Morgunblaðið - 07.10.1978, Síða 21

Morgunblaðið - 07.10.1978, Síða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 21 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2200.00 kr. á mánuði innanlands. iausasölu 110 kr. eintakið. Birgir ísl. Gunnarsson: Oþarfa silkihúfa „Friðlýsing” og flotastöð Rússa á Kolaskaga Hugmyndin um friðlýs- ingu Atlantshafs er ekki ný af nálinni í umræðum um öryggismál hér á landi. Hún á rætur að rekja til tillögu, sem Ceylon og fleiri ríki stóðu að á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1971 um friðlýsingu Indlandshafs. í ræðu forsætisráðherra Ceyl- ons fyrir tillögunni kom fram, að tilgangurinn með henni væri að takmarka flotaumsvif erlendra ríkja á hafinu og tryggja, að þau gerðu ekki þennan heims- hluta að átakasvæði með samkeppni sinni. Sagði ráð- herrann, að ósk Ceylons væri, að nánar skilgreint svæði Indlandshafs yrði friðlýst og þar færi aðeins fram frið- samleg starfsemi undir al- þjóðlegu eftirliti. Öll meðferð vopna yrði bönnuð á svæðinu, skipum allra þjóða yrði heim- iluð umferð um svæðið en herskip og kafbátar mættu ekki halda þar kyrru fyrir nema í neyðartilvikum. Þótt framangreint væri efnislega það, sem í tillögunni fólst, var aðeins samþykkt á Alls- herjarþinginu að hvetja stór- veldin til viðræðna sín á milli um málið og þess farið á leit við framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, að hann gerði næsta Allsherjarþingi grein fyrir gangi málsins og það yrði aftur tekið á dag- skrá þingsins. Tillagan þann- ig útþynnt var samþykkt með atkvæðum 60 þjóða í desem- ber 1971 en 55 þjóðir sátu hjá, þeirra á meðal voru bæði Bandaríkin og Sovétríkin. Síðan þessi samþykkt var gerð hefur lítið borið við innan Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði. Sett var á fót nefnd m.a. til að undirbúa ráðstefnu um Indlandshaf. Nefndin hefur ekki lokið störfum. Hins vegar gerðist það á síðasta ári, eftir valdatöku Carters, Banda- ríkjaforseta, að bandarísk stjórnvöld sneru sér af aukn- um þunga til Sovétríkjanna með ósk um að risaveldin tækju upp tvíhliða viðræður um vígbúnaðareftirlit á Ind- landshafi. Hefur verið efnt til nokkurra funda í nefnd þeirra um málið, en ekki er vænst skjóts árangurs. Því er þetta rifjað svo ítarlega upp hér, að taismenn herstöðvaandstæðinga og ýmsir aðrir hafa að undan- förnu dustað rykið af þessari gömlu tillögu og telja hana jafnvel geta orðið til þess að leysa þá ábyrgð, sem hvílir á Islendingum í öryggismálum. Svo virðist sem hugtakið „friðlýsing“ hafi tekið við af „friðartímum“ í hugarheimi þeirra, sem telja, að með eins konar töfrabrögðum sé unnt að draga úr hernaðargildi íslands. Ástæðulaust er að hafna slíkum hugmyndum að óathugufya máli. í samstarfs- yfirlýsingu ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar er gert ráð fyrir, að nefnd sú, sem gera á úttekt á öryggismálum Islands, fjalli meðal annars um „friðlýsingu". í þessu sambandi má minna á, að Sovétríkin, fylgi- ríki þeirra og áhangendur í öðrum löndum, þ. á m. talsmenn Alþýðubandalags- ins í utanríkismálum, töldu, að Öryggisráðstefna Evrópu mundi leiða til þess, að varnarbandalögin í Evrópu yrðu lögð niður. Að vísu er ekki unnt að leggja Varsjár- bandalagið og Átlantshafs- bandalagið að jöfnu. Hið fyrrnefnda er hernaðarsam- félag risaveldis og leppríkja þess en hitt bandalag sjálf-' stæðra ríkja. Hvað um það, þá var því haldið fram um langt árabil, að