Morgunblaðið - 04.10.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1978
Feðgum bjargað
af brennandi báti
Akurevri. 3. októhor.
VÉLBÁTURINN Kópur SII 132
.skemmdist mikið af eldi í dag
þpKar hann var á siglinKU inn
Eyjafjöró. Eigandinn, Ililmar
IIolKason. ok 5 ára sonur hans.
scm voru einir um horð. hjörguð-
ust heilir á húfi. Báturinn var
drejíinn til Iljalteyrar. þar sem
eldurinn var slökktur.
Hilmar keypti bátinn í vor og
fluttist til Húsavíkur en þaðan
hefur hann stundað rækjuveiðar í
sumar við annan mann. I morgun
hafði hann verið á Ólafsfirði og
var í dag að færa bátinn inn til
Akureyrar undan versnandi veðri.
Hann var einn á bátnum að þessu
sinni en hafði tekið 5 ára son sinn
með, Helga að nafni.
Þegar þeir voru komnir inn á
Laufásgrunn, norðaustur af Hjalt-
eyri um klukkan 14.30 fann
Hilmar reykjarþef og lyfti hlera
yfir vélarrúminu til að aðgæta
þetta nánar. Þá gaus eidur og
reykur á móti honum og fyllti
stýrishúsið svo að þeir feðgar urðu
að flýja þaðan. Snúran á hljóð-
nemanum á talstöðinni var svo
löng, að Hilmar gat tekið hana
með sér út á þilfar og kallað á
Á stærri myndinni eru Agnar
Þórisson (t.v.) og Valgarður
Sigurðsson. sem björguðu feðgun-
um á Kópi og drógu bátinn til
Hjalteyrar. Minni myndin er af
Helga litla Hilmarssyni 5 ára,
sem var um borð í Kópi ásamt
föður sínum. Þeim var háðum
bjargað heilum á húfi.Ljósm.
Mbl. Sv.P.
hjálp. M.a. náði hann sambandi
við hafnarverði á Akuréyri, sem
gerðu slökkviliði Akureyrar við-
vart.
Um þetta leyti var Agnar
Þórisson frá Hjálteyri á heimleið
úr fiskiróðri á trillu sinni og sá þá
reykinn leggja upp af Kóp. Hann
ákvað að aðgæta þetta nánar og
lagði lykkju á leið sína. Þegar
hann kom að bátnum voru þeir
feðgar komnir í gúmbát enda gátu
þeir ekkert gert á eigin spýtur til
að hefta eldinn. Agnar tók Kóp í
tog og byrjaöi að draga hann til
Hjalteyrar. Valgarður Sigurðsson
á Hjalteyri hafði séð heiman að
frá sér hvað var að gerast og kom
nú líka til aðstoðar á trillu sinni.
Þeir Agnar og Valgarður hjálpuð-
ust svo að við að draga Kóp og
gúmbátinn í mjög versnandi veðri
vestur undir Hjalteyri en þá kom
vélbáturinn Haförninn frá Hrísey
einnig til hjálpar.
Þegar komið var að bryggju
klukkan rúmlega fjögur biðu þar
slökkviliðsmenn frá Akureyri og
slökktu þeir eldinn á u.þ.b. tveim-
ur klukkustundum. Feðgunum
Hilmari og Helga varð ekkert
meint af volkinu og sýndu stillingu
og héldu báðir óbiluðum kjarki
allan tímann. Hins vegar var þeim
orðið mjög kalt en hresstust fljótt
þegar þeir komust í húsaskjól og
fengu aðhlynningu á Hjalteyri.
Þar var norðanstormur og stór-
rigning síðdegis í dag.
Báturinn er mjög brunninn
aftantil, einkum í vélarrúmi og
stýrishúsi. Kópur er 35 lestir að
stærð.
- Sv.P.
Sjónarmió Morgunblaðsins, Dagblaósins og Vísis:
Opinber afskipti af verð-
lagsmálum dagblaóa and-
stæð stjórnarskránni
í YFIRLÝSINGU frá Morgun-
hlaðinu. sem birt er á baksíðu
blaðsins í dag. kemur fram. að
Morgunhlaðið telur með tilvísun
til 72. gr. stjórnarskrárinnar. að
hlöðunum sé frjálst að verðleggja
þjónustu sína án afskipta stjórn-
valda. þótt útgáfustjórn Morgun-
blaðsins hafi tekið þá ákvörðun
að hækka áskriftargjöld og lausa-
söluverð blaðsins aðeins um 10%
fyrst um sinn. I yfirlýsingunni,
kcmur fram að blaðið áskilur sér
allan rétt í þessum efnum.
Síðdegisblöðin hafa tekið þá
ákvörðun að hækka þjónustu sína
um 20% og líta svo á að þau séu
ekki hundin verðlagsákvæðum
vegna áðurnefndrar greinar
stjórnarskrárinnar. Tíminn.
