víkings í
Reykjavíkurmótinu í handknatt-
leik á laugardag var stór-
skemmtilegur á að horfa. bæði
liðin virðast vera í góðri líkams-
æfingu. og var leikur þeirra mjög
hraður og á köflum frekar
harður. Valsmenn höfðu betur í
þessu fyrsta uppgjöri liðanna á
vetrinum sigruðu með 19 mörk-
um gegn 17.
Staðan í leikhléi var 7—6 Val í
hag. Leikur þessi sýndi að búasf
má við hörkuviðureign þessara
liða í vetur. Bæði ætla sér stóran
hlut.
Fyrri hálfleikur liðanna á
laugardag var jafn allan tímann.
Markvarsla var góð svo og varnar-
leikur, eins og markatalan gefur
til kynna. I síðari hálfleiknum, var
svo enn meiri hraði, og voru liðin
óhrædd að reyna hraðaupphlaup,
en það gerir handknattleikinn
alltaf skemmtilegan. Um miðjan
síðari hálfleik höfðu Valsmenn
náð tveggja marka forystu. Hafði
þá Bjarni Guðmundsson sýnt mjög
góðan leik hjá Valsmönnum og
skorað sex mörk. Víkingar ná svo
að jafna leikinn þegar aðeins tíu
mínútur eru eftir, 15—15. En þá
skorar Þorbjörn Jensson þrjú
mörk fyrir Val í röð og- staðan er
18—15. Ekki áttu Víkingar svar
við því, og var það mest Brynjari
Kvaran markverði Vals að þakka,
hann varði stórvel í leiknum.
Endaði leikurinn 19—17 fyrir
Val eins og áður sagði.
Bestu menn Vals voru Brynjar
Kvaran markvörður og Bjarni
Guðmundsson sem jafnframt var
markhæstur með 7 mörk.
Hjá Víkingi voru Viggó Sigurðs-
son og Árni Indriðason bestu
menn.
Árni Indriðason skoraði flest
mörk Víkings, 5. Viggó skoraði 4,
Sigurður Gunnarsson 2, Steinar
Tómasson 2, Páll Björgvinsson 2,
Ólafur Jónsson 1 og Ólafur
Einarsson 1.
Hjá Val skoruðu: Bjarni
Guðmundsson 7, Þorbjörn Jensson
3, Þorbjörn Guðmundsson 3, Jón
Pétur Jónsson 3, Gísli Blöndal 1,
Stefán Gunnarsson 1 og Steindór
Gunnarsson 1.
Aftur 1 marks
tap hjá ÍR
ÍR-INGAR töpuðu öðrum leik sínum
í röð í Reykjavíkurmótinu í hand-
bolta á sunnudaginn, aftur með
aðeins einu marki og nú var pað
Þróttur sem skellti peim. Loka-
tölurnar urðu 18—17 Þrótti í hag,
eftir að staöan í leikhléi hafði verið
9—8 fyrir Þrótt.
Liöin skiptust á um forystuna
framan af fyrri hálfleik, en góður
leikkafli Þróttar upp úr miöjum
hálfleik, tryggði þeim forystu í
leikhléi. í síðari hálfleik hélt Þróttur
forskoti sínu og skildu mest 4 mörk á
milli. Á síöustu mínútunum tókst ÍR
hins vegar aö minnka muninn niður í
eitt mark.
Brynjólfur Markússon var sá eini
sem eitthvað kvað að hjá ÍR í leiknum
og skoraði hann flest mörk eða 7 alls.
Sigurður Svavarsson skoraði 3 mörk,
en aðrir minna.
Sveinlaugur var bestur Þróttara,
en einnig voru Halldór Harðarson og
Páll Ólafsson góðir. Sveinlaugur
skoraöi 6 mörk, Halldór Harðarson 5
mörk, en aðrir minna.
Valur marði Fylki
VALUR vann Fylki 22-21 í
Reykjavíkurmótinu í handbolta á
sunnudaginn. Staöan í hálfleik
var 12—7 Val í vil. Lokatölurnar
koma nokkuð á óvart, enda Valur
stórveldi. en Fylkismenn nýliðar í
1. deild og ungt lið í alla staði.
