Morgunblaðið - 01.10.1978, Blaðsíða 28
Móðurinn, það er nú
herra sem lætur
hlýða sér, er haft
eftir karli einum. Það
eru orð að sönnu. Á
hverju ári eru tízku-
línurnar lagðar suður í París og
konur um allan heim taka að hlýða.
Hárgreiðslulínan er lögð af sam-
tökunum Haute Coiffure og kynnt í
septembermánuði. Þá streyma þátt-
takendur í þessum virðulegu samtök-
um til Parísar. Síðan íslenzkir
hárgreiðslumeistarar gerðust aðilar
að Hautte Coiffure berst nýja línan
til íslands nær samdægurs og er hér
kynnt um leið.
Á sýninguna í París foru að þessu
sinni hárgreiðslumeistararnir Bára
Kemp, Elsa Haraldsdóttir, Guðbjörn
Sævar, Hanna Kristín Guðmunds-
dóttir, Lovísa Jónsdóttir, Marteinn
Guðmdndsson og Þóra Björk Olafs-
dóttir. Þau síðustu þeirra komu heim
á fimmtudag og um kvöldið komu
þau saman í hárgreiðslustofunni
Salon VEH í Glæsibæ, ræddu
nýjungarnar, sem þau höfðu séð, og
lögðu samkvæmt þeim hárið á 8
stúlkum. En sum þeirra voru á
förum aftur eftir einn dag á
heimsmeistarakeppnina í hár-
greiðslu í Dusseldorf.
Myndirnar hér á síðunni tók
ljósmyndari Morgunblaðsins Emilía,
af nýju hárgreiðslunni, eins og hún
Línurnar eru fjórar í nýju
hárgreiðslunni og heita ákveðnum
nöfnum, Bully, Peggy, Poppy og
Topsy. Þar eru skýrðar á þennan veg:
„Bully" heitir sú greiðsla, sem er
létt og tindrandi, notuð bæði á
millisítt og hálfsítt hár. Það er tekið
upp í hliðunum með snúningum og
fest með pípuhreinsurum. Þetta er
að sögn ungleg og töfrandi greiðsla
fyrir kátt kvöld.
„Peggý" nefnist greiðsla fyrir
stutt eða hálfsítt hár, þar sem hárið
liggur að mestu yfir enninu í
frjálsum bylgjum, og hárið greitt
upp í hnakkann. Á greiðslan að bera
með sér kvenlegan yndisþokka.
„Poppy“ greiðslan hefur í för með
sér nýja aðferð við klippinguna. Hún
miðar að því að vera hentug fyrir
önnum köfnu konuna, sem er á
hlaupum og á að vera bæði kvenleg
og karlmannleg í senn.
„Topsy“ er greiðslan, sem sést hér
á síðunni, (við spegilinn) þar sem sítt
hár hefur verið tekið með skárúllu
upp í hnút og rúllan fest í báða enda
með spennu. Hárið er tekið upp í
hnakkann. Þessi greiðsla á að vera
kvenleg og fáguð, og þykir eiga vel
við svonefnda „bibis“ fatatísku, sem
tískufrömuðirnir hafa sett á
markaðinn fyrir veturinn.
Og geta menn svo spreytt sig á að
finna hvaða nafn á við hverja
greiðslu.
kom fram í túlkun íslenzku hár-
greiðslumeistaranna þetta kvöld. Og
þeir veittu okkur upplýsingar um
nýju línuna í hárgreiðslu, sem er í
samræmi við tízkufatnaðinn, eins og
þau sáu hann í París.
Strax vakti athygli okkar bátur,
sem minnti á dátana frá stríðsárun-
um. Og þaðan er einmitt sótt
tiskulínan í ár. Dragtir með breiðum
stoppuðum öxlum og pilsin mjó
niður. Bátar af þessari gerð voru
komnir í búðir í París og á
tízkusýningunni á Haute Coiffure 17.
og 18. september mátti sjá báta og
langar sígarettur í stíl við fatnaðinn
og undir leikin lög með Söru
Leander.
Nýju hártískúnni svipar líka mjög
til þess sem þekktist á stríðsárunum
og árunum næst á eftir. Hvort sem
hárið er haft sítt eða stutt, þá er það
greitt upp í hnakkann og toppar
fram á ennið.
Því nefnum við bátinn, að línurnar
í hárgreiðslunni liggja í átt að slíku
höfuðfati efst á höfðinu. Rauði
blærinn á hárinu, sem hefur verið í
tízku, er nú horfinn, en hárið ýmist
ljóst eða dökkt. Það er sem sagt
ýmist stutt eða sítt og þá upptekið. í
hvort tveggja sett permanent — þó
ekki af sömu gerð og verið hefur. I
hárgreiðslu kvenna er notað lakk og
vatn, en karlar nota brillantín eins
oj( einu sinni þekktist. En annars
virtist hárgreiðsla karla vera svipuð
og hárgreiðsla kvenna.
Eins og sjá má á myndunum hér á
síðunni er mikið um að notað sé
hárskraut af ýmsum gerðum: blóm,
kambar og „semelíusteinar". Og
pípuhreinsarar af öllum litum eru
notaðir til að halda saman snúning-
um og fléttum, eins og sést á einni
greiðslunni hér.
Ljósmynd-
ir Emilia
Nýja hárgreiðslan sótt
aftur til stríðsáranna
4