Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
Sigur trúarinnar
19. sunnudagur e. Þrenningarhátíö
hugskots yöar og íklæöst hinum nýja manni, sem
skapaöur er eftir Guöi í réttlæti og heilagleika
sannleikans.
Guöspjall:
Matt. 9:1—8: Er Jesús sá trú þeirra sagöi hann
viö lama manninn: Vertu hughraustur, barniö
mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.
Pistill:
Efes. i:20—28: í Jesú hafiö þér lagt afásamt meö
hinni fyrri breytni, hinn gamla mann, sem er
spilltur af tælandi girndum en endumýjast í anda
Hökullinn, sem presturinn ber í messunni, táknar
þetta, sem pistillinn í dag talar um. Gaffalkross-
inn, sem algengur er á höklum, táknar þrá
mannsins eftir hjálp og fyrirgefningu syndanna.
Farið
út um allan heim — Fréttamolar —
Biblíuauglýsingar
á strætisvögnum
Danska Biblíufélagið hóf í
fyrra mikla og árangursríka
uaglýsingaherferð. Settar voru
auglýsingar á strætisvagna
Kaupmannahafnar, sem vöktu
athygli vegfaranda á því að
hægt væri að fá fagnaðarer-
indið á nútíma dönsku. Biblíu-
félagið fékk fjölda fyrirspurna,
sem leiddu m.a. til þess að ný
þýðing Nýja testametisins var
prentuð í 130 þús. eintökum.
Fermingarfræösla
Síðastliðin tvö ár hefúr verið
gerð tilraun með nýtt skipulag
fermingarfræðslunnar í 73
söfnuðum í Noregi. 6.100
fermingarbörn tóku þátt í
tilrauninni. Fermingarundir-
búningurinn stóð í 8 mánuði og
var fólginn í 35 kennslustund-
um, 8 guðsþjónustum auk verk-
efna í tengslum við starf
safnaðarins og þátttöku í hóp-
umræðum.
Könnun hefur leitt í ljós
mjög jákvæð viðbrögð bæði
foreldra og fermingarbarna,
sem óska fleiri möguleika til að
fara saman í helgarferðir og
taka þátt í hópumræðum undir
leiðsögn starfsmanna safnaðar-
ins. 46—68% þátttakendanna í
þessari tilraun töldu sig hafa
haft „mikið gagn“ af
fermingarfræðslunni en aðeins
10—18% töldu sig hafa haft
lítið eða ekkert gagn af þessari
fræðslu.
Stefnt er að samræmdri
fræðsluáætlun, sem þó er hægt
að laga eftir aðstæðum á
hverjum stað.
Hjónabandid í brennidepli II
Erfið tímabil
Áður en við tökum til við þær
meginstoðir sem samfélagið í
hjónabandinu byggir á, þá
skulum við athuga lítillega þau
erfiðleikatímabil sem hvert
hjónaband mætir. Þetta eru
eðlileg vandamál og alls ekki
sjúkleg.
Við getum reiknað með þrem-
ur slíkum tímabilum í hjóna-
bandinu, sem líta má á sem
eðlilega þróun í sálarlegu og
líkamlegu tilliti. 1. Fyrsta erfið-
leikatímbilið í hjónabandinu er
á fyrsta til fimmta ári, með
hámarki á þriðja til fjórða ári.
Þessi tími er fundinn út af dr.
med Ben Harnik í Sviss, sem
hefur sýnt fram á að fyrsti
hápunkturinn í hjónaskilnuðum
er einmitt á þessu tímabili. Það
er reiknað með að 'h allra
hjónaskilnaða eigi sér stað milli
þriðja og fjórða árs hjónabands-
ins. Þessi staðreynd færir okkur
heim sanninn um það, að þetta
er erfitt tímabil og því ástæða
til að athuga hvers vegna.
Dr. Harnik telur að aðal-
ástæðan sé sú, að í lífi karl-
mannsins eigi sér stað grund-
vallarbreyting á afstöðu hans til
hjónabandsins. Hann gengur í
hjónaband með þeim sjálfs-
elskuhugmyndum að þar geti
hann fengið kynferðislegum
hvötum sínum fullnægt. Hann
tekur ekki með í reikninginn að
það komi tímabil í hjónaband-
inu þar sem hann verður að
halda aftur af sér þegar það
hentar.
Þegar fyrsta barnið kemur í
heiminn þá verður það stundum
töluvert þungt áfall fyrir karl-
manninn. Ef hann spyr lækni
konunnar, fær hann að vita að
samfarir eru óæskilegar 4 síð-
ustu vikurnar fyrir fæðingu og
fyrstu 6 vikurnar eftir fæðingu.
Aðeins þetta getur verið til þess
að sum hjónabönd lenda í
erfiðleikum einmitt á þessum
tíma.
