Morgunblaðið - 01.10.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
3
Þrumubingó Hvatar
nk. fimmtudagskvöld
SJALFSTÆÐISKVENNA-
FÉLAGIÐ Hvöt eínir til
þruniubinjíós í Sigtúni næst-
komandi fimmtudag klukkan
20.30. Verðmæti vinninga er
um 2 milljónir króna og er
enginn vinningur undir 80
þúsund krónum að verðftiæti. Á
síðasta ári hélt Hvöt þrumu-
bingó og varð þá mikill fjöldi
manna frá að hverfa. Nú
verður hins vegar spilað á
báðum hæðunum 1 Sigtúni.
Vinningar, sem eru að verð-
mæti 2 milljónir króna, eru m.a.
10 Útsýnarferðir til sólarlanda,
til Costa del Sol, Costa Brava,
Grikklands, Italíu, Júgóslavíu
og 13 daga ferð með Guðmundi
Jónassyni hér innanlands. Þá
verða í vinninga málverk, hús-
gögn, alls konar rafmagnstæki,
vöruúttekir á fatnaði, matvæl-
um og sitthvað fleira.
Spilaðar verða 18 umferðir, en
að auki verða skemmtiatriði.
Sigríður Hannesdóttir eftir-
herma og gamanvísnasöngkona
skemmtir og Sigmar Pétursson
leikur á harmoníku.
Vetrarstarf Hvatar er nú að
hefjast, en vonir standa til að
það verði bæði mikið og öflugt,
svo sem verið hefur.
Sigríður Hannesdóttir.
Júlíana og Isleifur á mál-
verkauppboði Klausturhóla
MÁLVERKAUPPBOÐ hafa um áratuga skeið verið vinsæll liður
menningardagskrá vetrarins. Klausturhólar, listmunauppboð Guðmund-
ar Axelssonar, hefja vetrarstarfið á Hótel Sögu n.k. þriðjudag kl. 5. Það
er 46. uppboð fyrirtækisins og verða að þessu sinni seld myndverk unnin
með margvíslegum efnum, svo sem olíu, vatnslitum, rauð- og svartkrít,
olíupastel, bleki. tússi, acryllitum, dúkskurðarmyndir o.fl.
Boðin verða upp myndverk eftir
unga listamenn, miðaldra og ýmis
verk eru eftir hina allra þekktustu
og virtustu meistara á þessari öld.
Það sem einkum vekur athygli er
hinn mikli fjöldi gamalia teikninga
eftir meistara Kjarval.
Meðal yngri málara vekja athygli
tvær olíumyndir eftir Sverri
Haraldsson, önnur nokkurra ára
gömul frá Þingvöllum og hin
hálfgeómetrísk Reykjavíkurmynd
frá 1952, auk tveggja teikninga eftir
sama. Myndir eru eftir Hring
Jóhannesson, húsamynd eftir Kára
Eiríksson, teikning eftir Þorbjörgu
Höskuldsdóttur og af öðrum núlif-
andi málurum má nefna verk
Valtýs Péte-'of'nar, Eggerts Guð-
mundssonar, Veturliða, auk þriggja
mynda eftir Finn Jónsson, sem nú
má teljast Nestor ísienzkra mynd-
listarmanna og njóta verk hans
viðurkenningar víða um heim og
eru mjög sjaldfengin, því ár og
dagur er nú síðan listamaðurinn
hætti að selja myndir sínar. Myndir
hans eru úr Þjórsárdal, stór
olíumynd og Öræfagróður, auk
vatnslistamyndarinnar Eyðibýli.
Verk látinna málara eru að þessu
sinni óvenjulega mörg og meðal
þeirra myndir eftir listamenn, sem
aðeins sjást örsjaldan á markaði.
Má þarna nefna tvær olíumyndir
eftir Júlíönu Sveinsdóttur, Blóma-
mynd og mótív frá ltaliu. Tryggva-
götumynd eftir Baldvin Björnsson
og málverkið Víkingaöld eftir þann
kunna naívista ísleif Konráðsson.
Tvær myndir verða seldar eftir
Gunnlaug Scheving, dúkrista og
vatnslitamynd frá Borgarnesi.
Þrjár myndir eftir Gunnlaug
Blöndal, tússmynd Jóns Engilberts
af fjallakofa, tvær pastelmyndir
eftir Nínu Sæmundsson, æðarfugla-
mynd Höskuldar Björnssonar, og
sérstæð landslagsmynd eftir
Guðmund frá Miðdal, ennfremur
mynd úr Hornafirði eftir Jón
Þorleifsson.
