Morgunblaðið - 07.10.1978, Side 31

Morgunblaðið - 07.10.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978 3 1 teldi hún að einhver þyrfti ein- hvers við, beitti hún sínum brögð- um til að gæta okkar allra og koma málum sem best í höfn. Aldrei sá ég hana flýta sér og afar sjaldan bregða skapi. Þó var vinnudagur hennar lengri og erilsamari á stóru sveitaheimili en flesta grunar. Einhvern veginn gerðist allt á réttum stað og réttum tíma án þess að maður tæki sérstaklega eftir því að Pálína stæði á bak við það. Kannski var það af því að hún hafði einstakt lag á að fá mann til að spauga ef eitthvað gékk úr- skeiðis. Það var alveg sérstaklega gaman að hlæja með henni að lífinu. Fyrst kom þessi glampi í augun, sem boðaði að nú ætti að bregða á glens, orð eða athuga- semd sem kom manni til að fara að hugsa um eitthvað spaugilegt og eftir það var grunnt í gamanið og léttan hlátur. Þá naut Pálína mín í Geldingaholti lífsins í ríkum mæli. — Lengi áttum við saman að hlátursefni minninguna um þegar hún kom tveim stórum saltfisk- stykkjum ofan í matvandan stelpugopa úr Reykjavík. Það gerði hún með því að bjóða henni að kenna sér hvernig „fyrirfólkið" hefði það í veislum í stórborgum. Við munum hafa leikið heimskon- ur af slíkri hjartans lyst þann dag við gamla baðstofuborðið, að saltfiskur hefur ekki síðan staðið í sumarbarninu því. Ég kveð trygga aldna vinkonu mína með hlýju, virðingu og þakklæti í huga. Vigdís Finnbogadóttir. Pálína Guðmundsdóttir, hús- freyja í Eystra-Geldingaholti, lést hinn 28.9 s.l. og verður útför hennar gerð í dag frá sóknarkirkju hennar aö Stóra-Núpi. Hún var fædd í Hólakoti- íHrunamann- hreppi árið 1891, dóttir hjónanna þar, Guðmundar Isákssonar og Guðrúnar Brynjólfsdóttur. Brynjólfur Einarsson, hreppstjóri á Sóleyjarbakka, var landskunnur maður sem mikil ætt er frá komin, þar á meðal miklir hagleiksmenn og fleiri þekktir glímumenn en ég veit um í öðrum ættum. Allt bendir þetta á nokkurt atgerfi. Pálína Guðmundsdóttir ólst upp í foreldrahúsum við fremur kröpp kjör eins og flestar jafnöldrur hennar í þá daga^ en í „heiðursfá- tækt“. Heimili hennar varð ég ekki kunnugur fyrr en hún, á ungum aldri, gerðist húsfreyja í Eystra-Geldingaholti og giftist bóndasyninum þar, Ólafi Jónssyni, en þar hafa þau búið síðan 1919 lengst af við vaxandi rausn og góðar ástæður, uns nú á síðari árum að elli hefur vikið þeim hægt og hægt til hliðar, sem eðlilegt verður að telja. Pálina hafði fríðleik meira en í meðallagi borinn af miklum þokka án alls yfirlætis. Þó verður glaðlyndi eitt besta einkenni hennar og lyndis- einkunn öil. Ef byggð ból ættu sér óskastund held ég að Geldingaholt hafi hitt á eina slíka er Pálina fluttist þangað; þar hafði áður verið sæmileg gnótt í búi og myndarskapur, en við komu hinn- ar háttvísu konu var sem allt fengi nýjan tilgang. Hún virtist flytja með sér áhuga fyrir blómarækt og fegrun heimilis, sem hefur reynst arfgengur svo að nú hefur þetta átak fjölskyldunnar orðið að híbýlaprýði til fyrirmyndar. Manni sínum var Pálína svo góð eiginkona að ekki virtist verða á betra kosið. Til munu vera þeir í nútímanum, sem mundi þykja þetta hafa verið um of, í það minnsta þeir sem ekki vilja fallast