Morgunblaðið - 06.10.1978, Page 17

Morgunblaðið - 06.10.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978 17 Magnús II. Kristjánsson ásamt Kristjáni syni sínum við eitt verkanna á sýningunni á Mokka. Fór tilSpánar að skoða söfn en settist þar að... Majínús H. Kristjánsson list- málari heldur um þessar mundir sýningu á verkum sínum á Mokka. Magnús er fæddur í Reykjavík, sonur Kristjáns Magnússonar listmálara og Klöru Helgadóttur, og hóf hann nám í Myndlista- og handíöa- skólanum árið 1952. í þrjú ár eða frá árinu 1953—56 stundaði Magnús nám í Bandaríkjunum. Ennfremur var honum boðið til framhaldsnáms í eitt ár á vegum skólans og var hann um leið kennari við skólann. Magnús fór til Spánar árið 1958 og settist að i Tossa de Mar á Costa Brava. Þar festi Magnús kaup á landi og reisti hótel, Hótel Hekla, og starfrækir það nú. Magnús er giftur spænskri konu og eiga þau 3 börn, 19 ára dóttur og tvo syni 15 og 7 ára. Sonur Magnúsar, Kristján, sem er 15 ára er með honum hér á landi nú. A sýningu Magnúsar eru 10 olíumálverk og eitt svart-hvítt, teiknað með krít en málverkin eru öll til sölu. Áður en Magnús kom hingað með sýninguna var honum boðið að halda sýningu á Spáni. Magnús sagði að mikið af verkum hans hefði selst á þessari sýningu og á háu verði miðað við það að þetta var fyrsta einkasýning hans en hann hefur áður tekið þátt í samsýningum í Bandaríkjunum. „Þegar ég fór til Spánar fór ég til þess að skoða mig um og Magnús H. Kristjánsson sýnir verk sín á Mokka heimsækja listasöfn. Þá voru foreldrar mínir látnir og ég kunni svo vel við mig í Tossa að ég ákvað að setjast þar að. Hótelið átti í upphafi að hjálpa mér til þess að geta málað en það fór þannig að ég varð að mála til þess að koma upp hótelinu. Þetta var nú kannski of mikið sem ég færðist í fang þar sem kostnaðurinn var mikill en ég hafði litla peninga í höndunum.“ Magnús sagði að stíllinn í myndum sínum væri algjörlega hans eign. „Ég hef haft það mikið að gera á Spáni að ég hef einfald- lega ekki haft tíma til að skoða söfn þannig að enginn utan- aðkomandi áhrif hafa breytt stílnum. Þegar ég hélt sýninguna á Spáni fékk ég þann dóm að myndirnar væru ekki aðeins góðar heldur væri stíll- inn einstakur." Bærinn sem Magnús býr í ásamt fjölskyldu sinni er vin- sæll ferðamannastaður. í Tossa er nýr salur sem bæjarstjórn staðarins hefur látið byggja og er listamönnum víðs vegar að boðið að sýna verk sín þar. Magnúsi hefur einmitt verið boðið að sýna í þessum sal á næsta ári. „Ég hef líka hugsað mér að koma með stærri sýningu hingað á næsta ári. Ég verð því að vinna mikið þegar ég kem heim og ég ætla algjörlega að snúa mér að málaralistinni. Börnin mín tvö eldri eru orðin það stór og hafa áhuga á hótelrekstri svo að þau geta tekið við rekstrinum, og ég hef látið gera teikiiingar og ætla að stækka hótelið sem tekur nú 30—35 manns. En í Tossa er bannað að byggj'a hús sem eru hærri en þrjár hæðir. Tossa er þannig dæmigerður spánskur bær meðan hinir bæirnir á ströndinni eru komnir með um 10 hæða há hótel. Tossa virðist ekki breytast af ferðamanna- straumnum heldur breytir hann fólkinu. Á Hótel Heklu koma t.d. sumir ár eftir ár og þangað hefur komið fólk í 8—9 ár á hverju sumri," sagði Magnús. Kristján sonur Magnúsar undi sér vel á Islandi. „Ég hef ætlað að koma hingað með hann í ein þrjú ár, en það hefur alltaf breyst á síðustu stundu.svo að hann trúir því naumast að hann sé kominn hingað. Þetta er eins og draum- ur fyrir hann,“ sagði Magnús að lokum. Hilmar Helgason formaður S.Á.Á.: Sala á öl- og vín- gerðarefnum brýt- ur áfengislöggjöfma ÞAÐ ER engin Ieið að stöðva heimabrugg á meðan hér eru ra'ktaðar kartöflur og sykur er íluttur inn." sagði Hilmar Ilelga- son formaður S.