Morgunblaðið - 30.09.1978, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.09.1978, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978 41 koma vilja erfingja keisarans fyrir kattarnef — sitja fyrir okkur við allar útgönguleiðir. Á enda spjótsins, sem þeir beina að mér, er höfuð manns míns. Ruddalegir og miskunnarlausir hlæja þeir í sama mund og þeir þrengja hringinn umhverfis mig og son minn. Þarna stend ég, reyni að hrinda af mér grófgerðum höndum þeirra og horfi á hvernig þeir rista mjög hægt sundur kverkar hjartfólgins barns míns. Mér er ljóst að þessa kvíða, sem gerir mér órótt nótt sem nýtan dag, gætir hjá öllum eiginkonum ríkisleiðtoga. Það er mér þó síður en svo huggun og ótti minn ágerist sífellt. Slík raun er fólgin í því að vera móðir ríkiserf- >ngja.“ - o - „A flótta undan mönnum með handkrók44 „Martraðir mínar eru allt- af bundnar daglegu vafstri," segir Sophia Loren. „Þessa stundina eigum við Carlo (Ponti) til dæmis í illdeilum við fjármálayfirvöld á Ítalíu. Það vita orðið áreiðanlega allir. Draumfarir mínar eru í eftirfarandi anda: Við Carlo erum flóttamenn rétt eins og það væri í heimsstyrjöldinni seinni. Svartklæddir menn elta okk- ur á röndum. Þeir hafa ásýnd hauskúpu en með krukku- andlit. I stað handa hafa þeir króka og gammar sitja þeim á öxlum. Carlo og ég hlaup- uiii eins og fætur toga, en allt kemur fyrir ekki og þessir sendimenn dauðans ná okkur og hneppa í fjötra. Síðan er ég færð inn á gólf í einhvers konar skrifstofu. Ég er umkringd dökkum grunbrúslegum verum, sem láta spurnirgarnar dynja á mér. En þær vilja engin svör og hlusta ekki einu sinni á mig. Þegar ég opna munninn tekur hönd í svörtum hanska fyrir vit mín. Ég heyri Carlo reka upp sársaukavein í grenndinni — vísbending um það, sem ég á í vændum. Þá vil ég skyndilega gera grein fyrir öllu en fæ engu orði upp komið. Mér líður svo illa að ég heyri ekki lengur hvað ver- urnar segja. Ég er í leiðslu. Þegar ég veina af hræslu eitt sinn, átta ég mig á að ein veran minnir í útliti á Carlo. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds, það er andlitið hans Carlos. Ég tek að orga og hrekk upp. Þegar martröð af þessu tagi er liðin hjá verður Carlo að hughreysta mig. Ég þarfn- ast hans og þessara blíðu vinalegu augna hans, sem ég þekki svo vel og elska.“ - o - „Eg borða þar til ég spring“ „Ég er vonglaður að upp- lagi,“ segir Jerry Lewis. „En það ber ekki að skilja svo að ég geti ekki haft erfiðar Sophia Loren hefur átt í útistöðum við skattayfirvöld ásamt manni sínum, Carlo Ponti. draumfarir. Ein martröð hefur fylgt mér eftir síðan á bernskuárum — hún er ekki beint ógnvekjandi en gefur mér einkennilega tilfinningu æ ofan í æ. Á barnsaldri var ég ólmur í sælgæti, í kökur og ís og brjóstsykur. Foreldrar mínir vöruðu mig við og sögðu, að þannig myndi ég aldrei verða stór en tútna út eins og loftbelgur. Þessi endurminn- ing, segir mér sálfræðingur minn, hefur markað för í undirmeðvitund mína. Þegar ég varð fullorðinn hélt ég áfram að vera sæl- keri. Að vísu geri ég mér ljóst að ég verð enginn loftbelgur, en draumurinn ásækir mig engu síður. Hann byrjar ævintrýra- lega. Ég sit mitt á feiknalegu borði umkringdur alls kyns sætindum, fj allháum köku- stafla og baða í fljótandi súkkulaði. Ég hvomsa í mig af hjartans lyst og því meir sem ég gleypi því meira hrannast upp á borðinu. Og ég held áfram linnulaust þrátt fyrir að ég viti að allt eigi sín endamörk. Vitanlega kemur líka að því að ekki verður lengra haldið. Ég fitna og fitna uns ég þarf á tveimur stólum að halda. Maginn gúlpar út og ég læt staðar numið. En hann heldur áfram að þrútna. Ég get hvorki hreyft legg né lið en líkaminn stækkar í sífellu. Til að bæta gráu ofan á svart átta ég mig nú á að fari svo fram sem horfir þá rifna ég í tætlur. Mér er þungt um andardrátt... og síðar hvell- ur. í draumnum er mér öllum lokið og ég hef hlotið makleg málagjöld fyrir græðgina. Til allrar hamingju varnar það mér þess ekki að narta í góðgætið daginn eftir." (Úr Welt am Sonntag). Jerry Lewis er nú fimmtíu og tveggja ára og sex barna faðir. ■ AUGLÝSINGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Adalstræti 6 simi 25810 Jólavörur í miklu úrvali HANNYRÐAVERSLUNIN ÓÐINSGÖTU 1 SÍMI 13130 Oiympia Intemational skrifstofuvélar & verkstæði - Tryggvagötu 8, sími 24140 OMEGA 203 LJOSRITUNARVEL SMÁ EN KNÁ Lausnin fyrir skrifstofuna er einföld, hraðvirk, áreiðanleg og hver sem er getur notfært sér hana. Pappírsforði á rúllu, stærð Ijósrits skorið eftir stærð frumrits og pappírsverð ^ mjög hagstætt. Leitið nánari upplýsinga. Húsbyggjendur Húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagnsheimtaug í hús sín aö halda í haust eöa vetur, er vinsamlega bent á, aö sækja um hana sem allra fyrst, þar sem búast má viö verulegum töfum á lagningu heimtauga, þegar frost er komiö í jöröu. Gætiö þess, aö jarövegur sé kominn í sem næst rétta hæö, þar sem heimtaug verður lögö, og aö uppgröftur úr húsgrunni, byggingarefni eöa annaö hindri ekki lagningu hennar. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á heimtaugaafgreiöslu Rafmagnsveitunn- ar, Hafnarhúsinu, 4. hæð. Sími 18222. RAFMAGNS VEITA , REYKJAVÍKUR Hver var að tala um verðhækkanir? Á morgun og næstu daga verður Rýmingarsala á Abecita baðfatnaði Sundbolir Bikini Sundfatasett o.m.fl. Mikil verðlækkun Okkar er ánægjan Þinn er hagnaðurinn 3 .e

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.