Morgunblaðið - 07.10.1978, Side 15

Morgunblaðið - 07.10.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 15 Fréttabréf úr Borgarnesi Borgarfiröi, 12.9. 78. Veður og veðurfar Sæmilega leit út strax í vor, að spretta yrði í fyrra lagi, þar sem byrjun maí lofaði góðu. En síðan kom júní, sem var fjarskalega kaldur og miðaði gróðri sáralítið fram. Var útjörð grá fram eftir öllum mánuðinum. Og í ofanálag bættist, að í júní rigndi sáralítið. Var jörð því mjög þurr og tafði það einnig fyrir sprettu. En í júlí tók að skána. Og var seinni hluti júlí sæmilegur. Þeir bændur, sem voru í fyrra lagi með að slá náðu töluverðu upp í fyrri hluta júlí. En síðan kom ágúst með dumbungi og fáum þurrkflæsum. En það sem af er september hefur viðrað sæmi- lega til heyskapar og hafa hinir síðustu náð seinustu stráunum upp í september. Töðugjöld voru haldin á 2 stöðum hér í Borgarfirðinum í byrjun september. Voru þá all- margir, sem áttu eftir hey úti. En margir létu það ekkert á sig fá. Sögðu aðeins: „Allt í lagi með það, allt í lagi með það,“ og mættu galvaskir til leiks. Þessir hinir sömu hefðu flestir getað verið búnir að heyja á þessum tíma, ef þeir hefðu heyjað í vothey. Þótt stuttir væru þurrkarnir í ágúst, viðraði vel til til votheysgerðar. Bera þeir bændur af, sem heyja töluverðan hluta í vothey, hvað varðar ágæti þess heys, er þeir afla. Og eins hitt, að þeir eru ekki eins háðir veðurfari með heyskap eins og þurrheysbændur eru. Réttir og réttarfar Ágúst hefur verið mjög hlýr og það sem af er september einnig. Hefur ekki enn komið næturfrost og má það kallast nýnæmi. Kart- öflugrös standa enn og haustlitir sjást varla á kjarri og skógum. Allt þetta veldur því að útjörð er óvanalega góð, grös ekki farin að sölna og hefur verið að spretta allt fram undir þetta. Svona gott haust bætir upp lélegt sumar framan af, og er bót í máli fyrir bændur. Kýr hafa aldrei verið teknar inn að nóttu til í sumar vegna slagveðurs. Ekki ástæða til útflutn- ings á ferskri síld „ÉG Á ekki von á því að það verði veitt leyfi til útflutnings á fersksfld," sagði Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri í sjávarútvcgs- ráðuneytinu. er Mbl. spurði hann um það mál í gær. „Meðan allt útlit er fyrír að hægt verði að vinna allan síldar- aflann innanlands, ýmist með söltun eða frystingu, og síldarút- vegsnefnd gengur svona rösklega fram í því að selja þá er ekki ástæða til útflutningsleyfa á ferskri síld. Sumir útvegsmenn hafa eitthvað verið að spá í slíkt en mér sýnist ólíklegt að það verði.“ Jón sagði að aldrei hefði bátur fengið leyfi til að sigla með ferska síld á erlendan markað, en eitt dæmi væri um slíka sölu í leyfisleysi. Hefur nyt haldist fádæma vel í þeim og mjólk því töluvert yfir meðallagi. En ekki er víst, að neytendur drekki að sama skapi meiri mjólk, og bætist því enn við smjörfjallið. Réttir eru nú sem óðast að ganga um garð. Fljótstungurétt var í gær, og á morgun verða Oddsstaða- og Þverárrétt. Dilkar eru ekki stórir núna, en vel feitir eftir svona ágætt haust, enda hafa heiða- og afréttarlönd sjaldan verið betri á þessum tíma en einmitt nú. Ættu bændur því að vera ánægðir með feita og fallega dilka. En sú ánægja er nú dulítið beggja blands, því í haust tekur við nýtt mat á kjöti. Verða þeir dilkar, sem eru feitir og fallegir verðfelldir. Er þetta víst til þess að koma á móts við