Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
63
hljóðlátu sveinum þessa lands,
sem með lítillæti áínu, með mikla
listræna hæfileika, kaus að starfa
og lifa í litlu sjávarþorpi norður
við heimskautsbaug.
Hann naut þess að beisla og
finna í sálarlífi sínu áhrif Strand-
anna og mannfólksins sem lifði
þar, miðla af áhuga sínum á
eðluðustu hvötum mannsins, list-
unum.
Þeir, sem kynnst hafa Finni
Magnússyni á síðari árum, (ég er
einn þeirra) finna að kröfur hans
um listræn gæði fara síst minnk-
andi. Finnur veit ósköp vel sjálfur
að ögun sálar og líkama er
undirstaða heilbrigðs lífs.
Á þessum tímamótum í ævi
hans vil ég þakka fyrir margar og
góðar umræður okkar í millum um
listina og lífið, umræðuefni sem
aldrei þrýtur.
Ég óska mínum ágæta vini
blessunar og að hann verði þeirrar
gæfu aðnjótandi að mega halda
sinni skýru hugsun, sem einkennt
ihefur hann hingað til.
Lifðu heill.
Einar Hákonarson, listmálari.
kennari í þeirri grein við Handíða
og myndlistaskólann.
Ingigerður og Helgi fluttust frá
Hofi 1931 að Reykjahlíð í Mosfells-
dal og tveim árum síðar til
Reykjavíkur. En þau eru nú búsett
að Langholtsvegi 206.
Heimili þeirra var og er rómað
fyrir mikla rausn og greiðvikni.
Eru þau hjón samhent í að vilja
hvers manns vanda leysa á hvaða
sviði sem er. Þar hefur aldrei verið
spurt um hagnað, aðeins hvort
unnt væri að létta byrðar með-
bróður og ef ekki var um annað að
ræða þá gerast þátttakandi í
byrðinni. Ég hefi aldrei fyrirhitt
slíkt hjartalag sem þar.
í sambúð sinni hafa Ingigerður
og Helgi eignast sex börn, eina
dóttur og fimm syni, sem öll hafa
náð fullorðins árum. Eiga þau það
sammerkt að hafa erft ýmsa bestu
þætti þessara elskulegu hjóna.
Ég varð fyrir því láni að njóta
umönnunar Ingigerðar sem vinar
og tengdamó.ður. Ég get aldrei
fullþakkað þau kvnni og þann
styrk sem hún hefur veitt mér, né
fyrir dóttur sem hún eitt sinn gaf
mér fyrir löngu.
Hver sá, sem kynnst hefur
þessari heiðurskonu, hefur komið
betri frá því móti, ríkari að
kærleiksþeli því sem hún auðsýnir
öllu því sem lifir.
Megi Guð blessa vegferð hennar.
í dag 1. okt. 1978 tekur frú
Ingigerður á móti vinum og
vandamönnum á heimili dóttur
sinnar, Básenda 14 hér í borg. Ég
veit að margir hafa hug á að óska
henni velfarnaðar í tilefni þessara
tímamóta og eru þeir allir hjart-
anlega velkomnir.
Sindri Sigurjónsson
VEGGSTRIGINN
skapar þægilegt andrúmsloft,
hann er nýtískulegur
og fer alls staðar vel.
ML Það alnýjasta er DAMASK
^ STRIGINN, sem er gullfallegur^
B Lítið inn
og skoðið sjálf
Síðumúla 15 sími 3 30 70
yft af (jndvegisverkum
“ íslenskrar leikritunar
— eru nú aftur fáaiileg á hljómplötum
Gullna hliðið
eftir Davfö Stefánsson
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Tónlist: Páll ísólfsson
Islandsklukkan
eftir Halldór Kiljan Laxness
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Á þessum upptökum af verkum tveggja af höfuöskáldum íslenskrar tungu
koma fram margir af vinsælustu leikurum þjóöarlnnar fyrr og síöar.
Meö þessum hljómplötum fylgja vandaöir bæklingar meö upplýsingum um
verkin, leikstjóra, leikara og höfundana. Einnig eru upplýsingar á ensku.
Heildsölubirgöir fyrirliggjandi.
Verk pessi eru fáanleg í hljómplötuverzlunum
um land allt.
FALKINN
Suöurlandsbraut 8, Laugavegi 24, Vesturverl,
sími 84670, sími 18670, sími 12110.