þessi banda- lög yrðu lögð niður að ráð- stefnunni lokinni. Engin merki sjást um það, þótt ráðstefnan hafi verið haldin og hvergi er þess getið í lokasamþykkt hennar. Áhugi Sovétríkjanna á þessum áróðurspunkti sínum varð að engu eftir innrásina í Tékkóslóvakíu, því að þar kom í ljós, að Varsjárbanda- lagið var ekki aðeins til orðið sem andsvar við Atlantshafs- bandalaginu heldur ekki síð- ur sem tæki til að halda Varsjárbandalagslöndunum í skefjum með hervaldi „bandamannanna". Allt sýnir þetta, hve vara- samt það er að ala á þeim vonum, að fögur orð megi sín einhvers, þegar brýnir hags- munir ríkja eru í veði. Það, sem veldur því, að „friðlýs- ing“ tekur nú við af „friðar- tímum“ í umræðum hér á landi, er, að menn viðurkenna í raun þá breytingu, sem orðið hefur vegna aukinna flotaumsvifa Sovétríkjanna á höfunum umhverfis Island. Rökrétt niðurstaöa af því er sú, að menn snúi sér fyrst að Sovétríkjunum og krefjist þess, að þau hætti starf- rækslu flotastöðvarinnar umhverfis Murmansk á Kola- skaga. Fyrir nokkrum árum lagði Hitaveita Reykjavíkur í miklar framkvæmdir við stækkun dreifi- kerfisins tii nágrannabæja okkar. Jafnframt þurfti að stækka virkjanirnar að Reykjum og leggja nýja aðalæð til Reykjavíkur. Þessar framkvæmdir, sem unnar voru á skömmum tíma, kostuðu mikið fé og því þurfti borgin að fá stórt erlent lán til framkvæmd- anna. Borgin réð sér umboðsmann í Bandaríkjunum, sem ieitaði eftir því hjá ýmsum lánveitendum, að þeir keyptu skuldabréf af Reykja- víkurborg. Þessi háttur var sá, sem á þeim tíma var talinn gefa möguleika á beztu lánakjörum. Nokkur fyrirtæki gáfu sig fram, en eðlilega þekktu þau lítið til Islands og ennþá síður til Reykja- víkurborgar, fjárhags hennar og stjórnunar. Það varð þvi að ráði, að fulltrúar þessara væntanlegu lánveitenda komu til íslands til að kynna sér málið. Fulltrúarnir dvöldu hér í nokkra daga, kynntu sér ítarlega fjárhag borgarinnar og stjórnarhætti og sneru síðan heim til Bandaríkjanna. Örfáum dögum síðar kom skeyti frá umboðsmanninum. Fyrirtækin, sem sent höfðu fulltrúa hingað, höfðu ákveðið að kaupa öll skulda- bréfin án ríkisábyrgðar og það var látið fylgja með, að það hefði vakið sérstaka athygli þeirra, hversu traust og afkastamikið (efficient) stjórnkerfi borgarinnar væri. Auðvitað vorum við ánægðir með Birgir ísl. Gunnarsson. þennan vitnisburð, því að þessir menn höfðu það að aðalatvinnu sinni að rannsaka fjárhag og stjórnun fyrirtækja og stofnana víða um heirn. Því minnist ég á þetta litla atvik nú, að miklar umræður hafa farið fram um það af hálfu nýs meiri- hluta í borgarstjórn, að miklu þurfi að breyta í stjórnkerfi borgarinnar. Ein slík tillaga hefur nú séð dagsins ljós og var hún til umræðu í horgarstjórn s.l. fimmtudag. Meirihlutinn flutti tillögu um stofnun sérstaks fram- kvæmdaráðs, sem skipaö skuli 7 mönnum. Undir framkvæmda- ráðið eiga að heyra öll fram- kvæmdaverkefni, sem eru á vegum borgarverkfræðings og ekki eru sérstaklega falin öðrum stjórnend- um. Af borgarstofnunum, sem þetta nýja ráð á aö stjórna, má nefna gatna- og holræsadeild, byggingardeild, hreinsunardeild, garðyrkjudeild, vélamiðstöð, ahaldahús, grjótnám, malbikunar- stöð og pípugerð. Við borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins vorum á móti þessari tillögu. Samkvæmt 25. gr. sam- þykktar um stjórn Reykjavíkur- borgar fer borgarráð ásamt borgarstjóra með framkvæmda- stjórn málefna