Morgunblaðið - 06.10.1978, Side 1

Morgunblaðið - 06.10.1978, Side 1
32 SIÐUR 227. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kjarnorkukafbáturinn USS Trepang við sjósetningu 1970. s,mamyn<i ap Ætluðu að ræna k j arnorkukafbát St. Louis, Missouri, 5. október. AP. BANDARISKA alríkislögreglan FBI hefur handtekið tvo menn í St. Louis og einn í New York-ríki fyrir sams«ri um að stela bandaríska kjarnorkukafbátnum Trepang sem hefur bækistöð í New London, Connecticut. Þeir sem voru handteknir voru Edward J. Mendenhall, starfsmað- ur tryggingafyrirtækis í St. Louis, Kurtis J. Schmidt, teppahreinsari í sömu borg, og James W. Cosgrove frá New York-ríki. Roy B. Klager, fulltrúi FBI í St. Louis, segir að málið hafi komið fram í dagsljósið í síðasta mánuði Edward J. Mendenhall, 24 ára gamall. sést hér er var verið að flytja hann til yfirheyrslu í St. Louis í gær eftir að hann hafði ásamt tveimur öðrum verið ákærð- ur fyrir samsæri um að stela USS Trepang. þegar Mendenhall og Cosgrove reyndu að fá til liðs við sig mann nokkurn sem var á mála hjá alríkislögreglunni og fá hann til að vera með í áhöfninni. Áhöfnin átti að vera tólf manna og hún átti að sigla Trepang út á Atlantshaf til fundar við óþekktan kaupanda. Mennirnir ætluðu að myrða 100 manna áhöfn kafbátsins og sprengja síðan upp birgðaskip Trepang þar sem það lægi við hliðina á kafbátnum til að dreifa athyglinni og hindra eltingaleik annarra herskipa í flotastöðinni í New London. Gert var ráð fyrir því að ef nauðsynlegt reyndist að auðvelda flótta kafbátsins skyldi skjóta kjarnorkueldflaug á flotastöðina eða stórborg á austurströndinni að sögn Klagers. Talsmaður bandaríska sjóhers- ins, David Cooney aðmírall, segir að slík áætlun hefði aldrei getað heppnazt. „Tólf menn af götunni gætu ekki siglt kafbáti eins og þessum," sagði hann. Hann sagði að til að sigla Trepang þyrfti 100 manna sérþjálfaða áhöfn. Trepang er af Sturgeon-gerð og búin gagnkafbátavopnum sem kall- ast Subroc og eru með kjarnaodd- um, Stjórn Fálldins sagði af sér: „Við getum ekki sam- ið af okkur sálina” Stokkhólmi, 5. okt. AP RÍKISSTJÓRN Thorbjörns Falld ins, fyrsta borgaraflokka stjórn í Svíþjóð í nálega hálfa öld. sagði af sér í kvöld eftir langvarandi ágreining innan þeirra fiokka sem áttu aðild að stjórninni, einkum með tilliti til kjarnorku- mála svo sem iðuiega hefur komið fram. Fálldin afhenti forseta sænska þingsins afsagnarbeiðni sína síð- degis og skýrði síðan ákvörðun sína á blaðamannafundi sem var haldinn skömmu síðar í þinghús- inu. Deildar meiningar borgara- flokkanna þriggja um afstöðuna til kjarnorkumála og framtíðar- þróunar kjarnorku í Svíþjóð hefur sett mikinn svip á þessa ríkis- stjórn og hefur það verið henni fjötur um fót að flestra dómi hversu djúpstæður sá ágreiningur hefur verið. Flokkur Fálldins hefur verið hvað einarðastur í afstöðu sinni til þess að ekki verði byggð fleiri kjarnorkuver í Svíþjóð. Sænsk blöð veðjuðu í kvöld á að næsti forsætisráðherra Svíþjóðar yrði Ola Ullsten formaður Frjáls- lynda flokksins. Á blaðamanna- Thorbjörn Falldin forsætisráð- herra Svíþjóðar sést hér afhenda forseta sænska þingsins. Henry Allard. lausnarbeiðni stjórnar- innar í gær. Símamynd AP fundinum eftir afsögn stjórnar- innar gagnrýndi Fálldin þá Boh- man og Ullsten fyrir að vilja ekki fallast á þjóðaratkvæði um kjarn- orkumálin og taldi að þeir tækju á sig mikla ábyrgð með því að samþykkja ekki þá lýðræðislegu leið til að kanna hug almennings. Fálldin kvaðst hafa verið reiðu- búinn til málamiðlunar og að semja ef unnt reyndist „en ég tel ekki rétt að semja af sér sálina" sagði hann á blaðamannafundin- um. Annað glasabarn Nýju Delhi. 