Morgunblaðið - 06.10.1978, Page 31

Morgunblaðið - 06.10.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978 31 < Ingunn og Frjálsíþróttkonan góð- kunna, Ingunn Einarsdótt- ir, sem keppt heíur undir merki íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) frá 1972, hefur nú ákveðið að snúa til bernskustöðvanna og keppir hún því í nafni Knattspyrnufélags Akur- eyrar (KA) á næsta ári. Ingunn var skorin upp í Jón í KA sumar við brjósklosi en er á góðum batavegi og byrj- uð að æfa smávegis á ný. Ennfremur mun Jón S. Þóröar- son ganga í raðir akureyrska frjálsíþróttamanna á næsta ári og er ekki að efa að þau Ingunn og Jón verða frjálsíþróttum á Akur- e.vri mikil lyftistöng. Margir efni- tegir Akureyringar hafa vakið ath.vgli fyrir góðan árangur á frjálsíþróttamótum í sumar. — ágás. 200 mílna hlaupið féll niður I>VI miður verður ekkert af 200 mílna hlaupinu. sem áformað var nú í haust. Jón Guölaugsson langhlaupari hafði sem kunnugt er skorað á alla hlaupara heims eð etja við sig kappi í þessari vegalengd. Einn hlaupari tók áskoruninni. Ágúst Ásgeirsson. ÍR. Pegar til kom. gat Jón ekki komið því við að hlaupa nú í haust en mögulegt er að hlaupið fari fram na<sta haust. Jón var ákaflega óánægður yfir því að ekki skyldu fleiri hlauparar taka áskoruninni. Átti hann von á því að erlendir hlauparar kæmu til leiks en sú von brást. Jón hefur sem kunnugt er hlaupið 200 míina hlaup áður. í því hlaupi fann hann upp hinn fræga hlaupastíl, sem kallaður er hjóla- stíii. Watford fyrirbæriö Það kom auðvitað gífurlega á óvart, þegar Watford, lið Eltons Johns í 3. deild, gerði sér lítið fyrir og vann risana Manchester United á Old Trafford í fyrrakvöld í 3. umferð deildarbikarkeppninnar. En ekki var það einsdæmi, síðast þegar Watford kom í heimsókn til United, í FA-bikarieik árið 1969, náði Watford jafntefli og vann síðan 2—0 á heimavelli sínum og vöktu þau úrslit ekki síður athygli þá heldur en nú. Kissinger á kaf í knattspymuna TILKYNNT var í ga>r að fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkj- anna Ilenry Kissinger. hefði verið kjörinn formaður Bandaríska knattspyrnusambandsins. Þá kom fram að eitt af meiri háttar verkefnum hans verður að fá heimsmeistarakeppnina í knatt- spyrnu til Bandaríkjanna 1990. Verdur það erfitt verkefni við að glíma. Alþjóða knattspyrnusam- handið hefur ekki samþykkt þær reglur sem leikið er eftir í Bandaríkjunum. Kissinger hefur alltaf verið mikill áhugamaður um knatt- spyrnu og mætt sem áhorfandi á þrjár síðustu HM-keppnir. — Ég hef alltaf. haft mikinn áhuga á knattspyrnu og hef ávallt reynt að koma því við á ferða- lögum mínum að sjá spennandi leiki ef þess hefur verið nokkur kostur sagði Kissinger við frétta- menn. Marka-Pele Landslið Brasih'u hefur leikið 490 leiki allar götur síðan 1914. Liðið hefur unnið 317 sigra, gert 91 jafntefli og tapað aðeins 82 leikjum. Liðið hefur skorað 1177 mörk en fengið á sig 537. Það er athyglisvert, að á ferli sínum skoraði Pele fleiri mörk heldur en landslið Brasilíu allt aftur til 1914! Árið 1909 skoraði Pele sitt 1000 mark. Á myndinni hér fyrir ofan fagnar hann 1221 marki sínu. það skoraði hann árið 1975 í Dallas Texas í leik með Cosmos. Stórar tölur á Reykjav íkurmótinu ÞAÐ var sannkölluö haustslátrun í