Morgunblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ábendinK- Talaö er um að hver og
einn vilji halda rétti sínum í
umferðinni til streitu og skamm-
ast er yfir því. En hvers vegna
kemur fyrir að menn vilja halda
rétti sínum? Er það ekki vegna
þess að aðrir „svína“ eða ætla að
gera það? Bendir það ekki til þess
að þeir hinir sömu séu lítt eða
ekkert agaðir í umferðinni? Að
mínu viti er betra að mörgu leyti
að vera frekar stífur í umferðinni
en ekki, það verður að sýna
ákveðni en auðvitað líka tillits-
semi um leið. Sem dæmi niá nefna
að ég hef séð það koma fyrir að
fólki sem hyggst fara yfir svo
mikla umferðargötu sem Mikla-
brautin er hefur beinlínis verið
hleypt yfir götuna án þess að það
sé statt á gangbraut. Hvaða
heilbrigðum ökumanni dettur slíkt
í hug? Og hvaða heilbrigðum
gangandi vegfaranda dettur í hug
að ætla yfir Miiubraut einhvers
staðar langt frá umferðarljósum
og gangbrautum og það um
fimmleytið þegar umferðin er sem
mest? En þetta hefur nú samt
gerst og mildi var að ekki var ekið
yfir viðkomandi. Þetta myndu
sumir hafa kallað tillitssemi, að
hleypa vesalings vegfarandanum
yfir götuna, en ég kalla þetta
agaleysi og það þarf að uppræta.
Erfitt er að segja hvort sé betra
í umferðinni glannaskapur eða
sofandaháttur. Vitað er að aftan-
ákeyrslur eru meðal algengustu
árekstra og má ekki segja að þeir
stafi einatt af sofandahætti og því
að menn hafi of stutt bil milli
ökutækja. Þó held ég að sofanda-
hátturinn vegi þyngra á metunum,
því að menn horfa yfirleitt ekki
lengra fram en sem nemur einni
til tveimur bíllengdum og vita því
ekki hvort bílarnir sem eru þar
fyrir framan kunna að hafa
stöðvað af einhverjum ástæðum.
Auðvitað er glannaskapur ekki
heldur góður í umferðinni en þó
má segja að þeir sem e.t.v. aka
stundum á efri hraðamörkunum
fylgist betur með umferðinni og
séu árvakrir vegna þess að þeir
þurfi að flýta sér og því komi síður
nokkuð fyrir þá í umferðinni. En
þetta eru sjálfsagt umdeildar
skýringar og væri fróðlegt að
heyra álit manna í umferðarmál-
unum álmennt talað.
Ökumaður í Reykjavík.”
Þessir hringdu . . .
• Ódæðisverk
Sveinn Sveinssom
„Ódæðisverk eru mörg. Til
dæmis er ódæðisverk að etja
saman atvinnurekanda og at-
vinnuþiggjanda, við þurfum hver á
öðrum að halda. Ég hefi reynsl-
una, ég hef búið við sárustu fátækt
og einnig við atvinnuleysi, ég vil
ekki skipta á kjörum mínum þá og
nú.
Mér hefur aldrei liðið betur en
nú, undir stjórn þeirra manna sem
ég riú er hjá. Ég hef áður unnið
undir mjög góðri stjórn annarra
en nú þeirri beztu. Ég hef verið
betlandi um vinnu og ég hef veitt
vinnu, svo að ég veit hvað ég er að
tala um. Þið sem hafið það að iðju
að spilla milli okkar atvinnuveit-
anda og atvinnuþiggjanda athugið
hvað þið eruð að aðhafast, opnið
augun og lítið með skynsemi á
hvað þið gjörið. Eflum dáð og
drengskap, sjáum þá hvort vort
elskaða land rís ekki uppúr því
endemisfeni sem það nú er í vegna
óviturra stjórnenda. Island lengi
lifi með Guðs hjálp“
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
A alþjóðlega skákmótinu í
Hastings um síðustu áramót kom
þessi staða upp í viðureign sovézka
stórmeistarans Sveschnikovs, og
Englendingsins Webb, sem hafði
svart og átti leik.
32. ... Hb2+! 33. Kfl - Rb3! 34.
Bxb2 - Rd2+ 35. Ke2 - Hh2+ 36.
Ke3 - Rfl+ 37. Kf3 - cxb2 38.
Hb3 Rd2+ og hvítur gafst upp.
ísraelski stórmeistarinn
Dzindzihashvili, sem nýlega
fluttist frá Sovétríkjunum, sigraði
á mótinu. Hann hlaut 10lÆ vinning
af 14 mögulegum. Næstur kom
Petrosjan með 9'/2 v.
