Morgunblaðið - 11.10.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnaö.
Verölistinn, Laugarnesvegi 82,'
S. 31330.
Til leigu
stofa með innbyggöum skáp,
aögangi aö eldhúsi, baöi og
síma. Aöeins reglusamur kven-
maöur kemur til greina. Tilboö
með uppl. sendist Mbl. merkt:
„X — 3629“.
Keflavík
til sölu m.a. 2ja herb. efri hæö í
eldra tiúsi. 3ja herb. neöri hæö.
4ra herb. efsta hæö í fjölbýlis-
húsi. 5 herb. neöri hæö í
tvíbýlishúsi. Neðri hæö í tvíbýl-
ishúsi. Neöri hæö í tvíbýlishúsi
ásamt hálfum kjallara. í kjallara
eru 2 herb. geymslur, frystiklefi
og fl. 90 fm bílskúr fylgir.
Einstök kjör.
Verzlunarhúsnæöi á góöum
staö 110 fm. lönaðarhúsnæði
160 fm. Grunnur að raðhúsi.
Gluggar fylgja. Vantar allar
geröir fasteigna á söluskrá.
Mjög góöar útb.
Njarðvík Góö 3ja herb. risíbúö.
Hitaveita. Bílskúr. 2ja herb.
kjallaraíbúö.
Sandgeröi höfum góöan kaup-
anda aö einbýlishúsi. Bílskúr
þarf aö fylgja.
Eigna- og veröbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavík,
sími 92-3222.
□ Glitnir 597810117 — 1.
O Helgafell 597810117 VI — 2
I.O.O.F. 9 = 16010118'/!= S.K.
I.O.O.F 7 = 16010117% =
Fíladelfía
Samkomur veröa í dag kl. 17.00
og 20:30. Ræðumaður Dr.
Thompson frá Kaliforníu.
Hörgshlíð
Samkoma í kvöld, miðvikudag
kl. 8.
Frá Sálarrannsóknar-
félaginu í Hafnarfiröi
Fundur veröur fimmtudaginn
12. okt. í lönaðarmannahúsinu
viö Linnetsstíg og hefst kl.
20.30.
Dagskrá: Örn Guðmundsson
flytur erindi meö litskyggnum
um blik eöa áru mannsins og
Úlfur Ragnarsson, yfirlæknir
ræöir um sálræn efni.
Hjálmtýr Hjálmtýsson syngur
viö undirleik Guðna Þ. Guö-
mundssonar.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Kristniboössambandið
Almenn samkoma verður í
kristniboöshúsinu Betanía Lauf-
ásvegi 13 í kvöld kl. 20.30.
Katrín Guölaugsdóttir og Gísli
Arnkelsson kristniboöar tafa.
Allir velkomnir.
Aöalfundur skíðadeildar Fram
veröur haldinn fimmtudaginn
19. október kl. 20.30, í félags-
heimilinu viö Safamýri.
Fundarefni: Venjuleg aöalfund-
arstörf, lyftukaup, önnur mál.
Sjálfboðaliöar óskast til starfa
um næstu helgi, til þess aö reisa
Ijósastaura og grafa fyrir jarö-
streng. Hafið meö ykkur skóflu
og nesti.
Stjórnin.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Námsskeiö í hnýtingum hefst
mánudaginn 16. október. Upp-
lýsingar og innritun, í síma
23630 eftir kl. 6 e.h.
Laugarneskirkja
í kvöld kl. 20.30 veröur fyrsti
biblíulesturinn í vetur. Allir
velkomnir.
Sóknarprestur.
I.O.G.T. St.
Verðandi nr. 9
Fundur í kvöld kl. 8.30 í
Templarahöllinni. Gestakvöld,
opinn fundur. Framkvæmda-
nefnd umdæmisstúkunnar
mætir.
Æ.T.
M (il.VSIMiASlMIW I l<
22180
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Fornprent og
gamlar bækur
Nockrir margfroodir söguþætter, Hólum 1746
Nya Testamenti (Vajsenhus), Kaupm.höfn 1750
Undir^un um Christenndomenn Vídalín, Kh.
