Morgunblaðið - 30.09.1978, Page 2

Morgunblaðið - 30.09.1978, Page 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978 Reiknar meö aö veröa hjá Stand- ard næstu 3 ár Þú reiknar þá með að verða hjá Standard næstu 3 árin? — Það er auðvitað möguleiki að ég verði seldur frá Standard á tímabilinu ef ég og Petit komum okkur saman um sölu. En eins og málin standa í dag reikna ég með áð veröa næstu þrjú árin hér í Liege. Gera knattsþyrnumenn það gott í Belgíu? — Knattsþyrnumenn hafa ágæt laun hér í Belgíu. Tvö lönd skera sig nokkuð úr í þessum efnum, Spánn og Ítalía en þar á eftir koma Belgía, Þýzkaland og Frakkland og gæti ég trúað að laun séu svipuð í öllum þessum þremur löndum. Hér á ég auövitað við laun þeirra leik- manna, sem eru á toppnum. Er það leyndarmál hvað þú berð úr býtum sem atvinnu- knattspyrnumaður? — Hér í Belgíu eru launakjör trúnaðarmál milli félagsins og leikmanns og því kemur ekki til greina að skýra opinberlega frá því hvað ég hef í laun hjá Standard. Þetta eru skiljanlegar reglur því að öðrum kosti væri Ætlar að byggja í Eyjum Hefuröu fest peninga í fast- eignum þann tíma sem þú hefur verið í atvinnuknattspyrnu? — Rétt eins og með launin hef ég ekki áhuga á að gera þetta að umtalsefni opinberlega. Ég vil aðeins segja það að auðvitað hef ég hugsað um að verðtryggja peningana mína eins og flestir aðrir. Ég hef keypt mér dýran bíl (BMW) og fæ brátt nýjan (Porsche), ég hef keypt mér húsgögn, hljómflutnings- tæki og þvíumlíkt og bráðlega byrja ég að byggja einbýlishús heima í Vestmannaeyjum. Bjarni Marteinsson arkitekt er að teikna fyrir mig hús á lóð, sem ég fékk heima. Þetta er ansi góð lóð, alveg uppi viö flugvöllinn. Þetta veröur ekki nein höll, bara einbýlishús af venjulegri stærð. Átt þú íþúðina sem þú býrð í hér úti í Belgíu eða hefur Standard útvegaö þér hana? — Standard hefur alltaf út- vegað mér íbúðir alveg síðan ég kom hingað fyrst fyrir fimm árum. Þá var mér tekið eins og hverjum öörum nýliða, ég fékk litla íbúð og lítil laun. Fyrstu vikurnar voru erfiðar, maður varð að setja í sig hörku og einsetja sér að komast í aðallið- ið. Að öðrum kosti lá ekki annað fyrir en snúa heim. Ég var heppinn því ég fékk fljótlega aö Sþreyta mig í aðalliðinu vegna meiðsla hjá leikmönnum og þegar tækifærið kom lét ég það mér ekki úr greipum ganga. Ég fékk góða dóma strax í fyrstu leikjunum og hef verið fastamað- ur í liðinu s.l. 5 ár. Ætli ég sé ekki farinn að nálgast 300. leikinn meö Standard. Eftir að ég komst í aðalliðið fékk ég nýja íbúð í miðborginni og þar bjó ég í 3 ár en fyrir ári síðan fékk ég íbúðina sem ég er núna í. Þetta er ágæt íbúð í úthverfi, fallegu og rólegu hverfi og hér kann ég vel við mig. íbúðin er þriggja herbergja og hún var alveg mátuleg fyrir mig þegar ég bjó einn því mér leiðast húsverk og þau myndu hlaðast uþp ef ég flytti í einbýlishús. En núna þegar fjölskyldan er farin að týnast út til Belgíu er ég farinn að svipast um eftir hent- ugu einbýlishúsi. Hefurðu heimþrá? — Því neita ég ekki að heimþráin sótti oft á mann þegar maður var einn úti í Belgíu á veturna. Þá var ekki annað að gera en bíta á jaxlinn og bægja öllum slíkum hugsunum frá sér. Mamma hefur venjulega komiö til mín á sumrin og verið hjá mér fram á haustið og nú er Óli bróðir fluttur út með fjölskyldu sína og býr hérna í sama húsinu svo aö heimþrá sækir varla á mig í bráð. Hjónaband ekki í sjónmáli Er hjónaband nokkuö í sjón- Hljómflutningstækin góðu sett í gang og músíkin á fullt. Blaðamann brestur pekkíngu til þess að skýra frá möguleikum tækjanna en hann man þó að magnararnir, sem ekki sjást á pessari mynd, eru 150 wött. Ásgeir á velli Standard. Félagið hefur verölagt Asgeir á 250 milljónir króna, enginn smáskildingur þaðl máli? — Nei, ég hef engin slík áform á prjónunum. Það er nægur tími fyrir slíkt seinna meir. Það hefur verið áberandi hjá Standard finnst mér að þegar útlendir leikmenn koma til félagsins og þeir eru kvæntir hafa iðulega komiö upp vanda- mál með konurnar. Þær festa ekki yndi hér í Belgíu, þær hafa ekkert við að vera á daginn og þegar við bætist að eigin- mennirnir eru lítið heima við verða þær óánægðar og það kemur svo fram á spilamennsk- unni hjá eiginmönnunum. Ég