Fylkismenn voru friskari fyrstu
mínúturnar og komust þá í 4—2 og
5—3. En síðan komu 8 mörk frá
Valsmönnum í röð og allar horfur
voru á algeru hruni Fylkis, enda
staðan allt í einu orðin 11—5.
í síðari hálfleik gerðu Fylkis-
menn betur en að halda í við
Valsmenn, því að þeir unnu
hálfleikinn 14—10. Áttu Valsarar
oftast í hinum mestu vandræðum
að hemja léttleikandi lið Fylkis.
Fylki vantaði þó herslumuninn og
því tókst þeim ekki að jafna.
Hjá Val voru þeir Þorbjörn
Jensson, Bjarni og Steindór bestir,
en stórskytturnar Einar Ágústs-
son, Einar Einars og Cunnar
Baldurs voru mest áberandi í liði
Fylkis. Fylki virðist þó vanta
tilfinnanlega meiri breidd og það
mun há þeim í vetur.
Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 5,
Einar Einarsson 4, Gunnar
Baldursson og Halldór Sigurðsson
3 hvor, Örn Hafsteinsson og
Guðmundur Hauksson 2 hvor og
þeir Stefán Hjálmarsson og Ágúst
Sigurðsson 1 mark hvor.
Mörk Vals: Bjarni Guðmunds-
son 6, Þorbjörn Jensson, Steindór
og Jón Pétur 4 hver, Gísli Blöndal
3 og Stefán Gunnarsson 1 mark.
Fram og Ármann
gerðu jafntefli
LEIKUR Fram og Ármanns bauð
ekki upp á mikil tilprif. Bæði liðin
vantar mikið upp á að vera komin í
sæmilega æfingu. Mátti sjá mikinn
mun á líkamspjálfun leikmanna
Vals og Víkings sem léku á undan.
Leikurinn var jafn allan tímann, en
Þó höfðu Ármenningar frekar frum-
kvæðið í leiknum. Höfðu Þeir yfir í
leikhléi 8—6.
Síöari hálfleikur var mjög
spennandi. Framarar náðu að jafna
leikinn þegar 9 mínútur voru til
leiksloka. Var hart barist á loka-
mínútunum. Fjöldi ágætra marktæki-
færa fór forgörðum hjá báöum liðum.
Þegar 2 mín. eru til leiksloka er
staðan jöfn, 16—16. Þá nær Grétar
Árnason forystu fyrir Ármann með
góðu marki. Framarar hefja sókn og
þegar aöeins 50 sek. eru eftir af
leiknum jafnar Theodór Guðfinnsson
fyrir Fram og endaöi leikurinn
17—17.
Markhæstir hjá Fram voru þeir
Birgir Jóhannsson og Gústaf Björns-
son með þrjú mörk hvor.
Hjá Ármann skoraöi Jón Viöar flest
mörk, 4.
þr.
KR lagði Hafliða
KR haíði betur í skotkeppni við
Ilafliða Pétursson, er KR og
Leiknir leiddu saman hesta sína í
HöIIinni á sunnudaginn. í lokin
stóðu KR-ingar uppi öruggir
sigurvegarar. en framan af var
leikurinn jafn. KR sigraði 27—18
eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 11 — 10 KR í vil.
KR hafði ávallt forystu í leikn-
um, en í fyrri hálfleik tókst
Hafliða að halda í við þá með því
að skora hvert markið af öðru og
skoraði hann alls 10 mörk í fyrri
hálfleik, eða öll mörk Leiknis. í
síðari hálfleik fór hittni Hafliða
hrakandi, enda höfðu KR-ingar þá
loks rænu á að gæta hans eins og
sjáaldurs auga síns. Er Hafliði
hætti að skora, var enginn eftir til
að taka upp merki hans, KR jók
forystuna jafnt og þétt og sigraði
að lokum stórt.
Mörkin skoruðu, KR: Símon 7,
Jóhannes og Björn 6 hvor, Ólafur 3
Einar, Kristinn og Ævar 2 hver og
Friðrik eitt.
Leiknir: Hafliði 11, Guðmundur
Kristinsson 3, Rúnar 2, Hafliði K
og Diðrik sitt hvor.
-gg.
• Ólafur Einarsson hefur brotizt í gegn um vörn Vals og reynir markskot. Brynjar Kvaran. sem stóð sig
mjög vel í leiknum, kemur út á móti til varnar.