1740
Flockbók (Bræörabókin), Kaupm.höfn 1746
Njáls saga (Olavius), 1. útg.,Kaupm.höfn 1772
Njáls saga (Viöey), 2. útg. 1844.
Saga mannsandans 1—5, Andvökur 1—4,
íslandsklukkan 1—3, Skagfirzkar æviskrár
1—4, Göngur og réttir 1—5, Saga Hafnar-
fjaröar, Pan, bækur Hagalíns, úrval nótnabóka,
íslenzkra og erlendra auk þúsunda bóka í öllum
efnum. Sendum í póstkröfu.
Fornbókahlaðan
Skólavörðustíg 20
Reykjavík, Sími 29720.
Lítil saumastofa til sölu
Upplýsingar í síma 42962 og 42323 eftir kl.
7.
Lopapeysur
Kaupum lopapeysur opnar og lokaöar,
allar stæröir nema minnstu kvenstærö. Sími
14020 mánudaga — fimmtudaga kl. 4—6.
Röskva h.f.
Austurstræti 17, 4. hæö.
Nauöungaruppboö
sem auglýst var í 8., 11. og 13. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1978 á
fasteigninni Búöarvegi 27, Fáskrúösfirði, þinglesin eign Trésmiöju
Austurlands h.f., fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóös,
lönþróunarsjóös, og Byggöarsjóös á eigninni sjálfri mánudaginn 16.
október 1978 kl. 10 árdegis.
SýslumaOurinn í Suöur-Múlasýslu.
Einbýlishús eða stór fbúð
óskast til kaups eöa leigu hiö fyrsta, í
nágrenni forlags okkar; Tilboö vinsamlegast
sendist í pósthólf 294, 121 Rvík.
Iðunn,
Bræðraborgarstíg 16.
Sjilfstæðisfélögin í Breiðholtshverfum
Spilakvöld
Miövikudaginn 11/10, hefst þriggja kvölda keppni í félagsvist, í
félagsheimili sjálfstæöismanna aö Seljabraut 54 (Húsi Kjöts & Fisks).
Góö verðlaun. Húsiö opnaö kl. 20.
Sjálfstæöisfólk: fjölmenniö og takiö meö ykkur gesti.
Aðalfundur
kjördæmisráös noröurlands eystra veröur
í Sjálfstæöishúsinu Akureyri kl. 10
árdegis.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Jón G. Sólnes alþingismaöur ræöir
stjórnmálaviöhorfið.
Stjórnin.
Félag Sjálfstæöismanna í Bakka- og Stekkjahverfi
Aðalfundur
Aöalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 15. október að
Seljabraut 54.
Fundurinn hefst kl. 17.30.
Dagskrá.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ræöa: Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi.
Sunnudagínn 15. okt. kl. 17.30 að Seljabraut 54.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Edda, Kópavogi
heldur aöaltund þriöjudaginn 17. okt. 1978 kl. 21.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Veitingar.
Önnur mál.
Innritun á námskeið er haldin veröa í vetur fer fram á fundinum.
Stjórnin.
Félag sjálfstæöismanna í Árbæjar og Seláshverfi
Aðalfundur
Aöalfundur félagsins veröur haldinn miövikudaginn 11. okt. að
Hraunbæ 102B (suöurhliö). Fundurinn hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Framtíö og nýting félagsheimilisins.
Ræða: Ólafur B. Thors borgarfulltrúi.
Miðvíkudaginn 11. okt. kl. 20.30,
Hraunbæ 102B.
Stjórnin
Minning—Eiríkur
Yngvi Sigurjónsson
Fæddur 17. ágúst 1937.
Dáinn 2. október 1978.
Hinn 2. október sl. andaðist
Eiríkur Y. Sigurjónsson, til heim-
ilis að Smáratúni 10, Keflavík, af
afleiðingum slyss, er hann varð
fyrir við vinnu sína 17. sept. sl.
