Morgunblaðið - 06.10.1978, Side 28

Morgunblaðið - 06.10.1978, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978 RArr/NU vt 11 S-J. Svona graut varö hann pabbi þinn að borða á hverjum degi í 25 ár — (íleymdu því ekki. Treystið okkur hér á spítalan- um. Við losum okkur við hann á skömmum tíma. hvernig sem við svo annars förum að því, frú mín. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Réttu mér einhverja tusku ... JOL MAIGRETS Ein af árlegu verðlaunum, sem alþjóðasamband bridgefréttarit- ara úthlutar, eru Romex-verðlaun- in fyrir besta spil ársins. í lok Bridge-Ólympíuleikanna í New Orleans í sumar voru verðlaun þessi veitt tveim ungum Kanada- mönnum, Eric Kokish og Peter Nagy, fyrir spil frá sumarmóti N-Ameríku 1977. Og svo skemmti- lega vildi til, að við sama tilefni fengu þeir félagar silfurverðlaunin fyrir tvímenningshluta Ólympíu- mótsins. Verðlaunasagnirnar, norður gaf, allir á hættu. Vestur Austur Pter Nagy Eric Kokish S. Á3 S. KS1Ö2 H. Á9 H. 5432 T. 76 T. 8 L. ÁK 1097.32 L. D864 Suóur 1 H \otur I* \u>.lur 21.(1) 1* 1 II (3) 11.(2) 1 O <r>) 1 s (.-,) 1’ NorAur U V I) < 1) r> l. (7) V V Sagnirnar voru ekki flóknar. (1) Allt annað væri afskræming — eðlileg sögn. (2) Hindrun, lýsti skiptingarhendi. (3) Langaði í slemmu, stöðvar ekki tígulinn en á hjartaásinn. (4) Sennilega villa, norður átti útspilið hvort eð var. (5) Ekki sakaði að sýna styrk í spaðanum og lofaði óbeint fyrir- stöðu í tígli. Þar sem vitað var, að vestur átti hana ekki. (6) Síðasta slemmutilraunin fvrir neðan gameið — vantaði aðeins smávegis til viðbótar. (7) Órugg tígulfyrirstaða, auka- styrkur í spaða og háspil í tromplitnum. Gastu búist við meiru? Athugasemdir þessar eru eftir Kokish og þótti honum sérstök ástæða til að benda á notkun fjögurra granda sagnarinnar, sem var ekki ásaspurning heldur lýsti alhliða áhuga á slemmunni. Skemmtilega eðlilegar og léttar sagnir. 2 l>au höfðu farið í ieikhúsið kvöldið áður. Síðan höfðu þau hugsað sér að fá sér bita á veitingahúsi eins og allir aðrir. en hvarvetna var troðfullt vegna jóiahátíðarinnar og þau urðu að fara heim án þess að hafa getað látið þetta eftir sér. I>au höfðu gengið arm i arm eins og alltaf þegar þau fóru út saman. Það var að nálgast miðna'tti þegar heim kom og það var með herkjumunum að þau höfðu rænu á að skiptast á jólagjiifunum. Pípa handa honum. Eins og vcnjan var. Hún fékk raf- magnskaffikönnu af nýrri og endurbattri gerð sem hana hafði lengi langað í og til að fylgja hefðinni cinnig sex útsaumaða vasaklúta. Iíann tróð rólega í nýju pi'puna sína. í húsinu hinum megin við götuna höfðu sumir rúilugardínur, aðrir ekki. Ekki var að sjá að margir væru komnir á stjá enn þá. Hér og hvar Ijós í glugga. Sjálfsagt voru það börn sem höfðu rifið sig á fætur til að skoða jólagjafirnar sínar og nýju leikföngin. I>au höfðu hugsað sér að eiga friðsælan dag. bara þau tvö. Maigret hlakkaði til að ráfa um á sioppnum sfnum og hann var líka staðráðinn í að láta það ógert að raka sig og svo myndi hann sitja frammi í cldhúsi hjá konunni sinni meðan hún útbyggi hádegis- verðinn. Ilann var ekki beinlinis niðurdreginn. En draumurinn — sem hann gat engan veginn rifjað upp — hafði skilið eftir sig einhverja óra'ða tilfinn- ingu. Kannski var það ekki hara draumurinn. kannski voru það jólin sem gáfu honum þessa tilfinningu. Þennan dag varð maður að vera sérdeilis orðvar, vega hvert orð og meta því að á jólunum var frú Hvað kostar áfengisneyzlan? í tilefni af því sem blöð hafa sagt frá athugun Guðmundar Magnússonar