Þjóðviljinn og Alþýðublaðið hafa
hins vegar engan fyrirvara á
samþykki sínu við ákvörðun
verðlagsyfirvalda.
I 72. grein stjórnarskrárinnar
segir: „Hver maður á rétt á að láta
í ljós hugsanir sínar á prenti; þó
verður hann að ábyrgjast þær
fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar
tálmanir fyrir prentfrelsi má
aldrei í lög leiða.“ Það er skoðun,
a.m.k. Morgunblaðsins, Dagblaðs-
ins og Vísis, að sé blöðunum eigi
heimilt að „ákveða sanngjarnt
endurgjald fvrir þjónustu sína“,
svo að það standi undir rekstri
þeirra, sé um hömlur á prentfrelsi
að ræða.
Dagblöðin fengu síðast hækkun
í aprílmánuði síðastliðnum. Þau
tilkynntu í ágústmánuði að
hækkunarþörfin hinn 1. september
væri 20% . Dagblöðin eru inni í
grundvelli vísitölu framfærslu-
kostnaðar, sem frá apríl til
september hefur hækkað um
24,15% . í vísitölunni eru einnig
erlend blöð, Time, I)et Bedste,
Anders And og Co og Hjemmet
sem á tímabilinu frá marz til
september hafa hækkað þannig að
Time hefur hækkað um 44%., Det
Bedste um 37% , Anders And & Co
um 41,8% og Hjemmet um 37,1%..
Á sama tíma hefur norska krónan,
en pappír í blöðin er keyptur frá
Noregi, hækkað um 25,88%.,
danska krónan um 21,31%, dollar
um 20,98% og sterlingspund um
28,33%. Minnstur hluti aðfanga
dagblaða kemur frá Bandaríkjun-
um.
Eins og áður sagði hefur vísitala
framfærslukostnaðar hækkað á
þessum tíma um 24,15%, vísitala
byggingarkostnaðar um 25%.,
kaupgjald blaðamanna um 25,6%,
prentara um 25%. og verzlunar-
fólks á bilinu frá 27,5 til 28,6%.
Þessar kostnaðarhækkanir telja
blaðaútgefendur að sýni, að 20%
hækkun sé sízt of há.
Þá ber að geta þess, að einu
sinni hefur það gerzt, að dagblöðin
hafa hækkað í blóra við ákvörðun
verðlagsyfirvalda. Það var á árinu
1974 eftir margra vikna verkfall
prentara. Þá var hækkunin látin
átölulaus af hálfu yfirvalda. Verð-
lagsstjóri hefur nú lýst yfir, að
vfirvöld muni hefja „viðeigandi
aðgerðir" gagnvart Vísi og Dag-
blaðinu, sem hækkað hafa þjón-
ustu sína um 20%. Aðspurður
hefur hann ekki viljað tilgreina
nánar, hverjar þær aðgerðir eru,
en talið er víst, að sá leikur, sem
yfirvöld eigi, sé sá að kæra málið
fyrir verðlagsdómi. Er málið enn í
athugun hjá verðlagsstjóra, en
þess er að vænta, að bráðlega verði
tekin ákvörðun um aðgerðir.
Hörður Einarsson, stjórnarfor-
maður Reykjaprents, sem gefur út
dagblaðið Vísi, kvað sjónarmið
síns blaðs vera hin sömu og allra
hinna blaðanna á þörfinni á því að
hækka blöðin. Þau hafi verið
sammála um það öll í ágústmánuði
síðastliðnum, að þau þyrftu að
hækka a.m.k. um 20% frá og með
1. september og ef eitthvað væri
kvað hann hækkunarþörfiná nú
orðna meiri. Þessar hækkanir, sem
nú hefðu verið ákveðnar væru
lágmarkshækkanir, sem væru
nauðsynlegar, svo að frjáls blöð
gætu haidið áfram að koma út.