Eiríkur fæddist hinn 17. ágúst
1937 að Búðarholti, A-Landeyjum.
Foreldrar hans eru hjónin
Margrét Jósepsdóttir og Sigurjón
Einarsson, sem þá bjuggu að
Búðarholti, en nú eru búsett í
Vestmannaeyjum.
Eiríkur ólst upp hjá foreldrum
sínum að Búðarholti til 14 ára
aldurs, en flutti þá með foreldrum
sínum til Vestmannaeyja og dvaldi
þar til 1973, er eldgosið varð. í
Vestmannaeyjum starfaði hann
fyrstu árin við almenna vinnu, en
er aldur leyfði, hóf hann aö aka
vörubifreið og fékkst við það starf
æ síðan.
Afleiðingar eldgossins urðu fyr-
ir hann, eins og aðra, að hrekjast
frá Eyjum. Settist hann þá að í
Keflavík og dvaldi þar síðan til
dauðadags og stundaði enn sem
fyrr vörubílaakstur.
Árið 1961 festi Eiríkur ráð sitt
og kvæntist Sigrúnu Karlsdóttur,
frá Húsavík. Byggðu þau upp
heimili sitt í Eyjum og áttu nýlegt
hús, er fór undir hraun í gosinu.
Eftir að þau fluttu til Keflavíkur
eignuðust þau einbýlishús og
höfðu komið sér vel fyrir, þegar
Eiríkur féll frá. Börn þeirra hjóna
urðu fjögur. Þau eru Sigurjón 17
ára, Margrét 16 ára, Eygló 14 ára
og Rúnar 10 ára. Áður átti Sigrún
son, Karl, nú 22 ára, og reyndist
Eiríkur honum sem sannur faðir.
Öll eru börn - þeirra hjóna í
foreldrahúsum.
Eins og áður sagði, stundaði
Eiríkur vörubifreiðaakstur á eigin
bíl. Bíllinn var útbúinn með
lyftukrana og annaðist Eiríkur
hleðslu og afhleðslu sjálfur, eftir
því sem verkefnin sögðu til.
Eiríkur var með afbrigðum vinnu-
samur maður og sleppti ei vinnu
úr hendi, hvorki helga daga né
virka, ef vinna gafst.
Ég kynntist Eiríki árið 1972.
Ástæðan var sú, að kona mín og
Sigrún kona Eiríks voru æskuvin-
konur, báðar frá Húsavík. Eftir að
Eiríkur flutti með fjölskyldu sína
til Keflavíkur, varð samgangur á
milli fjölskyldna okkar mjög
láikill. Við það urðu kynnin náin.
Eiríkur var að mörgu leyti sér-
stæður og vel gerður maður. Hann
var mikill á velli, stór og sterkur
og bar sig vel. Hann var skemmt-
inn í viðræðum og glaðsinna.
Hann fékkst nokkuð við leiklist
meðan hann bjó í Vestmannaeyj-
um og samdi þá nokkra smá
leikþætti. Greiðvikni hans var
einstök og alltaf virtist hann hafa
tíma til alls, hvernig sem á stóð
fyrir honum. Hann var hæglátur í
framgöngu og prúður, en vánnst
vei, enda afkastamikill við vinnu.
Hann kom oft í óvæntar heim-
sóknir, er hann átti leið framhjá á
vörubíl sínum. Voru þær heim-
sóknir sérlega ánægjulegar.
Ég tel mig lánsaman að hafa átt
þess kost að kynnast Eiríki og eiga
hann að vini. Mannkostir hans
voru slíkir, að hann var veitandi
en ekki þiggjandi í samskiptum við
aðra. Slíkra manna er gott að
minnast. Um leið og ég og kona
mín þökkum Eiríki fyrir einlæga
vináttu hans og allar ánægjulegu
samverustundirnar með honum,
vottum við hjónin konu hans og
börnum samúð okkar og biðjum
þeim guðsblessunar.
Ólafur Ólafsson.