• Nýstárleg
þjónusta
Barnafjolskyldai
— Við viljum fá að þakka
fyrir ágæta þjónustu sem við
nutum hjá Hótel Esju, þegar við
fórum út að borða með börnin, en
þar var þeim gefinn kostur á
ókeypis máltíð, þ.e. upp að 10 ára
aldri.
Það er ekki oft sem maður
mætir þannig þjónustu og því
finnst mér ástæða til að þakka
fyrir. Þarna var líka margt fólk
svo greinilegt var að margir kunnu
að meta hana.
• Tillitssemi
Jóhann.
— Sem dæmi um óvenjulega
tillitssemi sem ég varð vitni að
nýlega langar mig til að segja að
kona nokkur var að þvo gólf í
anddyri fjölbýlishúss og inn kem-
ur kona og þegar hún sér að konan
er að þvo gólfið spyr hún hvort
hún megi ekki þurrka af fótunum
á tuskunni hjá henni. Þetta fannst
mér svo óvenjuleg tillitssemi að ég
vildi aðeins fá að segja frá henni,
því ábyggilega er það oftar gert að
vaða yfir fólk sem er að gera
hreint á svona stöðum en hitt að
svona tillitssemi sé sýnd.
24 þúsund félags-
menn innan Kven-
félagasambandsins
13. formannafundur Kvenfélaga-
sambands íslands var haldinn að
Hallveigarstöðum dagana 2. og 3.
september s.l. Sátu hann 18 formenn
héraðssambanda af peim 22 sem
rétt eiga á setu par. Kvenfélögin
innan K.í. eru nú 249 og samanlögð
félagatala beirra rétt um 24 púsund.
Gefnar voru skýrslur um störf K.í.
og aðildarsambandanna. Á vegum K.í.
er starfrækt leiðbeiningarstöð og
einnig gefur félagið út fræðslurit um
ýmis hagnýt efni auk tímaritsins
Húsfreyjunnar sem kemur út fjórum
sinnum á ári. K.í. er aðili að
Húsmæðrasambandi Norðurlanda og
Alþjóðasambandi húsmæðra.
Fundarkonur nutu gestrisni forseta-
hjónanna, formanns Bandalags
kvenna í Reykjavík og menntamála-
ráðherra.
Á fundinum voru samþykktar ýmsar
áskoranir og voru fundarkonur einnig
hvattar til að efla innan Kvenfélag-
anna baráttu gegn ofnautn áfengis.
Meöal annars skoruðu fundarmenn
á ríkisstjórnina að finna viðeigandi
lausn á verðlagsmálum íslendinga
viðeigandi lausn á verðlagsmálum
íslendinga og búa þannig um hnútana
að hagur seljenda veröi mestur af því
að gera sem hagstæöust innkaup og
selja vöruna á hagstæöara verði en nú
tíðkast. Fundarmenn hvöttu einnig
íslenzkar ullarverksmiðjur til að
merkja vörur sínar þannig að Ijóst
væri hvaöa hráefni væri í þeim.
Fundurinn skoraði á viðskiptaráðu-
neytið að setja lög um merkingar á
vörum úr íslenzkri ull og fagnaði því
að viðskiptaráðuneytið hefði ákveðið
hömlur á útflutning á lopa og fteiri
ullarefnum. Fundarmenn hvöttu ríkis-
stjórn (slands til að hraða flutningi
frumvarps um þriggja mánaða fæð-
ingarorlof handa öllum íslenzkum
konum. Einnig lýsti fundurinn áhyggj-
um sínum yfir versnandi verzlanaþjón-
ustu.
Stjórn Kvenfélagasambands íslands
skipa: Sigríöur Thorlacius formaður,
Sigurveig Sigurðardóttir varafor-
maður og Margrét S. Einarsdóttir
meðstjórnandi.
. ©anédkóli
0i"urhr (dfyákommnm
„DANSKENNSLA“
í Reykjavík — Kópavogi —
Hafnarffirði.
Innritun daglega kl. 10—12 og 1—7.
Börn- ungl.- fullorönir (pör eöa einst.)
Kenni m.a. eftir Alþjóöadanskerfinu, einnig fyrir:
BRONS — SILFUR — GULL.
„ATHUGIГ, ef hópar, svo sem félög eöa
klúbbar, hafa áhuga á aö vera saman í tímum, þá
vinsamlega hafiö samband sem allra fyrst.
— GÓÐ KENNSLA —
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 41557.
blaðburðarfólki
Austurbær:
Laugavegur 1-33,
Skólavöröustígur
Baldursgata
Sóleyjargata
Skúlagata
Laugarásvegur 38 - 77
Vesturbær:
Kvisthagi,
Miöbær,
Hjaröarhagi I og II.
Brávallagata.
Skerjafjöröur
/sunnan flugvallar
Uppl. í síma 35408.