tel því rétt að bíða meö öll hjóna- bandsáform enn um sinn. Þú talar um að leikmennirnir hér séu lítið heimavið. — Það er venjulega svo hjá félögum eins og Standard. Þaö er æft tvisvar á dag flesta daga og oft eru leikir tvisvar í viku og þeim fylgja ferðalög innan Belgíu og utan. Það fer því mikill tími í knattspyrnuna á meöan keppnistímabilið stendur yfir. Hvað gerir þú í þeim fáu frístundum sem þú hefur. — Ég hef mikinn áhuga á tónlist og ég hlusta á pjötur þegar ég get því við komið. Ég er nýlega búinn að kaupa mér mjög fullkomin hljómflutningstæki frá Pioneer því ég vil ekkert til spara til að fá sem beztan hljómburð. Þessi tæki kosta hér í búðum 2,5 milljónir íslenzkra króna svo væntanlega kosta þau skilding- inn heima á íslandi eftir nýjustu hækkanirnar. Þá horfi ég einnig mikið á sjónvarp því hér í Belgíu get ég náð einum 14 sjónvarps- stöðvum í Belgíu, Þýzkalandi, Hollandi, Frakklandi og Luxem- borg. í sjónvarpinu er fótboltinn auövitað efstur á vinsældalistan- um hjá mér. Ég hef ekki alltaf tök á því að horfa á íþróttaþættina og þess vegna keypti ég mér tæki, sem getur tekið upp sjónvarpsefni og svo spila ég bara bandiö þegar ég kem heim. Nú og svo fer ég á veiðar minnst einu sinni í viku. Einn af stjórnarmönnum Standard á 1000 hektara veiðiland og hann hefur boöið mér að koma með sér þegar ég vil. Ég skýt kanínur, héra, dádýr og fasa og hef geysilega gaman af. Má eigin- mikil hætta á því að öfund skyti upp hjá leikmönnum, sem ekki hafa jafnmikil laun og hinir leikmennirnir. Ég get aðeins sagt þaö að ég er með nýjan samning sem ég er ánægður með, samning sem tryggir mér góð laun. Ég hef lesið það einhvers staðar að þú sért einn þriggja launahæstu leikmanna Belgíu. Er þetta rétt? — Ég get auðvitað engu um þetta svarað því ég veit ekkert um það hvað aðrir leikmenn hafa í laun. En líklega er ég þó í efri flokknum. (Því má skjóta hér að í sviga, án þess að verið sé að geta til um laun Ásgeirs, að samkvæmt upþlýsingum sem blm. aflaði sér nýverið hafa launahæstu leikmenn Kölnar- liðsins um hálfa milljón þýzkra marka þrúttó í árslaun eða um 75 milljónir íslenzkra króna). Samkvæmt öðrum heimildum eru árslaun þessara sömu manna um 40 milljónir króna og erfitt að henda á því reiður hvor talan er réttari.) Úr fundaveizlunni, Asgeir, Bryndís, Þóra, Sígurvin, Olafur og Vilborg lega segja að þetta sé algjör della hjá mér. Vantar markaskorara Ef við förum aðeins út í aðra sálma Ásgeir. Standard gekk mjög vel á síðasta keppnistíma- bili en nú í haust hefur liðið átt erfitt uppdráttar. Hvað veldur þessu? — Það eru ýmsar ástæður fyrir þessu en tvær þeirra eru veigamestar að mínu mati. í fyrsta lagi byrjuðum við keppnis- tímabiliö alltof snemma. Petit framkvæmdastjóri leggur mikið upp úr því að Standard leiki í alls konar aukamótum áður en keppnin í 1. deild hefst til þess að fá peninga og þess vegna byrjuðum við að æfa mánuði á undan öllum öðrum liðum í Belgíu. Það má eiginlega segja að við höfum verið stanzlaust að keppa í allt haust og á þremur mánuðum höfum við leikið 25 leiki. Leikmennirnir eru orðnir dauðþreyttir og þá er ekki von á góðum árangri. Önnur ástæðan er sú, að markakóngar liðsins frá í fyrra, Riedl og Nickel, leika ekki með núna. Þeir tveir voru markhæstu mennirnir í belgísku kanttspyrnunni í fyrra. Riedl er meiddur og óvíst hvenær hann getur byrjað aftur og Nickel var seldur til þýzka liðsins Eintrackt Braunsweig þar sem hann skor- ar og skorar og er þessa stundina markhæsti leikmaður- inn í þýzku knattspyrnunni. í staöinn voru keyptir þrír nýir leikmenn en þeir hafa alls ekki fyllt skaröið, sem Nickel skildi eftir sig og reyndar hafa tveir þeirra ekki komizt í aðalliðið ennþá. Þaö var vægast sagt undarleg ráðstöfun hjá Petit að selja Nickel því það sem okkur vantar fyrst og fremst er góður markaskorari. Okkur gengur ekkert að skora og áhangendur Standard eru að veröa æfir. Ég trúi ekki öðru en Petit taki upp veskið og kaupi sterkan sóknar- mann fljótlega. Petit hefur sagt í blöðunum að hann vilji enga stjörnuleikmenn, heldur vilji hann byggja liðiö upp á jöfnum mönnum en það gengur ekki lengur að framlínumennirnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.