Reykjavíkur- borgar. Eitt mikilvægasta verk- efni borgarráðs er framkvæmda- stjórn verklegra framkvæmda. Það hlutverk sitt rækir borgarráð m.a. með því að gera áætlanir um allar verklegar framkvæmdir borgarinnar. Það er gert í tengsl- um við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar á hverju ári. Borgarráð fylgist síðan með gangi framkvæmda, enda situr borgarverkfræðingur og skrifstofustjóri hans alla fundi borgarráðs. Allar ákvarðanir eru því teknar í nánu samráði við borgarverkfræðing. Ailar verklegar framkvæmdir tengjast að meira eða minna leyti þeim stofnunum, sem tilgreindar eru í tillögunni. Gangur verklegra framkvæmda er eitt mikilvægasta atriðið í daglegri fjármálastjórn borgarinnar. Við Sjálfstæðismenn töldum það því til óþurftar að drepa á dreif stjórnun þessa mikilvæga málaflokks. Að okkar mati er framkvæmdaráðið óþarfa milliliður. Það flækir ákvarana- töku, torveldar fjármálastjórn og e.vkur kostnað við stjórn borgar- innar. Það er einungis silkihúfa ofan á annars gott og afkastamik- ið stjórnkerfi. Það stjórnkerfi, sem við Sjálf- stæðismenn höfum byggt upp hér í Reykjavík, hefur miðast við það, að ákvarðanataka gæti gengið sem greiðast fyrir sig og að dagleg fjármálastjórn tengdist sem mest stjórn verklegra framkvæmda. Þetta sáu m.a. útlendingarnir.sem ég gat um í upphafi þessarar greinar. Við þurfum að vísu ekki neina tilsögn frá útlöndum í þessum efnum, en í þessu tilviki var gests augað þó glöggt, eins og oft áður. Þær hugmyndir, sem hinn nýi meirihluti hefur um breytingu á stjórnkerfinu, miðast allar að þvi að draga úr afkastagetu stjórn- kerfisins, bæta inn milliliðum og auka kostnað við stjórnsýsluna. Hið nýja framkvæmdaráð er stórt skref í þá átt. Það er óþarfa silkihúfa á stjórnkerfið. Tugmilljóna rafmagnsreikningar fiskvinnsluhúsa á Suðurnesjum MORGUNBLAÐIÐ hafði sam- hand við Suðurnesjamenn vegna hótunar rafmagnsveitna ríkisins um Iokun á ákveðna staði á Suðurnesjum. Einnig ræddi blað- ið við Hjörleif Guttormsson iðn- aðar- og orkuráðherra sem kvað ráðuneyti sitt hafa í síðasta mánuði farið fj;am á að farið væri mildum höndum um þessar raf- orkuskuldir þar sem um væri að ræða erfiðleika hjá fiskvinnslu- húsunum. Kvað ráðherra engar frekari óskir hafa komið til sín. en benti hins vegar á að hótun um lokun væri ekki óalgeng í sam- handi við rafmagnsinnheimtu. „Ef þetta mál tengist hins vegar vanda fyrirtækja sem áttu að geta hafið rekstur eftir fyrir- greiðslu ríkisvaldsins, þá þarf að skoða það mál í samhengi þótt hitt sé ljóst að rafmagnsveiturnar þurfa á sínu að halda.” 16 millj. kr. rafmagns- reikningur fiskverkunar- húsa í Njarðvík Karl Albert Sanders bæjarstjóri í Njarðvíkum sagði að þeir hefðu fengið hótanir í þessum efnum reglulega síðan í vetur. „Við eigum hins vegar stórfé inni hjá fiskiðn- aðarfyrirtækjunum, eða um 16 millj. kr. vegna raforku, en við skuldum rafmagnsveitunum 10 millj. kr. Þessar 16 millj. kr. eigum við hjá 4 fyrirtækjum og þar er eitt fyrirtækið með 10 millj. kr. skuld.