Morgunblaðið - 07.10.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.10.1978, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK 228. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. SÞ reyna að stöðva átökin New York, 6. október. Reuter AP. HARÐIR bardaKar sýrlenzkra Kæsluhermanna og kristinna hermanna hreiddust út í Beirút í dag og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ákvað að koma saman í kvöld til að stöðva blóðugustu bardagana í Líbanon síðan í borgarastríðinu 1975. Fulltrúar ráðsins sömdu í kvöld ályktun þar sem hvatt er til tafarlauss vopnahlés og brottflutnings særðra á vegum Rauða krossins í Líhanon. Leggja átti uppkastið fyrir ráðið til staðfestingar í nótt. Skömmu áður tilkynnti banda- ríska utanríkisráðuneytið að Cart- er hefði haft persónulegt samband ■ við Leonid Brezhnev, forseta Sovétríkjanna, og aðra heimsleið- toga og hvatt þá til að styðja alþjóðlegar aðgerðir í því skyni að binda enda á átökin. Aður sagði talsmaður SÞ í Genf að Sadruddin Aga Khan prins, sérlegur fulltrúi SÞ í málefnum Líbanons, færi til Miðausturlanda á morgun. Forseti Líbanons, Elias Sarkis, kom í kvöld til Damaskus og hóf þegar í stað viðræður við Hafez A1 Assad forseta um ástandið í Líbanon, örfáum klukkustundum eftir heimkomu Assads frá Moskvu þar sem hann tryggði sér loforð frá Rússum um aukna hernaðaraðstoð. Rússar og Sýrlendingar skuld- bundu sig til að lægja öldurnar í Líbanon á grundvelli „fullveldis og sjálfstæðis". í Líbanon breiddust bardagarnir í austurhluta Beirút til hverfa múhameðstrúarmanna í vestur- hluta borgarinnar. Þar urðu bandaríska sendiráðið og svæði Palestínumanna fyrir sprengju- árásum. Tólf menn í sendiráðinu, þar af einn bandarískur land- gönguliði særðust og sprengju- brotum rigndi á sendiráðsbygging- una. Egyptar skoruðu á Israelsmenn í kvöld að hætta stuðningi við kristna hægrimenn í Líbanon og búa í haginn fyrir sættir í landinu. Forseti sa-nska þingsins, Henry Ailard (t.h.) ræðir við Öla Ullsten, leiðtoga Þjóðarflokksins og væntanlegan forsætisráðherra. Fálldin talinn með minnihlutast i ór n Stokkhólmi. 6. okt. AP. Reuter. ENGINN árangur náðist í fyrstu lotu viðræðna sænskra stjórn- málamanna í dag um eftirmann Thorbjörn Fálldins, forsætisráð- Kruf ningar á páf a kraf izt Tóm, 6. október. AP. SAMTÖK hægrisinnaðra kaþ- ólskra manna, Civilta Cristiana, hvöttu til þess í dag að lík Jóhannesar Páls páfa I. yrði krufið þrátt fyrir yfirlýsingar frá Páfagarði þess efnis að slíkar kröfur séu smekklausar og lftilsvirðandi. Samtökin sögðu á blaða- mannafundi í Róm, að þau hefðu skorað á yfirvöld í Páfagarði að fyrirskipa rannsókn á orsökum andláts páfa. Þegar hann lézt var tilkynnt að dánarorsökin hefði verið hjartaáfall. Áhrifamikill spænskur stjórn- málamaður, Blas Pinar, forseti stjórnmálasamtaka Francosinna, Fuerza Nueva (Nýtt afl), tók undir áskorun Civilta Cristiana um rannsókn á dauða páfa og sagði að hún mundi friða marga kaþólska menn þar sem sá grunur hefði vaknað að páfi hefði ekki látizt af eðlilegum orsökum. Hann sagði að á Spáni hefði aldrei verið vitað að páfi hefði verið hjartaveill og þess vegna hefði tilkynningin um að dánar- orsökin hefði verið hjartaáfall vakið mikla tortryggni. í Páfagarði er sagt að krufning hefði ekki verið gerð á líki páfa þar sem læknar hefðu verið sammála um að hún mundi ekki leiða annað í )jós en það sem þegar væri vitað. herra ríkisstjórnar borgaraflokk- anna. sem sagði af sér í gær- kvöldi. Forseta þingsins, Henry Allard, hefur verið falið að ganga úr skugga um afstöðu allra stjórnmálaflokka og leiðtoga þeirra. Hann sagði eftir viðræð- urnar í dag. að þeim yrði haidið áfram á mánudag. Samkvæmt pólitfskum heimild- um standa yfir mikil pólitísk hrossakaup milli leiðtoga Þjóðar- flokksins og Hægfara