Morgunblaðið - 29.09.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER' 1978
5
felflíl
Jfeijfeá
ÉWP01
1 wi
wm-y..
M II
lÉpÉII
^V.
j <
/ . .-«ks
l I
NM
SíV^a&CV' -• ■.•„vf;:4<Aí.
: ;
................. J. .
JMÉ I \m |M
Hj Mimmnmí
I1' A 11 lí r-1
r:;:v.. W- fe W 1
toiiíiis Ji l\
WWÍIRÍI*™880®
M J
M //
Já
* ‘'s'í' •rv"'“5í
WIMÉI
ttllllf!
pllpliiplli
1ÍÉÍIM
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
Sérstök nefnd rann-
saki innf lutningshætti
VIÐSKIPTARAÐHERRA hefur nú
skipað sérstaka nefnd. sem rann-
saka á innflutningshætti verzlunar
innar. Verðlagsstjóri á að stjórna
þessari rannsókn. en með honum
verða Garðar Valdimarsson skatt-
rannsóknarstjóri. Sigurður Al-
bertsson lögfræðingur á Tollstjóra-
skrifstofunni, Sveinn Sveinsson
lögfræðingur hjá Gjaldeyriseftirliti
Seðlabankans og Gylfi Knudsen
deildarstjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu.
í fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu barst í gær frá viðskipta-
ráðuneytinu, segir að í samstarfsyf-
irlýsingu núverandi stjórnarflokka
sé gert ráð fvrir því, að fram fari
rækileg rannsókn á innflutnings-
verzluninni. Sé hér um að ræða
framhald af þeirri rannsókn, sem
verðlagsstjóri beitti sér fyrir á
innkaupsverði til Islands annars
vegar og annarra Norðurlanda hins
vegar, en hún hafi leitt í ljós, að
innkaupsverð þeirra vörutegunda,
sem könnunin náði til, hafi verið
hærra til Islands en til annarra
Norðurlanda.
Þá segir að niðurstaða verðlags-
stjóra gefi vísbendingu um alvarlegt
Staðhæfingar Leigjenda-
samtakanna eru út í hött
— segir Hreiðar Jónsson leigumiðlari
HREIÐAR Jónsson, er rekur
Leiguþjónustuna að Njálsgötu 8G
kom að máli við Morgunblaðið í
gær vegna fréttar frá blaða-
mannafundi Leigjendasamtak-
anna, sem birtist í miðvikudags-
blaðinu. Þar sagði t.d. að sam-
keppni leigumiðlananna hefði
áhrif á leigu til hækkunar.
Hreiðar kvaðst mótmæla þessari
staðhæfingu harðlega og sagði að
í sínu fyrirtæki t.d. væri sá háttur
ekki hafður á að fyrirtækið setti
sjálft verð á íbúð. Það gerir sá er
á eignina.
Þá kvað Hreiðar það verð, sem
nefnt væri í fréttinni, að 75
þúsund krónur væru verð á 2ja
herbergja íbúð, algjörlega út í
hött. Tveggja herbergja íbúðir
hefðu verið til skamms tíma á um
40 þúsund krónur, en verðið væri
nú stígandi og færi nú að nálgast
50 þúsund krónur á mánuði.
Hreiðar kvaðst ekki draga dul á þá
skoðun sína að leigumiðlanir væru
orðnar of margar í Reykjavík. Þær
væru nú orðnar 4 eða 5, en hann
kvað ekki grundvöll fyrir rekstri
nema tveggja leigumiðlana. Þá
Nýtt fíkiii
efnamál
FÍKNIEFNADEILD lögregi-
unnar hefur nú til rannsóknar
nýtt fíkniefnamál. Hefur tvítug-
ur piltur verið úrskurðaður í 20
daga gæzluvarðhald vegna rann-
sóknarinnar. Þar sem rannsókn
málsins er á frumstigi gátu
starfsmenn fíkniefnadeildarinn-
ar ekki sagt frá umfangi þess.
kvaðst Hreiðar oft hafa orðið þess
var að leigjendur yfirbyðu það
verð, sem sett væri á leigu íbúðar
og því væru það miklu fremur
leigjendurnir en leigumiðlanirnar,
sem ættu sök á stígandi í verði á
leiguíbúðum.
vandamál í verzlunarháttum hér á
landi. Þess vegna og í samræmi við
samstarfsyfirlýsinguna telji við-
skiptaráðuneytið nauðsynlegt, að
fram fari athugun sem beinist að
eftirfarandi atriðum:
1. Rannsakaðar verði allar hugs-
anlegar orsakir þess verðmunar, sem
fram kom í könnun verðlagsstjóra.
