Morgunblaðið - 04.10.1978, Page 22

Morgunblaðið - 04.10.1978, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1978 t Móðir mín og amma okkar, SALBJÖRG KRISTÍN ARADÓTTIR, Hofavallsgötu 20, lézt í Landakotsspítala 2. október. Anna Kjartanadóttir, Hallgrímur Guömundsson, Halldóra Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín og móöir okkar, ÁGÚSTA BJARNADÓTTIR, Furugeröi 1, lézt í Borgarspitalanum þriöjudaginn 3. október. Felix Pétursson, Höróur, Bjarni og Gunnar Felixsynir. t Maðurinn minn og faöir okkar, EINAR KÁRI SIGURÐSSON, bóndi i Héholti er iátinn. Margrét Steinpórsdóttír og börn. t Móöir okkar, JÓNA SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Lækjargötu 6, Akureyri, andaöist í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. október. Jarösett veröur frá Akureyrarkirkju laugardaginn 7. október kl. 1.30. Börnin. t Innilegar þakkir öllum þeim er auösýndu samúö og vináttu vlö fráfall eiginkonu minnar, móöur okkar og tenqdamóöur, HALLDORU BJORNSDOTTUR, fró Ólafsfiröi. Halldór Bjarnason, Björn Halldórsson, Kriatín Trampe, Guömunda Halldórsdóttir, Jón Jóhannsson, Þorbjörg Halldórsdóttir, Önundur Haraldsson. t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúö viö andlát og jarðarför, JÓNS ARNFINSSONAR, garóyrkjumanns, Baldursgötu 4. Guóbjörg Kristinsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Helgi Sigvaldason, Arndís Jónsdóttír, og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför dóttur okkar og systur, GÍGJU MAGNÚSDÓTTUR, Kvígholti 10, Hafnarfirði. Auódís Karlsdóttir, Magnús Sígfússon, Sigfús Magnússon. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug viö fráfall sonar okkar, unnusta míns, fööur okkar, tendafööur og bróöur, ÚLFARS SIGURBJÖRNSSONAR. Guólaug Sæmundsdóttir, Sigurbjörn Halldórsson, Sólveig Jónsdóttir, Lilja Olfarsdóttir, Baldur Úlfarsson, Heiórún Jónsdóttir, Erla Sadowinski, Rut Sigurbjörnsdóttir. Þorgrímur Þorsteins- Minningarorð t Faöir okkar, SVEINN GUÐMUNDSSON, Hóli, Borgarfirói, eystra, lézt í sjúkrahúsinu Egilsstööum, 1. október. Systkinin. son — Fæddur 15. júní 1902. Dáinn 8. september 1978. Hinn 15. september í fögru haustveðri þegar viðkvæmustu sumarblómin eru að falla, en hin harðgerðu lauf trjánna skrýðast fyrstu haustlitunum, þá var Þor- grímur Þorsteinsson verkamaður borinn til moldar. Þorgrímur var einn af stórum systkinahóp, einn af 12 börnum foreldra sinna, fæddur að Hofsósi í Skagafirði, sterkur kvistur af stórum stofni alinn upp við kröpp kjör þeirra tíma. En íslensk þjóð er til i dag vegna þess að hið harðgerða fólk lifði af dimmar aldir og hélt stofninum við. Einn af þessum stofni var Þorgrímur, það var ekki mulið undir hann í æsku eins og sagt er, en hann var gæfumaður, sigraðist á öllum erfiðleikum, var alla tíð bjargálna og vel það, hann lifði alla ævi eftir orðunum: Sælla er að gefa en þiggja. A gleðinnar stund naut Þor- grímur sín vel, sem sannur Skag- firðingur, elskaði söng og gleð- skap, kom vel fyrir sig orði, hrifnæmur bæði í gleði og sorg. Frændi Bólu Hjálmars var hann, stórbrotinn, örgeðja, vinur vina sinna, hár og herðabreiður svo eftir honum var tekið. Hann gekk að störfum þar til hann var 75 ára, hélt andlegri reisn til hinstu stundar. Á dánar- beði bað hann fyrir kveðju til vina sinna og samferðamanna, sofnaði rótt, sáttur og samlyndur við allt og alla. Þorgrímur kvæntist hinn 3. júní 1927 mikilli ágætiskonu, Jóhönnu Halldórsdóttur, ættaðri frá Stokkseyri, og af hinni kunnu Bergsætt, og lifir hún mann sinn eftir meira en hálfrar aldar sambúð. Oft orðaði Þorgrímur að það hefði verið sín mikla hamingja að eignast Jóhönnu, sterkan og bjart- sýnan lífsförunaut, sem stóð af sér storma lífsins við hlið hans, glöð og hjálpsöm við hvert fótmál. Þau eignuðust 2 börn, son og dóttur. Soninn misstu þau aðeins 3 mánaða, en dóttirin, Hulda, óx úr grasi, í mikilli umhyggju foreldra sinna. Hulda er gift Gunnari Hermannssyni frá Aðalvík. Einnig ólu þau upp dótturdóttur sína, Jóhönnu, sem sitt eigið barn í miklu ástríki og er hún