“ Keflavík ekki í hópi þeirra sem hótað er Jóhann Einvarðsson bæjarstjóri í Keflavík kvað þá ekki vera inni í þessum hópi bæjarfélaga sem fengi hótanir, því þeirra skuldir væru ekki það miklar, en hins Atkvæólsréttur starfsfólks: Mikill vilji hjá Alþýðuflokknum og Alþýðubandalaginu — segir Björgvin Guómundsson „ÉG TEL að það eigi að stefna í þá átt að veita fulltruum starfsfólks í stjórnum fyrirtækja at- kvæðisrétt, þó ég sé ekki alveg tilbúinn til að segja til um hversu langan tíma sú þróun ætti að taka. Ég veit að hjá okkur og Alþýðubandalaginu er mikill vilji til að stíga þetta skref og það kann vel að vera að þessir tveir flokkar vilji tafarlítið taka undir tillögu borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins um atkvæðisréttinn,“ sagði Björgvin Guðmundsson borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins er Mbl. spurði hann álits, á því, að fulltrú- um starfsfólks í stjórn fyrirtækja yrði ekki aðeins veitt aðild að stjórnarfund- um með málfrelsi og tillögurétti eins og meiri- hluti borgarstjórnar sam- þykkti á fundi á fimmtu- dagskvöld heldur og með atkvæðisréttL eins og borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu til. „Þessi tillaga sjálfstæðismann- anna kom mér mjög á óvart,“ sagði Björgvin. „Þeir hafa undanfarin ár fellt allar tillösur um þátttöku starfsmánnafulltrúa í stjórnar- fundum en nú vilja þeir ekki bara éinr. fulltrúa eins og hingað til hefur, verið rætt um heldur tvo með atkvæðisrétti. Ég vil nú leyfa mér að kalla þessa tillögu þeirra óáhyrgt yfirboð." Mbl. tókst ekki í gær að ná tali af Sigurjóni Péturssyni né Kristjáni Benediktssyni vegna þessa máls. vegar kvað hann erfiðleikana, þ.e. stóru tölurnar, vera í sambandi við fiskvinnsluhúsin. I Garðinum höfðum við sam- band viú Guðberg Ingólfsson hjá ísstöðinni og inntum álits hans á þessum lokunarhótunum. „Það er lítið um þær að segja,“ svaraði Guðbergur, „það eru geysi- legir erfiðleikar að greiða þessar rafmagnsskuldir og hjá okkur í Isstöðinni erum við aðeins byrjað- ir að höggva í þetta og munum halda því áfram til þess að ekki verði lokað. Þá hefur bankinnn okkar hlaupið undir bagga eins og þegar slík erfiðleikaaðstaða kemur upp og á móti blæs. Aðeins slurkar af og til þetta árið Undanfarin ár höfum við getað haldið hreinum reikningum, en nú eru þetta aðeins slurkar af og til og heldur óhreint þetta árið. Við erum því ekkert hissa á þessum hótunum því við höfum ekki getað staðið okkur nógu vel í að greiða skuldirnar. Hins vegar hefur verið mjög góð samvinna við þessa menn og þeir eru áreiðanlega ekki að gera það að gamni sínu að hóta okkur lokun. Þess ber þó að geta að t.d. við höfum aldrei átt svona mikið af freðfiski eins og nú á þessum tíma árs. Það hefur reyndar litlu verið skipað út síðan fyrir útskipunar- bannið, en þá var að sögn kunn- ugra tekið allt of mikið fyrirfram og það hefur ruglað deilingunni síðan. Þá spilar það einnig inn í að við höfum ekkert saltað í sumar végna erfiðleika á þeim vettvangi, en alls eigum við nú í frosti 12—14 þús. kassa.“ eftir ÞÓRI S. GUÐBERGSSON því ekki feimin við að leika viö börnin okkar og taka þátt í hugmyndaflugi þeirra, sem oft er svo einfalt og skemmtilegt. Við skulum meira að segja sleppa svolítið fram af okkur „ taumnum og reyna að lifa okkur aftur inn í hugmyndaheim þeirra og taka þátt í leikjum þeirra af lífi og sál. Einlægni þeirra og frumlegheit er oft með eindæmum, gleði þeirra og sorg eru svo heil og hrein — Það liggur jafnvel við, að maður skammist sín stundum fyrir það að vera fullorðinn! (Vera sífellt á varðbergi um hvað við getum leyft okkur og hvað ekki!) Listin aö hlusta Það er eitt, sem mig langar til þess að minnast á að lokunl. Stundum hefur það verið sagt, að fólk sé ekki einungis hætt að tala saman, það er líka hætt að hlusta almennilega hvert á annað, þegar það