En vandamálið er oft flóknara
en þetta. Hin unga móðir verður
gjarnan mjög upptekin af ný-
fædda barninu. Allt snýst um
það, hún sýnir því þann dýpsta
kærleika sem hún á, nýtur þess
að gefa því brjóstið og þannig
mætti lengi telja. Mjög eðlilega
hefur hún ekki eins mikinn
áhuga á manninum og áður. Að
minnsta kosti finnst honum það
og hann getur ekki betur séð en
hann sé settur til hliðar. Hann
missir jafnvel fótfestu í tilfinn-
ingarlífi sínu, hún var þá
öðruvísi en hann hafði haldið. —
Ef til vill er hún líka mjög
vonsvikin, hún reiknaði aldrei
með að skilningur hans yrði
svona takmarkaður.
Þetta eru mjög eðlilegir
árekstrar meðan hjón eru að
finna hvort annað. En einmitt
svona erfiðleikar geta bundið
hjónin enn sterkari böndum en
áður var hægt. Það er í svona
hversdagslegum erfiðleikum að
persónuleikinn dafnar.
Þegar þessir erfiðleikar reyn-
ast of þungir og viðkomandi
fara frá hvort öðru þá er það
mjög oft vegna vanþekkingar og
þroskaleysis. Ef ung hjón fengju
meiri vitnesju um þessa stað-
reynd að erfiðleikar komi upp á
fyrstu 5 árunum og það sé
nauðsynlegt til þess að ná
réttum þroska að komast yfir
þá, þá yrðu færri hjónaskilnaðir
en raun ber vitni. I þessum
hlutum þarf miklu meiri
fræðslu.
2. Næsta erfiðleikatímabilið
er oft kallað „14. ára krísan", en
þeir erfiðleikar hafa allt aðrar
forsendur en að framan greinir.
Persónulega held ég að erfið-
leikarnir verði vegna þess ald-
urs sem hjónin eru á. Vissulega
eru til margar aðrar kenningar
um þetta, því á þetta er hægt að
líta frá mörgum hliðum.
Langflestar konur hafa lokið
barneignum um þrítugt, árin
sem þá koma á eftir verða oft
þannig að þær fá ekki þá
fullnægju sem þær þurfa fyrir
tilfinningarlífið og persónuleik-
ann. Tómleiki og tilgangsleysi í
samfélaginu heima fyrir eykst.
Börnin þarfnast þeirra ekki eins
eftir því sem árin líða. Dr.
Harnik hefur undirstrikað þetta
baksvið mjög varðandi þessi
vandamál. Prófessor Rumker
hefur gert rannsóknir á þessu
sviði og bent á að á aldursskeið-
inu 35—38 ára gangi flestir í
gegnum alvarlega persónu-
leika-þolraun. Sumir reyna
þetta nokkru fyrr þ.e. rúmlega
30 ára og aðrir síðar 40—42 ára.
En hápunktur þessara einkenna
eru um 35—38 ára skeiðið og þá
eru flestir búnir að vera í
hjónabandi ca 14 ár. Þess vegna
er miðað við 14 ár, þegar rætt er
um þetta tímabil enda stígur
skilnaðartíðnin þá mjög hátt.
Á þessum aldri á sér stað
töluverð breyting líkamlega.
Öldrunarbreytingar verða í
frumunum frá 35 ára aldri, sem
semda. En smám saman fengu
þeir meiri og meiri innsýn í
leyndardóma Guðs ríkis.
Gerðu eins og þeir. Taktu þá
áhættu að fylgja Jesú. Bið til
hans, hlusta á hann, er hann
talar í guðspjöllunum. Ræktu
samfélag safnaðar hans á helg-
um dögum, reyndu að hlýða
kærleiksboði hans! Prófaðu!
(sjá. Jóh. 7,17). Þá muntu
uppgötva hvað TRÚ er. Ekki
einhver byrði, sem hvílir á þér:
Verð ég að trúa þessu og hinu?
Heldur kraftur, sem ber þig
uppi. Þú hefur eignast nýja
viðmiðun í lífi þínu og getur
sagt eins og Páll: Ég veit á
hverjum ég hef sett traust mitt!
(2. Tím. 1,12).
er hluti af vandamálinu. Aftur
er rétt að undirstrika að einmitt
á þessum árum er fólk búið að
koma sér vel fyrir. Ef litið er til
baka þá hefur lífið verið svipað í
15 ár og varla nokkur ástæða til
að ætla að það breytist næstu
árin. Maður kann sitt hlutverk í
atvinnulífinu og það verður
varla breyting á því á næstunni.
Tómleikinn verður vandamál.
Tilfinningarleg viðbrögð
verða oft til þess að hjón fara í
taugarnar hvort á öðru. Hann er
þreyttur, óánægður með launin,
konuna, börnin, bílinn! Hún
segir við börnin: Ég veit ekki
hvað hefur komið yfir manninn,
það er ekki hægt að tala við
hann“, Óhjákvæmilega gengur
þetta út yfir kynferðislegu
hliðina sem einkennist af
spennu og hálfgerðri taugaveikl-
un.
