Morgunblaðið - 04.10.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1978
31
Framkvæmdastjóri Feyenoord
kominn hingað til viðræðna við lA
ónefndir Skagamenn nógu góðir,
þá kæmust þeir í liðið, annars
ekki. Þess má geta, að hollensk lið
mega nota 2 erlenda leikmenn, en
Feyenoord hefur enga í herbúðum
sínum eins og sakir standa.
Eftir viðtal Mbl. og Stephens,
vildi Gunnar Sigurðsson, for-
maður knattspyrnuráðs í A, að það
kæmi skýrt fram, að hér væri alls
ekki verið að semja um nokkurn
hlut, þessir aðilar væru einungis
að ræða málin, enda ekkert um að
semja, meðan viðkomandi leik-
menn væru staddir í Halle. Hitt
væri svo annað mál, að Feyenoord
hlyti að hafa verulegan áhuga á
þessum mönnum, fyrst þeir hefðu
fyrir því að senda hingað mann.
• P. Stephan, stjórnarmaður hollenska stórliðsins Feye-
nord, er hér staddur á Hótel Esju í gærkvöldi ásamt
Gunnari Sigurðssyni, formanni knattspyrnuráðs ÍA og
Gylfa Þórðarsyni, stjórnarmanni KSÍ. Li«sm -
bandaríska „Grand Prix"
CARLOS Reuteman frá
Argentínu vann bandaríska
„Grand Prix“ kappakstur-
inn, sem fram fór í Watkins
Glenn um helgina. Kappinn
náði snemma góðri forystu
sem hann lét ekki af hendi
og þrátt fyrir að hann
hægði verulega á sér í
lokasprettinum, var hann
19,7 sekúndum á undan
næsta manni, sem var Alan
Jones frá Ástralíu. Mario
Andretti, sem af mörgum
var álitinn sigurstrangleg-
ur, bræddi úr Lótus bifreið
sinni og náði fyrir vikið
aðeins 20. sæti. Jody
Schekter varð í þriðja sæti
á Wolf-bifreið og tveir
fyrrum heimsmeistarar, Ja-
mes Hunt og Niki Lauda,
urðu aftar á merinni en
þeirra er vani. Hunt náði
aðeins 7. sæti og Lauda því
19.
• Mario Andretti nýbakaður
heimsmeistari í formúlu 1 kapp-
akstri, sést hér athuga súrefnis-
slönguna í ökuhjálm sínum áður
en lagt er af stað í keppnina í
Bandaríkjunum.
Enska
' # 2» knatt-
spyrnan
NOKKRIR leikir fóru fram í 3 umferð
enska deildarbikarsins í gærkvöldi
og fleiri verða leiknir í kvöld. Tvö af
efstu liðunum í 2 deild unnu
athyglisveröa sigra ó útivöllum,
Ward (2) og Maybank skoruðu fyrir
Brighton, en Stoke tryggöi sér sigur
yfir Northhampton meö tveimur
mörkum í síðari hálfleik. Lítum á
úrslitin.
Brunley — Brighton 1:3
Everton — Darlington 1:0
Luton — Crewe 2:1
Northhampton — Stoke 1:3
Peterbrought — Swindon 1:1
QPR — Swansea 2:0
Rotherham — Reading 2:2
Southhampton — Derby 1:0
Airmættir
til Halle!
— NÚ HAFA þcir allir skilað sér og við hérna í Halle erum svo
fegnir. að það hvarflaði ekki að okkur að fara að spyrja þá
hvernig á töfinni stanli — sagði Ellcrt Sehram, er við höfðum
samband við hann í Halle seint í gærkvöldi. bá var loksins ljóst
að Valsmennirnir Ingi Björn, Guðmundur og Atli höfðu náð til
hópsins í tæka tíð fyrir landsleikinn, svo og Stefán Örn
Sigurðsson. sem að kom einn síns liðs frá Danmörku.