prófessors á tekjum ríkissjóðs af tóbakssölu annars vegar og tilkostnaðar og tjóni ríkissjóðs og þjóðfélags vegna afleiðinga reykinga hins vegar óskaði Kristín M.J. Björnsson þess að ámóta úttekt væri gerð aö því er áfengi snertir. Víst er ástæða til að taka undir þau orð og sannarlega væri gagnlegt að vita þar niðurstöður. Dæmi eru þess að fundir hafi ályktað að það væri verðugt verkefni fyrir félagsvísindadeild háskólans að reikna það dæmi, jafnvel þó ekki væri nema fjár- hagsstöðu ríkissjóðsins þegar at- hugaðar væru báðar hliðar: tekjur af áfengissölu og kostnaður vegna afleiðinga drykkjunnar. Háskólinn hefur svarað því til að hann hafi engin efni á að ráðast í slíkt verkefni. Til þess vanti peninga. Það er hægt að áætla ýmsa liði í þessu mikla dæmi. Þegar þess er gætt að um það bil helmingur þeirra geðsjúklinga sem i sjúkra- hús koma hér á landi eru bilaðir vegna drykkjuskapar er hægt að reikna kostnað við legudaga og þá virðist raunar liggja ljóst fyrir að við hefðum getað sparað okkur geðdeildina nýju við Landspítal- ann ef áfengi væri ekki drukkið. Hvar sem að er gáð í landinu er aðalstarf lögreglunnar í sambandi við drykkjuskap og afleiðingar hans. Samt er þetta dæmi óútreiknan- legt. Þó að við sleppum hinu ómetanlega getum við ekki leyst dæmið. Áfengisnautn er meðverk- andi í svo margri ógæfu að ómögulegt er að vita hversu stór hennar hlutur ér. Það er hægt að tíunda beinan og óvefengjanlegan manndauða vegna drykkjuskapar svo að skiptir tugum árlega en hver er hlutdeildin í hinu? Þrátt fyrir þetta er það mikið andvaraleysi og tómlæti að æðstu vísindastofnanir þjóðarinnar skuli ekki reyna að gera sér eitthvað ljóst í þessu sambandi. Áætlanir leikmanna um einstaka þætti þessara mála kynnu að geta ýtt við - vísindamönnum. Því er kannski gott að slíkar áætlanir komi fram. Um það ér vert að hugsa. H.Kr.“ Framhaldssaga eftir Georges Simenon. Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði. Maigret alltaf sérstaklega til- finninganæm. Svona nú! Ekki hugsa um það! Ekki segja ncitt sem gæti bcint hugsuninni í þá átt. Ekki líta of oft út á götuna þar scm hörnin yrðu innan stundar komin með leikföngin sín. í fiestum fbúðunum bjuggu biirn. kannski í öllum. Þau myndu heyra þau draga á eftir sér bflana. hjóla á nýju reiðhjólunum si'num og sjá þau byggja úr kubhunum sínum úti á Jeikvellinum. Telpurnar í miimmuleik með brúðurnar sínar og drcngirnir skutu óspart af leikfangabyssunum sínum. Einu sinni fyrir nokkrum árum hafði hann sagt eins og ósjálfrátti — Ilara ef maður ga“ti nú farið eitthvað í burtu yfir jólin? — Og fara hvert? hafði hún sagt af sínu venjulega raunsæi. Já. hvert a*ttu þau svo sem að fara. Ilcimsækja hvern? Þau áttu enga adtingja sem þau gætu farið til nema systur hennar sem bjó langt í burtu. Ættu þau að fara á hótel í ókunnri borg eða á vertshús úti í sveit? Svona nú! Bezt að reka frá sér slíkar hugsanir. Brátt fengi hann sjóðandi heitt nýlagað kaffi og þá liði honum áreiðan- lega mun betur. Ilann komst aldrei alveg til lífsins fyrr en hann hafði reykt fyrstu pípu dagsins með fyrsta kaffibolla dagsins. Sem hann rétti fram höndina í áttina að hurðarhúninum opnuðust dyrnar hljóðlaust og frú Maigret kom inn með hakka í höndunum. leit á tómt rúmið og síðan á hann. Hún var miður sín. næstum með grát- stafinn í kverkunum. — Þú ert kominn fram úr! Hún var sjálf fullklædd og snyrt og greidd og með ljósa svuntu. — Ég sem hafði hlakkað svo til að færa þér morgunmat í rúmið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.