á að sælla sé að gefa en þiggja. Þetta kunni maður hennar þó vel að meta og því betur eftir því sem lengra leið á æfi þeirra. Sameigin- lega má þakka þeim hjónum hina miklu hjúasæld er þau alltaf nutu. Það lætur því að líkum að hin látna heiðurskona var hvers manns hugljúfi á heimilinu, ekki síst átti hún hylli tengdaforeldra sinna meðan þeirra naut við. Minnisstæð er mér skapfesta hennar er hún var hrædd um að hinu góða nágrenni er hún ávallt bjó í væri nokkur hætta búin. Þá varð þessi gæfa kona einbætt og kom í veg fyrir að óþörf orð bærust á milli bæjanna. Þeim hjónum varð fjögurra barna huðið, sem öll eru nú komin á miðjan aldur, þau eru: Jón, bóndi í Eystra-Geldingaholti, hefur lengi verið áhrifamaður í sveitinni, nú búnaðarþingsfulltrúi, kona hans er Margrét Eiríksdóttir, frá Steinsholti, hún hefur samlagast heimilinu vel og reynst tengdafor- eldrunum þar eftir; Inga, kona Stefáns Björnssonar, forstjóra Mjólkursamsölunnar, mikil garð- yrkju- og trjáræktarkona; Guðrún, hefur lengi stundað farmennsku, gift Haraldi Pálmasyni og eig þau heimili í Reykjavík; Hrefna, handavinnukennari við Flúða- skóla, er mikil garðyrkju- og biómaræktarkona, gift Guðmundi Sigurdórssýni flutningabílstjóra. Vini mínum Ólafi Jónssyni, sem nú fetar tíunda áratuginn, óska ég rósemi hugans á einmana göngu. Einar Gestsson. Lokaö vegna breytinga. Strandgötu 1 HafnarfirSi sími 52502. 711 suðurs tneð SUNNU VELKOMIN SUNNUHÁTÍÐ Grísaveisla Kanaríeyjakvöld Hótel Sögu Sunnudagskvöld 8. 10. WL Kl. 19.00: húsiö opnar, spánskur veislumatur fyrir jpT aöeins kr. 3.500.00 Stutt ferðakynning, sagt frá mörgum spennandi wl feröamöguleikum vetrarins, til Kanaríeyja og fleiri v staöa, stutt litkvikmynd frá Kanaríeyjum. Tískusýning: Karonstúlkur sýna þaö nýjasta í kvenfatatískunni. Guðrún Á. Símonar óperusöngkona syngur og kemur öllum í gott skap meö sinni frábæru snilld. BINGO 3 sólarlandaferðavinningar. Dansað til kl. 01.00 Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og söngkonan Edda Siguröardóttir flytja meöal annárs spánska músík. Aukavinningur 16 daga Kanaríeyjaferö 13. okt í ÓKEYPIS happdrætti fyrir þá gesti sem mættir eru fyrir kl. 20.00. Pantið borð tímanlega hjá yfirþjóni föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 15.00 í síma 20221. Allir velkomnir enginn aögangseyrir nema rúllugjaldiö. Missiö ekki af ódýrri og góöri skemmtun og spánskri matarveislu. Leikhúskjallarinn Leikhúsgestir, byrjiö leikhúsferðina hjá okkur. Kvöldveröur frá kl. 18. Boröpantanir í síma 19636. Skuggar leika til kl. 2. Spariklæðnaður. Stórkostlegt kvöld í Aratungul J f'teö v* Dúmbó og Steini leika í Aratungu í kvöld Sætaferðir frá Selfossi, Laugarvatni og BSÍ. Allir í Dúmbó-stuöiö í Aratungu í kvöld veröur haldin í lönaöarmannahúsinu viö Hallveigarstíg í dag og á morgun, kl. 2, ef birgöir endast. Meöal vinninga utanlandsferö meö Útsýn til Lignano. Verömæti 150 þús. Fjöldi góöra vinninga frá Niöursuöuverksmiöjunni Ora og Heklu h.f. m.a. Wigo kaffikanna aö verömæti 23 þús. kr. og Kenwood hrærivél aö verömæti 21 þús. kr. Fjöldi eigulegra vinninga — Þúsundir númera. Enginn núll. körfuknattleiksdeild ír

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.