flokksins og aimennt er talið að þessir tveir flokkar myndi samsteypustjórn. Flestir gizka á að Ola Ullsten, 47 ára gamall leiðtogi Þjóðarflokks- ins og aðstoðarforsætisráðherra í stjórn Fálldins, verði í forsæti samsteypustjórnar frjálslyndra og hægri manna. Þjóðarflokkurinn og Hægfara flokkurinn hafa til samans 180 þingsætl af 349 með stuðningi 86 ráðherra um setningu laga um kjarnorkumál. En Palme sagði í gærkvöldi að hann væri þess albúinn að mynda sjálfur minnihlutastjórn sósíaldemókrata ef þess gerðist þörf. Næstu þingkosningar eiga ekki að fara fram fyrr en að einu ári liðnu, en klofningur borgaraflokk- anna er talinn geta orðið til þess að þeir verði fyrir miklu atkvæða- tapi. Fálldin tilkynnir lausnarbeiðni sína á blaðamannafundi. Brezhnev tekur vel í fund með Carter Moskvu, 6. október. Reuter. LEONID Brezhnev, forseti Sovét- rtkjanna, er reiðubúinn að hitta Carter forseta að máli ef nýr samningur um takmörkun gereyðingarvopna (Salt) er tilbú- inn til undirritunar, sagði Andrei Gromyko utanríkisráðherra í sovézka sjónvarpinu í kvöld. Gromyko sagði að Bandaríkja- menn hefðu gert nokkrar nauðsynlegar breytingar á af- stöðu sinni og þær miðuðu í rétta átt í viðræðum sem hann átti nýlega við Carter forseta og Cyrus Vance utanríkisráðherra. En hann bætti því við að þessar breytingar væru ekki nógu mikl- ar til þess að hægt væri að segja að málið væri þegar lcyst. Ávarp utanríkisráðherrans var fyrsta nákvæma frásögnin af hálfu Rússa um síðustu Salt-viðræðurnar sem verður haldið áfram þegar Vance fer til Moskvu síðar í þessum mánuði. Ummæli hans jafngiltu ekki algerri staðfestingu á bandarísk- um fréttum þess efnis að gerð nýs samnings sé sama sem lokið og að Carter og Brezhnev muni hittast í Washington í desemberbyrjun. Gromyko kvað Carter hafa fullvissað sig um að Bandaríkja- stjórn væri . eindregið hlynnt samningi og látið í ljós þá skoðun að öldungadeildin mundi staðfesta samninginn eftir undirritun hans. Utanríkisráðherrann kvaðst vona að Carter og stjórnin stæðu við þessi orð og að „raunsærri og stillilegri afstaða" sem Banda- ríkjamenn hefðu tekið „næði yfirhöndinni og færi með sigur af hólmi." þingmanna Miðflokks Fálldins í öllum málum nema kjarnorkumál- um sem ollu klofningnum er varð til þess að fráfarandi stjórn varð að segja af sér. Fálldin og flokkur hans vildu ekki fallast á áframhaldandi smíði kjarnorkuvera nema strangari öryggisreglur yrðu settar. En Fálldin sagði þegar hann tilkynnti lausnarbeiðni sína i gærkvöldi að hann væri laus við alla beiskju í garð samstarfsflokkanna og þar með virtist hann hálda opinni þeirri leið að flokkarnir hefðu með sér samstarf á þingi. Sænskir stjórnmálasérfræðing- ar segja að samsteypustjórn Þjóðarflokksins og Hægfara flokksins geti áreiðanlega treyst því að hún geti komrzt að sam- komulagi við flokk sósíaldemókrata undir forystu Olofs Palme fyrrverandi forsætis- Smith vestur Salisbury. 6. október, AP — Reuter IAN Smith forsætisráðherra Rhódesíu, fór flugleiðis til Bandarikjanna í dag í um- deilda heimsókn í því augna- miði að afla stjórn sinni stuðnings almennings í Bandaríkjunum. í fylgd með Smith er samráð- herra hans, séra Ndabaningi Sithole. Þeir ætla að fá stuðn- ing Bandaríkjamanna við þá lausn sem samið hefur verið um í Rhódesíu þótt skæruliðar Föðurlandsfylkingarinnar berj- ist gegn henni. Þeir munu ræða við þing- menn sem buðu þeim til Banda- ríkjanna og Cyrus Vance utan- ríkisráðherra. Smith neitaði því þegar hann kom við í Jóhannesarborg á leið sinni til New York að honum hefði verið boðið að taka þátt í viðræðum í Hkingu við viðræðurnar í Camp David við skæruliða blökku manna. En Smith sagði að í megin- atriðum væri hann ekki á móti viðræðum allra aðila Rhódesíu- deilunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.