þá neytendur, sem ekki vilja annað en horkjöt. Hingað til hefur það þótt gott og gilt í dreifbýlinu, að smjör og feitt kjöt myndi bara slípa æðarnar, og þannig koma í veg fyrir blóðtappa. En það þarf ekki margar óánægju- raddir til þess að breyta hugarfari fólks í þessum efnum. Þess vegna virðist það vera haldbezt í svona góðu árferði, þegar dilkar koma vel fram gengnir af fjalli að þá verði að svelta þá, svo viðunandi kjötmat fáist á þá. Þótt vel viðri og afburða gott haust sé á enda, verður afkoma bænda lakari, heldur en ef væri slæmt árferði, því þá væru dilkar rýrari og myndu flokkast betur. Það geta því nokkrir dilkar af þeim 82 þúsund fjár, sem slátrað verður í Sláturhúsi Kaupfélags Borgfirð- inga í Borgarnesi lent í verðfell- ingu í haust, ef ekki bregður til harðnandi veðurfars. Það batnar því ekki að vera bóndi á íslandi í dag. — Fréttaritari. Félag harmonikkuunnenda: Efla vegferð nikkuimar FÉLAG áhugamanna um harmonikkuleik var stoínað s.l. ár og var félagsstarf með miklum blóma. Nú á nýafstöðnum aðal- fundi var nafni félagsins breytt f Félag harmonikkuunnenda með skammstöfunina F.H.U. í frétta- tilkynningu frá Félagi harmonikkuunnenda er hvatt til þess að allir velunnarar nikkunn- ar taki þátt í starfi félagsins og efli hag nikkunnar sem mest. Pósthólf félagsins í Reykjavík er 4145. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en í henni eiga sæti: Bjarni Marteinsson form., Guðmundur Guðmundsson ritari, Elsa Bene- diktsdóttir gjaldkeri, Guðmar Hauksson meðstj., og Karl Jónatansson meðstj. Vetrarstarf félagsins er nú þegar hafið og munu næstu skemmtifundir félagsins verða haldnir sunnudagana 8. okt., 5. nóv. og 3. des.j í samkomusal VERKSTJÓRAFÉLAGS ÍS- LANDS að Skipholti 3. III hæð kl. 15.30. Helstu verkefni sem félagið mun snúa sér að á komandi vetri eru: Aukin hópvinna innan félagsins. Gerð útvarpsþátta á vegum félags- ins. Húsnæðisvandamál félagsins. Harmonikkukennsla verði tekin inn í Ríkisstyrkta Tónlistarskóla landsins. Nótnasafn og fl. Ca. 100 manns eru nú í félaginu og þegar er farið að stofna Harmonikkuáhugahópa úti á landsbyggðinni í tengslum við félagið. Nú bjóðum við nýjan glæsilegan luxusbíl... MAZDA LEGATO. Þessi nýi bíll er rúmbetri og stærri en fyrri gerðir af MAZDA. MAZDA LEGATO er með 2000cc vél, og mjúkri gormfjöðrun á öllum hjólum. fáánlegar: 4 dyra Sedan og 4 dyra hardtop. eru búnar meiri aukabúnaði en jafnvel rándýrar luxusbifreiðar af öðrum gerðum. 2 gerðir verða Báðar gerðirnar Standard búnaður í Mazda Legato sedan: hituð afturrúða - útvarpsloftnet byggt inn í framrúðu 3 hraða rúðuþurrkur _ útispeglar — barnaöryggislæsingar á hurðum klukka í mælaborði _ sportfelgur með krómhring - 4 halogen framljós og rúðusprautur á framljósum - rafmagnslæsing á farangursgeymslu rafmagnslæsing á bensínloki - stillanlegir höfuðpúðar - hitablástur á hliðarrúður- stokkur á milli framsæta - læst og upplýst hanskahólf upplýst farangursgeymsla. BÍLABORG HF. SMIDSHÖFDA 23 símar: 81264og 812 99 og þar að auki í Mazda Lcgato 4 dyra hardtop: fjarstýrðir útispeglar - vökvastýri - rafknúnar rúður - snúningshraðamælir - tölvuklukka t mælaborði - sjálfskipting eða 5 gíra girkassi og litað gler MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐAL.STRÆTI 6 SlMAR: 17152-17355 BÍ tASÝNING i d«g hi. 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.