Laugardalshöllinni í gærkvöldi, en þá fóru þar fram þrír leikir í Reykjavíkurmótinu í handbolta. Minnsti sigur kvöldsins var 9 marka sigur Vals yfir ÍR-ingum 25—16 (11 — 10). Víkingur lagði Þrótt með 10 mörkum, 25—15 (12—7) og verstu útreiðina hlaut lið Leiknis, er það mætti Fram og tapaði 17—32 (5—15). Það var sami haustbragurinn á handboltanum í gærkvöldi og raunar lítið um leikina að segja. Leiknir skoraði ekki mark fyrstu 18 mínútur fyrri hálfleiks og þegar Hafliði Kristinsson loks skoraði úr víti, var staðan orðin 10—0 fyrir Fram. Leiknismenn söxuðu enn á forskot Framara 6 mínútum síðar, er Hafliði breytti stöðunni úr 13—1 í 13—2! Kæruleysi Framara gerði Leiknismönnum kleift að skora nokkuð er á leið, en án Hafliða Péturssonar vár hvorki haus, sporður né uggar á liði Leiknis. Þó fóru fram í Hafnarfirði í gærkvöldi leikir milli FH og Hauka, bæði í karla og kvennaflokki. Konurnar léku um Emblu-bikarinn, en karlarnir um ESSO-bikarinn. FH vann báða leikina, 21—19 í karla- flokki og 17—12 í kvennaflokki. -gg. Mark Jóns frægt orðið! MARGIR hafa ekki glevmt því. þegar Jón Þorbjiirnsson. mark- vörður ÍA. skoraði beint úr útsparki gegn Víkingum. Diðrik missti holtann milli fóta sér. Nú veit alheimur af þessu spaugilega marki. í hinu víðlesna enska knattspyrnuriti Shoot er sagt frá atviki þessu. með þeim orðum að IIM í Árgentínu hafi sýnt fram á langskot sem mikilvægan þátt í sóknarleik. en hér væri full langt gengið. enda meira en 90 metrar! Pétur með freistandi tilboð frá Feyenoord ! i i j i i i 5 1 Fer til Hollands á morgun að líta á aðstæður Á FIINDI. sem knattspyrnu- maðurinn Pétur Pétursson átti með P. Stephan. framkvæmda- stjóra Feyenoord. á Ilótel Loft- leiðum í gærkvöldi. hauö fram- kva'mdastjórinn Pétri atvinnu- mannasamning hjá Feyenoord. Pétur mun íhuga þetta tilboð, sem mun vera mjög freistandi, eftir því sem Mbl. kemst næst. Fer Pétur utan til Hollands á morgun ásamt P. Stephan til þess að líta á aðstæður hjá Feyenoord. Pétur sagði í samtli við Mbl. í gærkvöldi, að hann vildi ekkert um málið segja að svo stöddu. Telja má líklegt, að Pétur taki þessu tilboði, enda freistandi fyrir ungan knatt- spyrnumann að byrja atvinnu- mannsferil hjá jafn þekktu knatt- spyrnuliði og Feyenoord er, en liðið varð m.a. Evrópumeistari í knattspyrnu árið 1970. Karl Þórðarson átti einnig viðræður við framkvæmdastjóra Feyenoord í gærkvöldi, en honum var ekki boðinn samningur að svo stöddu a.m.k. Fleiri félög hafa sýnt áhuga á Karli og mun það vafalaust skýrast á næstunni hvort hann fer út í atvinnu- mennsku. - ss Lækkuö verö á þegar stórlækkuöum veröum á Stórútsölu og verksmiðjuútsölu Karnabæjar Belgjagerðarinnar í kjallara Idnadarmannahússins ad Hallveigarstíg 1. D Pólar úlpur, barna- unglinga-, fulloröinna. D Anorakkar barna-, unglinga, fulloröinna, D Sloppar, D D Stórkostlegt úrval af alls konar efnum. D Kakhi buxur D Terylenebuxur D Herraskyrtur D Dömupeysur D Dömudragtir D Tweed pils D Kjólar D Bolir D Mussur D Flauelsbuxur D Denimbuxur D Dömublússur D Dömujakkar D Mittisjakkar D Pils D Herrajakkaföt m. vesti D DressD HerrajakkarD o.m.fl. o.m.fl. Þessa útsölu er ekki hægt að láta fram hjá sér fara á þessum síðustu og verstu tímum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.