5. okt. Reuter. ÞRIR indverskir læknar tilkynntu í Kalkútta í kvöld að annað tilrauna- glasabarnið í heiminum hefði fæðzt þar í borg á þriðjudag. Svipaðri tækni hefði verið beitt og við hið fyrsta. Foreldrarnir höfðu verið gift í 19 ár án þess að eignast barn. Þeir hafa óskað eftir að nöfn þeirra verði ekki birt. Barnið var stúlka sem vó um 3,35 kg. Mæðgunum heilsast báðum vel. Árás gerð á vestur- Beirut í gærkvöldi Beirut 5. okt. Reuter. í KVÖLD varð gerð eldflaugaárás á vesturhluta Beirut þar scm Múham- eðstrúarmcnn búa. í fyrstu fréttum var sagt að ekki væri vitað hverjir stæðu að atlögunni. brír fallbyssu- bátar komu skyndilega inn á höfnina og hófu skothríðina. Sveitir Sýrlendinga svöruðu skothríðinni. Seint í kvöld sagði að Israelar hefðu gert árás á skæruliðastiið við striindina. Heiftúðugir bardagar héldu áfram allan daginn í austurhlutanum milli kristinna líbanskra hægrimanna og hermanna Sýrlendinga og er vitað að mannfall var mikið, líklega um tvö hundruð manns. Forsvarsmenn kristinna manna höfðu í hótunum að senda eldflaugar frá austurhluta Beirut er komast myndu inn fyrir landamæri Sýrlands, en í fréttum í kvöld kemur ekkert fram um að það hafi verið reynt. Málgagn Baathflokksins í Sýr- landi, Al-Baath, sagði í dag að friður kæmist því aðeins á í Líbanon að þurrkaður yrði út í eitt skipti fyrir öll liðsafli kristinna manna. Fær Khomeiny að hverfa heim? Teheran 5. október AP. RÍKISSTJÓRN írans hefur gefið í skyn, að ekki sé óhugsandi að trú- arleiðtoginn Ayatullah Khomeiny, fái að snúa heim. í yfirlýsingu sem utanríkisráðuneytið gaf út í morgun sagði að stjórnin hefði enga skoðun á því hvar Khomeiny ætti að búa og túlka sérfræðingar þetta sem upphaf að samningum um að trúarleiðtog- inn hverfi heim. Hann fór í útlegð vegna fjandsemi við keisarann. Khomeiny var í gær vísað úr landi í írak hvar hann hefur átt hæli. Hann freistaði þess að komast inn í Kuwait en var synjað og fékk leyfi til að vera í írak til bráðabirgða. Enn kemur valSœnsku akademíunnar á ómrt Isaac Bashevis Singer, bandariskur Gyðingur af pólskum ættum fékk bókmenntaverðlaun Nóbels Miami. Stokkhólmi. 5. október. Reuter. AP. „ISAAC Bashevis Singer hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár vegna meistaralegrar frá- sagnarsnilldar sem á sér rætur í pólskri og gyðinglegri hefð,“ segir meðal annars í forsendum sænsku akademíunnar fyrir veit- ingu bókmenntaverðlaunanna í ár. Val Nóbelsnefndarinnar kom mjög á óvart, en furðu lítið hafði þó frétzt út um hvað hún hygðist fyrir í ár. Lars Gyllenstern, formaður sænsku akademíunnar, var spurður að því hvers vegna akademían léki ár cftir ár þann leik að veita verðlaunin höfund- um sem mjiig lítt væru þekktir. Hann sagði að það væri eitt af hlutverkum akademfunnar og með því að lyfta Isaac Singer þannig upp á yfirborðið hefði akademían uppfyllt markmið sín. Isaac Bashevis Singer skrifar á jiddish og hafa bækur hans verið þýddar á mörg tungumál. Hann er annar rithöfundurinn Gyðinga- ættar á þremur árum sem hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. AP-fréttastofan náði tali af Singer á Miami síðdegis, nokkru eftir að tilkynnt hafði verið um verðlaunin. Þar kvaðst Singer vera að halda upp á hátíð Gyðinga vegna áramótanna skv. þeirra tímatali. Singer sagði við blaða- mann að hann tryði varla eigin eyrum. „Ég er fjarska þakklátur, en ég er einnig leiður yfir því að höfundar mér meiri skuli ekki fá þessi verðlaun. Ég vona að í framtíðinni fái allir menn viður- kenningu sem hana verðskulda. Singer sagðist ekki hafa trú á því að neinn höfundur skrifaði til að vinna til verðlauna: „Tolstoj kom til greina og síðan fékk verðlaunin annar höfundur. Svo að enda þótt gleðilegt sé að fá verðlaun, vil ég ekki staðhæfa að þau skeri í eitt skipti fyrir öll úr því að einn höfundur standi öðrum framar. Fjarri því...“ Isaac Bashevis Singer er sjötíu og fjögurra ára að aldri. Hann fæddist í Radzymin í Póllandi 14. júlí 1904 en hélt til Bandaríkjanna 1935 og settist þar að. Hann hefur ritað skáldsögur, endurminninga- bækur og barnabækur. Fyrsta bók hans hér Satan in Goray kom út áður en hann flutti frá Póllandi. Hann hefur verið afkastamikill höfundur og síðasta bók hans „Shosha“ kom út á þessu ári. Sjá „Um nýjan Nóbelsverðlaunahafa“ og ummæli Halldórs Laxness bls. 16.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.