Ellert sagði ennfremur: — varamannabekknum. Ellert tók
Ljóst var, að Ingi Björn kom sjálfur þátt í tveimUr síðustu
snemma í gær til Vestur-Berlínar
frá London, en tók þann kostinn
að bíða þar félaga sinna Atla og
Guðmundar. Þeir töfðust hins
vegar er snuðra hljóp á þráðinn
varðandi flug þeirra frá Barce-
lona. Sem betur fór rættist úr því
og Valsmennirnir skiluðu sér
allir til okkar. Stefán Örn mun
hafa tafist á landamærunum og
spurðist því lítið til hans um tíma
og þar sem landsliðsmennirnir
eru frekar sambandslitlir við
umheiminn í Halle var nokkur
uggur í mönnum." Ellert tjáði
Mbl. í gærkvöldi, að illa hefði
horft ef leikmennirnir hefðu ekki
komið í leitirnar, því að þá hefði
aðeins Árni Stefánsson verið á
æfingum liðsins, ef það versta
skildi verða ofan á og hefði hann
þá verið fyrsti og eini varamaður-
inn. Sagði Ellert í gær, að
sennilega hefði hann orðið af
einum landsleik í viðbót er ljóst
var að allir myndu mæta!
Ellert sagði að lokum, að
aðbúnaður allur væri sæmilegur,
að vísu væri mikil loftmengun,
þar sem Halle er kolanámubær,
en þeir létu það ekkert á sig fá.
Aðalatriðið væri, að nú gætu
Islendingar stillt upp fullskipuðu
liði og væru tilbúnir í slaginn.
Landsleikur A-Þýzkalands og
íslands í Evrópukeppninni hefst í
dag klukkan 17 að íslenzkum
tíma. — gg.
ÁSAMT með hollenska unglingalandsliðinu, sem kom hingað til lands ígær, kom einn af stjórnarmönnum
hollenska stórliðsins Feyenoord, P. Stephan að nafni. Hann kom hingað gagngert til þess að ræða við
forráðamenn ÍA og knattspyrnusambandsins um þá Pétur Pétursson og Karl Þórðarson, og hugsanlega
fleiri. Mbl. leit við á Hótel Esju í gærkvöldi og ræddi við Stephan.
— Ég horfi á leik ÍA gegn Köln
ytra og síðan á leik Islands og
Hollands í Nijmegen fyrir stuttu.
Ég fylgdist með leikmönnum íA og
leist vel á, ekki bara leikmennina,
heldur einnig hve öflug íslensk
knattspyrna er orðin, sagði
Stephen í viðtalinu en hann vildi
aldrei nefna á pafn þá leikmenn
sem hann hafði í huga. Fyrst
talaði hann um einn leikmann og
þegar blm. spurði hvort hann hefði
ekki hug á fleiri, sagði hann: — Já,
e.t.v. 2 eða 3, hver veit, því að í liði
ÍA sá ég 3 leikmenn sem mundu
sóma sér vel í hollenskri knatt-
spyrnu. Blm. innti Stephen eftir
því hvort hann reiknaði með því að
ónefndir Skagamenn myndu ganga
inn í aðallið Feyenoord, ef úr yrði
að félagið fengi einn eða fleiri til
liðs við sig. Hollendingurinn
gerðist mjög loðinn í svörum, en
sagði þó að Feyenoord væri
voldugt félag og innan vébanda
þess væru þrjú lið, aðalliðið,
varaliðið,. sem jafnframt væri
unglingalið og áhugamannaliðið.
Mikið væri um það að finnsk og
norsk lið sendu unga leikmenn til
Feyenoord á veturna til æfinga og
ef sýnt væri að þar væru efni á
ferðinni, væri leitað eftir
samningum. Það sem skilja mátti
af orðum Stephens var, að væru
Reuteman vann
Gefa út minnispening
í TILEFNI 70 ára afmælis knatt-
spyrnufélagsins Fram hefur aðal-
stjórn félagsins látið gera minnis-
pening. Peningurinn er úr bronsi og
fjöldi eintaka er 500 og eru þau
númeruð. ísspor HF sá um hönnun
peningsins og sláttu.
Minnispeningurinn verður til sölu
hjá eftirtöldum aðilum: Lúllabúð,
Carli Bergmann úrsmið, Skóla-
vörðustíg 5, Sportvöruverslun Ing-
ólfs Óskarssonar, Klapparstíg 44, og
Versluninni Straumnes, Vestur-
bergi 76. Einnig má fá peninginn
hjá formönnum hinna einstöki
deilda innan Fram, svo og stjórnar-
Spennandi keppni
á Hausthátið TBR
FYRIR stuttu lauk Ilausthátíð
TBR og urðu úrslit þar
eftirfarandii
IINOKKAR - TÁTIIR
- TVÍLIÐALEIKUR.
h.in'uir Svoinsson TBR "tí íris Smáradótt-
ir í A sitrruóu l>nrdísi Kliiru Briddo TBR
Innólf Iloittasun lA. 15.12.12.15 ou 15.1.