hittist. Loks- ins, þegar fólk mætist, talar það annaðhvort um daginn og veg- inn — eða hvorugur aðilinn má vera að því að hlusta á hinn. Hvort sem við umgöngumst börn eða fullorðna, er nauðsyn- legt, að við gefum okkur tírna til þess að hlusta hvert á annað. Börnin þurfa að fá tækifæri til þess að spyrja og tala, þau þurfa að fá tækifæri til þess að láta í ljósi tilfinningar sínar með ýmsu móti. Og þau þurfa að finna, að við séum virkir þátttakendur með þeim í öllu því, sem þau spyrja um, eftir því, sem við getum. Það er unnt að hlusta á ýmsa vegu. Stundum hlustum við með því að stein- þegja, eins og t.d. þegar við horfum á leikrit, sjónvarp eða hlustum á fyrirlestur o.s.frv. En þegar við hlustum á virkan hátt, erum við þátttakendur í öllu því, sem gerist. Ef við segjum t.d. við barnið okkar: Manstu, begar við heimsóttum dýrin á landbúnað- arsýningunni? — Og barnið svarar: ísinn! Þá höldum við áfram með sömu hugsun, sem barnið var byrjað á og rifjum upp: Já, geitin tók ísinn af stráknum, svo að hann datt á jörðina. — Þá segir barnið: gráta! — Og við svörum: Já, strákurinn var svo leiður^ áð hann fór að gráta. Svo tók pabbi hans hann í fangið og huggaði hann. — Með því að bæta örlitlu við hugsanir og tal barnanna, hjálp- um við þeim til þess að hugsa áfram, mynda nýjar setningar og auka við orðaforða þeirra. Og það er vert að geta þess, að börnum líkar yfirleitt ekki við langar ræður og orðskýringar. Þau þurfa að fá tíma til þess að hugsa, melta það, sem sagt er, bæta við og leika sér með orð og hugsanir. Þeini finnst þetta nefnilega spennandi og oft skemmtilegúr leikur og þess vegna getum við einnig snemma byrjað að lesa fyrir þau meðan þau sitja í fangi okkar, rabbað við þau í ró og öryggi og veitt þeim þann tíma, sem þau þurfa. — Börn þroskast mismun- andi hratt og byrja áð tala á mismunandi aldri, engir ein- staklingar eru nákvæmlega eins. Sértu hins vegar í vafa um, hvort barn þitt heyri illa, eða byrji að tala óvenju seint, nefndu það þá við lækni eða í ungbarnaeftirlitinu, á heilsu- gæzlustöó o.s.frv. Láttu það ekki dragast of lengi. — Á heimilinu festir barnið oftast öruggastar rætur. Það er því mikilvægt, að foreldrarnir geti veitt þeim þá hlýju, þann kærleika, uppörvun og um- hyggju, sem þau þurfa á að halda á fyrstu æviárum sínum. „Máliö“ fjallar um okkur og heim okkar ... Stundum gleymist það í um- ræðum um samskipti foreldra og/eða fullorðinna og barna, að umhverfið getur einnig átt sinn þátt í að móta málfar þeirra og þroska, hvetja þau til spurninga og áframhaldandi rannsóknar. Ef vettvangur þeirra er þröngur og veitir þeim litla möguleika á vórulegum samskiptum við leik- félaga, eru minni líkur til þess að þau læri fljótt að tala eða auki orðaforða sinn. Ef fjöl- býlishúsin eru fjölmenn, leik- vangar litlir, engir möguleikar til samskipta nema rétt í þröngum lyftum, gefur auga leið, að slíkt umhverfi hvetur ekki börnin til forvitni, rann- sóknar, umhugsunar og spurn- inga, sem leiða af sér samtöl og viðræður ásamt útskýringum og meiri samskipti. Börnin þurfa nauðsynlega að komast í samband við foreldra sína og þeir við börnin sín, börnin við systkin sín og leikfél- aga o.s.frv. Þegar barnið fer í leikskóla eða forskóla í fyrsta sinn, reynir á, hvenig því gengur að komast í samband við félaga sína, hvenig það þroskast félagslega og hvernig samskipti þess ganga við annað fólk. Og til alls þessa notar barnið málið m.a. Það