Morgunblaðið - 07.10.1978, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978
Byggingariðnaðurinn:
Er viðkomubrest-
ur á næsta ley ti?
Það gæti reynst hættu-
legt í framtíðinni ef meiri
samdráttur verður í bygg-
ingariðnaðinum en orðið er
sagði Víglundur Þorsteins-
son forstjóri Steypustöðv-
arinnar B.M. Vallá er
Viðskiptasíðan spurði
hann um stöðu þessarar
atvinnugreinar í dag.
Það er aðallega þrennt
sem kemur til, sagði hann. í
fyrsta lagi er mikill skortur
á leigu- og eiginíbúðarhús-
næði í dag til að mynda á
Stór-Reykjavíkursvæðinu,
og leiðir það til stórhækk;
aðs verðlags á húsnæði. í
öðru lagi eru niðurstöður
þeirra áætlana sem gerðar
hafa verið um húsnæðis-
þörfina í framtíðinni þær
að byggja þarf mun meira
íbúðarhúsnæði, ekki ein-
ungis nú heldur einnig á
næstu árum. í þriðja lagi og
það er ef til vill mikilvægast
að aukningin sem orðið
hefur úti á landsbyggðinni
virðist nú vera minni en sá
samdráttur sem orðið hefur
á Reykjavíkursvæðinu. Sem
dæmi má nefna að steypu-
salan hefur dregist saman
um 23% frá 1976 og því er
ekki annað hægt að segja en
að útlitið sé dökkt sagði
Víglundur að lokum.
Landbúnaöar-
vörur
Janúar — Júní 1978.
Samt. 67.971 millj. kr.
Skipting heild-
arútflutningsins
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig heildarútflutningur
landsmanna, fyrstu sex mánuði ársins skiptist milli helztu
afurða. Um 75% verðmætisins var vegna útflutnings
sjávarafurða og um 22% vegna útflutnings iðnaðarvara
þar af um 16% sem útflutningur áls.
Námsstefna
HVAÐ er það nú kynni berum fyrirtækjum. í lok
e.t.v. einhver að spyrja. námsstefnunnar verða pall-
Námstefna er orð sem borðsumræður. Þátttaka
samansett er úr orðunum tilkynnist til Stjórnunar-
námskeið og ráðstefna. félagsins sími 82930.
V arist
slysin
NÚ virðist sem afleiðingar
óðaverðbólgunnar séu að fá á
sig nokkuð aðra mynd en áður
hefur komið fram.
Vegna mikilla kostnaðar-
hækkana innanlands hefur
samkeppnisaðstaða íslenskra
fyrirtækja versnað til muna
bæði hér heima og erlendis. Nú
upp á síðkastið hafa verið að
birtast í blöðum ályktanir frá
hinum ýmsu samtökum þar sem
skorað er á stjórnvöld að grípa
til hafta og annarra inn-
flutningstakmarkana til að
vernda hina innlendu fram-
leiðslu eða með öðrum orðum
hverfa aftur til haftatímabils-
ins. Rétt er að vara við þess
háttar samþykktum þar sem
höft á innflutning til landsins
hafa aldrei gefist vel, hvorki
fyrr á öldum né á þessari.
Mikil íssala í sumar
EINS og svo margt annað er
fssalan f landinu all mikið háð
veðurfarinu. Til að kanna
hvernig sumarsalan hafði
gengið fyrir sig ræddi Við-
skiptasíðan við fulltrúa
Mjólkursamsölunnar og Kjörís
h.f.
Eiríkur Þorkelsson
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Stjórnunarfélagið mun hafa
hina fyrstu sinnar tegundar
hérlendis og verður hún
haldin 12. október n.k.
Viðfangsefni námsstefn-
unnar verður fjármála-
stjórn fyrirtækja og er
óhætt að segja að fjallað
verði um þetta efni frá
öllum hliðum. Rætt verður
m.a. um nýjungar á sviði
fjármálafræða, samskipti
fyrirtækja og bankastofn-
ana og fjármálastjórn hjá
smáum sem stórum fyrir-
tækjum og einnig hjá opin-
Staðan aldrei verri
EINS og skýrt var frá hér á
Viðskiptasiðunni á laugardaginn
er staða verzlunarfyrirtækja
ekki eins góð í dag og oft er talið.
f meðfylgjandi töflu má sjá
þróun síðustu fjögurra ára og er
byggt á upplýsingum frá Þjóð-
hagsstofnun. Kemur fram að
staða verzlunarinnar er almennt
mjög slæm og er þó miðað við júlí
— ágúst skilyrði á þessu ári og
ekki hafa þau batnað eftir
kostnaðarhækkanir í september
og 10.5% lækkun álagningar.
Hagnaður í verzlun,
1975 - 1978.°
1975 1976 1977 1978
Byggingarvöruverzl. 2,9% 2,5% 2,6% 0,5%
Bifreiðaverzlun 1,3% 2,2% 3,9% 3,3%
Heildverzlun 3,4% 3,1% 3,2% 1,5%
Smásöluverzlun 1,6% 1,6% 1,8% 0,4%
1) Hrcinn haunartur Iyrir skatta sem hlutfail af heildartekjum.
sölustjóri hjá Mjólkursamsöl-
unni sagði að í heild hefði
sumarið verið mjög hagstætt
hjá þeim þó auðvitað væri það
misjafnt eftir tegundum. Þrátt
fyrir að sumarið hafi ekki verið
sérlega hlýtt þá varð salan
nokkuð góð og má aðallega
þakka það mörgum stórmótum
og sýningum sem haldin voru í
sumar. Hvað varðar sölu úti á
landi sagði Eiríkur að áberandi
væri hversu margir færu hring-
veginn.
Hafsteinn Kristinsson hjá
Kjörís sagðist vera nokkuð
ánægður með söluna í sumar
hjá sér. Mest væri um pinna- og
toppasölu að ræða á sumrin en
aftur pakka og tertur á veturna
og er þá auðvitað mest að gera í
kring um stórhátíðir og
fermingar en einnig virðist mér
sem mikið sé um að vera við
skólaslit og vertíðarlok að
vorinu. Hafsteinn sagði að
salan að sumrinu gæti orðið allt
að fjórum sinnum meiri yfir
sumarmánuðina en á vetrum,
þ.e. þegar einstakir mánuðir
eru bornir saman. Þetta er þó
mun minni sveifla en þekkist
bíða erlendis og felst þetta í því
að um meiri neyzlu er að ræða .
hjá okkur innandyra. íssalan er
mikil hjá okkur miðað við aðrar
þjóðir og hefur aukist á síðustu
árum, sagði Hafsteinn að lok-
um.