„Auðvitað er hægt að halda úti
þessum flokksmálgögnum með
ríkisstyrkjum,“ sagði Hörður, „en
við, sem þurfum að gefa út blöðin
með tekjum frá okkar viðskipta-
vinum, kaupendum og auglýsend-
um, sjáum ekki fram á það, að
hægt sé að gefa blöðin út. Við
lítum jafnframt svo á, að við
þurfum eriga heimild frá verðlags-
yfirvöldum til hækkunar. Það
hefur hins vegar verið venja að
senda verðlagsyfirvöldum tilkynn-
ingu um fyrirhugaðar hækkanir,
svo að þau fylgdust með verðlagi í
landinu og viðbrögð verðlagsyfir-
valda hafa yfirleitt verið, að þau
sjá ekki ástæðu til afskipta af
þessum málum. Hins vegar höfum
við ekki sent beiðnir til verðlagsyf-
irvalda og þess vegna hafa þau
heldur ekki samþykkt eða heimil-
að neinar hækkanir. Því er nú um
afbrigðilega afgreiðslu yfirvalda
að ræða. Við teljum, að blöðin
njóti samkvæmt stjórnarskránni
sérstakrar verndar, þar sem segir,
að ekki megi leiða í lög neinar
tálmanir fyrir prentfrelsi í land-
inu. Eigi hins vegar að ákveða verð
blaða þannig að þeim sé stefnt í
hreinan taprekstur, sem leiða
hlýtur til stöðvunar, þá er ekki
lengur prentfrelsi í landinu. Það er
sjónarmið okkar, að þegar
skammta á blöðum verð, sem eru
ekki niðurgreidd úr ríkissjóði og
þau verði þar af leiðandi að stöðva
útgáfu sína — þá sé vegið að
prentfrelsinu í landinu."
„Við höfum engan ríkisstyrk,“
sagði Hörður. „Hins vegar selur
Vísir eins og öll önnur blöð ríkinu
ákveðinn blaðafjölda. Þetta gildir
um öll blöðin, þar með talið
Dagblaðið. En styrki höfum við
aldrei fengið og höfum aldrei
óskað eftir þeim. Við viljum lifa án
ríkisframfæris; það yrði ekkert líf
fyrir slík blöð.“
Björn Þórhallsson, stjórnarfor-
maður Dagblaðsins, sagði að til
þess að blaðaútgefendur gætu
haldið áfram útgáfunni, þyrftu
þeir auðvitað að fá það verð, sem
undir kostnaðinum stæði og þetta
væri það verð og vissulega tæplega
það. „Það getur verið“, sagði
Björn, „að einhverjir, sem gefa út
blöð, vilji reiða sig á það, að hið
opinbera styrki þá nægilega til
þess að þeir geti komið út biaði, en
okkur finnst það ekki hægt. í
fyrsta lagi viljum við ekki vera
háðir stjórnvöldum eða hinu
opinbera og einnig finnst okkur
óeðlilegt að þeir, sem ekki kaupa
blöðin, skuli látnir borga fyrir þau,
sem yrði ef greiðslur almannafjár
yrðu látnar standa undir rekstri
blaðanna. Eðlilegast er, að verð
blaðanna nægi til að kosta útgáf-
una og þeir borgi, sem kaupa
blöðin.“
„Ef þetta gengur ekki svona og
okkur verður meinað að hafa það
verð á blöðunum, sem þarf til þess
að standa undir kostnaðinum er
ekki um annað að ræða en hömlur
á prentfrelsi. Slikt bannar 72.
grein stjórnarskrárinnar. Þá er
þess einnig að gæta, að það er
skerðing á frelsi blaða, ef kosta á
þau af því opinbera, en ekki af
lesendum þeirra. Því eru fleiri en
eitt atriði í þessu máli ákaflega
ískyggileg. Það er því ljóst, að allt
spil með vísitöluna kann ekki góðri
lukku að stýra, sérstaklega þegar
það er farið að brengla hlutlægt
mat manna á staðreyndum," sagði
Björn Þórhallsson að lokum,
Á fundi verðlagsnefndar var
hækkunin til dagblaðanna með-
höndluð með eftirfarandi hætti:
Annað mál á dagskrá fundarins
var hækkunarbeiðni dagblaðanna í
Reykjavík. „Verðlagsstjóri lagði
fram erindi, sem honum hefur
borizt frá dagblöðunum í Reykja-
vík. Hann sagði að í erindinu væri
óskað eftir heimild fyrir að mega
hækka um 20% áskriftargjöld,
lausasöluverð og auglýsingar.
Verðlagsstjóri sagðist hafa við
afgreiðslu á tveimur síðustu erind-
um dagblaðanna lagt erindin fram
fyrir nefndina án þess að gera
tillögur um afgreiðslur og það mun
hann gera einnig nú.
Nokkrar umræður urðu um
málið og komu þá fram tvær
tillögur. Formaður lagði til að
heimila blöðunum 10% hækkun á
áskriftar og lausasöluverði, en
20% á auglýsingaverð, en Þorvarð-
ur Elíasson lagði til að hækkunar-
beiðnin væri látin afskiptalaus.
Tillögumenn miðuðu báðir við að
hækkunin tæki gildi frá 15.
september 1978. Formaður bar
fyrst upp tillögu Þorvarðar, þar
sem hún gekk lengra. Tillagan var
felld, fjögur atkvæði með en fimm
atkvæði á móti. Þá bar formaður
64 SÍÐUR
alþýðu
blaöíö
i 5HIW '
)0
uoÐvtum
IfAGBUnrn
SIMfgisblMi, h,,,, vertktMyflnilé
0% HÆKKJ^
f
frjmlMi'