SVEINAR - MEYJAR
- TVÍLIÐALEIKUR,
Elín Holena Kjarnadóttir TBR og I>ór
hallur InKason ÍA sÍKruöu Gunnar Bjöms-
son <ik Drífu Daniolsdóttur TBR 15«8 ojc
15,2.
DRENGIR - TELPIIR
- TVÍLIÐALEIKURi
Bryndís Hilmarsdóttir TBR ok Arna
Stoinson KR sÍKruóu Gunnar Tómasson
TBR ok Hávarö Bornharðsson TBV 18,16
ok Lr>,2.
KONl’R - KARLAR
- TVÍLIÐALEIKUR,
Jónas l>. Kirisson KR ok Hannes
Rikharósson TBR sÍKruóu Guómund
\dolfsson TBR ojc ólaf Gústafsstin TBR.
17,1 Iojc 15,11.
IINOKKAR - EINLIÐALEIKUR,
Árni I>ór HalIj;rimsson íA sijfraöi Harald
Sijíurósstin THR. 11,1. 1,11 ojí 11,6.
TÁTUR - EINLIÐALEIKUR,
Þórdís Erlinjísdóttir THR sijíraói Katý
Jónsdóttur Í A. 11,1 oj? 11,0.
MEYJAR - EINLIDALEIKUR.
l?órunn Óskarsdóttir KR sijjraöi lnj;u
Kjartansdóttur THR. 11,8. 11,8.
SVEINAR - EINLIÐALEIKUR,
l>orstoinn Páll Ila'njísson TBR sigraöi
Indriöa Björnsson TBR. 11,5 ok 11,2.
TELPUR - EINLIDALEIKUR.
Sif Frióleifsdóttir KR sÍKraói Örnu
Stoinson KR. 11,7 «ik 12,0.
DRENGIR - EINLIÐALEIKUR.
Skarphóóinn Garöarsson TBR sÍKraói
UorKoir Jóhannsson TBR. 2,11.11,6 ok 11,1.
A-FLOKKUR KARLA
- EtNLIÐALEIKUR.
óskar BraKason KR sÍKraói BjörKvin
Guöhjörnsson KR. 7,15.15.8 ok 15,2.
MEISTARAFLOKKUR KVENNA
- EINLIÐALEIKUR,
Kristín MaKnúsdóttir TBR sÍKraói
Hönnu Láru Pálsdóttur TBR. 11,5 ok 11,1.
ÖÐLINGAFLOKKUR KARLA
- EINLIÐALEIKUR,
(iaröar Alfonsson TBR sÍKraói HanK
borsteinsson TBR. 17.16 ok 15,12.
MEISTARAFLOKKUR KARLA
- EINLIÐALEIKUR.
SíkÍús .Ekít Árnason THR sÍKraói
Jóhann Kjartansson TBR. 15,10 ok 15,10.
Tap Vals
VALSMENN léku um hélgina
gegn 2. deildar liði Ibiza eins og
frá var skýrt í Mbl. fyrir
skömmu. Lið Ibiza er bærilegt
lið og lét sig ekki muna um það
að leggja Valsmenn að velli,
2—1. Það var Sævar Jónsson,
miðvörðurinn sterki, sem skor-
aði eina mark Vals.
Vetrarstarf Ægis
NÚ ER að hefjast vetrarstarf
Sundfélagsins Ægis. Æfingar
yngri félaga eru í Sundhöll
Reykjavíkur á þriðjudögum og
föstudögum kl. 18.50—20.45, en á
fimmtudögum kl. 18.50—20.00.
Þeir sem hefja vilja æfingar
hjá félaginu geta mætt á ofan:
greindum tímum og látið innrita
sig. Þjálfarar á þessum æfingum
verða Guðmundur Harðarson,
landsliðsþjálfari í sundi, Helga
Gunnarsdóttir, íþróttakennari,
fyrrverandi landsliðskona í
sundi, og Kristinn Kolbeinsson,
en hann þjálfaði yngri flokka
félagsins í fyrra með góðum
árangri.
Afrekshópur félagsins mun
æfa í sundlauginni í Laugardal,
daglegá kl. 17.30.
Sundknattleiksmenn Ægis
æfa í Sundhöllinni á mánudög-
um og fimmtudögum kl. 20.45.
Stjórn Ægis hvetur alla þá er
áhuga hafa á því að æfa sund að
mæta á æfingar hjá félaginu og
láta innrita sig. Félagið hefur
átt mikilli velgengni að fagna
undanfarin ár og hyggst halda
því striki er það hefur haldið.