2. Rannsakað verði sérstaklega,
hver sé þáttur umboðslauna í
þessum verðmismun svo og umboðs-
launaskil.
3. Gerð verði úttekt á áhrifum hins
háa innkaupsverð á verðlag, lífskjör,
verðbólguþróun og gjaldeyrisstöðu
landsmanna.
4. Gerðar verði tillögum um
lagfæringu á verzlunarháttum, eftir
því sem nauðsynlegt kann að virðast.
Þá segir að ráðuneytið hafi falið
Georg Olafssyni verðlagsstjóra að
annast þessa athugun og gera
tillögur til ráðherra fyrir áramót um
| úrbætur í þessum efnum.
Jafnframt hefur ráðuneytið lagt
áherzlu á í bréfi til verðlagsstjóra,
að sámstarfi við verðlagsyfirvöld
annarra Norðurlanda verði haldið
áfram, þannig að slíkt samstarf um
verzlunarmál verði framvegis fastur
þáttur í starfi verðlagsyfirvalda hér
á landi.
Ólafur Björns-
son prófessor:
VEGNA frásagnar í Mbl. sl.
miðvikudag af erindi, er ég flutti
á mánudagskvöldið í Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt um vísitölu
og kaupmátt launa, óska ég að
það komi skýrt fram. að ég tók
það fram, er ég ræddi um kjöt-
niðurgreiðslurnar er ákveðnar
væru fyrr í þessum mánuði. að
mér væri ókunnugt um það.
hvernig kjötverðið hefði verið
tekið inn i nýju kaupgjaldsvísitöl-
una og fullyrti þar af leiðandi
Vísitalan og kjötið
ekkert um það, hvort í því tilviki
hefði verið um það. sem ég kalla
fölsun að ræða.
Hitt sagði ég aftur á móti. að
skilyrði þess, að hægt væri að taka
mið af vísitölu framfærslu-
kostnaðar við mat á kaupmætti
launa væri það. að almenningur
gæti fengið vöruna á því verði,
sem með er reiknað f grundvelli
vfsitölunnar.
Ef stjórnvöld ákveða að lækka
bæði framfærsluvísitölu og kaup-
gjaldsvísitölu með niðurgreiðsl-
um. verður almenningur að eiga
þess kost að fá vöruna á þvf
niðurgreidda verði, sem kaup-
gjaldsvfsitalan miðast við. Ella
verður það aðeins kauplækkunin.
sem kemur til framkvæmda, en
ekki verðlækkunin og tel ég ekki
ofsagt að kalla það föslun og
meira að segja grófa fölsun. ef um
mikilvæga neyzluvöru er að ræða.
Ég hefi sem fyrr segir ekki
brotið það til mergjar, hvernig
kjötið og önnur búvara var
meðhöndluð við útreikning nýju
kaupgjaldsvísitölunnar enda taldi
ég slíkt fremur í verkahring
forystumanna launþegasamtak-
anna en mfnum. En auðveit ætti
að vera að fá þetta upplýst, því að
varla getur hvílt nein leynd yfir
því eftir hvaða reglum vísitalan er
reiknuð út.
Fyrsta Billy
Graham-
samkoman
sýnd í kvöld
í KVÖLD hefjast í Neskirkju í
Reykjavík samkomur þar sem
sýndar verða myndsegulbandsupp-
tökur frá samkomuherferð Billy
Grahams sem nú stendur yfir í
Stokkhólmi. Samkoman, sem sýnd
verður í kvöld, var sl. miðvikudags-
kvöld og var segulbandsupptakan
send hingað með flugvél í gær.
Félögin, sem standa að samkomu-
haldi þessu, eru KFUM og K,
Kristileg skólasamtök og Kristilegt
stúdentafélag, Samband ísl. kristni-
boðsfélaga og Þjóðkirkjan. í frétt frá
þessum aðilum segir að með sam-
komunum sé verið að gefa Islending-
um tækifæri tii að hlýða á boðskap
þessa þekkta prédikara, en samkom-
urnar eru sýndar með þessum hætti
á um 20 stöðum á Norðurlöndum.
Þær hefjast kl. 20:30.
<ai
WKARNABÆR
Laugaveg 20. Laugaveg 66. Austurstræti 22. Glæsibæ. Simi 28155.