Þetta ástand veldur oft skiln-
aði. Konan er í mikilli þörf fyrir
að vera meðhöndluð sem kona
og verður veik fyrir öðrum
mönnum sem sýna henni áhuga.
Hér mæta konur oft karlmönn-
um sem eru 50—55 ára og eru á
næsta erfiðleikatímabili (sjá
síðar).
Eins og fram hefur komið þá
getur þetta verið mjög erfitt
tímabil. En einmitt á þessum.
tíma er mjög gott tækifæri til
þess að endurnýjast í hjóna-
bandinu og öllu samfélagi á
heimilinu. Hér er mjög mikil-
vægt að hjón ræði saman opið
um stöðu sína. Hjálpi hvort öðru
að finna leið út úr tómleika og
leiðindum t.d. með því að sækja
um annað starf, endurhæfa sig
o.s.fr. — Konan þarf að fá
uppörvun frá manni sínum til að
finna ný áhugamál, ef börnin
eru komin nokkuð á legg.
Á þessum árum verður vímu-
gjafinn oft stórt vandamál
vegna tómleika og óánægju.
Bent hefur verið á að annað-
hvort hafi þessi ár orðið til
algers hruns í hjónaböndum eða
til endurnýjunar og aukinnar
hamingju og lífslöngunar.
3. Englendingarnir segja:
„Life begins at. fourty" (Allt er
fertugum fært), og undirstrika
hve góður tíminn er frá 40—50
ára. En um 50—55 ára aldurs-
skeiðið koma enn vandamál sem
oft eru kennd við silfurbrúð-
kaupið. Það er ekki bara konan
sem gengur inn í breytingatíma
heldur líka karlmaðurinn. Hann
verður rólegri, kvartar yfir að
vera ekki upplagður, minnið
skerðist og í 75% tilfella minnk-
ar kynferðisgetan. Ef hann veit
um þetta og konan sömuleiðis
þá þarf þetta alls ekki að valda
erfiðleikum. Hins vegar ef fólk
getur ekki talað saman þá getur
ástandið orðið alvarlegt. —
Börnin eru farin að heiman.
Hjónin eru meira og meira ein
saman og misskilningurinn get-
ur magnast svo að til alvarlegra
árekstra kemur. Hún kvartar
yfir því að hann sé hættur að
koma til sín og hann gengur um
með sviða í sál yfir getuleysi
sínu. Þetta ástand karlmannsins
verður stundum til þess að hann
grípur til þess ráðs að gera
hosur sínar grænar fyrir ungum
konum, einmitt á 35 ára aldrin-
um eins og áður getur. Hann
telur þær vænlegar til að örva
kyngetu sína aftur og þar með
sýnt að hann sé ekki dauður úr
öllum æðum. Hér verða því oft
hjónaskilnaðir og reyndar svo
oft að línuritið sýnir þriðja
hápunktinn.
Ég hef nú mjög stuttlega lýst
nokkrum vandamálum sem upp
kunna að koma í hjónabandinu.
Ég minni á að þetta eru eðlileg
vandamál, sem eiga að geta
þroskað hjónabandið og gert það
sterkara og hamingjusamara ef
rétt er brugðist við. Erfið ár í
hjónabandinu eru því oftast
góður hlutur, sem við skulum
ekki vanmeta en leitast við að
nýta rétt, ,þannig að elliárin
verði kannski ríkustu og bestu
árin. Frh.
Trú
Trúarjátningin setur fram
stuttu máli kjarna kristinnar
trúar. Trúarjátningin er lof-
söngur til Guðs, lofgjörð, sem
drepur á því mikilvægasta, sem
vitað er um Guð. Enginn getur
skilið allt, sem þar stendur. En
kristin trú er að lifa með Jesú,
og vaxa og þroskast í samfélag-
inu við hann. Þegar Jesús
kallaði á lærisveinana sagði
hann ekki: Ef þú trúir þessu og
þessu, þá færðu að vera með
mér! Hann sagði bara: FYLG
ÞÚ MÉR! Þeir hlýddu, fylgdu
honum, hlustuðu á hann, horfðu
á hvað hann gerði. Stundum
voru þeir hrifnir, stundum
hryggir, stundum vissir, stund-
um vonsviknir og fullir efa-
Biblítilestur
vikuna 1,- -7. okt.
Sunnudagur 1. okt.: Matt. 9:1—8
Mánudagur 2. okt.: Lúk. 13:10—2i
Þriðjudagur 3. okt.: Lúk. 10:15—20
Miðvikudagur Á. okt.: 2. Kor. L'l—15
Fimmtudagur 5. okt.: 2. Kor. 11:23—33
Föstudagur 6. okt.: 2. Kor. 12:1—10
Laugardagur 7. okt.: Jobsbók 1:1—22