Á.A. í viðtali við Mbl. „Eina leiðin fyrir ríkið að stjórna neyzlu landsmanna á heimabruggi er með verðlaginu. Það er mín persónulega skoðun að ríkið hafi verið að horfa á menn brjóta landslög með því að leyfa sölu á öl- og víngerðarefni. Eg sem sagt er á þeirri skoðun að sú sala brjóti í bága viö áfengislöggjöfina. Menn eru ekki að brugga sér til gamans. Ég hef aldrei hitt neinn sem þykir gott bragðið af áfengi. Fólk er fyrst og fremst að brugga til þess að fá efnið alkóhól og til þess að njóta þess efnis. Fólk getur líka sparað sér tugi eða hundruð þúsunda með því að framleiða sjálft vín og öl,“ sagði Hilmar Helgason. o: INNLEftT Skil óánægjuna, en mörkvarð að setja — Mér finnst óána'gja banka- manna með að eiga ekki fulltrúa í vísitölunefndinni skiljanleg. en einhver takmörk varð að setja. sagði Ólafur Jóhannesson for- sa'tisráðherra er hann var spurð- ur hvort hann vildi svara gagn- rýni bankamanna. — Það var litið svo á að hagsmunir bankamanna varðandi vísitölumálin féllu nokkuð saman við hagsmuni BSRB og BHM og því var ekki leitað til þeirra með tilnefningu í nefndina. Ef hefði átt að taka með fulltrúa frá þeim hefði verið erfitt að neita t.d. fulltrúa frá Stéttarsambandi bænda o.fl. hópum og því varð að setja einhver mörk. r Olafur Jóhannesson: Ok á fjögur hross sem öll drápust FYRIR nokkru gerðist sá atburð- ur á þjóðveginum við Iláls í Kjós. að bifreið ók á fjögur hross með þeim afleiðingum að tvö þeirra drápust strax en hinum tveimur varð að lóga. Af þessum fjórum hrossum voru þrjár merar. allar fylfullar. Atburður þessi gerðist seint um kvöld. Broncobifreið var ekið í áttina til Reykjavíkur. Fyrir neðan Háls mætti hún annarri bifreið og vegna þess að ljós hennar blinduðu ökumanninn sá hann ekki hrossin fjögur á vegin- um. Ók bifreiðin á þau hvert á eftir öðru áður en ökumaðurinn gat stöðvað hana. Var aðkoman á vettvangi vægast sagt ömurleg. Tvö hross lágu þegar dauð á veginum en önnur tvö voru í andarslitrunum og blóð og innyfli voru um allt. Menn dreif að og var byssa sótt hið snarasta og hrossin tvö aflífuð. Var síðan sótt skurð- grafa og hrossin dysjuð utan vegar. Fólkið á Hálsi átti hrossin og voru þau í girðingu, sem tilheyrði bænum. Eitthvert fólk mun fyrr Fremri- Emstruá brúuð Ferðafélag íslands hefur látið gera göngubrú yfir Fremri- Émstruá hjá Þórsmörk og hefur þar með opnast ný gönguleið um mjög fagurt landsvæði. Var nýja göngubrúin vígð sl. laugardag. Það var Vegagerðin sem annað- ist brúargerðina en Landhelgis- gæzlan sá um flutning á henni upp í óbyggöir. Ferðafélagið kostar hins vegar algjörlega brúarsmíð- ina og uppsetningu hennar, og að sögn Þórunnar Lárusdóttur, fram- kvæmdastjóra Ferðafélagsins, er kostnaðurinn við brúna á bilinu 2.5—3 milljónir króna. Þórunn sagði að með tilkomu þessarar brúar opnuðust nýjar gönguleiðir fvrir ferðalanga um þetta landsvæði, því að áin væri ófær og hefði þá ýmist þurft að krækja fyrir hana upp við jökul eöa freista þess að vaða hana við illan leik. Þá lagði Þórunn áherzlu á, að nú væri orðið mögulegt að ganga milli Þórsmerkur og Land- mannalauga. Búið er að reisa tvo litla ferðaskála á þessari leið og í ráði að byggja þann þriðja, fyrir ferðafólk sem kemur til vikudvalar i Þórsmörk er þess vegna tilvalið orðið að verja 2—3 dögum til að ganga milli Þórsmerkur og Land- mannalauga með því að gista í skálunum. Þá kvað hún í ráði að stika þessa leið á næstunni, því að þarna væri einatt villugjarnt enda hætt við þoku á þessum slóðum. um daginn hafa farið um girðing- una á leið niður í fjöru og láðst að loka hliðinu. Sluppu hestarnir út úr girðingunni og var það skýring- in á ferð þeirra um þjóðveginn. Er vissulega ástæða til að brýna fyrir fólki að loka hliðum þegar það er á ferð um annarra manna lönd. Eins og nærri má geta varð þarna mikið tjón, því að hrossin voru verðmæt og bifreiðin stór- skemmdist við áreksturinn. Brunabótamat Sambandshúss- ins 520 millj. ÞAÐ hefur komið til um- ræðu nýverið, að mennta- málaráðuneytið seldi Víðis- húsið og keypti í staðinn skrifstofubyggingu Sam- bands íslenzkra samvinnu- félaga, samkvæmt því sem Erlendur Einarsson for- stjóri hefur skýrt frá í blöðum. Morgunblaðið fékk þær upplýsingar hjá Húsatrygg- ingum Reykjavíkur, að brunabótamat hússins sé 519 milljónir 916 þúsund krónur. Þetta mat var gert um síðustu áramót og hefur það hækkað talsvert síðan, enda miðað við byggingarvísitölu. Samkvæmt upplýsingum fasteignasala, sem Mbl. ræddi við, er söluverð skrif- stofuhúsnæðis eins og Sam- bandshússins venjulega ná- lægt brunabótamati.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.