talar sig áfram, það gerir sig skiljanlegt með orðum (oft líka með látbragði, svipbrigðum, hreyfingum og öðru), það setur fram óskir og bænir, það lætur í ljósi gleði og sorg, reiði og hamingju o.s.frv. Strax þegar barnið er nýfætt bregst það mismunandi við þeim hljóðum, sem það heyrir kring- um sig. Nýfætt barn þarfnast einhvers, sem talar við það, svo að það öðlist öryggi og komist í samband við einhvern. Strax í upphafi er því gott, að einhver sitji öðru hverju við rúm þess, ræði við það í mildum tóni, rauli fyrir það og syngi til skiptis. Það líða heldur ekki margar vikur, þangað til börnin fara að svara tali okkar og tónum með ýmsum hætti, og láta íljósi, hvernig þeim sjálfum líður. Málið fjllar nofnilega ætíð um okkar sjálf og þann heim. scm við lifum í. Það fjallar um hvernig okkur líður og við spyrjum, hvernig því líður, hvort það sé svangt, hvort það sé blautt, það sé með tannverki eða magaverki o.s.frv. Börnin heyra orðin, sem við segjum eða heyra, að við erum að tala, og smám saman lærir það að skilja, hvað orðin þýða og hveða merkingu þau hafa. „Málið fjallar um okkur og heim okkar Tæpitunga og hæfileikinn til pess að skilja Flestir eru á sama máli’ með það, að þess vegna sé engin þörf á því að tala neina tæpitungu við börn. Við heyrum foreldra oft segja eitthvað á þessa leið: „Gói dáku babba goma dax“ eða „Lilli krútt goma til mömmu og dúlla í doppinn" o.s.frv. Stund- um heyrum við líka í hljóðvarpi eða sjónvarpi, að sögumenn og þulir nota sérstakt orðalag eða sérstakt tónfall, þegar þau beina orðum sínum til barna, og getur það stundum virst næsta kátlegt að hluta á slíkt. Þetta þýðir þó ekki, að við tölum aldrei öðru vísi við börn og notum aldrei slíkt mál til gamans. Við notum mismunandi orðalag við börn allt eftir því á hvaða aldri þau eru, en reynum alltaf að taka þau alvarlega og gleymum því ekki, að hæfiloiki þoierra til þoss að skilja or miklu meiri en hæfiloikinn til þess að tala. mynda orð og setningar. Ég get ekki látið hjá líða að nefna hér eitt atriði í sambandi við samræður við börn. Stund- um hef ég tekið eftir því þegar fullorðið fólk heilsast, og er með börn með sér — eru margir sem sjá varla börnin. Þeir eru mest uppteknir af sjálfum sér. Og jafnvel þó að þeir heilsi börnun- um og segi: „Mikið var gaman að sjá þig“ eða „En hvað Tóta litla hefur stækkað mikið“ eða eitt- hvað í þessa áttina, þá horfir það á fullorðna fólkið moðan það or að tala við hörnin! Samveran er dýrmætur tími Mörgum börnum finnst þetta pirrandi og taka upp á ýmsu til þess að vekja athygli á sér. Við getum líka reynt að setja okkur í þeirra spor og ímynda okkur, hvernig það væri að koma í heimsóknir þar sem væri aldrei tekið eftir okkur og fólkið hefði miklu meiri áhuga á öllum öðrum en okkur. Börn oru lifandi vorur. það þarf að taka þau alvarlega og gofa þeim gaum. Þau þurfa sinn tíma — og gleymum því ekki: Það er ekki eins og það sé verið að þvinga þessum samvistum við þau upp á okkur. Því betri og meiri tíma, sem við gefum okkur meö börnum okkar, uppgötvum við fljótt, að það erum ekki bara við, sem erum að kenna þeim eitthvað um veröldina í kringum okkur, heldur erum við að upplifa hluti saman, uppgötva ný atriði í sameiningu. Og samveran verður okkur dýr- mætur tími, sem við vildum alls ekki missa af, samvera, sem eykur hamingju okkar og veitir lífinu enn meira gildi. Verum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.