Yfir tuttugu myndverk meistara
Kjarval eru á boðstólum, olíumynd-
ir, blýants- og litateikningar, þar á
meðal tvö gömul olíumálverk frá
Þingvöllum.
Myndirnar verða til sýnis í nýjum
húsakynnum Klausturhóla n.k.
mánudag kl. 10—18 og að Hótel
Sögu þriðjudag kl. 9—15.
Gaman að vinna með
íslenzku tónlistarfólki
— sögðu Krauze og Zukofsky
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í kvöld eru tilefni alþjóðlegs
túnlistardags. en þessa dags. 1. október ár hvert er víða minnst og er það fyrir
tilstilli Saméinuðu þjóðanna að svo er gert. Á efnisskránni eru þrjú verk.
Fylgjur eftir Þorkel Sigurbjörnsson. píanókonsert eftir Zygmunt Krauze og
sinfónía nr. 2 eftir Mendelsohn.
Tveir erlendir tónlistarmenn koma við sögu á þessum tónleikum, þeir
Zygmunt Krauze, sem leikur einleik á píanó í verki sínu, og Paul Zukofsky
fiðluleikari sem leikur einleik í verki Þorkels. en hann er jafnframt
stjórnandi tónleikanna. Mbl. ræddi stuttlega við þá á æfingu í fyrradag.
—Eg- er hingað kominn nú til að
leika píanókonsert sem ég samdi árið
1976 en ég reyni jöfnum höndum að
leika með hljómsveitum og halda
sjálfstæða tónleika og taka nokkurn
tíma til að semja, sagði Krauze.
Hann var spurður hvernig gehgi að
taka frá tíma til að semja.
— Það gengur dálítið upp og ofan,
en yfirleitt reyni ég að haga því svo til
að hljómleikar séu nokkuð þétt og
síðan að gefist tími heima til að
semja. Á hljómleikaferðunum er lítill
tími til slíks.
Zygmunt Krauze leikur með kamm-
ersveit sem hefur á undanförnum
árum ferðast víða um og haldið
hljómleika og hefur hann t.d. verið í
Mexikó og fer héðan til Englands þar
sem hann leikur með kammersveitinni
á 11 hljómleikum.
Paul Zukofsky er fiðluleikari og
hljómsveitarstjóri, sem fyrr segir og
Zygmunt Krauze fri Póllandi leikur
einleik í píanókonsert sínum á
hljómleikunum í kvöid. Ljósm.
Emilía.
leikur hann einleik í verkinu Fylgjur
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en hann
hefur tileinkað Zukofsky það vérk.
— Þetta er í fyrsta sinn sem ég
stjórna hér, sagði Zukofsky, en
aðallega hef ég leikið og stundað
kennslustörf og hefi ég t.d. nokkuð oft
komið til Islands í þeim tilgangi.
— Píanókonsert Krauze er mjög
skemmtilegt verk og það hefur verið
gaman að vinna að því hér, hljóm-
sveitin er góð og tel ég að í henni sé
mjög góður efniviður, sem hægt er að
gera mikla hluti með. Hún er að
mörgu leyti sambærileg við margar
hjjómsveitir erlendar.
Zygmunt Krauze tók undir það með
Zukofsky að gaman væri að starfa hér
og létu báðir vel af samvinnunni hvor
við annan og sögðu að það kæmi vel til
greina að þeir myndu starfa saman
aftur, en þetta er í fyrsta sinn sem
þeir vinna saman.
Paul Zukofsky stjórnar Sinfónfu-
hljómsveitinni og leikur jafnframt
einleik á fiðlu.
Muniö Útsýnarkvöldiö aö Hótel Sögu í kvöld.
wjm
Greiðsluskilmálar:
ÞUSUND KR
ÚTBORGUN.
— Afgangurinn á 5 mánuöum.
fimmtudaga
kl. 17.30.
COSTA DEL SOL
— brottför 8. október — 3 vikur.
Nokkur sæti laus —
Gististaöur: LA NOGALERA
Tilboöiö stendur i 3 daga eöa til
miðvikudags 4. okt. kl. 17.00.
5 dagar.
í VETUR ER SKRIFSTOFAN OPIN
VIRKA DAGA FRÁ KL. 9—5
LOKAÐ LAUGARDAGA
Austurstræti 17, IL hæð
Símar 26611 og 20100
Brottför: 12., 26. okt.
9., 23. nóv.
Verö frá kr. 83.000.
Innif. Flugfar, flugvallarskattur,
gisting og enskur morgunveröur.