eiginkona þess sem setur þessi fáu kveðjuorð á blað með þakklæti og hlýhug til Þorgríms fyrir traust og vináttu á liðnum árum. Þá er lífsþrótturinn er tekinn að þverra, er gott að ganga til hinstu hvíldar á gamals aldri eftir marga erfiða ævidaga, eftir langt og trúlega unnið starf í þágu þjóðfé- lagsins. Megi heimkoman handan við móðuna miklu verða björt og fögur. Guð blessi Þorgrím Þorsteins- son. Friðrik Björgvinsson. Guðrún Haraldsdóttir frá Nýlendu - Minning F'ædd 12. júlí 1899. Dáin 24. september 1978. I dag verður til moldar borin frá Fossvogskapellu, öldruð frænka mín og vinkona, er síðustu æviár sín dvaldi á Hrafnistu, í nálægð vina og frænda, en fjarri, æsku- stöðvum sínum. Guðrún var fædd að Höfðakoti í Eyrarsveit 12. júlí 1899, en eins árs að aldri flutti hún með foreldrum sínum í Fróðárhrepp, fyrst að Efri-Hrísum, en árið 1914, að Nýlendu, sem varð hennar heimili næstu 24 árin. Foreldrar hennar voru Haraldur Sigurðsson, útvegsbóndi að Höfða, Pálssonar og Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir, frá Osi bónda, Guðmundssonar, og eignuðust þau þrjú börn sem upp komust, Jónu f. 1891, Bergsvein f. 1895 og Guðrún 1899. Af fyrra hjónabandi átti Jóhanna einnig þrjú börn, með t Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, SIGRÍÐUR BOGADÓTTIR, Fossheiöi 16, Selfossi, andaöist aö morgni 24. sept. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Þökkum innilega fyrir auösýnda samúö og vinarhug. Karl R. Guðmundsson, Bogi Karlsson, Kristín A. Guðmundsdóttir, Erlín K. Karlsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson, Kolbrún K. Karlsdóttír, og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaðarför, GUÐRÚNAR H. SIGTRYGGSDÓTTUR, Björk, Grímsnesi. Læknum og starfsfólki Sjúkrahúss Selfoss, þökkum viö fyrir sérstaklega góða umönnun viö hina látnu. Synir, tengdadætur og barnabörn. t Þökkum innilega samúö og vinarhug vegna andláts og útfarar, BJÖRNS JÓNSSONAR, fyrrum bónda, að Hofi, Álftafirði. Starfsliöi Elliheimilisins Höfn, Hornafiröi, læknum og hjúkrunarfólki D-4 Landspítalanum færum viö hjartans þakkir fyrir hjálp og frábæra hjúkrun. Börn, tengadabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför, GUNNFRÍÐAR SIGURDARDÓTTUR, fri Fossi, Snorrabraut 34, Reykjavík. Sérstaklega þökkum viö starfsliöi og læknum á deild 4-C Landspítalanum fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. Sigríður Ásgeirsdóttir, da og aðrir vandamenn. etur Jóhannesi bróður Haraldar, Guð- mund Breiðfjörð, Sigurð og Jó- hönnu Breiðfjörð. Á gamlárskvöld árið 1938, giftist Guðrún þeim mæta manni, Einari Baidvin Ásmundssyni, og settist að í Strönd í Ólafsvík. Ekki varð þeim barna auðið, en höfðu drengi í fóstri um nokkurt skeið, en hjónaband þeirra var farsælt alla tíð, sem þau áttu saman, en Baldvin dó árið 1953. Snemma fluttist aldraður faðir Guðrúnar til hennar, og með honum systirin Jóna, og bjuggu þau hjá henni allt til þess tíma, að klukkan glumdi þeim, Haraldi árið 1955, og Jónu árið 1972 og voru kærleikar miklir milli þeirra, og frændabönd heil og ófúin. Þessi nítjándualdarbörn, börn síns tíma, fluttu okkur skilaboð um tíma, hugsjónir og iífsbaráttu nú óþekkta, nema af bókum rykföllnum, sem við geymum í hillum, en höfum ekki í huga, þótt hollt væri nútímanum. Af þeim mátti læra umburðarlyndi, trú- mennsku og skyldurækni ásamt gleðinni við að gleðja aðra, gefa af fátækt sinni, sem af ríkidæmi og veita vegmóðum hvíld. Gestrisni þeirra Jónu og Gunnu, ásamt frændrækni var við brugðið og mörg guðlaunin var þeim beðið heilum huga, af þeim er nutu og áttu ekki vissa inneign annars staðar. Fullviss er ég þess, að allar þær bænir samankomnar, hljóti að nægja til næturgistingar með eilífðarverum, og biður fjölskylda mín Guðrúnu að lokum sællar farar yfir landamærin og góðar heirrkomu. Starfsfólki hjúkrunardeildar Hrafnistu, sem hjúkraði Guörúnu af frábærri umhyggju í erfiðri legu hennar síðustu mánuði, fær- um við alúðar þakkir. Hrcinn Bergsveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.